{"id":2026,"date":"2017-12-30T21:01:25","date_gmt":"2017-12-30T21:01:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/esrab%c2%97k-6-kafli\/"},"modified":"2023-02-25T04:31:15","modified_gmt":"2023-02-25T04:31:15","slug":"esrabok-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esrabok-6-kafli\/","title":{"rendered":"Esrab\u00f3k 6. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Dar\u00edus sty\u00f0ur musterisbygginguna<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00de\u00e1 gaf Dar\u00edus konungur skipun um a\u00f0 leita\u00f0 skyldi \u00ed fj\u00e1rhirslunni \u00fear sem skj\u00f6l voru geymd \u00ed Bab\u00fdlon. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Fannst \u00fe\u00e1 b\u00f3kfell \u00ed virkisborginni Ahmeta \u00ed skattlandinu Med\u00edu \u00fear sem skrifa\u00f0 st\u00f3\u00f0: \u201eYfirl\u00fdsing: <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00c1 fyrsta stj\u00f3rnar\u00e1ri K\u00fdrusar konungs gaf K\u00fdrus konungur svohlj\u00f3\u00f0andi fyrirm\u00e6li: Hva\u00f0 h\u00fas Gu\u00f0s \u00ed Jer\u00fasalem snertir \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 endurreist svo a\u00f0 \u00fear ver\u00f0i sta\u00f0ur til f\u00f3rna. Byggt skal \u00e1 gamla grunninum. H\u00fasi\u00f0 skal ver\u00f0a sext\u00edu \u00e1lnir \u00e1 h\u00e6\u00f0 og sext\u00edu \u00e1lnir \u00e1 breidd. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 skal reist \u00far \u00feremur l\u00f6gum af st\u00f3rum steinum og einu af vi\u00f0i. Kostna\u00f0urinn skal greiddur \u00far fj\u00e1rhirslu konungs. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Enn fremur skal gull- og silfur\u00e1h\u00f6ldum \u00far h\u00fasi Gu\u00f0s skila\u00f0 en \u00feau t\u00f3k Neb\u00fakadnesar \u00far musterinu \u00ed Jer\u00fasalem og flutti til Bab\u00fdlonar. \u00deau skal flytja \u00e1 sinn fyrri sta\u00f0 \u00ed musterinu \u00ed Jer\u00fasalem og koma fyrir \u00ed h\u00fasi Gu\u00f0s.\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u201e\u00dev\u00ed skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 Tatna\u00ed, landstj\u00f3ri skattlandsins handan flj\u00f3ts, og Setar Bosna\u00ed og f\u00e9lagar ykkar, emb\u00e6ttismennirnir handan flj\u00f3ts, l\u00e1ta af afskiptum ykkar. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Vinna vi\u00f0 h\u00fas Gu\u00f0s haldi \u00e1fram. Landstj\u00f3ra Gy\u00f0inga og \u00f6ldungum er heimilt a\u00f0 endurreisa h\u00fasi\u00f0 \u00e1 s\u00ednum fyrri sta\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> H\u00e9r me\u00f0 gef \u00e9g fyrirm\u00e6li um hvernig \u00fei\u00f0 eigi\u00f0 a\u00f0 hj\u00e1lpa \u00f6ldungum Gy\u00f0inga vi\u00f0 byggingu \u00feessa h\u00fass Gu\u00f0s. \u00deessum m\u00f6nnum skal grei\u00f0a kostna\u00f0inn a\u00f0 fullu af tekjum konungs fr\u00e1 skattlandinu handan flj\u00f3ts svo a\u00f0 verki\u00f0 tefjist ekki. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00c1 hverjum degi skal undanbrag\u00f0alaust f\u00e6ra \u00feeim eins m\u00f6rg ungneyti, hr\u00fata og l\u00f6mb og \u00fearf til a\u00f0 f\u00e6ra Gu\u00f0i himinsins a\u00f0 brennif\u00f3rn og prestarnir \u00ed Jer\u00fasalem m\u00e6la fyrir um. Auk \u00feess skal l\u00e1ta \u00feeim \u00ed t\u00e9 hveiti, salt, v\u00edn og ol\u00edu <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> svo a\u00f0 \u00feeir megi f\u00e6ra Gu\u00f0i himinsins \u00feekkar f\u00f3rnir og bi\u00f0ja fyrir l\u00edfi konungs og sona hans. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Loks gef \u00e9g \u00feessi fyrirm\u00e6li: Hver s\u00e1 ma\u00f0ur, sem breytir gegn \u00feessari tilskipun, skal negldur \u00e1 bj\u00e1lka sem rifinn hefur veri\u00f0 \u00far hans eigin h\u00fasi og h\u00fas hans skal lagt \u00ed r\u00fast vegna \u00feessa afbrots. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> En s\u00e1 Gu\u00f0, sem l\u00e6tur nafn sitt b\u00faa \u00e1 \u00feessum sta\u00f0, steypi hverjum \u00feeim konungi og \u00fej\u00f3\u00f0 sem tekur s\u00e9r fyrir hendur a\u00f0 breyta gegn \u00feessu bo\u00f0i og ey\u00f0a \u00feessu h\u00fasi Gu\u00f0s \u00ed Jer\u00fasalem. \u00c9g, Dar\u00edus, hef gefi\u00f0 \u00feessa skipun, henni skal gaumg\u00e6filega framfylgt.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">V\u00edgsluh\u00e1t\u00ed\u00f0 musterisins<\/h3>\n<p><a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deeir Tatna\u00ed, landstj\u00f3ri handan flj\u00f3ts, Setar Bosna\u00ed og f\u00e9lagar \u00feeirra f\u00f3ru \u00ed einu og \u00f6llu eftir tilskipun Dar\u00edusar konungs sem hann haf\u00f0i sent \u00feeim. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00d6ldungar Gy\u00f0inga h\u00e9ldu byggingunni \u00e1fram og s\u00f3ttist verki\u00f0 vel vegna sp\u00e1mannsstarfs Hagga\u00ed sp\u00e1manns og Sakar\u00eda Idd\u00f3sonar. T\u00f3kst \u00feeim a\u00f0 lj\u00faka byggingunni samkv\u00e6mt fyrirm\u00e6lum fr\u00e1 Gu\u00f0i \u00cdsraels og tilskipunum K\u00fdrusar og Dar\u00edusar og Artaxerxesar Persakonunga. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> H\u00fasi\u00f0 var fullgert \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi adarm\u00e1na\u00f0ar \u00e1 sj\u00f6tta stj\u00f3rnar\u00e1ri Dar\u00edusar konungs.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00cdsraelsmenn, \u00fea\u00f0 er prestarnir, Lev\u00edtarnir og a\u00f0rir, sem komnir voru heim \u00far \u00fatleg\u00f0inni, h\u00e9ldu v\u00edgsluh\u00e1t\u00ed\u00f0 h\u00fass Gu\u00f0s me\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0i. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Vi\u00f0 v\u00edgslu h\u00fass Gu\u00f0s f\u00f3rnu\u00f0u \u00feeir hundra\u00f0 nautum, tv\u00f6 hundru\u00f0 hr\u00fatum og fj\u00f6gur hundru\u00f0 l\u00f6mbum. A\u00f0 auki f\u00e6r\u00f0u \u00feeir t\u00f3lf geithafra \u00ed syndaf\u00f3rn fyrir allan \u00cdsrael, jafnmarga \u00e6ttb\u00e1lkum \u00cdsraels. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 settu \u00feeir presta \u00ed flokka og Lev\u00edta \u00ed deildir til \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 Gu\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem eins og rita\u00f0 er \u00ed b\u00f3k M\u00f3se.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">P\u00e1skar og h\u00e1t\u00ed\u00f0 hinna \u00f3s\u00fdr\u00f0u brau\u00f0a<\/h3>\n<p><a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deeir sem komnir voru heim \u00far \u00fatleg\u00f0inni h\u00e9ldu p\u00e1ska \u00e1 fj\u00f3rt\u00e1nda degi fyrsta m\u00e1na\u00f0arins. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Prestarnir og Lev\u00edtarnir h\u00f6f\u00f0u hreinsa\u00f0 sig, allir sem einn. Allir voru \u00feeir n\u00fa hreinir og sl\u00e1tru\u00f0u \u00fev\u00ed p\u00e1skalambinu fyrir alla sem voru komnir, fyrir emb\u00e6ttisbr\u00e6\u00f0ur s\u00edna, prestana, og sj\u00e1lfa sig. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an neyttu allir \u00cdsraelsmenn, sem voru komnir heim \u00far \u00fatleg\u00f0inni, p\u00e1skalambsins \u00e1samt \u00f6llum sem h\u00f6f\u00f0u greint sig fr\u00e1 \u00f3hreinleika \u00fej\u00f3\u00f0anna \u00ed landinu og gengi\u00f0 til li\u00f0s vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn til \u00feess a\u00f0 leita Drottins, Gu\u00f0s \u00cdsraels. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00deeir h\u00e9ldu einnig h\u00e1t\u00ed\u00f0 hinna \u00f3s\u00fdr\u00f0u brau\u00f0a \u00ed sj\u00f6 daga me\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i glatt \u00fe\u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sn\u00faa hug Ass\u00fdr\u00edukonungs til \u00feeirra svo a\u00f0 hann studdi starf \u00feeirra a\u00f0 h\u00fasi Gu\u00f0s, \u00cdsraels Gu\u00f0s.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Dar\u00edus sty\u00f0ur musterisbygginguna 1 \u00de\u00e1 gaf Dar\u00edus konungur skipun um a\u00f0 leita\u00f0 skyldi \u00ed fj\u00e1rhirslunni \u00fear sem skj\u00f6l voru geymd \u00ed Bab\u00fdlon. 2 Fannst \u00fe\u00e1 b\u00f3kfell \u00ed virkisborginni Ahmeta \u00ed skattlandinu Med\u00edu \u00fear sem skrifa\u00f0 st\u00f3\u00f0: \u201eYfirl\u00fdsing: 3 \u00c1 fyrsta stj\u00f3rnar\u00e1ri K\u00fdrusar konungs gaf K\u00fdrus konungur svohlj\u00f3\u00f0andi fyrirm\u00e6li: Hva\u00f0 h\u00fas Gu\u00f0s \u00ed Jer\u00fasalem snertir \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 endurreist svo a\u00f0 \u00fear ver\u00f0i sta\u00f0ur til f\u00f3rna. Byggt skal \u00e1 gamla grunninum. H\u00fasi\u00f0 skal ver\u00f0a sext\u00edu \u00e1lnir \u00e1 h\u00e6\u00f0 og sext\u00edu \u00e1lnir \u00e1 breidd. 4 \u00dea\u00f0 skal reist \u00far \u00feremur l\u00f6gum af st\u00f3rum steinum og einu af vi\u00f0i. Kostna\u00f0urinn skal greiddur \u00far <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/esrabok-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2026","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2026","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2026"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2026\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2026"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}