{"id":2432,"date":"2017-12-30T21:03:08","date_gmt":"2017-12-30T21:03:08","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esek%c2%92el-13-kafli\/"},"modified":"2024-07-03T22:14:07","modified_gmt":"2024-07-03T22:14:07","slug":"esekiel-13-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-13-kafli\/","title":{"rendered":"Esek\u00edel 13. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Falssp\u00e1menn<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn: <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Mannssonur, tala\u00f0u gegn sp\u00e1m\u00f6nnum \u00cdsraels sem n\u00fa flytja sp\u00e1mannlegan bo\u00f0skap. Seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem flytja sp\u00e1m\u00e6li \u00far eigin hjarta: Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 or\u00f0 Drottins. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Vei hinum heimsku sp\u00e1m\u00f6nnum sem fara eftir eigin hugarbur\u00f0i \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 neitt. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Sp\u00e1menn \u00fe\u00ednir, \u00cdsrael, eru eins og refir \u00ed r\u00fastum. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 hvorki stigi\u00f0 upp \u00ed sk\u00f6r\u00f0in \u00ed varnarm\u00farnum n\u00e9 gert vi\u00f0 v\u00edggir\u00f0ingar fyrir \u00cdsraelsmenn svo a\u00f0 \u00feeir geti sta\u00f0ist \u00ed orrustunni \u00e1 degi Drottins. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> S\u00fdnir \u00feeirra eru t\u00e1l og sp\u00e1m\u00e6lin lygi. \u00deeir segja: \u201eDrottinn hefur sagt \u00feetta,\u201c &#8211; \u00fe\u00f3 a\u00f0 Drottinn hafi ekki sent \u00fe\u00e1. Samt b\u00ed\u00f0a \u00feeir \u00feess a\u00f0 hann l\u00e1ti bo\u00f0skapinn r\u00e6tast. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki s\u00e9\u00f0 t\u00e1ls\u00fdnir og flutt f\u00f6lsk sp\u00e1m\u00e6li \u00feegar \u00fei\u00f0 s\u00f6g\u00f0u\u00f0: \u201eDrottinn hefur sagt \u00feetta,\u201c \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g hafi ekki tala\u00f0?<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn Gu\u00f0 svo: \u00dear sem \u00fei\u00f0 bo\u00f0i\u00f0 t\u00e1l og lj\u00fagi\u00f0 upp s\u00fdnum stend \u00e9g, Drottinn Gu\u00f0, gegn ykkur. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00c9g mun r\u00e9tta \u00fat h\u00f6nd m\u00edna gegn \u00feeim sp\u00e1m\u00f6nnum sem sj\u00e1 t\u00e1ls\u00fdnir og bo\u00f0a lygi. \u00deeir ver\u00f0a ekki \u00ed samf\u00e9lagi \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar og munu ekki f\u00e6r\u00f0ir \u00e1 skr\u00e1 yfir \u00cdsraelsmenn og skulu ekki f\u00e1 a\u00f0 koma inn \u00ed land \u00cdsraels. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn Gu\u00f0. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deeir hafa blekkt \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bo\u00f0a heill \u00fear sem engin heill var. V\u00e6ri veggur reistur k\u00f6lku\u00f0u \u00feeir hann. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem kalka: \u00deegar steypiregn kemur, hagl\u00e9l dynur og stormur skellur \u00e1 honum <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> og veggurinn er hruninn, munu menn \u00fe\u00e1 ekki spyrja ykkur: Hvar er n\u00fa kalki\u00f0 sem \u00fei\u00f0 k\u00f6lku\u00f0u\u00f0 me\u00f0? <br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn Gu\u00f0 svo: \u00c9g mun l\u00e1ta storm skella \u00e1 \u00ed heift minni og steypiregn og ey\u00f0andi hagl dynja \u00e1 \u00ed br\u00e6\u00f0i minni. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00c9g mun brj\u00f3ta ni\u00f0ur vegginn sem \u00fei\u00f0 k\u00f6lku\u00f0u\u00f0 og jafna hann vi\u00f0 j\u00f6r\u00f0u svo a\u00f0 undirsta\u00f0an komi \u00ed lj\u00f3s. \u00deegar hann hrynur munu\u00f0 \u00fei\u00f0 farast undir honum. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00c9g mun svala heift minni \u00e1 veggnum og \u00feeim sem k\u00f6lku\u00f0u hann. \u00c9g mun segja: Veggurinn er horfinn og \u00feeir sem k\u00f6lku\u00f0u hann, <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> sp\u00e1menn \u00cdsraels, sem fluttu sp\u00e1m\u00e6li um Jer\u00fasalem og s\u00e1u s\u00fdnir um heill handa borginni \u00fear sem engin heill var, segir Drottinn Gu\u00f0.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa, mannssonur, sn\u00fa\u00f0u andliti \u00fe\u00ednu gegn d\u00e6trum \u00fej\u00f3\u00f0ar \u00feinnar sem flytja sp\u00e1m\u00e6li \u00far eigin hjarta. Flyttu bo\u00f0skap gegn \u00feeim <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> og seg\u00f0u: Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Vei \u00feeim sem sauma bor\u00f0a \u00e1 alla \u00falnli\u00f0i og gera f\u00f3lki h\u00f6fu\u00f0sk\u00fdlu af hva\u00f0a st\u00e6r\u00f0 sem er til a\u00f0 vei\u00f0a \u00fea\u00f0.<span class=\"nedan_mal\" title=\" H\u00e9r er \u00e1tt vi\u00f0 atferli fj\u00f6lkynngimanna.\">[<\/span> Haldi\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 \u00fei\u00f0 geti\u00f0 veitt f\u00f3lk af \u00fej\u00f3\u00f0 minni og haldi\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 l\u00edfi ykkur til \u00e1vinnings? <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 vanhelga\u00f0 mig me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0ar minnar fyrir nokkra hnefa af byggi og f\u00e1eina brau\u00f0mola. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 deytt \u00fe\u00e1 sem ekki \u00e1ttu a\u00f0 deyja en \u00feyrmt \u00feeim sem ekki \u00e1ttu a\u00f0 lifa me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 lj\u00faga a\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 minni sem hlustar \u00e1 lygi.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn Gu\u00f0 svo: \u00c9g mun r\u00e1\u00f0ast gegn bor\u00f0unum sem \u00fei\u00f0 vei\u00f0i\u00f0 f\u00f3lk me\u00f0 eins og fugla, \u00e9g mun r\u00edfa \u00fe\u00e1 af handleggjum ykkar og sleppa lausum \u00feeim sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 veitt eins og fugla. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00c9g mun einnig r\u00edfa h\u00f6fu\u00f0sk\u00fdlurnar \u00ed burtu og frelsa \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edna \u00far greipum ykkar svo a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i ekki framar br\u00e1\u00f0 \u00ed kl\u00f3m ykkar. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 kvali\u00f0 huga hins r\u00e9ttl\u00e1ta me\u00f0 lygi \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00e9g \u00e6tla\u00f0i ekki a\u00f0 kvelja hann. Hins vegar hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 stutt hinn gu\u00f0lausa til a\u00f0 hverfa ekki fr\u00e1 villu s\u00edns vegar svo a\u00f0 hann lifi. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00deess vegna skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 hvorki sj\u00e1 neinar t\u00e1ls\u00fdnir framar n\u00e9 fara me\u00f0 sp\u00e1d\u00f3ma. \u00c9g mun frelsa \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edna \u00far greipum ykkar. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00e9g er Drottinn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Falssp\u00e1menn 1 Or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn: 2 Mannssonur, tala\u00f0u gegn sp\u00e1m\u00f6nnum \u00cdsraels sem n\u00fa flytja sp\u00e1mannlegan bo\u00f0skap. Seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1 sem flytja sp\u00e1m\u00e6li \u00far eigin hjarta: Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 or\u00f0 Drottins. 3 Svo segir Drottinn Gu\u00f0: Vei hinum heimsku sp\u00e1m\u00f6nnum sem fara eftir eigin hugarbur\u00f0i \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa s\u00e9\u00f0 neitt. 4 Sp\u00e1menn \u00fe\u00ednir, \u00cdsrael, eru eins og refir \u00ed r\u00fastum. 5 \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 hvorki stigi\u00f0 upp \u00ed sk\u00f6r\u00f0in \u00ed varnarm\u00farnum n\u00e9 gert vi\u00f0 v\u00edggir\u00f0ingar fyrir \u00cdsraelsmenn svo a\u00f0 \u00feeir geti sta\u00f0ist \u00ed orrustunni \u00e1 degi Drottins. 6 S\u00fdnir \u00feeirra eru t\u00e1l og sp\u00e1m\u00e6lin lygi. \u00deeir segja: \u201eDrottinn hefur sagt <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esekiel-13-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2432","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2432","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2432"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2432\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2432"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}