{"id":2018,"date":"2017-12-30T21:01:25","date_gmt":"2017-12-30T21:01:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-kron%c2%92kub%c2%97k-34-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:21:16","modified_gmt":"2024-06-26T23:21:16","slug":"sidari-kronikubok-34-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-34-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 34. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> J\u00f3s\u00eda konungur J\u00fada<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> J\u00f3s\u00eda var \u00e1tta \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti \u00ed Jer\u00fasalem \u00ferj\u00e1t\u00edu og eitt \u00e1r. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Drottins. Hann feta\u00f0i \u00ed f\u00f3tspor Dav\u00ed\u00f0s, forf\u00f6\u00f0ur s\u00edns, og v\u00e9k hvorki til h\u00e6gri n\u00e9 vinstri fr\u00e1 \u00feeim.<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00c1 \u00e1ttunda stj\u00f3rnar\u00e1ri J\u00f3s\u00eda, er hann var enn \u00e1 unglingsaldri, t\u00f3k hann a\u00f0 leita svara hj\u00e1 Gu\u00f0i Dav\u00ed\u00f0s, forf\u00f6\u00f0ur s\u00edns. \u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu t\u00f3k hann a\u00f0 hreinsa f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar og fjarl\u00e6gja As\u00e9rust\u00f3lpa, skur\u00f0go\u00f0 og l\u00edkneski \u00far J\u00fada og Jer\u00fasalem. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00d6lturu Baalanna voru rifin ni\u00f0ur a\u00f0 honum \u00e1sj\u00e1andi og hann l\u00e9t m\u00f6lbrj\u00f3ta reykelsis\u00f6lturun sem st\u00f3\u00f0u \u00e1 \u00feeim. Hann l\u00e9t einnig brj\u00f3ta As\u00e9rust\u00f3lpana, skur\u00f0go\u00f0in og l\u00edkneskin m\u00e9linu sm\u00e6rra og \u00fev\u00ed n\u00e6st dreifa \u00feeim \u00e1 grafir \u00feeirra sem h\u00f6f\u00f0u f\u00e6rt \u00feeim f\u00f3rnir. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hann l\u00e9t brenna bein prestanna \u00e1 \u00f6lturum \u00feeirra og hreinsa\u00f0i \u00feannig J\u00fada og Jer\u00fasalem. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Hann l\u00e9t r\u00edfa ni\u00f0ur \u00f6lturun \u00e1 torgum borganna \u00ed Manasse, Efra\u00edm, S\u00edmeon og allt til Naftal\u00ed. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hann l\u00e9t m\u00f6lbrj\u00f3ta As\u00e9rust\u00f3lpana og l\u00edkneskin og r\u00edfa ni\u00f0ur \u00f6ll reykelsis\u00f6lturu \u00ed \u00cdsrael. \u00dev\u00ed n\u00e6st sneri hann aftur heim til Jer\u00fasalem.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">L\u00f6gb\u00f3k finnst<\/h3>\n<p><a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00c1 \u00e1tj\u00e1nda stj\u00f3rnar\u00e1ri J\u00f3s\u00eda, \u00feegar hann var a\u00f0 hreinsa landi\u00f0 og musteri\u00f0, sendi konungur Safan Astaljason, Maaseja borgarstj\u00f3ra og J\u00f3ak J\u00f3ahasson, talsmann konungs, til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta gera vi\u00f0 h\u00fas Drottins, Gu\u00f0s s\u00edns. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deeir komu til Hilk\u00eda \u00e6\u00f0sta prests og \u00feeim var afhent f\u00e9\u00f0 sem haf\u00f0i veri\u00f0 flutt til h\u00fass Gu\u00f0s. \u00deessu f\u00e9 h\u00f6f\u00f0u Lev\u00edtarnir, sem g\u00e6ttu \u00fer\u00f6skuldanna, safna\u00f0 saman fr\u00e1 Manasse, Efra\u00edm og \u00f6llum \u00f6\u00f0rum \u00e6ttb\u00e1lkum \u00cdsraels, \u00f6llum J\u00fada og Benjam\u00edn og \u00edb\u00faum Jer\u00fasalem. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deeir afhentu f\u00e9\u00f0 verkstj\u00f3runum sem r\u00e1\u00f0nir voru til starfa \u00ed h\u00fasi Drottins og \u00feeir greiddu me\u00f0 \u00fev\u00ed verkam\u00f6nnunum sem unnu vi\u00f0 a\u00f0 lagf\u00e6ra og gera vi\u00f0 h\u00fas Drottins. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Einnig fengu \u00feeir tr\u00e9smi\u00f0unum og h\u00fasasmi\u00f0unum f\u00e9 til \u00feess a\u00f0 kaupa h\u00f6ggna steina og vi\u00f0 \u00ed sto\u00f0ir og til vi\u00f0ger\u00f0a \u00e1 h\u00fasinu sem J\u00fadakonungar h\u00f6f\u00f0u l\u00e1ti\u00f0 hr\u00f6rna. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Mennirnir unnu verk sitt af tr\u00famennsku. Yfirmenn \u00feeirra voru Lev\u00edtarnir Jahat og \u00d3bad\u00eda, sem voru ni\u00f0jar Merar\u00ed, og Sakar\u00eda, en Mes\u00fallam, Kahatsni\u00f0ji, haf\u00f0i yfirstj\u00f3rnina me\u00f0 h\u00f6ndum. Lev\u00edtarnir, sem allir voru hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleikarar, <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> stj\u00f3rnu\u00f0u bur\u00f0arm\u00f6nnunum og h\u00f6f\u00f0u umsj\u00f3n me\u00f0 \u00f6llum \u00feeim sem h\u00f6f\u00f0u eitthvert starf \u00e1 hendi. Nokkrir Lev\u00edtanna voru skrifarar, flokksstj\u00f3rar og hli\u00f0ver\u00f0ir.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deegar f\u00e9\u00f0, sem haf\u00f0i veri\u00f0 flutt til h\u00fass Drottins, var s\u00f3tt fann Hilk\u00eda prestur l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k Drottins sem haf\u00f0i veri\u00f0 opinberu\u00f0 af munni M\u00f3se. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hilk\u00eda sk\u00fdr\u00f0i Safan r\u00edkisritara fr\u00e1 \u00fev\u00ed og sag\u00f0i: \u201e\u00c9g fann l\u00f6gb\u00f3k \u00ed h\u00fasi Drottins.\u201c Hilk\u00eda f\u00e9kk Safan b\u00f3kina <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> en hann f\u00f3r me\u00f0 hana til konungs og sag\u00f0i: \u201e\u00dej\u00f3nar \u00fe\u00ednir hafa gert allt sem \u00feeim var fali\u00f0. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00deeir hafa reitt fram f\u00e9\u00f0 sem fannst \u00ed h\u00fasi Drottins og fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 umsj\u00f3narm\u00f6nnunum og verkam\u00f6nnunum \u00ed hendur.\u201c <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Safan r\u00edkisritari sag\u00f0i vi\u00f0 konung: \u201eHilk\u00eda \u00e6\u00f0sti prestur f\u00e9kk m\u00e9r b\u00f3k.\u201c Og Safan las \u00far henni fyrir konunginn.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deegar konungur heyr\u00f0i \u00e1kv\u00e6\u00f0i laganna reif hann kl\u00e6\u00f0i s\u00edn. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st gaf hann \u00feeim Hilk\u00eda \u00e6\u00f0sta presti, Ak\u00edham Safanssyni, Abd\u00f3m M\u00edkasyni, Safan r\u00edkisritara og Asaja, \u00fej\u00f3ni konungs, svohlj\u00f3\u00f0andi fyrirm\u00e6li: <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u201eFari\u00f0 og leiti\u00f0 svara hj\u00e1 Drottni fyrir mig og \u00fe\u00e1 sem eftir eru af \u00cdsrael og J\u00fada um \u00fea\u00f0 sem stendur \u00ed \u00feessari b\u00f3k sem fundist hefur. \u00dev\u00ed a\u00f0 mikil er rei\u00f0i Drottins sem \u00fathellt hefur veri\u00f0 yfir okkur \u00fear sem forfe\u00f0ur okkar hafa ekki fylgt skipun Drottins me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fara eftir \u00f6llu \u00fev\u00ed sem skr\u00e1\u00f0 er \u00ed \u00feessari b\u00f3k.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hulda sp\u00e1ma\u00f0ur<\/h3>\n<p><a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 gekk Hilk\u00eda \u00e1samt \u00feeim sem konungurinn haf\u00f0i \u00e1kve\u00f0i\u00f0 til Huldu sp\u00e1manns. H\u00fan var eiginkona Sall\u00fams T\u00f3khatssonar, Hasrasonar kl\u00e6\u00f0avar\u00f0ar. H\u00fan bj\u00f3 \u00ed n\u00fdja borgarhverfinu \u00ed Jer\u00fasalem. \u00deeir s\u00f6g\u00f0u henni erindi sitt <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> og h\u00fan svara\u00f0i: \u201eSvo segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Beri\u00f0 \u00feeim sem sendi ykkur til m\u00edn \u00feessi bo\u00f0: <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Svo segir Drottinn: \u00c9g sendi b\u00f6l yfir \u00feennan sta\u00f0 og \u00edb\u00faa hans, alla \u00fe\u00e1 b\u00f6lvun sem skr\u00e1\u00f0 er \u00ed b\u00f3kinni sem lesin var fyrir J\u00fadakonung, <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> vegna \u00feess a\u00f0 \u00feeir hafa yfirgefi\u00f0 mig og f\u00e6rt \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um reykelsisf\u00f3rnir. \u00deeir hafa vaki\u00f0 rei\u00f0i m\u00edna me\u00f0 \u00f6llum handaverkum s\u00ednum. \u00deess vegna er heift minni \u00fathellt yfir \u00feennan sta\u00f0 og h\u00fan mun ekki slokkna. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Skili\u00f0 \u00feessu til J\u00fadakonungs sem sendi ykkur til \u00feess a\u00f0 leita svara hj\u00e1 Drottni: Svo segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Or\u00f0in, sem \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir, <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> mildu\u00f0u hjarta \u00feitt og \u00fe\u00fa au\u00f0m\u00fdktir \u00feig fyrir augliti Gu\u00f0s. \u00deegar \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir or\u00f0 hans gegn \u00feessum sta\u00f0 og \u00edb\u00faum hans reifstu kl\u00e6\u00f0i \u00fe\u00edn og gr\u00e9st frammi fyrir augliti m\u00ednu. \u00deess vegna b\u00e6nheyri \u00e9g \u00feig, segir Drottinn. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00c9g mun l\u00e1ta \u00feig safnast til fe\u00f0ra \u00feinna og \u00fe\u00fa skalt lag\u00f0ur \u00ed gr\u00f6f \u00fe\u00edna \u00ed fri\u00f0i. Augu \u00fe\u00edn skulu ekki l\u00edta allt \u00fea\u00f0 b\u00f6l sem \u00e9g mun senda yfir \u00feennan sta\u00f0 og \u00edb\u00faa hans.\u201c \u00deetta svar f\u00e6r\u00f0u \u00feeir konungi.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Si\u00f0b\u00f3t J\u00f3s\u00eda<\/h3>\n<p><a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Konungur sendi menn og l\u00e9t safna til s\u00edn \u00f6llum \u00f6ldungum J\u00fada og Jer\u00fasalem. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Hann gekk s\u00ed\u00f0an upp til h\u00fass Drottins \u00e1samt \u00f6llum \u00edb\u00faum J\u00fada og Jer\u00fasalem, prestum, Lev\u00edtum og \u00f6llum almenningi, ungum og g\u00f6mlum, og las \u00ed \u00e1heyrn \u00feeirra \u00f6ll \u00e1kv\u00e6\u00f0i s\u00e1ttm\u00e1lsb\u00f3karinnar sem fundist haf\u00f0i \u00ed h\u00fasi Drottins. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Konungurinn t\u00f3k s\u00e9r st\u00f6\u00f0u \u00e1 s\u00ednum sta\u00f0 og ger\u00f0i s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 Drottin um a\u00f0 fylgja Drottni, hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0um hans, fyrirm\u00e6lum og laga\u00e1kv\u00e6\u00f0um af \u00f6llu hjarta og allri s\u00e1lu og um a\u00f0 framfylgja \u00e1kv\u00e6\u00f0um s\u00e1ttm\u00e1lans sem skr\u00e1\u00f0 voru \u00ed \u00feessari b\u00f3k. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t hann alla sem voru staddir \u00ed Jer\u00fasalem og Benjam\u00edn gangast undir s\u00e1ttm\u00e1lann. \u00cdb\u00faar Jer\u00fasalem breyttu s\u00ed\u00f0an samkv\u00e6mt s\u00e1ttm\u00e1la Gu\u00f0s, Gu\u00f0s fe\u00f0ra sinna.<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> J\u00f3s\u00eda l\u00e9t fjarl\u00e6gja alla vi\u00f0urstygg\u00f0 \u00far \u00f6llum l\u00f6ndum \u00cdsraelsmanna. Hann s\u00e1 til \u00feess a\u00f0 allir sem voru \u00ed \u00cdsrael \u00fej\u00f3nu\u00f0u Drottni, Gu\u00f0i s\u00ednum. \u00c1 me\u00f0an hann lif\u00f0i viku \u00feeir ekki fr\u00e1 fylgdinni vi\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 fe\u00f0ra sinna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00f3s\u00eda konungur J\u00fada 1 J\u00f3s\u00eda var \u00e1tta \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti \u00ed Jer\u00fasalem \u00ferj\u00e1t\u00edu og eitt \u00e1r. 2 Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Drottins. Hann feta\u00f0i \u00ed f\u00f3tspor Dav\u00ed\u00f0s, forf\u00f6\u00f0ur s\u00edns, og v\u00e9k hvorki til h\u00e6gri n\u00e9 vinstri fr\u00e1 \u00feeim. 3 \u00c1 \u00e1ttunda stj\u00f3rnar\u00e1ri J\u00f3s\u00eda, er hann var enn \u00e1 unglingsaldri, t\u00f3k hann a\u00f0 leita svara hj\u00e1 Gu\u00f0i Dav\u00ed\u00f0s, forf\u00f6\u00f0ur s\u00edns. \u00c1 t\u00f3lfta \u00e1rinu t\u00f3k hann a\u00f0 hreinsa f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar og fjarl\u00e6gja As\u00e9rust\u00f3lpa, skur\u00f0go\u00f0 og l\u00edkneski \u00far J\u00fada og Jer\u00fasalem. 4 \u00d6lturu Baalanna voru rifin ni\u00f0ur a\u00f0 honum \u00e1sj\u00e1andi og hann l\u00e9t m\u00f6lbrj\u00f3ta reykelsis\u00f6lturun sem <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-34-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2018","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2018","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2018"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2018\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2018"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}