{"id":2004,"date":"2017-12-30T21:01:20","date_gmt":"2017-12-30T21:01:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-kron%c2%92kub%c2%97k-20-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:21:13","modified_gmt":"2024-06-26T23:21:13","slug":"sidari-kronikubok-20-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-20-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari kron\u00edkub\u00f3k 20. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Innr\u00e1s \u00far austri<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Nokkru s\u00ed\u00f0ar h\u00e9ldu M\u00f3ab\u00edtar og Amm\u00f3n\u00edtar og \u00e1samt \u00feeim h\u00f3pur Me\u00fan\u00edta gegn J\u00f3safat til a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 hann. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00e1 komu sendimenn og s\u00f6g\u00f0u: \u201eMikill her er \u00e1 lei\u00f0inni gegn \u00fe\u00e9r handan yfir vatni\u00f0 fr\u00e1 Ed\u00f3m. N\u00fa er hann kominn til Haseson Tamar, \u00fea\u00f0 er Enged\u00ed.\u201c<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> J\u00f3safat var\u00f0 skelfingu lostinn og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 leita svara hj\u00e1 Drottni. Hann gaf fyrirm\u00e6li um f\u00f6stu \u00ed \u00f6llu J\u00fada. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Og J\u00fadamenn s\u00f6fnu\u00f0ust saman til \u00feess a\u00f0 leita \u00farskur\u00f0ar Drottins. \u00deeir komu fr\u00e1 \u00f6llum borgum \u00ed J\u00fada til \u00feess a\u00f0 leita \u00farskur\u00f0ar Drottins.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> J\u00f3safat gekk fram fyrir s\u00f6fnu\u00f0 J\u00fadamanna og Jer\u00fasalemb\u00faa \u00ed h\u00fasi Drottins og blasti \u00fe\u00e1 n\u00fdi forgar\u00f0urinn vi\u00f0 honum. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Hann ba\u00f0: \u201eDrottinn, Gu\u00f0 fe\u00f0ra vorra. Ert \u00fe\u00fa ekki Gu\u00f0 \u00e1 himnum og r\u00edkir \u00fe\u00fa ekki yfir \u00f6llum konungsr\u00edkjum \u00fej\u00f3\u00f0anna? M\u00e1ttur og megin eru \u00ed hendi \u00feinni og enginn getur veitt \u00fe\u00e9r vi\u00f0n\u00e1m. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Sviptir \u00fe\u00fa, Gu\u00f0 vor, ekki fyrri \u00edb\u00faa \u00feessa lands landi s\u00ednu vegna l\u00fd\u00f0s \u00fe\u00edns, \u00cdsraels? Gafstu \u00fea\u00f0 ekki ni\u00f0jum Abrahams, vinar \u00fe\u00edns, til \u00e6vinlegrar eignar? <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deeir settust \u00fear a\u00f0, reistu nafni \u00fe\u00ednu helgid\u00f3m og s\u00f6g\u00f0u: <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Ef b\u00f6l kemur yfir oss, sver\u00f0, fl\u00f3\u00f0, dreps\u00f3tt e\u00f0a hungursney\u00f0, munum v\u00e9r ganga fram fyrir \u00feetta h\u00fas og fram fyrir auglit \u00feitt \u00fev\u00ed a\u00f0 nafn \u00feitt b\u00fdr \u00ed \u00feessu h\u00fasi. V\u00e9r munum hr\u00f3pa til \u00fe\u00edn \u00ed ney\u00f0 vorri og \u00fe\u00fa munt b\u00e6nheyra og hj\u00e1lpa oss. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> N\u00fa eru Amm\u00f3n\u00edtar, M\u00f3ab\u00edtar og \u00edb\u00faar Se\u00edrfjalla komnir hinga\u00f0. \u00de\u00fa leyf\u00f0ir \u00cdsraelsm\u00f6nnum ekki a\u00f0 fara inn \u00ed land \u00feeirra \u00feegar \u00feeir komu fr\u00e1 Egyptalandi heldur sneiddu \u00feeir hj\u00e1 \u00feeim og eyddu \u00feeim ekki. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> En n\u00fa launa \u00feeir fyrir sig me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma hinga\u00f0 til \u00feess a\u00f0 hrekja oss af eign \u00feinni sem \u00fe\u00fa hefur gefi\u00f0 oss. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Munt \u00fe\u00fa, Gu\u00f0, ekki d\u00e6ma \u00fe\u00e1? V\u00e9r erum aflvana gegn \u00feessum volduga her sem heldur gegn oss. V\u00e9r vitum ekki hva\u00f0 v\u00e9r getum gert, \u00feess vegna beinum v\u00e9r sj\u00f3num vorum til \u00fe\u00edn.\u201c<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deegar allir J\u00fadamenn st\u00f3\u00f0u frammi fyrir Drottni \u00e1samt ungb\u00f6rnum s\u00ednum, konum og sonum, <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> kom andi Drottins yfir Jehas\u00edel mitt \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum. Hann var sonur Sakar\u00eda Benajasonar, Je\u00edelssonar, Mattanjasonar og var Lev\u00edti af \u00e6tt Asafs. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hann sag\u00f0i: \u201eTaki\u00f0 eftir, allir J\u00fadamenn og Jer\u00fasalemb\u00faar og \u00fe\u00fa, J\u00f3safat konungur. Svo segir Drottinn vi\u00f0 ykkur: \u00d3ttist ekki. Skelfist ekki \u00feennan mikla her \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki ykkar a\u00f0 berjast heldur Gu\u00f0s. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Fari\u00f0 \u00e1 morgun \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim. \u00deeir munu koma upp st\u00edginn vi\u00f0 S\u00eds og \u00fei\u00f0 munu\u00f0 m\u00e6ta \u00feeim \u00ed dalsmynninu sem sn\u00fdr a\u00f0 Jer\u00faeley\u00f0im\u00f6rk. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> En \u00fei\u00f0 eigi\u00f0 ekki a\u00f0 berjast. Fylki\u00f0 ykkur, standi\u00f0 og horfi\u00f0 \u00e1 \u00feegar Drottinn vinnur sigur fyrir ykkur, J\u00fadamenn og Jer\u00fasalemb\u00faar. \u00d3ttist ekki. Skelfist ekki. Fari\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim \u00e1 morgun, Drottinn ver\u00f0ur me\u00f0 ykkur.\u201c<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> J\u00f3safat laut \u00fe\u00e1 til jar\u00f0ar fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna og allir J\u00fadamenn og Jer\u00fasalemb\u00faar f\u00e9llu fram fyrir Drottin og veittu honum lotningu. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st risu Lev\u00edtar af Kahat\u00edta\u00e6tt og K\u00f3ra\u00e6tt \u00e1 f\u00e6tur og lofu\u00f0u Drottin, Gu\u00f0 \u00cdsraels, h\u00e1rri og sterkri r\u00f6ddu.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Snemma n\u00e6sta morgun h\u00e9ldu \u00feeir inn \u00ed Tek\u00f3aey\u00f0im\u00f6rk. \u00deegar \u00feeir l\u00f6g\u00f0u af sta\u00f0 gekk J\u00f3safat fram og sag\u00f0i: \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 mig, J\u00fadamenn og Jer\u00fasalemb\u00faar. Treysti\u00f0 Drottni, Gu\u00f0i ykkar, og \u00fei\u00f0 munu\u00f0 f\u00e1 sta\u00f0ist. Treysti\u00f0 sp\u00e1m\u00f6nnum hans og ykkur mun farnast vel.\u201c <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Hann r\u00e1\u00f0ga\u00f0ist vi\u00f0 herinn og fylkti s\u00f6ngvurum Drottins. \u00deeir gengu s\u00ed\u00f0an \u00e1 undan hernum, b\u00fanir helgum skr\u00fa\u00f0a, lofu\u00f0u Drottin og hr\u00f3pu\u00f0u:<br \/> <span class=\"ljodatexti\"> Lofi\u00f0 Drottin \u00fev\u00ed a\u00f0<br \/>miskunn hans varir a\u00f0 eil\u00edfu. <\/span> <br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Um lei\u00f0 og \u00feeir lustu upp her\u00f3pi og h\u00f3fu lofs\u00f6nginn l\u00e9t Drottinn menn r\u00e1\u00f0ast \u00far launs\u00e1tri gegn Amm\u00f3n\u00edtum, M\u00f3ab\u00edtum og fjallab\u00faum fr\u00e1 Se\u00edr, sem h\u00f6f\u00f0u haldi\u00f0 gegn J\u00fada, og bi\u00f0u \u00feeir \u00f3sigur. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En Amm\u00f3n\u00edtar og M\u00f3ab\u00edtar fylktu s\u00e9r gegn m\u00f6nnunum fr\u00e1 Se\u00edr, helgu\u00f0u \u00fe\u00e1 banni og tort\u00edmdu \u00feeim. \u00deegar \u00feeir h\u00f6f\u00f0u gereytt m\u00f6nnunum fr\u00e1 Se\u00edr r\u00e9\u00f0ust \u00feeir hver gegn \u00f6\u00f0rum og tort\u00edmdu hver \u00f6\u00f0rum.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00deegar J\u00fadamenn komu \u00feanga\u00f0 sem sj\u00e1 m\u00e1tti yfir ey\u00f0im\u00f6rkina og litu\u00f0ust um eftir hinum mikla her l\u00e1gu a\u00f0eins l\u00edk hinna f\u00f6llnu \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni. Enginn haf\u00f0i komist undan. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st kom J\u00f3safat \u00e1samt her s\u00ednum til \u00feess a\u00f0 taka herfangi\u00f0. \u00deeir fundu mikinn f\u00e9na\u00f0, v\u00f6rur, kl\u00e6\u00f0na\u00f0i og d\u00fdrgripi. \u00deeir t\u00f3ku svo miki\u00f0 a\u00f0 \u00feeir g\u00e1tu ekki bori\u00f0 \u00fea\u00f0. Herfangi\u00f0 var svo miki\u00f0 a\u00f0 \u00feeir voru \u00ferj\u00e1 daga a\u00f0 safna \u00fev\u00ed. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00c1 fj\u00f3r\u00f0a degi s\u00f6fnu\u00f0ust \u00feeir saman \u00ed Lofgj\u00f6r\u00f0ardal. \u00deessi sta\u00f0ur er nefndur Lofgj\u00f6r\u00f0ardalur enn \u00ed dag \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear lofu\u00f0u \u00feeir Drottin. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st sneru allir mennirnir fr\u00e1 Jer\u00fasalem og J\u00fada, me\u00f0 J\u00f3safat \u00ed broddi fylkingar, heim \u00e1 lei\u00f0 til Jer\u00fasalem, gla\u00f0ir \u00ed brag\u00f0i, \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i glatt \u00fe\u00e1 me\u00f0 sigrinum yfir fjandm\u00f6nnum \u00feeirra. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir komu til Jer\u00fasalem og h\u00fass Drottins l\u00e9ku \u00feeir \u00e1 h\u00f6rpur, g\u00edgjur og l\u00fa\u00f0ra.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Gu\u00f0 haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 skelfingu koma yfir \u00f6ll \u00f6nnur konungsr\u00edki \u00feegar fr\u00e9ttist a\u00f0 Drottinn hef\u00f0i barist gegn fjandm\u00f6nnum \u00cdsraels. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Og fri\u00f0ur r\u00edkti \u00fev\u00ed \u00ed r\u00edki J\u00f3safats og Gu\u00f0 hans veitti honum fri\u00f0 allt um kring.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">R\u00edkisstj\u00f3rn J\u00f3safats<\/h3>\n<p><a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> J\u00f3safat r\u00edkti yfir J\u00fada. Hann var \u00ferj\u00e1t\u00edu og fimm \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og hann r\u00edkti tuttugu og fimm \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t As\u00faba S\u00edlh\u00edd\u00f3ttir. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Hann feta\u00f0i \u00ed f\u00f3tspor Asa, f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, og v\u00e9k ekki fr\u00e1 \u00feeim. Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Drottins. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00de\u00f3 hurfu f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar ekki og enn beindi \u00fej\u00f3\u00f0in ekki huga s\u00ednum til Gu\u00f0s fe\u00f0ra sinna. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem \u00f3sagt er af s\u00f6gu J\u00f3safats, fr\u00e1 upphafi til enda, er skr\u00e1\u00f0 \u00ed s\u00f6gu Jeh\u00fa Hanan\u00edsonar sem hefur veri\u00f0 tekin upp \u00ed b\u00f3k \u00cdsraelskonunga.<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Eftir \u00feetta ger\u00f0i J\u00f3safat J\u00fadakonungur bandalag vi\u00f0 Ahas\u00eda \u00cdsraelskonung enda \u00fe\u00f3tt hann breytti \u00f3gu\u00f0lega. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00deeir J\u00f3safat ger\u00f0u samning um a\u00f0 sm\u00ed\u00f0a skip sem \u00e1ttu a\u00f0 sigla til Tarsis. \u00deeir l\u00e9tu sm\u00ed\u00f0a skipin \u00ed Esjon Geber. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> En El\u00edeser, sonur D\u00f3dava fr\u00e1 Maresa, kom fram sem sp\u00e1ma\u00f0ur gegn J\u00f3safat og sag\u00f0i: \u201eDrottinn mun brj\u00f3ta \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefur l\u00e1ti\u00f0 sm\u00ed\u00f0a af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur gert bandalag vi\u00f0 Ahas\u00eda.\u201c Skipin brotnu\u00f0u \u00ed sp\u00f3n og komust aldrei til Tarsis.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Innr\u00e1s \u00far austri 1 Nokkru s\u00ed\u00f0ar h\u00e9ldu M\u00f3ab\u00edtar og Amm\u00f3n\u00edtar og \u00e1samt \u00feeim h\u00f3pur Me\u00fan\u00edta gegn J\u00f3safat til a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 hann. 2 \u00de\u00e1 komu sendimenn og s\u00f6g\u00f0u: \u201eMikill her er \u00e1 lei\u00f0inni gegn \u00fe\u00e9r handan yfir vatni\u00f0 fr\u00e1 Ed\u00f3m. N\u00fa er hann kominn til Haseson Tamar, \u00fea\u00f0 er Enged\u00ed.\u201c 3 J\u00f3safat var\u00f0 skelfingu lostinn og \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 leita svara hj\u00e1 Drottni. Hann gaf fyrirm\u00e6li um f\u00f6stu \u00ed \u00f6llu J\u00fada. 4 Og J\u00fadamenn s\u00f6fnu\u00f0ust saman til \u00feess a\u00f0 leita \u00farskur\u00f0ar Drottins. \u00deeir komu fr\u00e1 \u00f6llum borgum \u00ed J\u00fada til \u00feess a\u00f0 leita \u00farskur\u00f0ar Drottins. 5 J\u00f3safat gekk fram fyrir s\u00f6fnu\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-kronikubok-20-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-2004","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2004","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=2004"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/2004\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=2004"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}