{"id":2442,"date":"2017-12-30T21:03:13","date_gmt":"2017-12-30T21:03:13","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esek%c2%92el-23-kafli\/"},"modified":"2024-07-03T22:14:09","modified_gmt":"2024-07-03T22:14:09","slug":"esekiel-23-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-23-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 23. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Systurnar Samar\u00eda og Jer\u00fasalem<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn: <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Mannssonur, einu sinni voru tv\u00e6r konur, d\u00e6tur s\u00f6mu m\u00f3\u00f0ur. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00e6r stundu\u00f0u \u00f3lifna\u00f0 \u00ed Egyptalandi, \u00fe\u00e6r h\u00f3ru\u00f0ust \u00fear \u00e1 \u00e6sku\u00e1rum. \u00dear \u00feuklu\u00f0u menn brj\u00f3st \u00feeirra og g\u00e6ldu vi\u00f0 meyjarbarm \u00feeirra. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> S\u00fa eldri h\u00e9t Ohola og systir hennar Ohol\u00edba. \u00de\u00e6r ur\u00f0u eiginkonur m\u00ednar og \u00f3lu b\u00e6\u00f0i syni og d\u00e6tur. Nafni\u00f0 Ohola t\u00e1knar Samar\u00edu en Ohol\u00edba Jer\u00fasalem. <br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En Ohola t\u00f3k fram hj\u00e1 m\u00e9r. H\u00fan girntist \u00e1stmenn s\u00edna, Ass\u00fdringa, <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> hermenn kl\u00e6dda bl\u00e1um purpura, landstj\u00f3ra og fyrirmenn. Allt voru \u00feetta gl\u00e6sileg ungmenni, riddarar r\u00ed\u00f0andi \u00e1 hestum. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> H\u00fan leita\u00f0i lags vi\u00f0 alla fremstu Ass\u00fdringa \u00ed \u00f3lifna\u00f0i s\u00ednum og saurga\u00f0i sig \u00e1 skur\u00f0go\u00f0um allra \u00feeirra sem h\u00fan girntist. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> H\u00fan l\u00e9t ekki af \u00f3lifna\u00f0inum, sem h\u00fan h\u00f3f \u00ed Egyptalandi, \u00fear sem Egyptar h\u00f6f\u00f0u lagst me\u00f0 henni \u00ed \u00e6sku hennar, g\u00e6lt vi\u00f0 meyjarbarm hennar og ausi\u00f0 yfir hana \u00f3lifna\u00f0i s\u00ednum. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00dev\u00ed seldi \u00e9g hana \u00ed hendur \u00e1stmanna sinna, Ass\u00fdringanna sem h\u00fan girntist. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deeir beru\u00f0u blyg\u00f0un hennar, t\u00f3ku syni hennar og d\u00e6tur fr\u00e1 henni og r\u00e9\u00f0u henni bana me\u00f0 sver\u00f0i. H\u00fan var\u00f0 \u00fev\u00ed \u00f6\u00f0rum konum v\u00edti til varna\u00f0ar. \u00deannig var refsid\u00f3minum yfir henni fulln\u00e6gt. <br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Systir hennar, Ohol\u00edba, var\u00f0 vitni a\u00f0 \u00feessu. Samt var h\u00fan enn spilltari \u00ed girnd sinni en systir hennar og gekk enn lengra \u00ed \u00f3lifna\u00f0i s\u00ednum en h\u00fan. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> H\u00fan girntist einnig Ass\u00fdringa, landstj\u00f3ra og fyrirmenn, fagurbrynja\u00f0a riddara \u00e1 hestum, allt voru \u00fea\u00f0 gl\u00e6sileg ungmenni. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c9g s\u00e1 a\u00f0 h\u00fan saurga\u00f0i sig. B\u00e1\u00f0ar systurnar h\u00e9ldu s\u00f6mu lei\u00f0 <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> en h\u00fan gekk lengra \u00ed \u00f3lifna\u00f0i s\u00ednum. H\u00fan s\u00e1 myndir af karlm\u00f6nnum meitla\u00f0ar \u00ed vegg. \u00deetta voru rau\u00f0m\u00e1la\u00f0ar l\u00e1gmyndir af Kaldeum <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> sem h\u00f6f\u00f0u kl\u00e6\u00f0i um lendar s\u00e9r og flaksandi h\u00f6fu\u00f0d\u00fak. Myndirnar s\u00fdndu foringja \u00e1 str\u00ed\u00f0sv\u00f6gnum, Bab\u00fdlon\u00edumenn upprunna \u00ed Kaldeu. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Um lei\u00f0 og h\u00fan s\u00e1 \u00fe\u00e1 t\u00f3k h\u00fan a\u00f0 girnast \u00fe\u00e1 og sendi bo\u00f0bera til \u00feeirra \u00ed Kaldeu. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00de\u00e1 komu Bab\u00fdlon\u00edumenn til hennar, til \u00e1starhv\u00edlu hennar og saurgu\u00f0u hana me\u00f0 \u00f3lifna\u00f0i s\u00ednum. \u00deegar h\u00fan haf\u00f0i saurgast af \u00feeim ger\u00f0ist h\u00fan \u00feeim fr\u00e1hverf. <br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00dear sem h\u00fan haf\u00f0i opinbera\u00f0 \u00f3lifna\u00f0 sinn og bera\u00f0 blyg\u00f0un s\u00edna ger\u00f0ist \u00e9g henni fr\u00e1hverfur alveg eins og \u00e9g var\u00f0 systur hennar fr\u00e1hverfur. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> En h\u00fan j\u00f3k \u00f3lifna\u00f0 sinn og minntist \u00e6sku\u00e1ra sinna \u00feegar h\u00fan stunda\u00f0i \u00f3lifna\u00f0 \u00ed Egyptalandi <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> og h\u00fan t\u00f3k a\u00f0 girnast \u00e1stmenn s\u00edna sem voru jafn hre\u00f0jamiklir og asnar og st\u00f3\u00f0 s\u00e6\u00f0isgusan \u00far \u00feeim sem \u00far st\u00f3\u00f0hestum. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00fa sakna\u00f0ir \u00f3lifna\u00f0ar \u00e6sku \u00feinnar \u00feegar menn \u00feuklu\u00f0u brj\u00f3st \u00fe\u00edn \u00ed Egyptalandi og g\u00e6ldu vi\u00f0 meyjarbarm \u00feinn.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00deess vegna, Ohol\u00edba, segir Drottinn Gu\u00f0: N\u00fa egni \u00e9g \u00e1stmenn \u00fe\u00edna, sem \u00fe\u00fa ert or\u00f0in fr\u00e1hverf, gegn \u00fe\u00e9r. \u00c9g stefni \u00feeim gegn \u00fe\u00e9r \u00far \u00f6llum \u00e1ttum, <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Bab\u00fdlon\u00edum\u00f6nnum, \u00f6llum Kaldeum, m\u00f6nnum fr\u00e1 Pek\u00f3d, Sj\u00f3a og K\u00f3a, a\u00f0 auki \u00f6llum Ass\u00fdringum, hinum gl\u00e6silegu ungmennum sem allir eru landstj\u00f3rar og fyrirmenn, str\u00ed\u00f0svagnaforingjar og h\u00e1ttsettir menn, allir r\u00ed\u00f0andi hestum. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00deeir munu halda gegn \u00fe\u00e9r h\u00f3pum saman \u00ed v\u00f6gnum me\u00f0 hv\u00ednandi hj\u00f3lum \u00e1samt li\u00f0safna\u00f0i framandi \u00fej\u00f3\u00f0a. \u00deeir munu umkringja \u00feig, b\u00fanir st\u00f3rum og sm\u00e1um skj\u00f6ldum og hj\u00e1lmum. \u00c9g mun leggja m\u00e1li\u00f0 fyrir \u00fe\u00e1 og \u00feeir munu d\u00e6ma \u00feig eftir l\u00f6gum s\u00ednum. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00c9g mun beina afbr\u00fd\u00f0i minni gegn \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00feeir fari grimmdarlega me\u00f0 \u00feig. \u00deeir munu skera af \u00fe\u00e9r nef og eyru og \u00fea\u00f0 sem eftir ver\u00f0ur af \u00fe\u00e9r skal falla fyrir sver\u00f0i. \u00deeir munu taka fr\u00e1 \u00fe\u00e9r syni \u00fe\u00edna og d\u00e6tur og \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur eftir af \u00fe\u00e9r gleypir eldur. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00deeir munu svipta \u00feig kl\u00e6\u00f0um og taka af \u00fe\u00e9r skartgripi \u00fe\u00edna. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Me\u00f0 \u00feessu bind \u00e9g enda \u00e1 \u00f3lifna\u00f0 \u00feinn og h\u00f3rd\u00f3m sem \u00fe\u00fa h\u00f3fst \u00ed Egyptalandi. \u00de\u00fa munt ekki lengur horfa l\u00f6ngunaraugum til fri\u00f0la \u00feinna og ekki hugsa framar til Egyptalands.<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c9g sel \u00feig \u00ed hendur \u00feeim sem \u00fe\u00fa hatar, \u00ed hendur \u00feeirra sem girnd \u00fe\u00edn hefur or\u00f0i\u00f0 fr\u00e1hverf. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00deeir munu s\u00fdna \u00fe\u00e9r hatur og svipta \u00feig \u00f6llum eigum \u00fe\u00ednum og skilja \u00feig eftir nakta og kl\u00e6\u00f0lausa. \u00de\u00fa ver\u00f0ur h\u00f3rsek, blyg\u00f0un \u00fe\u00edn beru\u00f0. \u00d3lifna\u00f0ur \u00feinn og h\u00f3rd\u00f3mur <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> hafa leitt \u00feetta yfir \u00feig af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa stunda\u00f0ir \u00f3lifna\u00f0 me\u00f0 framandi \u00fej\u00f3\u00f0um og saurga\u00f0ir \u00feig \u00e1 skur\u00f0go\u00f0um \u00feeirra. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00de\u00fa hefur gengi\u00f0 s\u00f6mu lei\u00f0 og systir \u00fe\u00edn, \u00feess vegna r\u00e9tti \u00e9g \u00fe\u00e9r bikar hennar. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Svo segir Drottinn Gu\u00f0: <br \/> <span class=\"ljodatexti\"> \u00de\u00fa skalt drekka bikar systur \u00feinnar,<br \/>hinn dj\u00fapa og v\u00ed\u00f0a, sem tekur svo miki\u00f0.<br \/>\u00de\u00fa skalt h\u00f6f\u00f0 a\u00f0 athl\u00e6gi og spotti,<br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_ljod\">33<\/span><\/a> komast \u00ed v\u00edmu og fyllast kv\u00f6l. <br \/>Bikar skelfingar og ey\u00f0ingar<br \/>er bikar systur \u00feinnar, Samar\u00edu.<br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_ljod\">34<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt drekka hann \u00ed botn<br \/>og bry\u00f0ja \u00far honum brotin <br \/>og r\u00edfa brj\u00f3st \u00fe\u00edn.<br \/>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef tala\u00f0, segir Drottinn Gu\u00f0. <\/span> <br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00dev\u00ed segir Drottinn Gu\u00f0: \u00dear sem \u00fe\u00fa hefur gleymt m\u00e9r og sn\u00fai\u00f0 vi\u00f0 m\u00e9r baki ver\u00f0ur \u00fe\u00fa a\u00f0 bera aflei\u00f0ingar h\u00f3rd\u00f3ms \u00fe\u00edns og \u00f3lifna\u00f0ar.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i enn fremur vi\u00f0 mig: \u00de\u00fa, mannssonur, viltu ekki d\u00e6ma Oholu og Ohol\u00edbu? Leiddu \u00feeim sv\u00edvir\u00f0u \u00feeirra fyrir sj\u00f3nir. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00de\u00e6r hafa dr\u00fdgt h\u00f3r og hendur \u00feeirra eru flekka\u00f0ar bl\u00f3\u00f0i. \u00de\u00e6r hafa teki\u00f0 fram hj\u00e1 me\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um s\u00ednum og \u00fear \u00e1 ofan l\u00e1ti\u00f0 synina, sem \u00fe\u00e6r \u00f3lu m\u00e9r, ganga gegnum eld, skur\u00f0go\u00f0unum til matar. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Jafnframt \u00feessu saurgu\u00f0u \u00fe\u00e6r helgid\u00f3m minn og vanhelgu\u00f0u hv\u00edldardaga m\u00edna. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00e6r h\u00f6f\u00f0u sl\u00e1tra\u00f0 sonum m\u00ednum handa skur\u00f0go\u00f0unum komu \u00fe\u00e6r \u00ed helgid\u00f3m minn til a\u00f0 vanhelga hann. \u00deetta ger\u00f0u \u00fe\u00e6r \u00ed h\u00fasi m\u00ednu. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00de\u00e6r sendu jafnvel eftir m\u00f6nnum sem komu fr\u00e1 fjarl\u00e6gum l\u00f6ndum. \u00deegar bo\u00f0beri haf\u00f0i s\u00f3tt \u00fe\u00e1 komu \u00feeir. \u00deeirra vegna f\u00f3rstu \u00ed ba\u00f0, m\u00e1la\u00f0ir \u00feig um augun og skreyttir \u00feig skartgripum. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> \u00de\u00fa settist \u00e1 uppb\u00fai\u00f0 r\u00fam me\u00f0 d\u00faka\u00f0 bor\u00f0 fyrir framan \u00feig sem \u00fe\u00fa settir \u00e1 reykelsi mitt og ol\u00edu. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> \u00c1hyggjulaus og h\u00e1va\u00f0asamur h\u00f3pur manna var umhverfis og \u00feeirra \u00e1 me\u00f0al sv\u00f6llu\u00f0u menn sem s\u00f3ttir h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina. \u00deeir dr\u00f3gu armb\u00f6nd \u00e1 handleggi \u00feeirra systra og settu d\u00fdrlegt dj\u00e1sn \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 \u00feeirra.<br \/> <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00e9g: \u00deessi sk\u00e6kja er illa farin af h\u00f3rd\u00f3mi, \u00fe\u00f3 h\u00f3rast \u00feeir enn me\u00f0 henni. <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> Menn komu til hennar. \u00deeir komu til Oholu og Ohol\u00edbu eins og menn koma til sk\u00e6kju. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> En r\u00e9ttl\u00e1tir menn munu d\u00e6ma \u00fe\u00e6r eftir laga\u00e1kv\u00e6\u00f0um um hj\u00faskaparbrot og mor\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r eru h\u00f3rsekar og hendur \u00feeirra eru flekka\u00f0ar bl\u00f3\u00f0i.<br \/> <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 svo segir Drottinn Gu\u00f0: M\u00fag manns skal stefnt gegn \u00feeim og \u00fe\u00e6r skulu framseldar til mis\u00feyrminga og r\u00e1ns. <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> \u00de\u00e6r skulu gr\u00fdttar og h\u00f6ggnar me\u00f0 sver\u00f0um. Synir \u00feeirra og d\u00e6tur skulu tekin af l\u00edfi og h\u00fas \u00feeirra brennd. <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> \u00deannig bind \u00e9g enda \u00e1 \u00f3lifna\u00f0inn \u00ed landinu svo a\u00f0 allar konur l\u00e1ti s\u00e9r a\u00f0 kenningu ver\u00f0a og stundi ekki sama \u00f3lifna\u00f0 og \u00fei\u00f0. <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_2007\">49<\/span><\/a> Aflei\u00f0ingar \u00f3lifna\u00f0ar ykkar ver\u00f0a lag\u00f0ar \u00e1 ykkur og \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 a\u00f0 bera aflei\u00f0ingar synda ykkar me\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um ykkar. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn Gu\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Systurnar Samar\u00eda og Jer\u00fasalem 1 Or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn: 2 Mannssonur, einu sinni voru tv\u00e6r konur, d\u00e6tur s\u00f6mu m\u00f3\u00f0ur. 3 \u00de\u00e6r stundu\u00f0u \u00f3lifna\u00f0 \u00ed Egyptalandi, \u00fe\u00e6r h\u00f3ru\u00f0ust \u00fear \u00e1 \u00e6sku\u00e1rum. \u00dear \u00feuklu\u00f0u menn brj\u00f3st \u00feeirra og g\u00e6ldu vi\u00f0 meyjarbarm \u00feeirra. 4 S\u00fa eldri h\u00e9t Ohola og systir hennar Ohol\u00edba. \u00de\u00e6r ur\u00f0u eiginkonur m\u00ednar og \u00f3lu b\u00e6\u00f0i syni og d\u00e6tur. Nafni\u00f0 Ohola t\u00e1knar Samar\u00edu en Ohol\u00edba Jer\u00fasalem. 5 En Ohola t\u00f3k fram hj\u00e1 m\u00e9r. H\u00fan girntist \u00e1stmenn s\u00edna, Ass\u00fdringa, 6 hermenn kl\u00e6dda bl\u00e1um purpura, landstj\u00f3ra og fyrirmenn. Allt voru \u00feetta gl\u00e6sileg ungmenni, riddarar r\u00ed\u00f0andi \u00e1 hestum. 7 H\u00fan leita\u00f0i lags <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-23-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2442","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2442","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2442"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2442\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2442"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}