{"id":2439,"date":"2017-12-30T21:03:13","date_gmt":"2017-12-30T21:03:13","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esek%c2%92el-20-kafli\/"},"modified":"2024-07-03T22:14:09","modified_gmt":"2024-07-03T22:14:09","slug":"esekiel-20-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-20-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 20. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Sviksemi \u00cdsraels fr\u00e1 upphafi<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span> \u00c1 t\u00edunda degi fimmta m\u00e1na\u00f0ar sj\u00f6unda \u00e1rsins komu nokkrir af \u00f6ldungum \u00cdsraels til a\u00f0 leita svara hj\u00e1 Drottni og settust frammi fyrir m\u00e9r. <a name=\"2\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span> \u00de\u00e1 kom or\u00f0 Drottins til m\u00edn: <a name=\"3\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span> Mannssonur, \u00e1varpa\u00f0u \u00f6ldunga \u00cdsraels og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Eru\u00f0 \u00fei\u00f0 komnir til a\u00f0 leita svara hj\u00e1 m\u00e9r? Svo sannarlega sem \u00e9g lifi leyfi \u00e9g ykkur ekki a\u00f0 leita svara hj\u00e1 m\u00e9r, segir Drottinn Gu\u00f0. <a name=\"4\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span> Vilt \u00fe\u00fa ekki heldur d\u00e6ma \u00fe\u00e1? Mannssonur, vilt \u00fe\u00fa d\u00e6ma \u00fe\u00e1? Leiddu \u00feeim vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slega breytni fe\u00f0ra \u00feeirra fyrir sj\u00f3nir <a name=\"5\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span> og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Daginn, sem \u00e9g valdi \u00cdsrael, h\u00f3f \u00e9g upp h\u00f6nd m\u00edna og vann ni\u00f0jum Jakobs\u00e6ttar ei\u00f0. \u00c9g opinbera\u00f0i mig \u00feeim \u00ed Egyptalandi, h\u00f3f upp h\u00f6nd m\u00edna, s\u00f3r og sag\u00f0i: \u00c9g er Drottinn Gu\u00f0 ykkar. <a name=\"6\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span> \u00deann dag h\u00f3f \u00e9g upp h\u00f6nd m\u00edna og s\u00f3r \u00feeim a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00fat \u00far Egyptalandi til lands sem \u00e9g haf\u00f0i vali\u00f0 \u00feeim, lands sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi og ber af \u00f6llum l\u00f6ndum. <a name=\"7\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span> \u00dev\u00ed n\u00e6st sag\u00f0i \u00e9g vi\u00f0 \u00fe\u00e1: S\u00e9rhver ykkar fleygi \u00feeim vi\u00f0urstyggilegu skur\u00f0go\u00f0um sem augu ykkar beinast a\u00f0. Saurgi\u00f0 ykkur ekki \u00e1 skur\u00f0go\u00f0unum \u00ed Egyptalandi. \u00c9g er Drottinn Gu\u00f0 ykkar. <a name=\"8\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span> En \u00feeir risu gegn m\u00e9r og vildu ekki hlusta \u00e1 mig. Enginn fleyg\u00f0i vi\u00f0urstyggilegum skur\u00f0go\u00f0unum sem augu \u00feeirra loddu vi\u00f0, og \u00feeir sneru ekki baki vi\u00f0 skur\u00f0go\u00f0um Egyptalands.<br \/>\n\u00de\u00e1 hug\u00f0ist \u00e9g \u00fathella rei\u00f0i minni yfir \u00fe\u00e1 og svala heift minni \u00e1 \u00feeim \u00ed Egyptalandi. <a name=\"9\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span> En s\u00f6kum nafns m\u00edns ger\u00f0i \u00e9g \u00fea\u00f0 ekki svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i ekki vanhelga\u00f0 \u00ed augum \u00fej\u00f3\u00f0anna sem \u00feeir bjuggu \u00e1 me\u00f0al. \u00c9g haf\u00f0i opinbera\u00f0 mig \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00ed augs\u00fdn \u00fej\u00f3\u00f0anna til a\u00f0 lei\u00f0a \u00fe\u00e1 \u00fat \u00far Egyptalandi <a name=\"10\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span> og \u00e9g leiddi \u00fe\u00e1 \u00fat \u00far Egyptalandi og f\u00f3r me\u00f0 \u00fe\u00e1 inn \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina. <a name=\"11\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span> \u00c9g gaf \u00feeim l\u00f6g m\u00edn og bo\u00f0a\u00f0i \u00feeim reglur m\u00ednar. Hver s\u00e1 ma\u00f0ur, sem framfylgir \u00feeim, lifir vegna \u00feeirra. <a name=\"12\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span> \u00c9g gaf \u00feeim einnig hv\u00edldardaga m\u00edna sem t\u00e1kn um s\u00e1ttm\u00e1lann milli m\u00edn og \u00feeirra svo a\u00f0 \u00feeir skildu a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, helga \u00fe\u00e1. <a name=\"13\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span> En \u00cdsraelsmenn risu gegn m\u00e9r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. \u00deeir f\u00f3ru ekki a\u00f0 l\u00f6gum m\u00ednum og h\u00f6fnu\u00f0u reglum m\u00ednum \u00fe\u00f3tt hver s\u00e1 sem hl\u00fd\u00f0ir \u00feeim lifi vegna \u00feeirra. \u00deeir vanhelgu\u00f0u hv\u00edldardaga m\u00edna st\u00f3rum.<br \/>\n\u00de\u00e1 hug\u00f0ist \u00e9g \u00fathella rei\u00f0i minni yfir \u00fe\u00e1 \u00fearna \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni og tort\u00edma \u00feeim. <a name=\"14\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span> Vegna nafns m\u00edns greip \u00e9g til annars r\u00e1\u00f0s til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 vanhelga\u00f0ist ekki \u00ed augum \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00fear sem \u00e9g haf\u00f0i leitt \u00cdsrael \u00fat fyrir augum \u00feeirra. <a name=\"15\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span> \u00de\u00e1 h\u00f3f \u00e9g upp h\u00f6nd m\u00edna og s\u00f3r \u00feeim, \u00fearna \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, a\u00f0 fara ekki me\u00f0 \u00fe\u00e1 til landsins sem \u00e9g haf\u00f0i heiti\u00f0 a\u00f0 gefa \u00feeim, landsins sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi og af \u00f6llum l\u00f6ndum ber. <a name=\"16\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span> \u00deetta ger\u00f0i \u00e9g af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u hafna\u00f0 reglum m\u00ednum og ekki fylgt l\u00f6gum m\u00ednum og vanhelga\u00f0 hv\u00edldardaga m\u00edna \u00fev\u00ed a\u00f0 hugur \u00feeirra var bundinn skur\u00f0go\u00f0um.<br \/>\n<a name=\"17\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span> En \u00e9g leit til \u00feeirra miskunnarauga og \u00e9g eyddi \u00feeim ekki og \u00e9g ger\u00f0i ekki \u00fat af vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. <a name=\"18\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span> \u00c9g sag\u00f0i \u00fev\u00ed vi\u00f0 syni \u00feeirra \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni: Fylgi\u00f0 ekki l\u00f6gum fe\u00f0ra ykkar og haldi\u00f0 ekki reglur \u00feeirra og saurgi\u00f0 ykkur ekki \u00e1 skur\u00f0go\u00f0um \u00feeirra. <a name=\"19\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span> \u00c9g er Drottinn Gu\u00f0 ykkar. Fari\u00f0 a\u00f0 l\u00f6gum m\u00ednum og haldi\u00f0 reglur m\u00ednar og framfylgi\u00f0 \u00feeim. <a name=\"20\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span> Haldi\u00f0 hv\u00edldardaga m\u00edna heilaga svo a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i t\u00e1kn s\u00e1ttm\u00e1lans milli m\u00edn og ykkar og \u00fei\u00f0 skilji\u00f0 a\u00f0 \u00e9g er Drottinn Gu\u00f0 ykkar.<br \/>\n<a name=\"21\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span> En synirnir risu upp gegn m\u00e9r. \u00deeir fylgdu ekki l\u00f6gum m\u00ednum og h\u00e9ldu ekki reglur m\u00ednar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 framfylgja \u00feeim, en hver s\u00e1 sem hl\u00fd\u00f0ir \u00feeim lifir vegna \u00feeirra. \u00deeir vanhelgu\u00f0u hv\u00edldardaga m\u00edna. \u00de\u00e1 hug\u00f0ist \u00e9g \u00fathella rei\u00f0i minni yfir \u00fe\u00e1 og svala heift minni \u00e1 \u00feeim, \u00fearna \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. <a name=\"22\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span> En \u00e9g h\u00e9lt aftur af m\u00e9r vegna nafns m\u00edns og til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 yr\u00f0i ekki vanhelga\u00f0 \u00ed augum \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00fear sem \u00e9g haf\u00f0i leitt \u00fe\u00e1 \u00fat fyrir augum \u00feeirra.<br \/>\n<a name=\"23\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span> \u00de\u00e1 h\u00f3f \u00e9g upp h\u00f6nd m\u00edna og s\u00f3r \u00feeim, \u00fearna \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni, a\u00f0 tv\u00edstra \u00feeim innan um framandi \u00fej\u00f3\u00f0ir og dreifa \u00feeim um l\u00f6ndin <a name=\"24\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span> vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u ekki framfylgt reglum m\u00ednum, hafna\u00f0 l\u00f6gum m\u00ednum og vanhelga\u00f0 hv\u00edldardaga m\u00edna og augu \u00feeirra m\u00e6ndu \u00e1 eftir skur\u00f0go\u00f0um fe\u00f0ra \u00feeirra.<br \/>\n<a name=\"25\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span> \u00de\u00e1 gaf \u00e9g \u00feeim einnig l\u00f6g sem ekki voru g\u00f3\u00f0 og reglur sem ekki veittu \u00feeim l\u00edf. <a name=\"26\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span> \u00c9g saurga\u00f0i \u00fe\u00e1 me\u00f0 f\u00f3rnargj\u00f6fum \u00feeirra \u00feegar \u00feeir sendu allt sem opnar m\u00f3\u00f0url\u00edf gegnum eld. \u00c9g \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 ofbj\u00f3\u00f0a \u00feeim svo a\u00f0 \u00feeir skildu a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<br \/>\n<a name=\"27\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span> \u00c1varpa\u00f0u \u00fe\u00e1 \u00cdsraelsmenn, mannssonur, og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Fe\u00f0ur ykkar sm\u00e1nu\u00f0u mig einnig me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir sviku mig. <a name=\"28\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span> \u00deegar \u00e9g haf\u00f0i flutt \u00fe\u00e1 til landsins, sem \u00e9g s\u00f3r me\u00f0 upplyftri hendi a\u00f0 gefa \u00feeim, sl\u00e1tru\u00f0u \u00feeir sl\u00e1turf\u00f3rnum s\u00ednum \u00fear um lei\u00f0 og \u00feeir s\u00e1u h\u00e1an h\u00f3l e\u00f0a laufga\u00f0 tr\u00e9. \u00dear f\u00e6r\u00f0u \u00feeir fram gjafir s\u00ednar sem v\u00f6ktu rei\u00f0i m\u00edna, l\u00e9tu \u00feekkan ilm st\u00edga \u00fear upp og dreyptu \u00fear dreypif\u00f3rnum s\u00ednum. <a name=\"29\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span> \u00de\u00e1 sag\u00f0i \u00e9g vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eTil hva\u00f0a f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0ar haldi\u00f0 \u00fei\u00f0?\u201c \u00deess vegna er sl\u00edkur sta\u00f0ur nefndur f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0 allt til \u00feessa dags.<br \/>\n<a name=\"30\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span> Seg\u00f0u \u00fev\u00ed vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: \u00c6tli\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 saurga ykkur \u00e1 sama h\u00e1tt og fe\u00f0ur ykkar og h\u00f3rast me\u00f0 vi\u00f0urstyggilegum skur\u00f0go\u00f0um \u00feeirra? <a name=\"31\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span> \u00deegar \u00fei\u00f0 beri\u00f0 fram f\u00f3rnargjafir ykkar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e1ta syni ykkar ganga gegnum eld saurgi\u00f0 \u00fei\u00f0 ykkur. Og allt fram \u00e1 \u00feennan dag saurgi\u00f0 \u00fei\u00f0 ykkur \u00e1 \u00f6llum skur\u00f0go\u00f0um ykkar. \u00c6tti \u00e9g \u00fe\u00e1 a\u00f0 leyfa ykkur a\u00f0 leita svara hj\u00e1 m\u00e9r, \u00cdsraelsmenn? Svo sannarlega sem \u00e9g lifi, segir Drottinn Gu\u00f0, leyfi \u00e9g ykkur ekki a\u00f0 leita svara hj\u00e1 m\u00e9r. <a name=\"32\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span> Aldrei skal \u00fea\u00f0 ver\u00f0a sem kom ykkur \u00ed hug \u00feegar \u00fei\u00f0 s\u00f6g\u00f0u\u00f0: Vi\u00f0 viljum vera eins og a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir, eins og \u00fej\u00f3\u00f0flokkarnir \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum sem tilbi\u00f0ja stokka og steina.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Gu\u00f0 hegnir og fyrirgefur<\/h3>\n<p><a name=\"33\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span> Svo sannarlega sem \u00e9g lifi, segir Drottinn Gu\u00f0, mun \u00e9g r\u00edkja yfir ykkur me\u00f0 sterkri hendi, upph\u00f6fnum armi og fossandi heift. <a name=\"34\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span> \u00c9g mun lei\u00f0a ykkur fr\u00e1 framandi \u00fej\u00f3\u00f0um og l\u00f6ndum og safna ykkur saman \u00far \u00feeim l\u00f6ndum, sem ykkur var dreift til, me\u00f0 sterkri hendi, upph\u00f6fnum armi og fossandi heift. <a name=\"35\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span> \u00c9g mun fara me\u00f0 ykkur inn \u00ed ey\u00f0im\u00f6rk \u00fej\u00f3\u00f0anna og \u00fear held \u00e9g d\u00f3m yfir ykkur augliti til auglitis. <a name=\"36\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span> \u00c9g held d\u00f3m yfir ykkur eins og \u00e9g h\u00e9lt d\u00f3m yfir fe\u00f0rum ykkar \u00ed ey\u00f0im\u00f6rk Egyptalands, segir Drottinn Gu\u00f0. <a name=\"37\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span> \u00c9g mun l\u00e1ta ykkur renna undir hir\u00f0isstafinn og telja ykkur vandlega.<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00d6nnur hugsanleg \u00fe\u00fd\u00f0ing: \u2026 og l\u00e1ta ykkur gangast undir kva\u00f0ir s\u00e1ttm\u00e1lans. \">[<\/span> <a name=\"38\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span> Uppreisnarseggi og \u00fe\u00e1 sem voru m\u00e9r m\u00f3tsn\u00fanir skil \u00e9g fr\u00e1 ykkur. \u00de\u00f3tt \u00e9g lei\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00fat \u00far landinu, sem \u00feeir leitu\u00f0u h\u00e6lis \u00ed, munu \u00feeir ekki komast inn \u00ed land \u00cdsraels. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<br \/>\n<a name=\"39\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span> En \u00fei\u00f0, \u00cdsraelsmenn. Svo segir Drottinn Gu\u00f0: S\u00e9rhver fleygi burt skur\u00f0go\u00f0um s\u00ednum. En s\u00ed\u00f0ar munu\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00e1rei\u00f0anlega hlusta \u00e1 mig og ekki vanhelga mitt heilaga nafn framar me\u00f0 gj\u00f6fum ykkar og skur\u00f0go\u00f0um. <a name=\"40\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e1 m\u00ednu heilaga fjalli, \u00e1 hinu h\u00e1a fjalli \u00cdsraels, segir Drottinn Gu\u00f0, munu allir \u00cdsraelsmenn, allir \u00ed landinu, \u00fej\u00f3na m\u00e9r. \u00dear mun \u00e9g taka n\u00e1\u00f0arsamlega \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim og \u00fear mun \u00e9g \u00e1skilja m\u00e9r afgj\u00f6ld ykkar, frumgr\u00f3\u00f0af\u00f3rnir og allar helgigjafir ykkar. <a name=\"41\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span> \u00c9g mun taka n\u00e1\u00f0arsamlega \u00e1 m\u00f3ti ykkur vegna hins \u00fe\u00e6gilega f\u00f3rnarilms.<br \/>\n\u00deegar \u00e9g lei\u00f0i ykkur fr\u00e1 hinum framandi \u00fej\u00f3\u00f0um og safna ykkur saman \u00far l\u00f6ndunum, sem ykkur var dreift um, mun \u00e9g opinbera heilagleika minn \u00e1 ykkur \u00ed augs\u00fdn \u00fej\u00f3\u00f0anna. <a name=\"42\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span> Og \u00fei\u00f0 munu\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn \u00feegar \u00e9g lei\u00f0i ykkur inn \u00ed land \u00cdsraels, inn \u00ed landi\u00f0 sem \u00e9g s\u00f3r me\u00f0 uppr\u00e9ttum armi a\u00f0 gefa fe\u00f0rum ykkar. <a name=\"43\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span> \u00dear munu\u00f0 \u00fei\u00f0 minnast breytni ykkar og allra verka ykkar sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 saurga\u00f0 ykkur \u00e1. \u00de\u00e1 mun ykkur bj\u00f3\u00f0a vi\u00f0 sj\u00e1lfum ykkur vegna allra \u00feeirra illu verka sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 frami\u00f0. <a name=\"44\"><\/a><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span> \u00dei\u00f0 munu\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn \u00feegar \u00e9g fer \u00feannig me\u00f0 ykkur vegna nafns m\u00edns en ekki vegna illrar breytni ykkar og \u00f3h\u00e6fuverka, \u00cdsraelsmenn, segir Drottinn Gu\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sviksemi \u00cdsraels fr\u00e1 upphafi 1 \u00c1 t\u00edunda degi fimmta m\u00e1na\u00f0ar sj\u00f6unda \u00e1rsins komu nokkrir af \u00f6ldungum \u00cdsraels til a\u00f0 leita svara hj\u00e1 Drottni og settust frammi fyrir m\u00e9r. 2 \u00de\u00e1 kom or\u00f0 Drottins til m\u00edn: 3 Mannssonur, \u00e1varpa\u00f0u \u00f6ldunga \u00cdsraels og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Eru\u00f0 \u00fei\u00f0 komnir til a\u00f0 leita svara hj\u00e1 m\u00e9r? Svo sannarlega sem \u00e9g lifi leyfi \u00e9g ykkur ekki a\u00f0 leita svara hj\u00e1 m\u00e9r, segir Drottinn Gu\u00f0. 4 Vilt \u00fe\u00fa ekki heldur d\u00e6ma \u00fe\u00e1? Mannssonur, vilt \u00fe\u00fa d\u00e6ma \u00fe\u00e1? Leiddu \u00feeim vi\u00f0bj\u00f3\u00f0slega breytni fe\u00f0ra \u00feeirra fyrir sj\u00f3nir 5 og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-20-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2439","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2439","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2439"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2439\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2439"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}