{"id":2044,"date":"2017-12-30T21:01:30","date_gmt":"2017-12-30T21:01:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarb%c2%97k-1-kafli\/"},"modified":"2023-02-25T04:38:30","modified_gmt":"2023-02-25T04:38:30","slug":"esterarbok-1-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarbok-1-kafli\/","title":{"rendered":"Esterarb\u00f3k 1. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Veislan \u00ed S\u00fasa<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Xerxes konungur,<span class=\"nedan_mal\" title=\" H\u00e9r er a\u00f0 l\u00edkindum \u00e1tt vi\u00f0 Xerxes fyrsta, konung Persa og Meda 486\u2013464 f.Kr.\">[<\/span> s\u00e1 er r\u00edkti yfir hundra\u00f0 tuttugu og sj\u00f6 h\u00e9ru\u00f0um allt fr\u00e1 Indlandi til E\u00fe\u00ed\u00f3p\u00edu, <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> sat a\u00f0 v\u00f6ldum \u00ed virkisborginni S\u00fasa. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00c1 \u00feri\u00f0ja stj\u00f3rnar\u00e1ri s\u00ednu bau\u00f0 hann \u00f6llum h\u00f6f\u00f0ingjum s\u00ednum og r\u00e1\u00f0am\u00f6nnum til veislu, b\u00e6\u00f0i hersh\u00f6f\u00f0ingjum<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00cd hebreska textanum er tala\u00f0 um \u201eher\u201c Persa og Meda en h\u00e9r breytt \u00ed \u201ehersh\u00f6f\u00f0ingja\u201c \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 gr\u00edsku sj\u00f6t\u00edumanna\u00fe\u00fd\u00f0inguna.\">[<\/span> Persa og Meda og h\u00e9ra\u00f0sstj\u00f3rum og emb\u00e6ttism\u00f6nnum h\u00e9ra\u00f0anna. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> D\u00f6gum saman, hundra\u00f0 og \u00e1ttat\u00edu daga alls, s\u00fdndi hann \u00feeim \u00fear \u00f3grynni au\u00f0\u00e6fa og d\u00fdr\u00f0 og skart konungstignar sinnar. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> A\u00f0 \u00feeim d\u00f6gum li\u00f0num h\u00e9lt konungur \u00f6llum karlm\u00f6nnum \u00ed virkisborginni S\u00fasa, jafnt h\u00e1um sem l\u00e1gum, sj\u00f6 daga veislu \u00ed forgar\u00f0i hallar sinnar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00dear var tjalda\u00f0 drifhv\u00edtum og fj\u00f3lubl\u00e1um ba\u00f0mullard\u00fakum sem festir voru \u00ed silfurhringi \u00e1 sn\u00farur \u00far hv\u00edtu l\u00edni og purpurarau\u00f0u og \u00e1 marmaras\u00falur. \u00dear st\u00f3\u00f0u h\u00e6gindi \u00far gulli og silfri \u00e1 g\u00f3lfi l\u00f6g\u00f0u d\u00edl\u00f3ttum gran\u00edtsteini, marmara, perlum\u00f3\u00f0ur og \u00f6\u00f0rum d\u00fdrum steinum. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> V\u00edn var bori\u00f0 fram \u00ed gullbikurum. \u00dear voru engir tveir bikarar eins og var v\u00edni\u00f0 veitt af \u00feeirri rausn sem s\u00e6mdi \u00f6rl\u00e6ti konungs. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> A\u00f0 bo\u00f0i konungs var s\u00e1 h\u00e1ttur haf\u00f0ur \u00e1 vi\u00f0 drykkjuna a\u00f0 \u00fear m\u00e6tti hver fara a\u00f0 vild sinni. Konungur haf\u00f0i lagt svo fyrir vi\u00f0 r\u00e1\u00f0smenn s\u00edna a\u00f0 hver og einn skyldi drekka eins og hann lysti.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Vast\u00ed drottning rekin fr\u00e1 hir\u00f0 konungs<\/h3>\n<p><a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Vast\u00ed drottning h\u00e9lt konum einnig veislu \u00ed h\u00f6ll Xerxesar konungs. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00c1 sj\u00f6unda degi var konungur hreifur af v\u00edni og skipa\u00f0i hann \u00fe\u00e1 geldingunum sj\u00f6, sem \u00fej\u00f3nu\u00f0u honum, \u00feeim Meh\u00faman, Bista, Harb\u00f3na, Bigta og Abagta, Setar og Karkas, <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> a\u00f0 lei\u00f0a Vast\u00ed drottningu, pr\u00fddda k\u00f3r\u00f3nu sinni, fram fyrir konung svo a\u00f0 hann g\u00e6ti s\u00fdnt gestum s\u00ednum og a\u00f0linum yndis\u00feokka hennar, enda var h\u00fan f\u00f6gur s\u00fdnum. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> En Vast\u00ed drottning neita\u00f0i a\u00f0 ver\u00f0a vi\u00f0 \u00feeim tilm\u00e6lum konungs sem geldingarnir b\u00e1ru henni. Konungur br\u00e1st rei\u00f0ur vi\u00f0 og sau\u00f0 \u00ed honum br\u00e6\u00f0in.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Konungur leita\u00f0i jafnan r\u00e1\u00f0a \u00feeirra sem voru fr\u00f3\u00f0ir um l\u00f6g og r\u00e9tt, og r\u00e1\u00f0ga\u00f0ist hann n\u00fa um si\u00f0i og venjur vi\u00f0 nokkra hyggna menn og fr\u00f3\u00f0a <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00fe\u00e1 sem n\u00e6stir honum st\u00f3\u00f0u: Karsena, Setar, Admata, Tars\u00eds, Meres, Marsena og Mem\u00fakan, sj\u00f6 h\u00f6f\u00f0ingja Persa og Meda sem voru vi\u00f0 hir\u00f0 konungs og skipu\u00f0u \u00e6\u00f0stan sess \u00ed r\u00edkinu. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u201eHva\u00f0 segja l\u00f6gin a\u00f0 gert skuli vi\u00f0 Vast\u00ed drottningu?\u201c spur\u00f0i hann. \u201eH\u00fan hefur ekki hl\u00fdtt \u00feeirri skipun Xerxesar konungs sem geldingarnir fluttu henni.\u201c<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Mem\u00fakan svara\u00f0i \u00ed \u00e1heyrn konungs og h\u00f6f\u00f0ingjanna: \u201eVast\u00ed drottning hefur ekki a\u00f0eins broti\u00f0 gegn konunginum heldur einnig gegn \u00f6llum h\u00f6f\u00f0ingjum og \u00fej\u00f3\u00f0um \u00ed \u00f6llum l\u00f6ndum Xerxesar konungs. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Allar konur munu fr\u00e9tta af framfer\u00f0i drottningar og \u00fe\u00e1 munu \u00fe\u00e6r l\u00edtilsvir\u00f0a eiginmenn s\u00edna og segja: Xerxes konungur bau\u00f0 a\u00f0 Vast\u00ed drottning skyldi leidd \u00e1 sinn fund en h\u00fan neita\u00f0i. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deegar \u00ed dag munu hef\u00f0arkonur Persa og Meda, sem fr\u00e9tt hafa af \u00feessu h\u00e1ttalagi drottningar, svara \u00f6llum h\u00f6f\u00f0ingjum konungs \u00e1 sama veg. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur seint bundinn endi \u00e1 agaleysi og miskl\u00ed\u00f0. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00f3knist \u00fea\u00f0 konungi skal hann gefa \u00fat svofellda konunglega tilskipun og festa hana \u00ed l\u00f6g Persa og Meda svo a\u00f0 h\u00fan ver\u00f0i ekki aftur tekin: Vast\u00ed drottning skal ekki framar koma fyrir auglit Xerxesar konungs. Konunglega tign hennar mun konungur veita annarri sem reynist betri en h\u00fan. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deegar tilskipun konungs ver\u00f0ur birt um hi\u00f0 v\u00ed\u00f0lenda r\u00edki hans munu allar konur au\u00f0s\u00fdna eiginm\u00f6nnum s\u00ednum vir\u00f0ingu, jafnt h\u00e1um sem l\u00e1gum.\u201c<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deessi r\u00e1\u00f0 f\u00e9llu konungi og h\u00f6f\u00f0ingjum hans vel \u00ed ge\u00f0 og ger\u00f0i konungur eins og Mem\u00fakan haf\u00f0i lagt til. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hann l\u00e9t senda bo\u00f0 um \u00f6ll h\u00e9ru\u00f0 konungsr\u00edkisins, til hvers h\u00e9ra\u00f0s me\u00f0 letri \u00feess h\u00e9ra\u00f0s og hverrar \u00fej\u00f3\u00f0ar \u00e1 m\u00e1li \u00feeirrar \u00fej\u00f3\u00f0ar, a\u00f0 s\u00e9rhver karlma\u00f0ur skyldi vera h\u00fasb\u00f3ndi \u00e1 heimili s\u00ednu hver sem tunga hans v\u00e6ri.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Veislan \u00ed S\u00fasa 1 Xerxes konungur,[ s\u00e1 er r\u00edkti yfir hundra\u00f0 tuttugu og sj\u00f6 h\u00e9ru\u00f0um allt fr\u00e1 Indlandi til E\u00fe\u00ed\u00f3p\u00edu, 2 sat a\u00f0 v\u00f6ldum \u00ed virkisborginni S\u00fasa. 3 \u00c1 \u00feri\u00f0ja stj\u00f3rnar\u00e1ri s\u00ednu bau\u00f0 hann \u00f6llum h\u00f6f\u00f0ingjum s\u00ednum og r\u00e1\u00f0am\u00f6nnum til veislu, b\u00e6\u00f0i hersh\u00f6f\u00f0ingjum[ Persa og Meda og h\u00e9ra\u00f0sstj\u00f3rum og emb\u00e6ttism\u00f6nnum h\u00e9ra\u00f0anna. 4 D\u00f6gum saman, hundra\u00f0 og \u00e1ttat\u00edu daga alls, s\u00fdndi hann \u00feeim \u00fear \u00f3grynni au\u00f0\u00e6fa og d\u00fdr\u00f0 og skart konungstignar sinnar. 5 A\u00f0 \u00feeim d\u00f6gum li\u00f0num h\u00e9lt konungur \u00f6llum karlm\u00f6nnum \u00ed virkisborginni S\u00fasa, jafnt h\u00e1um sem l\u00e1gum, sj\u00f6 daga veislu \u00ed forgar\u00f0i hallar sinnar. 6 \u00dear var tjalda\u00f0 drifhv\u00edtum og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esterarbok-1-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2044","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2044","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2044"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2044\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2044"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}