{"id":2014,"date":"2017-12-30T21:01:20","date_gmt":"2017-12-30T21:01:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-kron%c2%92kub%c2%97k-30-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:21:15","modified_gmt":"2024-06-26T23:21:15","slug":"sidari-kronikubok-30-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-30-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 30. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Undirb\u00faningur p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0ar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Hisk\u00eda sendi n\u00fa bo\u00f0bera til allra \u00cdsraels- og J\u00fadamanna. Hann skrifa\u00f0i einnig br\u00e9f til \u00e6ttb\u00e1lka Efra\u00edms og Manasse og hvatti \u00fe\u00e1 til a\u00f0 koma til h\u00fass Drottins \u00ed Jer\u00fasalem til \u00feess a\u00f0 halda Drottni, Gu\u00f0i \u00cdsraels, p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0.<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> En konungurinn haf\u00f0i r\u00e1\u00f0gast vi\u00f0 hir\u00f0menn s\u00edna og allan s\u00f6fnu\u00f0inn \u00ed Jer\u00fasalem um \u00fea\u00f0 hvort halda skyldi p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0inum <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki var unnt a\u00f0 halda hana strax \u00fear sem ekki h\u00f6f\u00f0u n\u00e6gilega margir prestar helga\u00f0 sig og f\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i ekki safnast saman \u00ed Jer\u00fasalem. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Konungurinn og allur s\u00f6fnu\u00f0urinn t\u00f6ldu \u00feetta vel til falli\u00f0. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deeir \u00e1kv\u00e1\u00f0u \u00fev\u00ed a\u00f0 senda bo\u00f0bera um allan \u00cdsrael fr\u00e1 Beerseba til Dan og tilkynna a\u00f0 menn skyldu koma og halda Drottni, Gu\u00f0i \u00cdsraels, p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00ed Jer\u00fasalem. En h\u00e1t\u00ed\u00f0in haf\u00f0i ekki veri\u00f0 haldin \u00e1\u00f0ur af \u00feeim fj\u00f6lda sem tilskilinn var.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> N\u00fa f\u00f3ru hra\u00f0bo\u00f0ar me\u00f0 br\u00e9f fr\u00e1 konungi og hir\u00f0m\u00f6nnum hans um allan \u00cdsrael og J\u00fada og tilkynntu a\u00f0 bo\u00f0i konungs: \u201e\u00cdsraelsmenn, sn\u00fai\u00f0 ykkur til Drottins, Gu\u00f0s Abrahams, \u00cdsaks og \u00cdsraels, svo a\u00f0 hann sn\u00fai s\u00e9r a\u00f0 \u00feeim ykkar sem sluppu \u00far h\u00f6ndum Ass\u00fdr\u00edukonunga. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Veri\u00f0 ekki eins og fe\u00f0ur ykkar og \u00e6ttbr\u00e6\u00f0ur sem sviku Drottin, Gu\u00f0 fe\u00f0ra sinna, svo a\u00f0 hann olli \u00fev\u00ed a\u00f0 menn hryllti vi\u00f0 \u00feeim eins og \u00fei\u00f0 geti\u00f0 sj\u00e1lfir s\u00e9\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Veri\u00f0 ekki \u00ferj\u00f3skir eins og fe\u00f0ur ykkar. R\u00e9tti\u00f0 Drottni h\u00f6ndina og komi\u00f0 \u00ed helgid\u00f3m hans sem hann hefur helga\u00f0 \u00e6vinlega. \u00dej\u00f3ni\u00f0 Drottni, Gu\u00f0i ykkar, svo a\u00f0 brennandi heift hans sn\u00fai fr\u00e1 ykkur. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 sn\u00fai\u00f0 ykkur til Drottins, Gu\u00f0s ykkar, ver\u00f0ur br\u00e6\u00f0rum ykkar og sonum s\u00fdnd miskunn af \u00feeim sem herleiddu \u00fe\u00e1. \u00deeim ver\u00f0ur jafnvel leyft a\u00f0 sn\u00faa aftur heim til \u00feessa lands \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, er n\u00e1\u00f0ugur og miskunnsamur. Hann mun ekki sn\u00faa augliti s\u00ednu fr\u00e1 ykkur ef \u00fei\u00f0 sn\u00fai\u00f0 til hans.\u201c<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Hra\u00f0bo\u00f0arnir f\u00f3ru fr\u00e1 einni borg til annarrar \u00ed landi Efra\u00edms og Manasse, allt til Seb\u00falonslands, en \u00feeir voru a\u00f0eins haf\u00f0ir a\u00f0 h\u00e1\u00f0i og spotti. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 voru a\u00f0eins nokkrir menn \u00far \u00e6ttb\u00e1lkum Assers, Manasse og Seb\u00falons sem au\u00f0m\u00fdktu sig og komu til Jer\u00fasalem. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00cd J\u00fada var h\u00f6nd Gu\u00f0s einnig a\u00f0 verki svo a\u00f0 hann ger\u00f0i \u00fe\u00e1 einhuga um a\u00f0 fylgja skipun konungs og hir\u00f0mannanna sem var bygg\u00f0 \u00e1 fyrirm\u00e6lum Drottins.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">P\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0in<\/h3>\n<p><a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Fj\u00f6ldi f\u00f3lks safna\u00f0ist n\u00fa saman \u00ed Jer\u00fasalem til \u00feess a\u00f0 halda h\u00e1t\u00ed\u00f0 hinna \u00f3s\u00fdr\u00f0u brau\u00f0a \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0inum. Var \u00fea\u00f0 mikill s\u00f6fnu\u00f0ur. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 h\u00f3fst handa og fjarl\u00e6g\u00f0i \u00f6lturun sem voru \u00ed Jer\u00fasalem, einnig \u00f6ll reykelsis\u00f6lturun og kasta\u00f0i \u00feeim \u00ed Kedrondalinn.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00c1 fj\u00f3rt\u00e1nda degi annars m\u00e1na\u00f0arins var p\u00e1skalambinu sl\u00e1tra\u00f0. En prestarnir og Lev\u00edtarnir blyg\u00f0u\u00f0ust s\u00edn. \u00deeir helgu\u00f0u sig og f\u00f3ru me\u00f0 brennif\u00f3rnir til h\u00fass Drottins. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00dear t\u00f3ku \u00feeir s\u00e9r st\u00f6\u00f0u \u00e1 s\u00ednum hef\u00f0bundna sta\u00f0 samkv\u00e6mt l\u00f6gm\u00e1li gu\u00f0smannsins M\u00f3se. Prestarnir dreyptu bl\u00f3\u00f0inu sem \u00feeir t\u00f3ku vi\u00f0 \u00far h\u00f6ndum Lev\u00edtanna.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00dear sem margir voru \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum, sem ekki h\u00f6f\u00f0u helga\u00f0 sig, sl\u00e1tru\u00f0u Lev\u00edtarnir p\u00e1skal\u00f6mbunum fyrir alla, sem ekki voru hreinir, svo a\u00f0 \u00feeir g\u00e6tu helga\u00f0 \u00feau Drottni.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Fj\u00f6ldi manns, einkum fr\u00e1 Efra\u00edm, Manasse, \u00cdssakar og Seb\u00falon, haf\u00f0i ekki hreinsa\u00f0 sig, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir neyta p\u00e1skalambsins ekki samkv\u00e6mt \u00fev\u00ed sem skrifa\u00f0 er. \u00deess vegna ba\u00f0 Hisk\u00eda fyrir \u00feeim og sag\u00f0i: \u201eDrottinn, \u00fe\u00fa sem ert g\u00f3\u00f0ur. Fyrirgef\u00f0u <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> s\u00e9rhverjum sem heils hugar leitar Gu\u00f0s Drottins, Gu\u00f0s fe\u00f0ra sinna, jafnvel \u00fe\u00f3tt hann s\u00e9 ekki hreinsa\u00f0ur \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 reglur helgid\u00f3msins.\u201c<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Drottinn b\u00e6nheyr\u00f0i Hisk\u00eda og hegndi f\u00f3lkinu ekki.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deeir \u00cdsraelsmenn, sem voru staddir \u00ed Jer\u00fasalem, h\u00e9ldu h\u00e1t\u00ed\u00f0 hinna \u00f3s\u00fdr\u00f0u brau\u00f0a \u00ed sj\u00f6 daga me\u00f0 mikilli gle\u00f0i. Lev\u00edtarnir og prestarnir lofu\u00f0u Drottin dag eftir dag me\u00f0 hlj\u00f3mmiklum hlj\u00f3\u00f0f\u00e6rum. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hisk\u00eda \u00feakka\u00f0i Lev\u00edtunum en \u00feeir h\u00f6f\u00f0u sinnt \u00fej\u00f3nustunni vi\u00f0 Drottin af kunn\u00e1ttu og \u00feekkingu.<br \/>\u00deegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u haldi\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00ed sj\u00f6 daga og f\u00e6rt heillaf\u00f3rnir og lofa\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 fe\u00f0ra sinna, <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00e1kva\u00f0 allur s\u00f6fnu\u00f0urinn a\u00f0 halda h\u00e1t\u00ed\u00f0ina enn \u00ed sj\u00f6 daga. Var haldin gle\u00f0ih\u00e1t\u00ed\u00f0 \u00feessa sj\u00f6 daga <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 Hisk\u00eda, konungur J\u00fada, haf\u00f0i gefi\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0inum \u00fe\u00fasund naut og sj\u00f6 \u00fe\u00fasund sau\u00f0i og h\u00f6f\u00f0ingjarnir h\u00f6f\u00f0u gefi\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0inum \u00fe\u00fasund naut og t\u00edu \u00fe\u00fasund sau\u00f0i. Fj\u00f6ldi presta haf\u00f0i helga\u00f0 sig. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Allur s\u00f6fnu\u00f0ur J\u00fada fagna\u00f0i \u00e1samt prestunum og Lev\u00edtunum og \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0i \u00feeirra sem h\u00f6f\u00f0u komi\u00f0 fr\u00e1 \u00cdsrael \u00e1samt a\u00f0komum\u00f6nnum og \u00feeim sem bjuggu \u00ed J\u00fada. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00cd Jer\u00fasalem var mikil gle\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 ekkert \u00feessu l\u00edkt haf\u00f0i gerst s\u00ed\u00f0an \u00e1 d\u00f6gum Sal\u00f3mons, sonar Dav\u00ed\u00f0s, \u00cdsraelskonungs.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> A\u00f0 lokum risu Lev\u00edtaprestarnir \u00e1 f\u00e6tur og blessu\u00f0u f\u00f3lki\u00f0. Gu\u00f0 heyr\u00f0i hr\u00f3p \u00feeirra og b\u00e6n \u00feeirra komst til hans heilaga b\u00fasta\u00f0ar, allt til himins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Undirb\u00faningur p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0ar 1 Hisk\u00eda sendi n\u00fa bo\u00f0bera til allra \u00cdsraels- og J\u00fadamanna. Hann skrifa\u00f0i einnig br\u00e9f til \u00e6ttb\u00e1lka Efra\u00edms og Manasse og hvatti \u00fe\u00e1 til a\u00f0 koma til h\u00fass Drottins \u00ed Jer\u00fasalem til \u00feess a\u00f0 halda Drottni, Gu\u00f0i \u00cdsraels, p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0. 2 En konungurinn haf\u00f0i r\u00e1\u00f0gast vi\u00f0 hir\u00f0menn s\u00edna og allan s\u00f6fnu\u00f0inn \u00ed Jer\u00fasalem um \u00fea\u00f0 hvort halda skyldi p\u00e1skah\u00e1t\u00ed\u00f0ina \u00ed \u00f6\u00f0rum m\u00e1nu\u00f0inum 3 \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki var unnt a\u00f0 halda hana strax \u00fear sem ekki h\u00f6f\u00f0u n\u00e6gilega margir prestar helga\u00f0 sig og f\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i ekki safnast saman \u00ed Jer\u00fasalem. 4 Konungurinn og allur s\u00f6fnu\u00f0urinn t\u00f6ldu \u00feetta vel til falli\u00f0. 5 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-30-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2014","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2014","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2014"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2014\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2014"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}