{"id":2019,"date":"2017-12-30T21:01:25","date_gmt":"2017-12-30T21:01:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-kron%c2%92kub%c2%97k-35-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:21:16","modified_gmt":"2024-06-26T23:21:16","slug":"sidari-kronikubok-35-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-35-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 35. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> P\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0 J\u00f3s\u00eda<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> J\u00f3s\u00eda h\u00e9lt Drottni p\u00e1ska \u00ed Jer\u00fasalem og var p\u00e1skalambinu sl\u00e1tra\u00f0 \u00e1 fj\u00f3rt\u00e1nda degi fyrsta m\u00e1na\u00f0arins. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann l\u00e9t prestana koma til \u00fej\u00f3nustu sinnar og hvatti \u00fe\u00e1 til starfa \u00ed h\u00fasi Drottins. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Lev\u00edtunum, sem fr\u00e6ddu alla \u00cdsraelsmenn og voru helga\u00f0ir Drottni, gaf hann \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eSetji\u00f0 hina heil\u00f6gu \u00f6rk inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 sem Sal\u00f3mon, sonur Dav\u00ed\u00f0s, konungur \u00cdsraels, reisti. \u00dei\u00f0 \u00feurfi\u00f0 ekki lengur a\u00f0 bera hana \u00e1 \u00f6xlunum. \u00dej\u00f3ni\u00f0 n\u00fa Drottni og l\u00fd\u00f0 hans, \u00cdsrael. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Undirb\u00fai\u00f0 ykkur, hver fj\u00f6lskylda fyrir sig og \u00fej\u00f3nustuflokkar, samkv\u00e6mt \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Dav\u00ed\u00f0s \u00cdsraelskonungs og fyrirm\u00e6lum Sal\u00f3mons, sonar hans. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Taki\u00f0 ykkur st\u00f6\u00f0u \u00ed helgid\u00f3minum eftir \u00e6ttflokkum fj\u00f6lskyldna ykkar, leikmannanna, og ein sveit af Lev\u00edta\u00e6ttum skal svara til hvers flokks. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Sl\u00e1tri\u00f0 \u00fe\u00e1 p\u00e1skalambinu og helgi\u00f0 ykkur. Tilrei\u00f0i\u00f0 \u00fea\u00f0 fyrir \u00e6ttbr\u00e6\u00f0ur ykkar svo a\u00f0 \u00feeir geti framfylgt fyrirm\u00e6lum Drottins sem hann gaf fyrir munn M\u00f3se.\u201c<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> J\u00f3s\u00eda lag\u00f0i til f\u00e9na\u00f0, l\u00f6mb og ki\u00f0linga handa leikm\u00f6nnunum. Var \u00fea\u00f0 allt haft til p\u00e1skaf\u00f3rnanna fyrir \u00fe\u00e1 sem voru vi\u00f0staddir. Voru \u00feetta \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00fe\u00fasund fj\u00e1r og \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund naut a\u00f0 auki, allt \u00far einkaeign konungs. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Emb\u00e6ttismenn hans l\u00f6g\u00f0u einnig fram \u00fea\u00f0 sem \u00feeir vildu handa almenningi, prestum og Lev\u00edtum. Hilk\u00eda, Sakar\u00eda og Jeh\u00edel, h\u00f6f\u00f0ingjar h\u00fass Gu\u00f0s, g\u00e1fu prestunum tv\u00f6 \u00fe\u00fasund og sex hundru\u00f0 fj\u00e1r til p\u00e1skaf\u00f3rna og \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 naut. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Kananja og br\u00e6\u00f0ur hans, Semaja og Netaneel, einnig Hasakja, Je\u00edel og J\u00f3sabad, h\u00f6f\u00f0ingjar Lev\u00edtanna, l\u00f6g\u00f0u Lev\u00edtunum til fimm \u00fe\u00fasund fj\u00e1r til p\u00e1skaf\u00f3rna og fimm hundru\u00f0 naut.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustan haf\u00f0i \u00feannig veri\u00f0 undirb\u00fain t\u00f3ku prestarnir s\u00e9r st\u00f6\u00f0u \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0. Lev\u00edtarnir t\u00f3ku s\u00e9r st\u00f6\u00f0u eftir \u00fej\u00f3nustuflokkum s\u00ednum samkv\u00e6mt skipun konungs <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> og sl\u00e1tru\u00f0u p\u00e1skalambinu. Prestarnir dreyptu bl\u00f3\u00f0inu sem Lev\u00edtarnir r\u00e9ttu \u00feeim. \u00dev\u00ed n\u00e6st fl\u00e1\u00f0u Lev\u00edtarnir f\u00f3rnard\u00fdrin. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deeir l\u00f6g\u00f0u \u00fea\u00f0 sem \u00e6tla\u00f0 var til brennif\u00f3rnar til hli\u00f0ar og fengu fj\u00f6lskyldum leikmannanna svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r g\u00e6tu f\u00e6rt \u00fea\u00f0 Drottni a\u00f0 f\u00f3rn samkv\u00e6mt \u00fev\u00ed sem skrifa\u00f0 er \u00ed b\u00f3k M\u00f3se. Eins f\u00f3ru \u00feeir a\u00f0 me\u00f0 nautin. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00e1 steiktu \u00feeir p\u00e1skalambi\u00f0 vi\u00f0 eld samkv\u00e6mt fyrirm\u00e6lunum. Hins vegar su\u00f0u \u00feeir helgigjafirnar \u00ed pottum, k\u00f6tlum og sk\u00e1lum og hlupu me\u00f0 \u00fe\u00e6r til leikmannanna. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Eftir \u00fea\u00f0 matbjuggu \u00feeir fyrir sig og prestana. \u00dear sem prestarnir, ni\u00f0jar Arons, voru a\u00f0 brenna brennif\u00f3rnirnar og fitustykkin fram \u00e1 n\u00f3tt matbjuggu Lev\u00edtarnir fyrir sj\u00e1lfa sig og prestana, ni\u00f0ja Arons.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> S\u00f6ngvararnir, ni\u00f0jar Asafs, st\u00f3\u00f0u \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0 samkv\u00e6mt \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Dav\u00ed\u00f0s og sj\u00e1enda konungsins, Asafs, Hemans og Jed\u00fat\u00fans.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deannig var \u00f6ll \u00fej\u00f3nusta vi\u00f0 Drottin skipul\u00f6g\u00f0 \u00feennan dag: P\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0in var haldin og brennif\u00f3rnir f\u00e6r\u00f0ar \u00e1 altari Drottins samkv\u00e6mt skipun J\u00f3s\u00eda konungs. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00deeir \u00cdsraelsmenn, sem voru vi\u00f0staddir, h\u00e9ldu n\u00fa p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0. \u00deeir h\u00e9ldu einnig h\u00e1t\u00ed\u00f0 hinna \u00f3s\u00fdr\u00f0u brau\u00f0a \u00ed sj\u00f6 daga. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Sl\u00edkir p\u00e1skar h\u00f6f\u00f0u ekki veri\u00f0 haldnir \u00ed \u00cdsrael s\u00ed\u00f0an \u00e1 d\u00f6gum Sam\u00faels sp\u00e1manns. Enginn af konungum \u00cdsraels haf\u00f0i haldi\u00f0 p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0 eins og \u00fe\u00e1 sem J\u00f3s\u00eda h\u00e9lt \u00e1samt prestunum, Lev\u00edtunum og \u00f6llum \u00edb\u00faum J\u00fada og Jer\u00fasalem og \u00feeim \u00cdsraelsm\u00f6nnum sem voru n\u00e6rstaddir. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deessir p\u00e1skar voru haldnir \u00e1 \u00e1tj\u00e1nda stj\u00f3rnar\u00e1ri J\u00f3s\u00eda.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">J\u00f3s\u00eda deyr<\/h3>\n<p><a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deegar J\u00f3s\u00eda haf\u00f0i loki\u00f0 \u00f6llum vi\u00f0ger\u00f0um \u00e1 h\u00fasi Drottins h\u00e9lt Nek\u00f3, konungur Egyptalands, me\u00f0 her sinn til \u00feess a\u00f0 berjast hj\u00e1 Karkemis vi\u00f0 Efratflj\u00f3t. J\u00f3s\u00eda f\u00f3r gegn honum <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> og Nek\u00f3 sendi bo\u00f0bera til hans sem s\u00f6g\u00f0u: \u201eKonungur J\u00fada, hva\u00f0 eigum vi\u00f0 s\u00f6k\u00f3tt hvor vi\u00f0 annan? \u00cd dag held \u00e9g ekki gegn \u00fe\u00e9r heldur \u00feeirri konungs\u00e6tt sem heyr str\u00ed\u00f0 vi\u00f0 mig. Gu\u00f0 hefur bo\u00f0i\u00f0 m\u00e9r a\u00f0 hafa hra\u00f0an \u00e1. H\u00e6ttu \u00fev\u00ed sj\u00e1lfs \u00fe\u00edn vegna a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0 gu\u00f0 sem stendur me\u00f0 m\u00e9r. Steyptu ekki sj\u00e1lfum \u00fe\u00e9r \u00ed gl\u00f6tun.\u201c<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> En J\u00f3s\u00eda hopa\u00f0i hvergi. Hann var \u00e1kve\u00f0inn \u00ed a\u00f0 berjast gegn honum og hlusta\u00f0i ekki \u00e1 skilabo\u00f0 Nek\u00f3s sem komu \u00fe\u00f3 \u00far munni Gu\u00f0s. Hann f\u00f3r \u00fev\u00ed til a\u00f0 berjast gegn honum \u00e1 sl\u00e9ttunni vi\u00f0 Megidd\u00f3. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00de\u00e1 h\u00e6f\u00f0u bogaskytturnar J\u00f3s\u00eda konung sem sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fej\u00f3na s\u00edna: \u201eFari\u00f0 me\u00f0 mig h\u00e9\u00f0an \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er miki\u00f0 s\u00e6r\u00f0ur.\u201c <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00dej\u00f3nar hans lyftu honum \u00far str\u00ed\u00f0svagninum og l\u00f6g\u00f0u hann \u00ed hinn vagninn sem hann haf\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r. \u00deegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u flutt hann til Jer\u00fasalem d\u00f3 hann og var grafinn \u00ed gr\u00f6fum forfe\u00f0ra sinna. Allir J\u00fadamenn og Jer\u00fasalemb\u00faar h\u00f6rmu\u00f0u J\u00f3s\u00eda <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> og Jerem\u00eda orti harmlj\u00f3\u00f0 eftir hann. Allir s\u00f6ngvarar og s\u00f6ngkonur minnast J\u00f3s\u00eda \u00ed harmlj\u00f3\u00f0um s\u00ednum, allt til \u00feessa dags. \u00deeir hafa gert \u00fea\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0tekinni venju \u00ed \u00cdsrael enda eru \u00feau skr\u00e1\u00f0 \u00ed harmlj\u00f3\u00f0unum.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem \u00f3skr\u00e1\u00f0 er af s\u00f6gu J\u00f3s\u00eda og verkum hans sem vitnu\u00f0u um tr\u00fa hans samkv\u00e6mt \u00fev\u00ed sem skr\u00e1\u00f0 er \u00ed l\u00f6gb\u00f3k Drottins, <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> saga hans fr\u00e1 upphafi til enda, er skr\u00e1\u00f0 \u00ed b\u00f3k \u00cdsraels- og J\u00fadakonunga.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>P\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0 J\u00f3s\u00eda 1 J\u00f3s\u00eda h\u00e9lt Drottni p\u00e1ska \u00ed Jer\u00fasalem og var p\u00e1skalambinu sl\u00e1tra\u00f0 \u00e1 fj\u00f3rt\u00e1nda degi fyrsta m\u00e1na\u00f0arins. 2 Hann l\u00e9t prestana koma til \u00fej\u00f3nustu sinnar og hvatti \u00fe\u00e1 til starfa \u00ed h\u00fasi Drottins. 3 Lev\u00edtunum, sem fr\u00e6ddu alla \u00cdsraelsmenn og voru helga\u00f0ir Drottni, gaf hann \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eSetji\u00f0 hina heil\u00f6gu \u00f6rk inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 sem Sal\u00f3mon, sonur Dav\u00ed\u00f0s, konungur \u00cdsraels, reisti. \u00dei\u00f0 \u00feurfi\u00f0 ekki lengur a\u00f0 bera hana \u00e1 \u00f6xlunum. \u00dej\u00f3ni\u00f0 n\u00fa Drottni og l\u00fd\u00f0 hans, \u00cdsrael. 4 Undirb\u00fai\u00f0 ykkur, hver fj\u00f6lskylda fyrir sig og \u00fej\u00f3nustuflokkar, samkv\u00e6mt \u00e1kv\u00f6r\u00f0un Dav\u00ed\u00f0s \u00cdsraelskonungs og fyrirm\u00e6lum Sal\u00f3mons, sonar hans. 5 Taki\u00f0 ykkur st\u00f6\u00f0u <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-35-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2019","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2019","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2019"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2019\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2019"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}