{"id":1951,"date":"2017-12-30T21:01:05","date_gmt":"2017-12-30T21:01:05","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-konungab%c2%97k-21-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:22","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:22","slug":"sidari-konungabok-21-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-konungabok-21-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 21. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Manasse J\u00fadakonungur<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Manasse var t\u00f3lf \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti \u00ed Jer\u00fasalem fimmt\u00edu og fimm \u00e1r. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t Hefsiba.<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem illt var \u00ed augum Drottins og fylgdi andstyggilegum si\u00f0um \u00feeirra \u00fej\u00f3\u00f0a sem Drottinn haf\u00f0i reki\u00f0 af h\u00f6ndum \u00cdsraelsmanna. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hann endurreisti f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar, sem Hisk\u00eda, fa\u00f0ir hans, haf\u00f0i aflagt, reisti Baal \u00f6lturu og As\u00e9rust\u00f3lpa eins og Akab \u00cdsraelskonungur haf\u00f0i gert, d\u00fdrka\u00f0i allan himinsins her og \u00fej\u00f3na\u00f0i honum. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hann reisti einnig \u00f6lturu \u00ed musteri Drottins sem Drottinn haf\u00f0i sagt um: \u201e\u00c9g vil leggja nafn mitt \u00e1<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00deegar einhver lag\u00f0i nafn sitt \u00e1 sta\u00f0 l\u00fdsti hann \u00fear me\u00f0 yfir eignarr\u00e9tti s\u00ednum, sbr. Slm 86.\">[<\/span> Jer\u00fasalem.\u201c <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hann reisti \u00f6lturu handa \u00f6llum himinsins her \u00ed b\u00e1\u00f0um forg\u00f6r\u00f0um musteris Drottins. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Hann l\u00e9t son sinn ganga gegnum eld, stunda\u00f0i galdur og sp\u00e1kukl og r\u00e9\u00f0 s\u00e9r mi\u00f0il og sp\u00e1sagnamann. Hann a\u00f0haf\u00f0ist margt sem illt var \u00ed augum Drottins og vakti rei\u00f0i hans.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00cd musterinu kom hann fyrir As\u00e9rul\u00edkneski, sem hann haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 gera, en um musteri\u00f0 haf\u00f0i Drottinn sagt vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 og Sal\u00f3mon, son hans: \u201e\u00c9g mun \u00e6vinlega leggja nafn mitt yfir \u00feetta h\u00fas og yfir Jer\u00fasalem sem \u00e9g hef vali\u00f0 \u00far \u00f6llum \u00e6ttb\u00e1lkum \u00cdsraels. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00c9g mun aldrei framar hrekja \u00cdsrael burt \u00far landinu, sem \u00e9g gaf forfe\u00f0rum \u00feeirra, svo framarlega sem \u00feeir g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a \u00f6llu sem \u00e9g hef lagt fyrir \u00fe\u00e1 og halda allt l\u00f6gm\u00e1l mitt sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn minn, hefur lagt fyrir \u00fe\u00e1.\u201c <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> En \u00feeir hlustu\u00f0u ekki og Manasse leiddi \u00fe\u00e1 afvega svo a\u00f0 \u00feeir unnu verri verk en \u00fej\u00f3\u00f0irnar sem Drottinn haf\u00f0i tort\u00edmt fyrir augum \u00cdsraelsmanna.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i fyrir munn \u00fej\u00f3na sinna, sp\u00e1mannanna, og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u201eManasse J\u00fadakonungur vann sv\u00edvir\u00f0ileg verk og framdi meiri illvirki en Amor\u00edtarnir \u00e1 undan honum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma J\u00fadam\u00f6nnum til a\u00f0 syndga me\u00f0 hj\u00e1gu\u00f0um s\u00ednum. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels: \u00c9g mun senda sl\u00edkt b\u00f6l yfir Jer\u00fasalem og J\u00fada a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun skera \u00ed eyru \u00feeirra sem um \u00fea\u00f0 heyra. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c9g mun bera m\u00e6lisn\u00faru Samar\u00edu a\u00f0 Jer\u00fasalem og vega hana \u00e1 vogarsk\u00e1lum Akabs \u00e6ttar. \u00c9g mun \u00feurrka Jer\u00fasalem eins og \u00feegar sk\u00e1l er \u00feurrku\u00f0 og henni s\u00ed\u00f0an hvolft. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00c9g mun hafna \u00feeim sem eftir eru af eignarl\u00fd\u00f0 m\u00ednum og framselja \u00fe\u00e1 \u00ed \u00f3vinahendur. \u00deeir skulu ver\u00f0a herfang og r\u00e1nsfengur allra fjandmanna sinna <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir ger\u00f0u \u00fea\u00f0 sem illt er \u00ed augum m\u00ednum og hafa vaki\u00f0 rei\u00f0i m\u00edna allt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 forfe\u00f0ur \u00feeirra f\u00f3ru \u00fat \u00far Egyptalandi og til \u00feessa dags.\u201c<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Svo miklu saklausu bl\u00f3\u00f0i \u00fathellti Manasse a\u00f0 Jer\u00fasalem flaut \u00f6ll \u00ed bl\u00f3\u00f0i. Auk \u00feess kom hann J\u00fadam\u00f6nnum til a\u00f0 syndga svo a\u00f0 \u00feeir ger\u00f0u \u00fea\u00f0 sem illt var \u00ed augum Drottins. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem \u00f3sagt er af s\u00f6gu Manasse, verkum hans og syndum \u00feeim sem hann dr\u00fdg\u00f0i er skr\u00e1\u00f0 \u00ed ann\u00e1la J\u00fadakonunga. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Manasse var lag\u00f0ur til hv\u00edldar hj\u00e1 fe\u00f0rum s\u00ednum og grafinn \u00ed gar\u00f0inum vi\u00f0 h\u00fas sitt, \u00ed gar\u00f0i \u00dassa. Am\u00f3n, sonur hans, var\u00f0 konungur eftir hann.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Am\u00f3n J\u00fadakonungur<\/h3>\n<p><a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Am\u00f3n var tuttugu og tveggja \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti \u00ed Jer\u00fasalem tv\u00f6 \u00e1r. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t Masullemet Har\u00fasd\u00f3ttir og var fr\u00e1 Jotba.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem illt var \u00ed augum Drottins eins og Manasse, fa\u00f0ir hans, haf\u00f0i gert. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Hann fylgdi \u00ed \u00f6llu lifna\u00f0arh\u00e1ttum f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, \u00fej\u00f3na\u00f0i s\u00f6mu hj\u00e1gu\u00f0um og fa\u00f0ir hans haf\u00f0i \u00fej\u00f3na\u00f0 og d\u00fdrka\u00f0i \u00fe\u00e1.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hann sneri baki vi\u00f0 Drottni, Gu\u00f0i forfe\u00f0ra sinna, og gekk ekki \u00e1 vegum hans.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00de\u00e1 ger\u00f0u hir\u00f0menn Am\u00f3ns sams\u00e6ri gegn honum og dr\u00e1pu hann \u00ed h\u00f6ll sinni <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> en f\u00f3lki\u00f0 drap alla \u00fe\u00e1 sem gert h\u00f6f\u00f0u sams\u00e6ri gegn Am\u00f3n konungi og ger\u00f0i J\u00f3s\u00eda, son hans, a\u00f0 konungi eftir hann.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem \u00f3sagt er af s\u00f6gu Am\u00f3ns og verkum hans er skr\u00e1\u00f0 \u00ed ann\u00e1la J\u00fadakonunga.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Hann var lag\u00f0ur \u00ed gr\u00f6f s\u00edna \u00ed gar\u00f0i \u00dassa. J\u00f3s\u00eda, sonur hans, var\u00f0 konungur eftir hann.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Manasse J\u00fadakonungur 1 Manasse var t\u00f3lf \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti \u00ed Jer\u00fasalem fimmt\u00edu og fimm \u00e1r. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t Hefsiba. 2 Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem illt var \u00ed augum Drottins og fylgdi andstyggilegum si\u00f0um \u00feeirra \u00fej\u00f3\u00f0a sem Drottinn haf\u00f0i reki\u00f0 af h\u00f6ndum \u00cdsraelsmanna. 3 Hann endurreisti f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar, sem Hisk\u00eda, fa\u00f0ir hans, haf\u00f0i aflagt, reisti Baal \u00f6lturu og As\u00e9rust\u00f3lpa eins og Akab \u00cdsraelskonungur haf\u00f0i gert, d\u00fdrka\u00f0i allan himinsins her og \u00fej\u00f3na\u00f0i honum. 4 Hann reisti einnig \u00f6lturu \u00ed musteri Drottins sem Drottinn haf\u00f0i sagt um: \u201e\u00c9g vil leggja nafn mitt \u00e1[ Jer\u00fasalem.\u201c 5 Hann reisti \u00f6lturu handa \u00f6llum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-konungabok-21-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1951","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1951","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1951"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1951\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1951"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}