{"id":2463,"date":"2017-12-30T21:03:18","date_gmt":"2017-12-30T21:03:18","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esek%c2%92el-44-kafli\/"},"modified":"2024-07-03T22:14:13","modified_gmt":"2024-07-03T22:14:13","slug":"esekiel-44-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-44-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 44. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Loka\u00f0 hli\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Ma\u00f0urinn leiddi mig aftur a\u00f0 ytra hli\u00f0i helgid\u00f3msins sem sn\u00fdr \u00ed austur. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 mig: \u00deetta hli\u00f0 skal vera loka\u00f0. Ekki m\u00e1 opna \u00fea\u00f0 og enginn ma\u00f0ur m\u00e1 ganga um \u00fea\u00f0. \u00dear sem Drottinn Gu\u00f0 \u00cdsraels kom inn um \u00fea\u00f0 skal \u00fea\u00f0 vera loka\u00f0. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00dear sem landsh\u00f6f\u00f0inginn er landsh\u00f6f\u00f0ingi m\u00e1 hann sitja inni \u00ed hli\u00f0inu og neyta matar frammi fyrir augliti Drottins. Hann \u00e1 a\u00f0 ganga inn \u00ed hli\u00f0i\u00f0 \u00far forsal hli\u00f0byggingarinnar og ganga \u00fat s\u00f6mu lei\u00f0.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Lev\u00edtar og prestar<\/h3>\n<p><a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00e1 leiddi ma\u00f0urinn mig um nor\u00f0urhli\u00f0i\u00f0 a\u00f0 framhli\u00f0 h\u00fassins. \u00deegar \u00e9g horf\u00f0i \u00feanga\u00f0 s\u00e1 \u00e9g a\u00f0 d\u00fdr\u00f0 Drottins fyllti h\u00fas Drottins og \u00e9g f\u00e9ll fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu m\u00edna. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 mig: Mannssonur, taktu n\u00fa vel eftir og horf\u00f0u me\u00f0 augum \u00fe\u00ednum og hlusta\u00f0u me\u00f0 eyrum \u00fe\u00ednum \u00e1 allt sem \u00e9g segi \u00fe\u00e9r um \u00f6ll \u00e1kv\u00e6\u00f0in um h\u00fas Drottins og \u00f6ll l\u00f6gin um \u00fea\u00f0. Haf\u00f0u einnig n\u00e1nar g\u00e6tur \u00e1 inng\u00f6ngudyrum musterisins og \u00f6llum \u00fatg\u00f6ngudyrum helgid\u00f3msins.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt segja vi\u00f0 hina \u00fever\u00fa\u00f0ugu, vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: N\u00fa er n\u00f3g komi\u00f0 af \u00f6llum ykkar vi\u00f0urstygg\u00f0um, \u00cdsraelsmenn. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 leyft \u00fatlendingum, sem hvorki eru umskornir \u00e1 hjarta n\u00e9 holdi, a\u00f0 koma inn \u00ed helgid\u00f3m minn og saurga hann, h\u00fas mitt, \u00feegar \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 bori\u00f0 fram mat minn, m\u00f6r og bl\u00f3\u00f0. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 rofi\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1lann vi\u00f0 mig me\u00f0 allri ykkar sv\u00edvir\u00f0u. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 \u00f6nnu\u00f0ust ekki \u00fej\u00f3nustuna \u00ed helgid\u00f3mi m\u00ednum en l\u00e9tu\u00f0 \u00fatlendinga annast hana fyrir ykkur \u00ed helgid\u00f3mi m\u00ednum.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn svo: Enginn \u00fatlendingur, sem hvorki er umskorinn \u00e1 hjarta n\u00e9 holdi, m\u00e1 koma inn \u00ed helgid\u00f3m minn, enginn af \u00feeim \u00fatlendingum sem b\u00faa innan um \u00cdsraelsmenn. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En Lev\u00edtarnir fjarl\u00e6g\u00f0ust mig \u00feegar \u00cdsrael villtist fr\u00e1 m\u00e9r og elti skur\u00f0go\u00f0 s\u00edn og \u00feeir skulu bera aflei\u00f0ingar sektar sinnar. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00cd helgid\u00f3mi m\u00ednum eiga \u00feeir a\u00f0 annast v\u00f6rslu hli\u00f0anna \u00ed h\u00fasinu og sj\u00e1 um \u00fej\u00f3nustu \u00ed \u00fev\u00ed. \u00deeir eiga a\u00f0 sl\u00e1tra d\u00fdrum til brennif\u00f3rnar og sl\u00e1turf\u00f3rnar fyrir almenna borgara og \u00fej\u00f3na \u00feeim. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deeir \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00feeim frammi fyrir skur\u00f0go\u00f0um \u00feeirra og ur\u00f0u \u00cdraelsm\u00f6nnum \u00e1steytingarsteinn svo a\u00f0 \u00feeir f\u00e9llu \u00ed synd. \u00dev\u00ed hef \u00e9g hafi\u00f0 h\u00f6nd m\u00edna gegn \u00feeim, segir Drottinn Gu\u00f0, og \u00feeir skulu bera aflei\u00f0ingar sektar sinnar. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deeir mega ekki n\u00e1lgast mig til a\u00f0 \u00fej\u00f3na m\u00e9r sem prestar svo a\u00f0 \u00feeir n\u00e1lgist m\u00ednar heil\u00f6gu f\u00f3rnargjafir, m\u00ednar h\u00e1heil\u00f6gu f\u00f3rnargjafir. \u00deeir skulu taka \u00e1 sig eigin sm\u00e1n og aflei\u00f0ingar \u00feeirrar sv\u00edvir\u00f0u sem \u00feeir hafa frami\u00f0. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00c9g geri \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00fej\u00f3nustum\u00f6nnum \u00ed musterish\u00fasinu, \u00feeir skulu vinna hvert \u00fea\u00f0 verk sem \u00fear \u00fearf a\u00f0 vinna og gera allt sem \u00fear til fellur. <br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Lev\u00edtaprestarnir, ni\u00f0jar Sad\u00f3ks, \u00f6nnu\u00f0ust \u00fej\u00f3nustuna \u00ed helgid\u00f3mi m\u00ednum \u00feegar \u00cdsraelsmenn villtust fr\u00e1 m\u00e9r. \u00deeir skulu n\u00e1lgast mig til a\u00f0 \u00fej\u00f3na m\u00e9r, standa frammi fyrir augliti m\u00ednu og bera fram fyrir mig m\u00f6r og bl\u00f3\u00f0, segir Drottinn Gu\u00f0. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deeir skulu ganga inn \u00ed helgid\u00f3m minn og n\u00e1lgast bor\u00f0 mitt til a\u00f0 \u00fej\u00f3na m\u00e9r og \u00fea\u00f0 eru \u00feeir sem eiga a\u00f0 annast \u00fej\u00f3nustuna vi\u00f0 mig.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir ganga inn um hli\u00f0 innri forgar\u00f0sins skulu \u00feeir kl\u00e6\u00f0ast l\u00ednkl\u00e6\u00f0um. \u00deeir mega ekki vera \u00ed neinu \u00far ull \u00feegar \u00feeir gegna \u00fej\u00f3nustu \u00ed hli\u00f0um innri forgar\u00f0sins e\u00f0a inni \u00ed h\u00fasinu. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deeir skulu hafa h\u00f6fu\u00f0d\u00fak \u00far l\u00edni \u00e1 h\u00f6f\u00f0i og l\u00ednbr\u00e6kur um lendar. \u00deeir mega ekki gyr\u00f0ast neinu sem veldur svita. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir ganga \u00fat \u00ed ytri forgar\u00f0inn, til f\u00f3lksins, skulu \u00feeir fara \u00far \u00feeim kl\u00e6\u00f0um sem \u00feeir b\u00e1ru vi\u00f0 \u00fej\u00f3nustuna og skilja \u00feau eftir \u00ed hinum heil\u00f6gu herbergjum og fara \u00ed \u00f6nnur f\u00f6t svo a\u00f0 \u00feeir helgi ekki f\u00f3lki\u00f0 me\u00f0 kl\u00e6\u00f0um s\u00ednum. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deeir mega hvorki raka h\u00f6fu\u00f0 sitt n\u00e9 l\u00e1ta h\u00e1ri\u00f0 flaksa laust. \u00deeir skulu skera h\u00f6fu\u00f0h\u00e1r sitt stutt. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Enginn prestur m\u00e1 drekka v\u00edn \u00feegar hann gengur inn \u00ed innri forgar\u00f0inn. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00deeir mega ekki ganga a\u00f0 eiga ekkjur e\u00f0a fr\u00e1skildar konur, heldur a\u00f0eins meyjar af \u00e6tt \u00cdsraelsmanna. En \u00feeir mega taka s\u00e9r prestsekkju a\u00f0 eiginkonu. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00deeir skulu lei\u00f0beina \u00fej\u00f3\u00f0 minni um muninn \u00e1 \u00fev\u00ed sem er heilagt og vanheilagt og kenna henni muninn \u00e1 \u00f3hreinu og hreinu. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00deeir skulu koma fram sem d\u00f3marar \u00ed deilum\u00e1lum fyrir r\u00e9tti og d\u00e6ma samkv\u00e6mt r\u00e9ttarreglum m\u00ednum. \u00c1 \u00f6llum h\u00e1t\u00ed\u00f0um m\u00ednum skulu \u00feeir halda l\u00f6g m\u00edn og \u00e1kv\u00e6\u00f0i og halda hv\u00edldardaga m\u00edna heilaga. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00deeir mega ekki saurga sig \u00e1 a\u00f0 n\u00e1lgast l\u00e1tinn mann. \u00deeir mega a\u00f0eins saurgast \u00e1 l\u00edki f\u00f6\u00f0ur, m\u00f3\u00f0ur, sonar, d\u00f3ttur, br\u00f3\u00f0ur e\u00f0a systur sem enn hefur ekki veri\u00f0 gefin manni. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> En eftir a\u00f0 hann hefur veri\u00f0 \u00farskur\u00f0a\u00f0ur hreinn skulu sj\u00f6 dagar l\u00ed\u00f0a. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Og daginn sem hann gengur inn \u00ed innri forgar\u00f0 helgid\u00f3msins, til \u00feess a\u00f0 gegna \u00fej\u00f3nustu \u00fear, skal hann f\u00e6ra syndaf\u00f3rn fyrir sig, segir Drottinn Gu\u00f0. <br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Prestarnir mega ekki eiga neinn erf\u00f0ahlut, \u00e9g er erf\u00f0ahlutur \u00feeirra. \u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki gefa \u00feeim neina eign \u00ed \u00cdsrael, \u00e9g er eign \u00feeirra. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00deeir skulu neyta kornf\u00f3rnarinnar, syndaf\u00f3rnarinnar og sektarf\u00f3rnarinnar, og allt sem helga\u00f0 er banni \u00ed \u00cdsrael skal vera \u00feeirra eign. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Prestarnir skulu f\u00e1 \u00fea\u00f0 besta af \u00f6llum frumgr\u00f3\u00f0a, hva\u00f0 sem \u00fea\u00f0 er, og af \u00f6llum afgj\u00f6ldum, hver sem \u00feau eru, af \u00f6llum afgj\u00f6ldum ykkar yfirleitt. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 gefa prestinum \u00fea\u00f0 besta af deigi ykkar svo a\u00f0 blessun hv\u00edli yfir h\u00fasi ykkar. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Prestarnir mega hvorki leggja s\u00e9r til munns sj\u00e1lfdautt n\u00e9 d\u00fdrrifi\u00f0, hvort heldur \u00fea\u00f0 er fuglar e\u00f0a b\u00faf\u00e9.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Loka\u00f0 hli\u00f0 1 Ma\u00f0urinn leiddi mig aftur a\u00f0 ytra hli\u00f0i helgid\u00f3msins sem sn\u00fdr \u00ed austur. 2 \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 mig: \u00deetta hli\u00f0 skal vera loka\u00f0. Ekki m\u00e1 opna \u00fea\u00f0 og enginn ma\u00f0ur m\u00e1 ganga um \u00fea\u00f0. \u00dear sem Drottinn Gu\u00f0 \u00cdsraels kom inn um \u00fea\u00f0 skal \u00fea\u00f0 vera loka\u00f0. 3 \u00dear sem landsh\u00f6f\u00f0inginn er landsh\u00f6f\u00f0ingi m\u00e1 hann sitja inni \u00ed hli\u00f0inu og neyta matar frammi fyrir augliti Drottins. Hann \u00e1 a\u00f0 ganga inn \u00ed hli\u00f0i\u00f0 \u00far forsal hli\u00f0byggingarinnar og ganga \u00fat s\u00f6mu lei\u00f0. Lev\u00edtar og prestar 4 \u00de\u00e1 leiddi ma\u00f0urinn mig um nor\u00f0urhli\u00f0i\u00f0 a\u00f0 framhli\u00f0 h\u00fassins. \u00deegar \u00e9g horf\u00f0i <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-44-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2463","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2463","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2463"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2463\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2463"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}