{"id":2008,"date":"2017-12-30T21:01:20","date_gmt":"2017-12-30T21:01:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-kron%c2%92kub%c2%97k-24-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:21:14","modified_gmt":"2024-06-26T23:21:14","slug":"sidari-kronikubok-24-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-24-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 24. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> J\u00f3as konungur \u00ed J\u00fada<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> J\u00f3as var sj\u00f6 \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t S\u00edbja og var fr\u00e1 Beerseba.<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> J\u00f3as ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Drottins allan \u00feann t\u00edma sem J\u00f3jada lif\u00f0i.<span class=\"nedan_mal\" title=\" H\u00e9r er stj\u00f3rnart\u00ed\u00f0 J\u00f3asar skipt \u00ed tvennt. S\u00ed\u00f0ari hluti stj\u00f3rnart\u00ed\u00f0ar hans hefst me\u00f0 2Kro 24.15.\">[<\/span> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> J\u00f3jada f\u00e9kk honum tv\u00e6r eiginkonur og hann eigna\u00f0ist syni og d\u00e6tur.<span class=\"nedan_mal\" title=\" J\u00f3as var s\u00e1 eini af \u00e6tt Dav\u00ed\u00f0s sem lif\u00f0i eftir aft\u00f6kur Atal\u00edu.\">[<\/span> <br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Nokkru s\u00ed\u00f0ar kom J\u00f3asi \u00ed hug a\u00f0 endurn\u00fdja h\u00fas Drottins. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hann safna\u00f0i \u00fe\u00e1 saman prestunum og Lev\u00edtunum og gaf \u00feeim \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eFari\u00f0 til borganna \u00ed J\u00fada og safni\u00f0 saman f\u00e9 fr\u00e1 \u00f6llum \u00cdsraelsm\u00f6nnum til \u00feess a\u00f0 \u00e1rlega ver\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 gera vi\u00f0 h\u00fas Gu\u00f0s ykkar. Geri\u00f0 \u00feetta \u00feegar \u00ed sta\u00f0.\u201c En \u00fear sem Lev\u00edtarnir f\u00f3ru s\u00e9r h\u00e6gt <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> kalla\u00f0i konungurinn J\u00f3jada \u00e6\u00f0sta prest fyrir sig og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201eHvers vegna hefur \u00fe\u00fa ekki krafist \u00feess af Lev\u00edtunum a\u00f0 \u00feeir komi hinga\u00f0 me\u00f0 skattinn fr\u00e1 J\u00fada og Jer\u00fasalem sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, og s\u00f6fnu\u00f0urinn h\u00f6f\u00f0u lagt \u00e1 \u00cdsrael vegna samfundatjaldsins? <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Atal\u00eda, sem er gu\u00f0leysi\u00f0 holdi kl\u00e6tt, og fylgismenn hennar hafa l\u00e1ti\u00f0 h\u00fas Gu\u00f0s hr\u00f6rna. \u00deau hafa jafnvel nota\u00f0 helgigjafirnar, sem \u00e6tla\u00f0ar voru h\u00fasi Drottins, handa Ba\u00f6lunum.\u201c<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> N\u00fa l\u00e9t konungur gera kistu. Var henni komi\u00f0 fyrir utan vi\u00f0 hli\u00f0i\u00f0 a\u00f0 h\u00fasi Drottins. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st var kunngj\u00f6rt \u00ed J\u00fada og Jer\u00fasalem a\u00f0 grei\u00f0a skyldi skattinn til Drottins sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, haf\u00f0i lagt \u00e1 \u00cdsrael \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Allir h\u00f6f\u00f0ingjarnir gl\u00f6ddust, svo og allur landsl\u00fd\u00f0ur. \u00deeir komu me\u00f0 framl\u00f6g s\u00edn og l\u00f6g\u00f0u \u00ed kistuna \u00fear til h\u00fan fylltist. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00c1 tilteknum t\u00edma var kistan f\u00e6r\u00f0 til eftirlits sem konungur f\u00f3l Lev\u00edtunum a\u00f0 annast. Ef \u00feeir s\u00e1u a\u00f0 miki\u00f0 f\u00e9 var komi\u00f0 \u00ed kistuna komu ritari konungs og fulltr\u00fai yfirprestsins, t\u00e6mdu kistuna og b\u00e1ru hana aftur \u00e1 sinn sta\u00f0. \u00deetta ger\u00f0u \u00feeir dag eftir dag og s\u00f6fnu\u00f0u miklu f\u00e9. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Konungurinn og J\u00f3jada afhentu \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0an verkstj\u00f3runum sem st\u00f6rfu\u00f0u \u00ed h\u00fasi Drottins. \u00deeir r\u00e9\u00f0u steinsmi\u00f0i og tr\u00e9smi\u00f0i til a\u00f0 endurn\u00fdja h\u00fas Drottins og einnig meistara \u00ed j\u00e1rnsm\u00ed\u00f0i og eirsteypu til a\u00f0 b\u00e6ta h\u00fas Drottins. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Verkstj\u00f3rarnir h\u00f3fu n\u00fa verki\u00f0 og s\u00f3ttist vinnan vi\u00f0 endurb\u00e6turnar vel undir stj\u00f3rn \u00feeirra. \u00deeir endurreistu h\u00fas Gu\u00f0s eins og \u00fev\u00ed h\u00e6f\u00f0i og styrktu \u00fea\u00f0. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u loki\u00f0 verkinu komu \u00feeir me\u00f0 \u00fea\u00f0 sem eftir var af f\u00e9nu til konungs og J\u00f3jada. Fyrir \u00fea\u00f0 l\u00e9tu \u00feeir gera \u00e1h\u00f6ld fyrir h\u00fas Drottins, sk\u00e1lar til gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustunnar og brennif\u00f3rnar\u00fej\u00f3nustunnar, sk\u00e1lar og \u00f6nnur \u00e1h\u00f6ld \u00far gulli og silfri.<br \/>\u00c1 me\u00f0an J\u00f3jada lif\u00f0i voru brennif\u00f3rnir f\u00e6r\u00f0ar reglulega \u00ed h\u00fasi Drottins. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> En J\u00f3jada var\u00f0 gamall og saddur l\u00edfdaga. Hann var hundra\u00f0 og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1ra \u00feegar hann d\u00f3. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Hann var grafinn \u00ed borg Dav\u00ed\u00f0s, hj\u00e1 konungunum, \u00fev\u00ed a\u00f0 hann haf\u00f0i unni\u00f0 gott verk \u00ed \u00cdsrael fyrir Gu\u00f0 og h\u00fas hans.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Eftir andl\u00e1t J\u00f3jada komu h\u00f6f\u00f0ingjar J\u00fada og s\u00fdndu konungi lotningu. Konungur hlusta\u00f0i \u00e1 \u00fe\u00e1 <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> og \u00feeir yfirg\u00e1fu h\u00fas Drottins, Gu\u00f0s fe\u00f0ra sinna, og t\u00f3ku a\u00f0 \u00fej\u00f3na As\u00e9rust\u00f3lpum og \u00f6\u00f0rum skur\u00f0go\u00f0um. Vegna \u00feessa afbrots kom heiftarrei\u00f0i yfir J\u00fada og Jer\u00fasalem. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Drottinn sendi \u00fev\u00ed sp\u00e1menn til \u00feeirra til \u00feess a\u00f0 sn\u00faa \u00feeim aftur til Drottins. Sp\u00e1mennirnir \u00e1minntu \u00fe\u00e1 en \u00feeir hlustu\u00f0u ekki. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kom andi Gu\u00f0s yfir Sakar\u00eda,<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: \u00de\u00e1 \u00edkl\u00e6ddist andi Gu\u00f0s Sakar\u00eda.\">[<\/span> son J\u00f3jada prests. Hann gekk fram fyrir f\u00f3lki\u00f0 og sag\u00f0i: \u201eSvo segir Gu\u00f0: Hvers vegna brj\u00f3ti\u00f0 \u00fei\u00f0 gegn fyrirm\u00e6lum Drottins? \u00deannig mun ykkur ekki vel farnast \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn yfirgefur ykkur ef \u00fei\u00f0 yfirgefi\u00f0 hann.\u201c<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> En \u00feeir ger\u00f0u sams\u00e6ri gegn honum og gr\u00fdttu hann \u00ed forgar\u00f0i h\u00fass Drottins samkv\u00e6mt skipun konungs. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> J\u00f3as konungur minntist ekki lengur \u00feeirrar tr\u00famennsku sem J\u00f3jada, fa\u00f0ir Sakar\u00eda, haf\u00f0i s\u00fdnt honum. Hann l\u00e9t drepa son hans og \u00feegar hann d\u00f3 sag\u00f0i hann: \u201eMegi Drottinn sj\u00e1 \u00feetta og hefna \u00feess.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Innr\u00e1s Aramea, J\u00f3as deyr<\/h3>\n<p><a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Um \u00e1ram\u00f3tin h\u00e9lt her Aramea gegn J\u00f3asi. \u00deegar hermennirnir komu inn \u00ed J\u00fada og Jer\u00fasalem eyddu \u00feeir \u00f6llum lei\u00f0togum f\u00f3lksins og sendu allt herfangi\u00f0 til konungsins \u00ed Damaskus. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Enda \u00fe\u00f3tt her Aramea v\u00e6ri f\u00e1mennur \u00feegar hann kom seldi Drottinn mj\u00f6g st\u00f3ran her J\u00fadamanna \u00ed hendur honum af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u yfirgefi\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 fe\u00f0ra sinna. \u00deannig fulln\u00e6g\u00f0u Aramear refsid\u00f3minum yfir J\u00f3asi. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir h\u00e9ldu \u00ed burtu skildu \u00feeir hann eftir mj\u00f6g s\u00e1ran. \u00de\u00e1 ger\u00f0u emb\u00e6ttismenn hans sams\u00e6ri gegn honum vegna bl\u00f3\u00f0sektarinnar eftir son J\u00f3jada prests og dr\u00e1pu hann \u00ed r\u00fami s\u00ednu. Hann var grafinn \u00ed borg Dav\u00ed\u00f0s en \u00fe\u00f3 ekki \u00ed gr\u00f6fum konunganna. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00deeir sem ger\u00f0u sams\u00e6ri gegn honum voru: Sabad, sonur S\u00edmeatar fr\u00e1 Amm\u00f3n, og J\u00f3sabad, sonur Simr\u00edtar fr\u00e1 M\u00f3ab.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Fr\u00e1sagnir af sonum hans og af hinum m\u00f6rgu or\u00f0um sp\u00e1mannanna gegn honum og af endurbyggingu h\u00fass Drottins eru skr\u00e1\u00f0ar \u00ed sk\u00fdringariti vi\u00f0 b\u00f3k konunganna. Amas\u00eda, sonur hans, var\u00f0 konungur eftir hann.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00f3as konungur \u00ed J\u00fada 1 J\u00f3as var sj\u00f6 \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t S\u00edbja og var fr\u00e1 Beerseba. 2 J\u00f3as ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Drottins allan \u00feann t\u00edma sem J\u00f3jada lif\u00f0i.[ 3 J\u00f3jada f\u00e9kk honum tv\u00e6r eiginkonur og hann eigna\u00f0ist syni og d\u00e6tur.[ 4 Nokkru s\u00ed\u00f0ar kom J\u00f3asi \u00ed hug a\u00f0 endurn\u00fdja h\u00fas Drottins. 5 Hann safna\u00f0i \u00fe\u00e1 saman prestunum og Lev\u00edtunum og gaf \u00feeim \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eFari\u00f0 til borganna \u00ed J\u00fada og safni\u00f0 saman f\u00e9 fr\u00e1 \u00f6llum \u00cdsraelsm\u00f6nnum til \u00feess a\u00f0 \u00e1rlega ver\u00f0i h\u00e6gt a\u00f0 gera vi\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-24-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2008","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2008","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2008"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2008\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2008"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}