{"id":2455,"date":"2017-12-30T21:03:13","date_gmt":"2017-12-30T21:03:13","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esek%c2%92el-36-kafli\/"},"modified":"2024-07-03T22:14:12","modified_gmt":"2024-07-03T22:14:12","slug":"esekiel-36-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-36-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 36. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> \u00cdsraels fj\u00f6ll munu bl\u00f3mgast<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00de\u00fa, mannssonur, sp\u00e1 fyrir fj\u00f6llum \u00cdsraels og seg: \u00cdsraelsfj\u00f6ll. Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Fjandmennirnir hafa sagt um ykkur: \u00c6varandi au\u00f0n. H\u00fan er or\u00f0in okkar eign. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Flyttu \u00fev\u00ed sp\u00e1mannlegan bo\u00f0skap og seg\u00f0u: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Ykkur hefur veri\u00f0 eytt og a\u00f0 ykkur veist \u00far \u00f6llum \u00e1ttum, svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 eru\u00f0 or\u00f0in eign annarra \u00fej\u00f3\u00f0a. F\u00f3lk hefur haft ykkur a\u00f0 h\u00e1\u00f0i og spotti. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00cdsraelsfj\u00f6ll! Heyri\u00f0 \u00fev\u00ed or\u00f0 Drottins Gu\u00f0s: Svo segir Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 fj\u00f6llin og h\u00e6\u00f0irnar, gilin og dalina, au\u00f0u r\u00fastirnar og yfirgefnu borgirnar sem ur\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0unum umhverfis a\u00f0 herfangi og spotti. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn Gu\u00f0 svo: Af brennandi \u00e1kafa mun \u00e9g tala gegn hinum \u00fej\u00f3\u00f0unum og \u00f6llum Ed\u00f3m. \u00de\u00e6r hafa slegi\u00f0 eign sinni \u00e1 land mitt og reki\u00f0 \u00edb\u00faana burt, illkvittnar og fullar fyrirlitningar, svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r geti r\u00e6nt \u00fe\u00e1. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Sp\u00e1\u00f0u um land \u00cdsraels og seg\u00f0u vi\u00f0 fj\u00f6llin og h\u00e6\u00f0irnar, gilin og dalina: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c9g hef tala\u00f0 af \u00e1str\u00ed\u00f0ufullri heift af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 ur\u00f0u\u00f0 a\u00f0 bera ni\u00f0url\u00e6gingu annarra \u00fej\u00f3\u00f0a. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn Gu\u00f0 svo: \u00c9g hef svari\u00f0 \u00feess ei\u00f0 me\u00f0 uppr\u00e9ttri hendi a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0irnar umhverfis ykkur ver\u00f0i a\u00f0 bera s\u00edna ni\u00f0url\u00e6gingu. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> En \u00fei\u00f0, \u00cdsraelsfj\u00f6ll, munu\u00f0 skj\u00f3ta greinum og bera \u00e1vexti handa \u00fej\u00f3\u00f0 minni, \u00cdsrael, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan kemur br\u00e1tt. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> N\u00fa kem \u00e9g til ykkar og sn\u00fd m\u00e9r a\u00f0 ykkur og \u00fe\u00e1 ver\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0 b\u00e6\u00f0i r\u00e6ktu\u00f0 og \u00ed ykkur s\u00e1\u00f0. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00c9g mun fj\u00f6lga \u00edb\u00faum ykkar, \u00f6llum \u00cdsrael. Aftur ver\u00f0ur b\u00fai\u00f0 \u00ed borgunum og r\u00fastirnar ver\u00f0a endurreistar. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00c9g mun fj\u00f6lga m\u00f6nnum og skepnum \u00e1 ykkur sem munu ver\u00f0a frj\u00f3samar og margfaldast. Og \u00e9g mun l\u00e1ta menn setjast a\u00f0 \u00e1 ykkur eins og \u00e1\u00f0ur og l\u00e1ta ykkur farnast betur en \u00e1 fyrri t\u00ed\u00f0. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00c9g mun l\u00e1ta \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edna, \u00cdsrael, ganga \u00e1 ykkur. \u00deeir munu taka ykkur til eignar og \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 erf\u00f0aland \u00feeirra og munu\u00f0 aldrei gera \u00fe\u00e1 barnlausa framar.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Um \u00feig er sagt: \u00de\u00fa ert mann\u00e6ta og ger\u00f0ir \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna barnlausa. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deess vegna segi \u00e9g: \u00de\u00fa skalt ekki eta menn framar og \u00fe\u00fa skalt ekki framar svipta \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna b\u00f6rnum s\u00ednum, segir Drottinn Gu\u00f0. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00c9g mun hvorki l\u00e1ta \u00feig heyra sm\u00e1naryr\u00f0i fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum r\u00edkjum framar n\u00e9 h\u00e1\u00f0 annarra \u00fej\u00f3\u00f0a. \u00de\u00fa skalt ekki framar svipta \u00fej\u00f3\u00f0 \u00fe\u00edna b\u00f6rnum s\u00ednum, segir Drottinn Gu\u00f0.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Endurreisn \u00cdsraels<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn: <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Mannssonur, \u00feegar \u00cdsraelsmenn bjuggu \u00ed landi s\u00ednu saurgu\u00f0u \u00feeir \u00fea\u00f0 me\u00f0 breytni sinni og verkum. Breytni \u00feeirra var \u00ed m\u00ednum augum eins og \u00f3hreinleiki konu sem hefur \u00e1 kl\u00e6\u00f0um. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 j\u00f3s \u00e9g heift minni yfir \u00fe\u00e1 vegna bl\u00f3\u00f0sins sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u \u00fathellt \u00ed landinu og af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u saurga\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um s\u00ednum. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00c9g tv\u00edstra\u00f0i \u00feeim me\u00f0al annarra \u00fej\u00f3\u00f0a, \u00feeim var dreift um l\u00f6ndin. \u00c9g d\u00e6mdi \u00fe\u00e1 eftir breytni \u00feeirra og verkum. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Og hvar sem \u00feeir komu til \u00fej\u00f3\u00f0anna vanhelgu\u00f0u \u00feeir mitt heilaga nafn. \u00dev\u00ed a\u00f0 um \u00fe\u00e1 var sagt: \u00deessir menn eru \u00fej\u00f3\u00f0 Drottins en samt ur\u00f0u \u00feeir a\u00f0 yfirgefa land hans. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00c9g t\u00f3k \u00feetta n\u00e6rri m\u00e9r vegna m\u00edns heilaga nafns sem \u00cdsraelsmenn h\u00f6f\u00f0u vanhelga\u00f0 me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna sem \u00feeir komu til. <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Seg\u00f0u \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00dea\u00f0 er ekki ykkar vegna a\u00f0 \u00e9g l\u00e6t til m\u00edn taka, \u00cdsraelsmenn, heldur vegna m\u00edns heilaga nafns sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 vanhelga\u00f0 me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna sem \u00fei\u00f0 eru\u00f0 komnir til. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00c9g mun helga mitt mikla nafn sem hefur veri\u00f0 vanhelga\u00f0 \u00e1 me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 vanhelga\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra. \u00dej\u00f3\u00f0irnar munu skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, segir Drottinn Gu\u00f0, \u00feegar \u00e9g birti heilagleika minn \u00e1 ykkur fyrir augum \u00feeirra. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00c9g mun s\u00e6kja ykkur fr\u00e1 \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0unum og safna ykkur saman \u00far \u00f6llum l\u00f6ndunum og flytja ykkur til ykkar eigin lands. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00c9g mun dreypa \u00e1 ykkur hreinu vatni svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 hreinir. \u00c9g mun hreinsa ykkur af \u00f6llum \u00f3hreinindum ykkar og skur\u00f0go\u00f0um. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00c9g mun gefa ykkur n\u00fdtt hjarta og leggja ykkur n\u00fdjan anda \u00ed brj\u00f3st. \u00c9g mun taka steinhjarta\u00f0 \u00far l\u00edkama ykkar og gefa ykkur hjarta af holdi. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00c9g mun leggja ykkur anda minn \u00ed brj\u00f3st svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 fari\u00f0 a\u00f0 bo\u00f0um m\u00ednum og haldi\u00f0 reglur m\u00ednar og framfylgi\u00f0 \u00feeim. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 b\u00faa \u00ed landinu sem \u00e9g gaf fe\u00f0rum ykkar og \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 vera m\u00edn \u00fej\u00f3\u00f0 og \u00e9g skal vera Gu\u00f0 ykkar. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00c9g mun frelsa ykkur fr\u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 saurgast af. \u00de\u00e1 mun \u00e9g kalla \u00e1 korni\u00f0 og l\u00e1ta \u00fea\u00f0 spretta en ekki senda hungursney\u00f0 gegn ykkur. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00c9g mun einnig auka \u00e1v\u00f6xt trj\u00e1nna og afrakstur akranna svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feurfi\u00f0 ekki framar a\u00f0 \u00feola sm\u00e1naryr\u00f0i fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum \u00fej\u00f3\u00f0um vegna hungurs. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 minnast ykkar illu breytni og vondu verka og ykkur mun bj\u00f3\u00f0a vi\u00f0 sj\u00e1lfum ykkur vegna afbrota ykkar og illvirkja. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 er ekki ykkar vegna a\u00f0 \u00e9g l\u00e6t til m\u00edn taka, segir Drottinn Gu\u00f0, \u00fea\u00f0 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 vita. Blyg\u00f0ist ykkar og veri\u00f0 sneyptir vegna breytni ykkar, \u00cdsraelsmenn.<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Daginn sem \u00e9g hreinsa ykkur af \u00f6llum afbrotum ykkar mun \u00e9g l\u00e1ta f\u00f3lk setjast aftur a\u00f0 \u00ed borgunum og \u00fea\u00f0 sem lagt var \u00ed r\u00fast ver\u00f0ur endurreist. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Hi\u00f0 eydda land ver\u00f0ur aftur r\u00e6kta\u00f0 \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 liggja \u00ed au\u00f0n fyrir augum allra sem eiga lei\u00f0 hj\u00e1. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00deeir munu segja: \u00deetta land, sem var eytt, er or\u00f0i\u00f0 eins og gar\u00f0urinn Eden, borgirnar, sem voru lag\u00f0ar \u00ed r\u00fast, eyddar m\u00f6nnum og rifnar ni\u00f0ur, eru n\u00fa v\u00edggirtar og bygg\u00f0ar. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu \u00fej\u00f3\u00f0irnar, sem eftir eru umhverfis ykkur, skilja a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, endurreisi \u00fea\u00f0 sem rifi\u00f0 hefur veri\u00f0 ni\u00f0ur og gr\u00f3\u00f0urset \u00ed \u00fea\u00f0 land sem hefur veri\u00f0 eytt. \u00c9g, Drottinn, hef tala\u00f0 og \u00e9g geri \u00fea\u00f0 sem \u00e9g hef sagt.<br \/> <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c9g mun einnig leyfa \u00cdsraelsm\u00f6nnum a\u00f0 leita svara hj\u00e1 m\u00e9r um \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00e9g fj\u00f6lgi f\u00f3lkinu eins og hj\u00f6r\u00f0. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Borgirnar, sem voru lag\u00f0ar \u00ed r\u00fast, skulu fyllast af hj\u00f6r\u00f0um manna eins og Jer\u00fasalem af f\u00e9 \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0um, f\u00e9 helgu\u00f0u til f\u00f3rna. \u00de\u00e1 munu \u00feeir skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cdsraels fj\u00f6ll munu bl\u00f3mgast 1 \u00de\u00fa, mannssonur, sp\u00e1 fyrir fj\u00f6llum \u00cdsraels og seg: \u00cdsraelsfj\u00f6ll. Heyri\u00f0 or\u00f0 Drottins. 2 Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Fjandmennirnir hafa sagt um ykkur: \u00c6varandi au\u00f0n. H\u00fan er or\u00f0in okkar eign. 3 Flyttu \u00fev\u00ed sp\u00e1mannlegan bo\u00f0skap og seg\u00f0u: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Ykkur hefur veri\u00f0 eytt og a\u00f0 ykkur veist \u00far \u00f6llum \u00e1ttum, svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 eru\u00f0 or\u00f0in eign annarra \u00fej\u00f3\u00f0a. F\u00f3lk hefur haft ykkur a\u00f0 h\u00e1\u00f0i og spotti. 4 \u00cdsraelsfj\u00f6ll! Heyri\u00f0 \u00fev\u00ed or\u00f0 Drottins Gu\u00f0s: Svo segir Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 fj\u00f6llin og h\u00e6\u00f0irnar, gilin og dalina, au\u00f0u r\u00fastirnar og yfirgefnu borgirnar sem ur\u00f0u \u00fej\u00f3\u00f0unum umhverfis a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-36-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2455","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2455","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2455"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2455\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2455"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}