{"id":1984,"date":"2017-12-30T21:01:15","date_gmt":"2017-12-30T21:01:15","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-kron%c2%92kub%c2%97k-29-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:21:11","modified_gmt":"2024-06-26T23:21:11","slug":"fyrri-kronikubok-29-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-kronikubok-29-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri kron\u00edkub\u00f3k 29. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Gjafir til musterisbyggingarinnar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 konungur \u00e1varpa\u00f0i n\u00fa allan s\u00f6fnu\u00f0inn:<br \/>\u201eSal\u00f3mon, sonur minn, sem Gu\u00f0 hefur vali\u00f0, er enn ungur og \u00f3har\u00f0na\u00f0ur. En verki\u00f0 er miki\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki er byggingin \u00e6tlu\u00f0 m\u00f6nnum heldur Drottni Gu\u00f0i. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00c9g hef \u00fev\u00ed af \u00f6llum m\u00e6tti dregi\u00f0 a\u00f0 h\u00fasi Gu\u00f0s m\u00edns gull \u00ed gull\u00e1h\u00f6ldin, silfur \u00ed silfur\u00e1h\u00f6ldin, eir \u00ed eir\u00e1h\u00f6ldin, j\u00e1rn \u00ed j\u00e1rn\u00e1h\u00f6ldin og vi\u00f0 \u00ed tr\u00e9\u00e1h\u00f6ldin \u00e1samt sj\u00f3amsteinum, steina til a\u00f0 setja \u00ed umgjar\u00f0ir, steinl\u00edm, mislita steina og alls konar a\u00f0ra d\u00fdra steina og miki\u00f0 af alabastri. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef m\u00e6tur \u00e1 h\u00fasi Gu\u00f0s m\u00edns gef \u00e9g h\u00e9r me\u00f0 einkaeign m\u00edna af gulli og silfri til h\u00fass Gu\u00f0s m\u00edns, auk alls \u00feess sem \u00e9g hef \u00feegar lagt hinu heilaga h\u00fasi til: <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund talentur af gulli, \u00d3f\u00edrgulli, og sj\u00f6 \u00fe\u00fasund talentur af hreinu silfri. Me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00e1 a\u00f0 \u00feekja veggi h\u00fassins <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> alls sta\u00f0ar, \u00fear sem \u00fe\u00f6rf er \u00e1, gulli og silfri og nota \u00fea\u00f0 \u00ed alls konar handverk listasmi\u00f0a. En hver er n\u00fa rei\u00f0ub\u00fainn a\u00f0 f\u00e6ra Drottni gj\u00f6f?\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00fdndu \u00e6ttarh\u00f6f\u00f0ingjarnir og h\u00f6f\u00f0ingjar \u00e6ttb\u00e1lka \u00cdsraels og h\u00f6f\u00f0ingjar \u00fe\u00fasund manna og hundra\u00f0 manna li\u00f0a og r\u00e1\u00f0smenn hinna konunglegu emb\u00e6tta \u00f6rl\u00e6ti sitt. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deeir g\u00e1fu f\u00e9 til a\u00f0 grei\u00f0a kostna\u00f0inn vi\u00f0 vinnuna vi\u00f0 h\u00fas Gu\u00f0s: fimm \u00fe\u00fasund gulltalentur, t\u00edu \u00fe\u00fasund Dar\u00edusdali \u00far gulli, t\u00edu \u00fe\u00fasund silfurtalentur, \u00e1tj\u00e1n \u00fe\u00fasund eirtalentur og hundra\u00f0 \u00fe\u00fasund j\u00e1rntalentur. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hver s\u00e1 sem \u00e1tti \u00ed f\u00f3rum s\u00ednum d\u00fdra steina gaf \u00fe\u00e1 \u00ed fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0 h\u00fass Drottins, \u00ed v\u00f6rslu Jeh\u00edels Gerson\u00edta. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 gladdist yfir \u00f6rl\u00e6ti \u00feeirra \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u f\u00e6rt Drottni gjafirnar f\u00faslega og af heilum hug. Dav\u00ed\u00f0 konungur gladdist einnig mj\u00f6g.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00deakkarb\u00e6n Dav\u00ed\u00f0s<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00e1 lofa\u00f0i Dav\u00ed\u00f0 Drottin frammi fyrir \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0inum og sag\u00f0i: \u201eLofa\u00f0ur s\u00e9rt \u00fe\u00fa, Drottinn, Gu\u00f0 f\u00f6\u00f0ur vors, \u00cdsraels, fr\u00e1 eil\u00edf\u00f0 til eil\u00edf\u00f0ar. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00de\u00edn er tignin, Drottinn, m\u00e1tturinn, d\u00fdr\u00f0in, vegsemdin og h\u00e1tignin \u00fev\u00ed a\u00f0 allt er \u00feitt \u00e1 himni og j\u00f6r\u00f0u. Drottinn, \u00feitt er konungd\u00e6mi\u00f0 og \u00fe\u00fa ert hafinn yfir allt. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Au\u00f0ur og s\u00e6md koma fr\u00e1 \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00fa r\u00edkir yfir \u00f6llu. \u00cd hendi \u00fe\u00e9r er m\u00e1ttur og megin, \u00ed hendi \u00fe\u00e9r er vald til a\u00f0 efla og styrkja hvern sem vera skal. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Og n\u00fa, Gu\u00f0 vor, \u00fe\u00f6kkum v\u00e9r \u00fe\u00e9r. V\u00e9r lofum \u00feitt d\u00fdrlega nafn. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> En hver er \u00e9g og hver er l\u00fd\u00f0ur minn, a\u00f0 v\u00e9r vorum f\u00e6rir um a\u00f0 gefa sl\u00edkar gjafir? \u00dev\u00ed a\u00f0 allt er fr\u00e1 \u00fe\u00e9r og v\u00e9r h\u00f6fum f\u00e6rt \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 sem v\u00e9r h\u00f6fum \u00feegi\u00f0 \u00far hendi \u00fe\u00e9r. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Frammi fyrir \u00fe\u00e9r erum v\u00e9r a\u00f0eins a\u00f0komumenn og leiguli\u00f0ar eins og allir forfe\u00f0ur vorir. \u00c6vidagar vorir eru sem skuggi \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni og engin von er til. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 vor, allur \u00feessi au\u00f0ur, sem v\u00e9r h\u00f6fum dregi\u00f0 saman til \u00feess a\u00f0 reisa \u00fe\u00e9r h\u00fas, \u00fe\u00ednu heilaga nafni, er \u00feeginn \u00far hendi \u00fe\u00e9r, allt er \u00feitt. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00c9g veit, Gu\u00f0 minn, a\u00f0 \u00fe\u00fa rannsakar hjarta\u00f0 og gle\u00f0st yfir hreinskilni. \u00c9g hef gefi\u00f0 \u00feetta allt af heilum hug og f\u00fasu ge\u00f0i. N\u00fa hefur \u00fea\u00f0 einnig glatt mig a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 l\u00fd\u00f0ur \u00feinn, sem h\u00e9r er saman kominn, hefur f\u00faslega gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r gjafir. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 fe\u00f0ra vorra, Abrahams, \u00cdsaks og \u00cdsraels, var\u00f0veittu \u00feetta hugarfar \u00e6vinlega \u00ed hjarta l\u00fd\u00f0s \u00fe\u00edns. Beindu hj\u00f6rtum \u00feeirra til \u00fe\u00edn. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Gef\u00f0u Sal\u00f3mon, syni m\u00ednum, einl\u00e6gt hjarta svo a\u00f0 hann fylgi bo\u00f0um \u00fe\u00ednum, fyrirm\u00e6lum og l\u00f6gum og geti \u00feannig framkv\u00e6mt allt og reist bygginguna sem \u00e9g hef undirb\u00fai\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st \u00e1varpa\u00f0i Dav\u00ed\u00f0 allan s\u00f6fnu\u00f0inn: \u201eLofi\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 ykkar.\u201c Allur s\u00f6fnu\u00f0urinn lofa\u00f0i \u00fe\u00e1 Drottin, Gu\u00f0 fe\u00f0ra sinna. \u00deeir hneig\u00f0u sig og v\u00f6rpu\u00f0u s\u00e9r ni\u00f0ur frammi fyrir Drottni og konungi.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Sal\u00f3mon smur\u00f0ur til konungs<\/h3>\n<p><a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Daginn eftir f\u00e6r\u00f0u \u00feeir Drottni sl\u00e1turf\u00f3rnir og brennif\u00f3rnir, \u00fe\u00fasund naut, \u00fe\u00fasund hr\u00fata og \u00fe\u00fasund l\u00f6mb \u00e1samt \u00feeim dreypif\u00f3rnum sem vi\u00f0 \u00e1ttu, svo og fj\u00f6lmargar sl\u00e1turf\u00f3rnir fyrir allan \u00cdsrael. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00deennan dag \u00e1tu \u00feeir og drukku frammi fyrir Drottni og voru mj\u00f6g gla\u00f0ir. \u00dev\u00ed n\u00e6st ger\u00f0u \u00feeir Sal\u00f3mon, son Dav\u00ed\u00f0s, \u00f6\u00f0ru sinni a\u00f0 konungi. \u00deeir smur\u00f0u hann til \u00fej\u00f3\u00f0h\u00f6f\u00f0ingja Drottins og Sad\u00f3k til \u00e6\u00f0sta prests. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Sal\u00f3mon settist n\u00fa \u00ed h\u00e1s\u00e6ti Drottins \u00ed sta\u00f0 Dav\u00ed\u00f0s, f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. Hann var au\u00f0numa\u00f0ur og allur \u00cdsrael hl\u00fdddi honum. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Allir h\u00f6f\u00f0ingjarnir, hetjurnar og synir Dav\u00ed\u00f0s konungs s\u00fdndu Sal\u00f3mon konungi hollustu. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Drottinn ger\u00f0i Sal\u00f3mon mj\u00f6g voldugan \u00ed augum alls \u00cdsraels. Hann veitti konungd\u00f3mi hans sl\u00edka h\u00e1tign sem enginn konungur yfir \u00cdsrael haf\u00f0i noti\u00f0 \u00e1 undan honum.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dav\u00ed\u00f0 deyr<\/h3>\n<p><a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 \u00cdsa\u00edson var konungur yfir \u00f6llum \u00cdsrael. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Hann r\u00edkti yfir \u00cdsrael fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r, sj\u00f6 \u00e1r \u00ed Hebron og \u00ferj\u00e1t\u00edu og \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Hann d\u00f3 \u00ed h\u00e1rri elli, saddur l\u00edfdaga, au\u00f0\u00e6fa og vir\u00f0ingar. Sal\u00f3mon, sonur hans, var\u00f0 konungur eftir hann. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Saga Dav\u00ed\u00f0s konungs, b\u00e6\u00f0i um fyrri hluta og s\u00ed\u00f0ari hluta \u00e6vi hans, er skr\u00e1\u00f0 \u00ed s\u00f6gu sj\u00e1andans Sam\u00faels, \u00ed s\u00f6gu Natans sp\u00e1manns og \u00ed s\u00f6gu sj\u00e1andans Ga\u00f0s. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deessar heimildir segja fr\u00e1 allri stj\u00f3rnart\u00ed\u00f0 hans og afrekum og \u00fev\u00ed sem henti hann og \u00cdsrael og \u00f6ll konungsr\u00edki \u00ed \u00f6\u00f0rum l\u00f6ndum. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gjafir til musterisbyggingarinnar 1 Dav\u00ed\u00f0 konungur \u00e1varpa\u00f0i n\u00fa allan s\u00f6fnu\u00f0inn:\u201eSal\u00f3mon, sonur minn, sem Gu\u00f0 hefur vali\u00f0, er enn ungur og \u00f3har\u00f0na\u00f0ur. En verki\u00f0 er miki\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ekki er byggingin \u00e6tlu\u00f0 m\u00f6nnum heldur Drottni Gu\u00f0i. 2 \u00c9g hef \u00fev\u00ed af \u00f6llum m\u00e6tti dregi\u00f0 a\u00f0 h\u00fasi Gu\u00f0s m\u00edns gull \u00ed gull\u00e1h\u00f6ldin, silfur \u00ed silfur\u00e1h\u00f6ldin, eir \u00ed eir\u00e1h\u00f6ldin, j\u00e1rn \u00ed j\u00e1rn\u00e1h\u00f6ldin og vi\u00f0 \u00ed tr\u00e9\u00e1h\u00f6ldin \u00e1samt sj\u00f3amsteinum, steina til a\u00f0 setja \u00ed umgjar\u00f0ir, steinl\u00edm, mislita steina og alls konar a\u00f0ra d\u00fdra steina og miki\u00f0 af alabastri. 3 Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef m\u00e6tur \u00e1 h\u00fasi Gu\u00f0s m\u00edns gef \u00e9g h\u00e9r me\u00f0 einkaeign <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-kronikubok-29-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1984","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1984","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1984"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1984\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1984"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}