{"id":2394,"date":"2017-12-30T21:02:57","date_gmt":"2017-12-30T21:02:57","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/jerem%c2%92a-32-kafli\/"},"modified":"2024-07-03T12:50:09","modified_gmt":"2024-07-03T12:50:09","slug":"jeremia-32-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/jeremia-32-kafli\/","title":{"rendered":"Jerem\u00eda 32. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Jar\u00f0akaup Jerem\u00eda<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Or\u00f0i\u00f0 sem kom til Jerem\u00eda fr\u00e1 Drottni \u00e1 t\u00edunda stj\u00f3rnar\u00e1ri Sedek\u00eda J\u00fadakonungs en \u00fea\u00f0 var \u00e1tj\u00e1nda stj\u00f3rnar\u00e1r Neb\u00fakadresars. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Her konungsins \u00ed Bab\u00fdlon sat \u00fe\u00e1 um Jer\u00fasalem og Jerem\u00eda sp\u00e1ma\u00f0ur var \u00ed haldi \u00ed gar\u00f0i var\u00f0li\u00f0sins vi\u00f0 h\u00f6ll J\u00fadakonungs. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Sedek\u00eda J\u00fadakonungur haf\u00f0i hann \u00fear \u00ed haldi og sag\u00f0i: \u201eHvers vegna hefur \u00fe\u00fa flutt \u00feennan bo\u00f0skap: Svo segir Drottinn: \u00c9g sel \u00feessa borg \u00ed hendur konunginum \u00ed Bab\u00fdlon sem mun vinna hana. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Sedek\u00eda J\u00fadakonungur mun ekki ganga Kaldeum \u00far greipum heldur ver\u00f0ur hann seldur konunginum \u00ed Bab\u00fdlon \u00ed hendur. Hann mun standa frammi fyrir honum og tala vi\u00f0 hann augliti til auglitis. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hann mun flytja Sedek\u00eda til Bab\u00fdlonar og \u00fear ver\u00f0ur hann \u00fear til \u00e9g vitja hans, segir Drottinn. Ef \u00fe\u00e9r berjist vi\u00f0 Kaldea hafi\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki erindi sem erfi\u00f0i?\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Jerem\u00eda sag\u00f0i: Or\u00f0 Drottins kom til m\u00edn: <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hanameel, sonur Sall\u00fams, f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00edns, mun koma til \u00fe\u00edn og segja: Kauptu akur minn sem er \u00ed Anat\u00f3t \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r ber a\u00f0 kaupa hann samkv\u00e6mt innlausnarskyldunni. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hanameel, sonur f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur m\u00edns, kom s\u00ed\u00f0an til m\u00edn \u00ed gar\u00f0 var\u00f0li\u00f0sins eins og Drottinn haf\u00f0i sagt. Hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u201eKauptu akur minn \u00ed Anat\u00f3t \u00ed landi Benjam\u00edns. \u00dear sem \u00fe\u00fa hefur innlausnarskylduna samkv\u00e6mt eignarr\u00e9ttinum skaltu kaupa hann.\u201c<br \/>\u00de\u00e1 skildi \u00e9g a\u00f0 \u00feetta voru bo\u00f0 fr\u00e1 Drottni <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> og keypti akurinn \u00ed Anat\u00f3t af Hanameel, syni f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur m\u00edns. \u00c9g greiddi honum ver\u00f0i\u00f0, sautj\u00e1n sikla silfurs. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skrifa\u00f0i \u00e9g kaupsamninginn og innsigla\u00f0i hann. \u00de\u00e1 l\u00e9t \u00e9g votta sta\u00f0festa hann og v\u00f3 silfri\u00f0 \u00e1 vog.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st t\u00f3k \u00e9g kaupsamninginn, b\u00e6\u00f0i innsigla\u00f0a eintaki\u00f0 og \u00fea\u00f0 opna, <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> og f\u00e9kk Bar\u00fak Ner\u00edasyni, Mahasejasonar, kaupsamninginn \u00ed vi\u00f0urvist Hanameels, sonar f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur m\u00edns, og vottanna sem h\u00f6f\u00f0u undirrita\u00f0 samninginn og allra \u00feeirra J\u00fadamanna sem voru \u00ed gar\u00f0i var\u00f0li\u00f0sins. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c9g gaf Bar\u00fak \u00feessi fyrirm\u00e6li \u00ed vi\u00f0urvist \u00feeirra: <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Svo segir Drottinn hersveitanna, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Taktu vi\u00f0 \u00feessum skj\u00f6lum, \u00feessum kaupsamningi, b\u00e6\u00f0i innsigla\u00f0a eintakinu og \u00fev\u00ed opna, og settu \u00feau \u00ed leirker svo a\u00f0 \u00feau var\u00f0veitist lengi. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 svo segir Drottinn hersveitanna, Gu\u00f0 \u00cdsraels: A\u00f0 n\u00fdju ver\u00f0ur versla\u00f0 me\u00f0 h\u00fas, akra og v\u00edngar\u00f0a \u00ed \u00feessu landi.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00e6n Jerem\u00eda<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deegar \u00e9g haf\u00f0i afhent Bar\u00fak Ner\u00edasyni kaupsamninginn ba\u00f0 \u00e9g til Drottins og sag\u00f0i: <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00c6, Drottinn minn og Gu\u00f0. \u00de\u00fa hefur gert himin og j\u00f6r\u00f0 me\u00f0 miklum m\u00e6tti \u00fe\u00ednum og \u00fatr\u00e9ttum armi. Ekkert er \u00fe\u00e9r um megn. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00fa au\u00f0s\u00fdnir \u00fe\u00fasundum trygg\u00f0 og k\u00e6rleika og l\u00e6tur synina gjalda fyrir sekt fe\u00f0ranna eftir \u00feeirra dag, mikli, sterki Gu\u00f0, sem ber\u00f0 nafni\u00f0 Drottinn hersveitanna. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Mikill ert \u00fe\u00fa \u00ed r\u00e1\u00f0um og m\u00e1ttugur \u00ed verkum \u00fe\u00ednum. Augu \u00fe\u00edn vaka yfir \u00f6llum vegum mannanna svo a\u00f0 \u00fe\u00fa getir goldi\u00f0 hverjum og einum eftir breytni hans og \u00e1vexti verka hans. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00de\u00fa ger\u00f0ir t\u00e1kn og st\u00f3rmerki \u00ed Egyptalandi og hefur gert \u00feau allt til \u00feessa dags, b\u00e6\u00f0i \u00ed \u00cdsrael og me\u00f0al annarra manna. \u00deannig vannst \u00fe\u00fa \u00fe\u00e9r nafnfr\u00e6g\u00f0 sem enn varir. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00fa leiddir l\u00fd\u00f0 \u00feinn, \u00cdsrael, \u00fat \u00far Egyptalandi me\u00f0 undrum og st\u00f3rmerkjum, sterkri hendi og \u00fatr\u00e9ttum armi og mikilli skelfingu. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00fa f\u00e9kkst \u00feeim \u00feetta land sem \u00fe\u00fa haf\u00f0ir heiti\u00f0 fe\u00f0rum \u00feeirra a\u00f0 gefa \u00feeim, land sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En \u00feegar \u00feeir komu og t\u00f3ku \u00fea\u00f0 til eignar hl\u00fdddu \u00feeir ekki bo\u00f0um \u00fe\u00ednum og f\u00f3ru ekki eftir l\u00f6gum \u00fe\u00ednum. \u00deeir hafa ekki gert neitt af \u00fev\u00ed sem \u00fe\u00fa bau\u00f0st \u00feeim. \u00deess vegna hefur \u00fe\u00fa sent \u00feeim allt \u00feetta b\u00f6l. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00c1r\u00e1sarvirkin eru n\u00fa \u00feegar komin a\u00f0 borginni, h\u00fan ver\u00f0ur br\u00e1tt unnin. Me\u00f0 sver\u00f0i, hungri og dreps\u00f3tt ver\u00f0ur borgin seld \u00ed hendur Kaldeum sem r\u00e1\u00f0ast \u00e1 hana. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Samt segir \u00fe\u00fa vi\u00f0 mig, Drottinn minn og Gu\u00f0: \u201eKauptu akur fyrir f\u00e9 og l\u00e1ttu votta sta\u00f0festa \u00fea\u00f0 n\u00fa \u00fe\u00f3tt borgin s\u00e9 fallin \u00ed hendur Kaldeum.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Svar Drottins<\/h3>\n<p><a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kom or\u00f0 Drottins til Jerem\u00eda: <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 alls dau\u00f0legs. Er m\u00e9r nokku\u00f0 um megn? <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn: \u00c9g sel \u00feessa borg \u00ed hendur Kaldeum og Neb\u00fakadresari konungi \u00ed Bab\u00fdlon og hann mun taka hana. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Kaldear, sem r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00feessa borg, munu ry\u00f0jast inn \u00ed hana. \u00deeir munu kveikja \u00ed borginni og brenna hana til \u00f6sku og h\u00fasin \u00fear sem Baal voru f\u00e6r\u00f0ar reykelsisf\u00f3rnir \u00e1 \u00fe\u00f6kum uppi og \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um dreypif\u00f3rnir til \u00feess a\u00f0 vekja rei\u00f0i m\u00edna. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Enda hafa \u00cdsraelsmenn og J\u00fadamenn allt fr\u00e1 \u00e6sku sinni gert \u00fea\u00f0 eitt sem illt var \u00ed augum m\u00ednum. \u00cdsraelsmenn hafa a\u00f0eins vaki\u00f0 rei\u00f0i m\u00edna me\u00f0 handaverkum s\u00ednum, segir Drottinn. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Allt fr\u00e1 \u00feeim degi er \u00feessi borg var reist og til \u00feessa dags hefur h\u00fan vaki\u00f0 gremju m\u00edna og rei\u00f0i. N\u00fa mun \u00e9g fjarl\u00e6gja hana fr\u00e1 augliti m\u00ednu <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> vegna allra \u00feeirra illu verka sem \u00cdsraelsmenn og J\u00fadamenn hafa unni\u00f0 til a\u00f0 vekja rei\u00f0i m\u00edna, \u00feeir sj\u00e1lfir, konungar \u00feeirra, emb\u00e6ttismenn, prestar og sp\u00e1menn, b\u00e6\u00f0i \u00edb\u00faar J\u00fada og Jer\u00fasalem. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00deeir sneru vi\u00f0 m\u00e9r bakinu en ekki andlitinu. \u00c9g hef kennt \u00feeim \u00e1n afl\u00e1ts en \u00feeir hafa hvorki vilja\u00f0 hlusta n\u00e9 l\u00e1ti\u00f0 s\u00e9r segjast. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00deeir hafa komi\u00f0 s\u00ednum vi\u00f0urstyggilegu gu\u00f0um fyrir \u00ed h\u00fasinu sem kennt er vi\u00f0 nafn mitt og vanhelga\u00f0 \u00fea\u00f0. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00deeir bygg\u00f0u f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0ir handa Baal \u00ed Hinnomssonardal til \u00feess a\u00f0 geta l\u00e1ti\u00f0 syni s\u00edna og d\u00e6tur ganga gegnum eldinn fyrir M\u00f3lok. En \u00e9g hef hvorki bo\u00f0i\u00f0 \u00feeim \u00fea\u00f0 n\u00e9 hefur m\u00e9r nokkru sinni komi\u00f0 til hugar a\u00f0 \u00feeir mundu fremja svo vi\u00f0urstyggilegt ath\u00e6fi og t\u00e6la J\u00fadamenn me\u00f0 \u00fev\u00ed til syndar.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> En n\u00fa segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels, um \u00feessa borg sem \u00fei\u00f0 segi\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0i seld konunginum \u00ed Bab\u00fdlon \u00ed hendur me\u00f0 sver\u00f0i, hungri og dreps\u00f3tt: <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00c9g safna \u00feeim saman fr\u00e1 \u00f6llum \u00feeim l\u00f6ndum sem \u00e9g hrakti \u00fe\u00e1 til \u00ed heift minni, rei\u00f0i og br\u00e6\u00f0i. \u00c9g lei\u00f0i \u00fe\u00e1 aftur til \u00feessa sta\u00f0ar og l\u00e6t \u00fe\u00e1 b\u00faa \u00fear \u00f3hulta. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00deeir skulu vera m\u00edn \u00fej\u00f3\u00f0 og \u00e9g skal vera \u00feeirra Gu\u00f0. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00c9g mun gefa \u00feeim eitt hjarta og eina breytni svo a\u00f0 \u00feeir s\u00fdni m\u00e9r lotningu alla t\u00ed\u00f0, \u00feeim sj\u00e1lfum til heilla og sonum \u00feeirra eftir \u00fe\u00e1. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00c9g geri vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e6varandi s\u00e1ttm\u00e1la um a\u00f0 \u00e9g sn\u00fai m\u00e9r ekki fr\u00e1 \u00feeim heldur reynist \u00feeim vel. \u00c9g legg gu\u00f0s\u00f3tta \u00ed hjarta \u00feeirra svo a\u00f0 \u00feeir v\u00edki aldrei fr\u00e1 m\u00e9r. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> \u00c9g gle\u00f0st yfir \u00feeim og reynist \u00feeim vel og gr\u00f3\u00f0urset \u00fe\u00e1 \u00ed \u00feessu landi \u00ed tr\u00fafesti, af heilum hug og \u00f6llum m\u00e6tti. <br \/> <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Svo segir Drottinn: Eins og \u00e9g sendi \u00fej\u00f3\u00f0inni \u00feetta mikla b\u00f6l sendi \u00e9g henni allt hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem \u00e9g h\u00e9t henni. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Aftur ver\u00f0a jar\u00f0ir keyptar og seldar \u00ed \u00feessu landi sem \u00fe\u00e9r segi\u00f0 um: \u00dea\u00f0 er ey\u00f0im\u00f6rk \u00e1n f\u00f3lks og f\u00e9na\u00f0ar, seld Kaldeum \u00ed hendur. <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> Akrar ver\u00f0a aftur keyptir fyrir f\u00e9, kaupsamningar ger\u00f0ir, innsigla\u00f0ir og vottfestir, b\u00e6\u00f0i \u00ed Benjam\u00ednslandi og h\u00e9ru\u00f0unum umhverfis Jer\u00fasalem, \u00ed borgum J\u00fada og \u00ed fjalllendinu, \u00ed borgunum \u00e1 sl\u00e9ttlendinu og \u00ed Su\u00f0urlandinu \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g sn\u00fd vi\u00f0 h\u00f6gum \u00feeirra, segir Drottinn. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Jar\u00f0akaup Jerem\u00eda 1 Or\u00f0i\u00f0 sem kom til Jerem\u00eda fr\u00e1 Drottni \u00e1 t\u00edunda stj\u00f3rnar\u00e1ri Sedek\u00eda J\u00fadakonungs en \u00fea\u00f0 var \u00e1tj\u00e1nda stj\u00f3rnar\u00e1r Neb\u00fakadresars. 2 Her konungsins \u00ed Bab\u00fdlon sat \u00fe\u00e1 um Jer\u00fasalem og Jerem\u00eda sp\u00e1ma\u00f0ur var \u00ed haldi \u00ed gar\u00f0i var\u00f0li\u00f0sins vi\u00f0 h\u00f6ll J\u00fadakonungs. 3 Sedek\u00eda J\u00fadakonungur haf\u00f0i hann \u00fear \u00ed haldi og sag\u00f0i: \u201eHvers vegna hefur \u00fe\u00fa flutt \u00feennan bo\u00f0skap: Svo segir Drottinn: \u00c9g sel \u00feessa borg \u00ed hendur konunginum \u00ed Bab\u00fdlon sem mun vinna hana. 4 Sedek\u00eda J\u00fadakonungur mun ekki ganga Kaldeum \u00far greipum heldur ver\u00f0ur hann seldur konunginum \u00ed Bab\u00fdlon \u00ed hendur. Hann mun standa frammi fyrir honum og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/jeremia-32-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2394","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2394","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2394"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2394\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2394"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}