{"id":1983,"date":"2017-12-30T21:01:15","date_gmt":"2017-12-30T21:01:15","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-kron%c2%92kub%c2%97k-28-kafli\/"},"modified":"2024-06-26T23:20:39","modified_gmt":"2024-06-26T23:20:39","slug":"fyrri-kronikubok-28-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-kronikubok-28-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri kron\u00edkub\u00f3k 28. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Fyrirm\u00e6li um byggingu musterisins<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 stefndi \u00f6llum lei\u00f0togum \u00cdsraels til Jer\u00fasalem, h\u00f6f\u00f0ingjum \u00e6ttb\u00e1lkanna og foringjum flokkanna sem \u00fej\u00f3nu\u00f0u konunginum, foringjum \u00fe\u00fasund manna li\u00f0a og foringjum hundra\u00f0 manna li\u00f0a og umsj\u00f3narm\u00f6nnum allra eigna konungs og fj\u00e1reignar hans og sona hans. Einnig stefndi hann \u00feanga\u00f0 emb\u00e6ttism\u00f6nnum hir\u00f0arinnar, \u00farvalsli\u00f0inu og \u00f6llum dugandi herm\u00f6nnum. <br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 konungur reis \u00e1 f\u00e6tur og sag\u00f0i:<br \/> \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 mig, br\u00e6\u00f0ur m\u00ednir og \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edn. \u00c9g hef haft \u00ed hyggju a\u00f0 reisa s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins, f\u00f3tsk\u00f6r Gu\u00f0s okkar, hv\u00edldarsta\u00f0. En \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i undirb\u00fai\u00f0 bygginguna <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> sag\u00f0i Gu\u00f0 vi\u00f0 mig: \u00de\u00fa \u00e1tt ekki a\u00f0 reisa nafni m\u00ednu h\u00fas \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert str\u00ed\u00f0sma\u00f0ur og hefur \u00fathellt bl\u00f3\u00f0i. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels, hefur vali\u00f0 mig \u00far allri \u00e6tt minni til \u00feess a\u00f0 vera konungur yfir \u00cdsrael um aldur og \u00e6vi. Hann haf\u00f0i vali\u00f0 J\u00fada til a\u00f0 fara me\u00f0 forystu \u00e6ttb\u00e1lkanna og \u00e6tt f\u00f6\u00f0ur m\u00edns \u00far J\u00fada. Af sonum f\u00f6\u00f0ur m\u00edns \u00fe\u00f3kna\u00f0ist honum a\u00f0 velja mig og gera mig a\u00f0 konungi yfir \u00f6llum \u00cdsrael. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Af \u00f6llum sonum m\u00ednum, en Drottinn hefur gefi\u00f0 m\u00e9r marga syni, hefur hann vali\u00f0 Sal\u00f3mon til \u00feess a\u00f0 sitja \u00ed hinu konunglega h\u00e1s\u00e6ti Drottins yfir \u00cdsrael. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Hann sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Sal\u00f3mon, sonur \u00feinn, skal reisa h\u00fas mitt og forgar\u00f0a m\u00edna \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef vali\u00f0 hann m\u00e9r a\u00f0 syni og honum mun \u00e9g ver\u00f0a fa\u00f0ir. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00c9g mun sty\u00f0ja konungd\u00f3m hans um aldur og \u00e6vi ef hann kappkostar a\u00f0 framfylgja bo\u00f0um m\u00ednum og reglum eins og hann gerir n\u00fa. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00c9g \u00e1minni ykkur frammi fyrir \u00f6llum \u00cdsrael, s\u00f6fnu\u00f0i Drottins og \u00ed \u00e1heyrn Gu\u00f0s okkar: Fylgi\u00f0 \u00f6llum bo\u00f0um Drottins, Gu\u00f0s okkar, og breyti\u00f0 eftir \u00feeim svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 f\u00e1i\u00f0 a\u00f0 eiga \u00feetta g\u00f3\u00f0a land og geti\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 \u00fea\u00f0 ganga a\u00f0 erf\u00f0um til ni\u00f0ja ykkar um alla framt\u00ed\u00f0. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa, Sal\u00f3mon, sonur minn, l\u00e6r\u00f0u a\u00f0 \u00feekkja Gu\u00f0 f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns og \u00fej\u00f3na\u00f0u honum af heilum hug og af f\u00fasum vilja \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn rannsakar \u00f6ll hj\u00f6rtu og \u00feekkir allar hugsanir. Ef \u00fe\u00fa leitar hans l\u00e6tur hann \u00feig finna sig en ef \u00fe\u00fa yfirgefur hann \u00fatsk\u00fafar hann \u00fe\u00e9r um alla framt\u00ed\u00f0. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> G\u00e6ttu n\u00fa a\u00f0. Drottinn hefur vali\u00f0 \u00feig til a\u00f0 reisa s\u00e9r h\u00fas sem helgid\u00f3m. Vertu hughraustur og gakk djarfur til verks.\u201c<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> A\u00f0 svo m\u00e6ltu f\u00e9kk Dav\u00ed\u00f0 Sal\u00f3mon, syni s\u00ednum, grunnmynd af forsalnum og musterish\u00fasinu \u00e1samt fj\u00e1rhirslum \u00feess, loftherbergjum, innri herbergjum og h\u00e1s\u00e6ti n\u00e1\u00f0arinnar.<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00c1tt er vi\u00f0 \u201elok arkarinnar\u201c en \u00fear yfir var h\u00e1s\u00e6ti Gu\u00f0s.\">[<\/span> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Hann f\u00e9kk honum einnig uppdr\u00e6tti af \u00f6llu sem honum haf\u00f0i veri\u00f0 bl\u00e1si\u00f0 \u00ed brj\u00f3st, uppdr\u00e6tti af forg\u00f6r\u00f0um h\u00fass Drottins og af \u00f6llum herbergjunum umhverfis \u00fe\u00e1. \u00deau voru fyrir fj\u00e1rsj\u00f3\u00f0ina, sem heyr\u00f0u til h\u00fasi Gu\u00f0s, og helgigjafirnar, <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> einnig \u00fej\u00f3nustuflokka prestanna og Lev\u00edtanna, alla \u00fej\u00f3nustu \u00ed h\u00fasi Drottins og \u00f6ll \u00e1h\u00f6ld til \u00fej\u00f3nustunnar \u00ed h\u00fasi Drottins. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Hann f\u00e9kk honum einnig teikningar af gull- og silfurgripunum til \u00fej\u00f3nustunnar og gull og silfur \u00ed \u00fe\u00e1 eftir \u00feyngd hvers \u00feeirra. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hann f\u00e9kk honum einnig uppdr\u00e6tti af gulllj\u00f3sastikunum \u00e1samt gulll\u00f6mpunum, sem heyr\u00f0u \u00feeim til, og gull \u00ed hverja lj\u00f3sastiku eins og \u00feurfti \u00e1samt l\u00f6mpum hennar og silfur \u00ed silfurlj\u00f3sastikurnar eins og \u00feurfti \u00ed hverja \u00feeirra \u00e1samt l\u00f6mpunum, sem heyr\u00f0u \u00feeim til, eftir \u00fev\u00ed til hvers lj\u00f3sastikurnar voru \u00e6tla\u00f0ar. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Hann f\u00e9kk honum einnig vegi\u00f0 gull \u00ed bor\u00f0in fyrir sko\u00f0unarbrau\u00f0in og silfur \u00ed silfurbor\u00f0in, <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> einnig sk\u00edragull \u00ed gafflana, sk\u00e1larnar og k\u00f6nnurnar \u00e1samt gulli \u00ed gullbikarana eins og \u00feurfti \u00ed hvern \u00feeirra og silfur \u00ed silfurbikarana eins og \u00feurfti \u00ed hvern bikar. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Hann f\u00e9kk honum einnig sk\u00edragull \u00ed reykelsisaltari\u00f0 eftir \u00feyngd \u00feess og gull \u00ed h\u00e1s\u00e6tisvagninn, ker\u00fabana sem breiddu \u00fat v\u00e6ngi s\u00edna og huldu s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Allt \u00feetta var skr\u00e1\u00f0 \u00e1 b\u00f3k sem hann haf\u00f0i teki\u00f0 vi\u00f0 \u00far hendi Drottins og sk\u00fdr\u00f0i allt verki\u00f0 sem vinna \u00e1tti eftir uppdr\u00e6ttinum.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Dav\u00ed\u00f0 vi\u00f0 Sal\u00f3mon, son sinn:<br \/>\u201eVertu djarfur og hughraustur. N\u00fa skaltu hefjast handa. \u00d3ttastu ekki og hika\u00f0u ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0, Gu\u00f0 minn, er me\u00f0 \u00fe\u00e9r. Hann mun hvorki l\u00e1ta \u00feig missa \u00fer\u00f3tt n\u00e9 yfirgefa \u00feig fyrr en \u00f6llu verki \u00ed \u00fe\u00e1gu \u00fej\u00f3nustunnar \u00ed h\u00fasi Drottins er loki\u00f0. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Flokkar prestanna og Lev\u00edtanna standa \u00fearna rei\u00f0ub\u00fanir til s\u00e9rhverrar \u00fej\u00f3nustu \u00ed h\u00fasi Gu\u00f0s. \u00de\u00fa hefur \u00fej\u00e1lfa\u00f0a kunn\u00e1ttumenn til allra verka og allir h\u00f6f\u00f0ingjarnir og \u00f6ll \u00fej\u00f3\u00f0in fer \u00ed \u00f6llu a\u00f0 fyrirm\u00e6lum \u00fe\u00ednum.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrirm\u00e6li um byggingu musterisins 1 Dav\u00ed\u00f0 stefndi \u00f6llum lei\u00f0togum \u00cdsraels til Jer\u00fasalem, h\u00f6f\u00f0ingjum \u00e6ttb\u00e1lkanna og foringjum flokkanna sem \u00fej\u00f3nu\u00f0u konunginum, foringjum \u00fe\u00fasund manna li\u00f0a og foringjum hundra\u00f0 manna li\u00f0a og umsj\u00f3narm\u00f6nnum allra eigna konungs og fj\u00e1reignar hans og sona hans. Einnig stefndi hann \u00feanga\u00f0 emb\u00e6ttism\u00f6nnum hir\u00f0arinnar, \u00farvalsli\u00f0inu og \u00f6llum dugandi herm\u00f6nnum. 2 Dav\u00ed\u00f0 konungur reis \u00e1 f\u00e6tur og sag\u00f0i: \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 mig, br\u00e6\u00f0ur m\u00ednir og \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edn. \u00c9g hef haft \u00ed hyggju a\u00f0 reisa s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins, f\u00f3tsk\u00f6r Gu\u00f0s okkar, hv\u00edldarsta\u00f0. En \u00feegar \u00e9g haf\u00f0i undirb\u00fai\u00f0 bygginguna 3 sag\u00f0i Gu\u00f0 vi\u00f0 mig: \u00de\u00fa \u00e1tt ekki a\u00f0 reisa nafni m\u00ednu h\u00fas \u00fev\u00ed <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-kronikubok-28-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1983","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1983","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1983"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1983\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1983"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}