{"id":1948,"date":"2017-12-30T21:01:05","date_gmt":"2017-12-30T21:01:05","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-konungab%c2%97k-18-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:19","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:19","slug":"sidari-konungabok-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-konungabok-18-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 18. kafli"},"content":{"rendered":"<h2 class=\"millifyrirsogn_2007\">Saga J\u00fadar\u00edkisins <\/h2>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Hisk\u00eda J\u00fadakonungur<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00c1 \u00feri\u00f0ja stj\u00f3rnar\u00e1ri H\u00f3sea Elasonar \u00cdsraelskonungs var\u00f0 Hisk\u00eda Akasson J\u00fadakonungur. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann var tuttugu og fimm \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti tuttugu og n\u00edu \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t Ab\u00ed og var Sakar\u00edad\u00f3ttir. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Drottins, alveg eins og Dav\u00ed\u00f0, forfa\u00f0ir hans. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 var hann sem afnam f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar, braut merkisteinana og hj\u00f3 ni\u00f0ur As\u00e9rust\u00f3lpana. Hann braut einnig eirorminn, sem M\u00f3se haf\u00f0i gert, en allt til \u00feess t\u00edma h\u00f6f\u00f0u \u00cdsraelsmenn f\u00e6rt honum reykelsisf\u00f3rnir og var hann nefndur Neh\u00fastan.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Merking or\u00f0sins er eirl\u00edkneski.\">[<\/span> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hisk\u00eda treysti Drottni, Gu\u00f0i \u00cdsraels. Enginn var honum l\u00edkur me\u00f0al konunga J\u00fada, hvorki fyrr n\u00e9 s\u00ed\u00f0ar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Hann var Drottni handgenginn og v\u00e9k ekki fr\u00e1 honum. Hann hl\u00fdddi bo\u00f0um \u00feeim sem Drottinn haf\u00f0i lagt fyrir M\u00f3se. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deess vegna var Drottinn me\u00f0 honum svo a\u00f0 honum l\u00e1na\u00f0ist allt sem hann t\u00f3k s\u00e9r fyrir hendur.<br \/>Hann ger\u00f0i uppreisn gegn Ass\u00fdr\u00edukonungi og var honum ekki lengur undirgefinn. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hann vann land Filistea allt til Gasa og landsv\u00e6\u00f0i\u00f0 umhverfis hana, jafnt var\u00f0turna sem v\u00edggirtar borgir.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00c1 fj\u00f3r\u00f0a stj\u00f3rnar\u00e1ri Hisk\u00eda, sem var sj\u00f6unda stj\u00f3rnar\u00e1r H\u00f3sea Elasonar \u00cdsraelskonungs, h\u00e9lt Salmaneser Ass\u00fdr\u00edukonungur gegn Samar\u00edu, settist um hana <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> og t\u00f3k borgina eftir \u00ferj\u00fa \u00e1r. \u00c1 sj\u00f6tta stj\u00f3rnar\u00e1ri Hisk\u00eda, sem var n\u00edunda stj\u00f3rnar\u00e1r H\u00f3sea \u00cdsraelskonungs, var Samar\u00eda unnin. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Ass\u00fdr\u00edukonungur flutti \u00cdsraelsmenn \u00ed \u00fatleg\u00f0 til Ass\u00fdr\u00edu og kom \u00feeim fyrir \u00ed Hala og vi\u00f0 Habor, sem er flj\u00f3t \u00ed G\u00f3san, og \u00ed borgum Meda. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deetta ger\u00f0ist af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u ekki hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00f6dd Drottins, Gu\u00f0s s\u00edns, heldur rofi\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1la hans, allt \u00fea\u00f0 sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 \u00feeim. \u00deeir hlustu\u00f0u hvorki \u00e1 \u00fea\u00f0 n\u00e9 breyttu eftir \u00fev\u00ed.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Sanher\u00edb \u00f3gnar J\u00fada<\/h3>\n<p><a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c1 fj\u00f3rt\u00e1nda stj\u00f3rnar\u00e1ri Hisk\u00eda konungs r\u00e9\u00f0st Sanher\u00edb Ass\u00fdr\u00edukonungur gegn \u00f6llum v\u00edggirtum borgum \u00ed J\u00fada og t\u00f3k \u00fe\u00e6r. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> En Hisk\u00eda J\u00fadakonungur sendi \u00feessi bo\u00f0 til Ass\u00fdr\u00edukonungs \u00ed Lak\u00eds: \u201e\u00c9g hef broti\u00f0 af m\u00e9r. Far aftur burt fr\u00e1 m\u00e9r og \u00e9g skal bera \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa leggur \u00e1 mig.\u201c Ass\u00fdr\u00edukonungur heimta\u00f0i \u00fe\u00e1 \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 talentur silfurs og \u00ferj\u00e1t\u00edu talentur gulls af Hisk\u00eda J\u00fadakonungi. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hisk\u00eda l\u00e9t s\u00ed\u00f0an af hendi allt \u00fea\u00f0 silfur sem fannst \u00ed musteri Drottins og fj\u00e1rhirslum konungshallarinnar. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> L\u00e9t \u00fe\u00e1 Hisk\u00eda J\u00fadakonungur h\u00f6ggva gulli\u00f0 af hur\u00f0unum \u00e1 musterissal Drottins og s\u00falunum, sem hann haf\u00f0i sj\u00e1lfur l\u00e1ti\u00f0 leggja gulli, og afhenti \u00fea\u00f0 Ass\u00fdr\u00edukonungi.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Ass\u00fdr\u00edukonungur sendi \u00fev\u00ed n\u00e6st yfirhersh\u00f6f\u00f0ingja sinn, h\u00f6fu\u00f0smann og marsk\u00e1lk<span class=\"nedan_mal\" title=\" Titlarnir \u00fer\u00edr, sem nota\u00f0ir eru \u00ed frumtextanum, eru ass\u00fdr\u00edskir a\u00f0 uppruna. Merking \u00feeirra er \u00f3lj\u00f3s.\">[<\/span> me\u00f0 miki\u00f0 herli\u00f0 fr\u00e1 Lak\u00eds til Jer\u00fasalem \u00e1 fund Hisk\u00eda konungs. \u00deeir h\u00e9ldu af sta\u00f0, komu til borgarinnar og t\u00f3ku s\u00e9r st\u00f6\u00f0u vi\u00f0 vatnslei\u00f0sluna \u00far efri tj\u00f6rninni vi\u00f0 veginn til \u00fevottavallarins. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deeir l\u00e9tu kalla \u00e1 konunginn en Eljak\u00edm Hilk\u00edason hir\u00f0stj\u00f3ri kom \u00fat til \u00feeirra \u00e1samt Sebna r\u00edkisritara og J\u00f3ak Asafssyni konungsfulltr\u00faa.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Marsk\u00e1lkurinn sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eSkili\u00f0 \u00feessu til Hisk\u00eda: Svo segir st\u00f3rkonungurinn, konungur Ass\u00fdr\u00edu: \u00c1 hverju hefur \u00fe\u00fa traust? <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Heldur\u00f0u a\u00f0 or\u00f0in ein dugi sem r\u00e1\u00f0 og styrkur \u00ed herna\u00f0i? \u00c1 hvern treystir\u00f0u \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur gert uppreisn gegn m\u00e9r? <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00fa treystir sj\u00e1lfsagt \u00e1 \u00feennan brotna reyrstaf, Egyptaland, sem stingst inn \u00ed h\u00f6nd \u00feess sem sty\u00f0ur sig vi\u00f0 hann og fer gegnum hana. \u00deannig reynist fara\u00f3, konungur Egyptalands, hverjum \u00feeim sem treystir \u00e1 hann. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> En ef \u00fei\u00f0 segi\u00f0 vi\u00f0 mig: Vi\u00f0 treystum Drottni, Gu\u00f0i okkar, \u00fe\u00e1 spyr \u00e9g: Voru \u00fea\u00f0 ekki f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0ir hans og \u00f6lturu sem Hisk\u00eda lag\u00f0i af er hann sag\u00f0i vi\u00f0 \u00edb\u00faa J\u00fada og Jer\u00fasalem: \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 a\u00f0eins falla fram fyrir altarinu \u00ed Jer\u00fasalem? <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> N\u00fa skaltu ve\u00f0ja vi\u00f0 h\u00fasb\u00f3nda minn, Ass\u00fdr\u00edukonung: \u00c9g skal gefa \u00fe\u00e9r tv\u00f6 \u00fe\u00fasund hesta ef \u00fe\u00fa getur sett \u00e1 \u00fe\u00e1 riddara. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Hvernig mun \u00fe\u00e9r takast a\u00f0 reka nokkurn landstj\u00f3ra h\u00fasb\u00f3nda m\u00edns \u00e1 fl\u00f3tta, jafnvel \u00feann aumasta \u00feeirra, \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa treystir \u00e1 Egyptaland um str\u00ed\u00f0svagna og vagnstj\u00f3ra? <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Heldur \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00e9g hafi fari\u00f0 til \u00feessa sta\u00f0ar gegn vilja Drottins? Nei, \u00fea\u00f0 var Drottinn sj\u00e1lfur sem sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Far\u00f0u gegn \u00feessu landi og legg\u00f0u \u00fea\u00f0 \u00ed ey\u00f0i.\u201c<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u Eljak\u00edm Hilk\u00edason, Sebna og J\u00f3ak marsk\u00e1lkinum og s\u00f6g\u00f0u: \u201eTala\u00f0u arame\u00edsku vi\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fe\u00edna. Vi\u00f0 skiljum hana.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Arame\u00edska var \u00feegar \u00e1 \u00feessum t\u00edma or\u00f0in \u00fatbreidd. H\u00e9r s\u00e9st a\u00f0 yfirst\u00e9ttin gat nota\u00f0 arame\u00edsku en tali\u00f0 er a\u00f0 almenningur hafi ekki geta\u00f0 \u00fea\u00f0.\">[<\/span> En \u00fe\u00fa skalt ekki tala hebresku vi\u00f0 okkur \u00ed \u00e1heyrn f\u00f3lksins sem stendur \u00e1 borgarm\u00farnum.\u201c <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i marsk\u00e1lkurinn: \u201eHeldur \u00fe\u00fa a\u00f0 h\u00fasb\u00f3ndi minn hafi a\u00f0eins sent mig til h\u00fasb\u00f3nda \u00fe\u00edns og til \u00fe\u00edn me\u00f0 \u00feessi skilabo\u00f0? Eru \u00feau ekki einmitt til f\u00f3lksins sem situr \u00fearna \u00e1 borgarm\u00farnum og mun \u00e1samt ykkur ney\u00f0ast til a\u00f0 leggja s\u00e9r sinn eigin saur til munns og drekka sitt eigi\u00f0 \u00fevag?\u201c <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st gekk marsk\u00e1lkurinn fram og hr\u00f3pa\u00f0i h\u00e1tt og snjallt \u00e1 hebresku: \u201eHeyri\u00f0 or\u00f0 st\u00f3rkonungsins, konungs Ass\u00fdr\u00edu: <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Svo segir konungurinn: L\u00e1ti\u00f0 Hisk\u00eda ekki blekkja ykkur \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er ekki f\u00e6r um a\u00f0 bjarga ykkur \u00far hendi minni.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Hebreski textinn hefur \u201e\u00far hendi hans\u201c en framhald r\u00e6\u00f0unnar og elstu \u00fe\u00fd\u00f0ingar s\u00fdna a\u00f0 1. pers\u00f3na hl\u00fdtur a\u00f0 vera hi\u00f0 r\u00e9tta.\">[<\/span> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Og l\u00e1ti\u00f0 Hisk\u00eda ekki koma ykkur til a\u00f0 treysta Drottni me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja: Drottinn mun \u00e1rei\u00f0anlega bjarga okkur. \u00deessi borg skal ekki afhent Ass\u00fdr\u00edukonungi. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Hlusti\u00f0 ekki \u00e1 Hisk\u00eda \u00fev\u00ed a\u00f0 konungur Ass\u00fdr\u00edu segir: Semji\u00f0 fri\u00f0 vi\u00f0 mig og gangi\u00f0 m\u00e9r \u00e1 h\u00f6nd. \u00de\u00e1 mun s\u00e9rhver ykkar geta neytt af eigin v\u00ednvi\u00f0i og eigin f\u00edkjutr\u00e9 og drukki\u00f0 vatn \u00far eigin brunni <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> uns \u00e9g kem og flyt ykkur til lands sem l\u00edkist ykkar eigin landi. \u00dea\u00f0 er land sem er au\u00f0ugt a\u00f0 korni og v\u00ednberjasafa, brau\u00f0i og v\u00edng\u00f6r\u00f0um, ol\u00eduvi\u00f0i og hunangi. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 lifa en ekki deyja. Hlusti\u00f0 ekki \u00e1 Hisk\u00eda \u00feegar hann segir: Drottinn mun bjarga okkur. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Hefur nokkur gu\u00f0 annarra \u00fej\u00f3\u00f0a bjarga\u00f0 landi s\u00ednu \u00far greipum Ass\u00fdr\u00edukonungs? <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Hvar eru gu\u00f0ir borganna Hamat og Arpad? Hvar eru gu\u00f0ir Sefarva\u00edms, Hena og \u00cdva? Bj\u00f6rgu\u00f0u \u00feeir Samar\u00edu fr\u00e1 m\u00e9r? <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Hverjir af gu\u00f0um annarra landa hafa bjarga\u00f0 l\u00f6ndum s\u00ednum \u00far greipum m\u00ednum? Hvernig \u00e6tti Drottinn \u00fe\u00e1 a\u00f0 geta bjarga\u00f0 Jer\u00fasalem fr\u00e1 m\u00e9r?\u201c<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> En f\u00f3lki\u00f0 \u00feag\u00f0i og svara\u00f0i honum ekki einu or\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 konungurinn haf\u00f0i sagt: \u201eSvari\u00f0 honum ekki.\u201c <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Eljak\u00edm Hilk\u00edason hir\u00f0stj\u00f3ri gekk \u00fe\u00e1 \u00e1samt Sebna r\u00edkisritara og J\u00f3ak Asafssyni, kallara konungs, \u00ed sundurrifnum<span class=\"nedan_mal\" title=\"Menn tj\u00e1\u00f0u sorg me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00edfa kl\u00e6\u00f0i s\u00edn, sbr. t.d. 1M\u00f3s 37.39; 1Sam 4.12; 2Sam 1.2. H\u00e9r vegna \u00feess a\u00f0 marsk\u00e1lkurinn haf\u00f0i sv\u00edvirt Drottin, sbr. vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 Hisk\u00eda 19.1.\">[<\/span> kl\u00e6\u00f0um til Hisk\u00eda og \u00feeir s\u00f6g\u00f0u honum hva\u00f0 marsk\u00e1lkurinn haf\u00f0i sagt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Saga J\u00fadar\u00edkisins Hisk\u00eda J\u00fadakonungur 1 \u00c1 \u00feri\u00f0ja stj\u00f3rnar\u00e1ri H\u00f3sea Elasonar \u00cdsraelskonungs var\u00f0 Hisk\u00eda Akasson J\u00fadakonungur. 2 Hann var tuttugu og fimm \u00e1ra \u00feegar hann var\u00f0 konungur og r\u00edkti tuttugu og n\u00edu \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem. M\u00f3\u00f0ir hans h\u00e9t Ab\u00ed og var Sakar\u00edad\u00f3ttir. 3 Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Drottins, alveg eins og Dav\u00ed\u00f0, forfa\u00f0ir hans. 4 \u00dea\u00f0 var hann sem afnam f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar, braut merkisteinana og hj\u00f3 ni\u00f0ur As\u00e9rust\u00f3lpana. Hann braut einnig eirorminn, sem M\u00f3se haf\u00f0i gert, en allt til \u00feess t\u00edma h\u00f6f\u00f0u \u00cdsraelsmenn f\u00e6rt honum reykelsisf\u00f3rnir og var hann nefndur Neh\u00fastan.[ 5 Hisk\u00eda treysti Drottni, Gu\u00f0i \u00cdsraels. Enginn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-konungabok-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1948","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1948","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1948"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1948\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1948"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}