{"id":1934,"date":"2017-12-30T21:01:00","date_gmt":"2017-12-30T21:01:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-konungab%c2%97k-4-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:26","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:26","slug":"sidari-konungabok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-konungabok-4-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari konungab\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> El\u00edsa hj\u00e1lpar f\u00e1t\u00e6kri ekkju<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Kona nokkur, sem var gift einum af l\u00e6risveinum sp\u00e1mannanna, hr\u00f3pa\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum til El\u00edsa og sag\u00f0i: \u201e\u00dej\u00f3nn \u00feinn, eiginma\u00f0ur minn, er d\u00e1inn. \u00de\u00fa veist sj\u00e1lfur a\u00f0 \u00fej\u00f3nn \u00feinn var gu\u00f0hr\u00e6ddur ma\u00f0ur. En n\u00fa er l\u00e1nardrottinn hans kominn og \u00e6tlar a\u00f0 hneppa b\u00e1\u00f0a syni m\u00edna \u00ed \u00fer\u00e6ld\u00f3m.\u201c <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> El\u00edsa sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u201eHva\u00f0 get \u00e9g gert fyrir \u00feig? Seg\u00f0u m\u00e9r hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt til heima.\u201c H\u00fan svara\u00f0i: \u201eAmb\u00e1tt \u00fe\u00edn \u00e1 ekki anna\u00f0 en eina fl\u00f6sku af ol\u00edu.\u201c <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hann sag\u00f0i: \u201eFar\u00f0u \u00fat. Bi\u00f0 \u00fe\u00fa um krukku \u00fati \u00e1 g\u00f6tum, bi\u00f0 alla n\u00e1granna \u00fe\u00edna um t\u00f3mar krukkur en g\u00e6ttu \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u n\u00f3gu margar. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Far\u00f0u svo heim og loka\u00f0u \u00e1 eftir \u00fe\u00e9r og sonum \u00fe\u00ednum. Helltu s\u00ed\u00f0an ol\u00edu \u00ed allar \u00feessar krukkur og set \u00fe\u00e6r til hli\u00f0ar jafn\u00f3\u00f0um og \u00fe\u00e6r fyllast.\u201c<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> H\u00fan gekk \u00fe\u00e1 burt og loka\u00f0i dyrunum \u00e1 eftir s\u00e9r og sonum s\u00ednum. \u00deeir r\u00e9ttu henni krukkurnar og h\u00fan hellti \u00ed \u00fe\u00e6r.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deegar krukkurnar voru fullar sag\u00f0i h\u00fan vi\u00f0 annan son sinn: \u201eR\u00e9ttu m\u00e9r eina krukku enn.\u201c Hann svara\u00f0i: \u201e\u00dea\u00f0 er engin krukka eftir.\u201c \u00dear me\u00f0 h\u00e6tti ol\u00edan a\u00f0 renna. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> H\u00fan f\u00f3r \u00fe\u00e1 og sag\u00f0i gu\u00f0smanninum fr\u00e1 \u00feessu en hann sag\u00f0i: \u201eFar\u00f0u og seldu ol\u00eduna og greiddu skuld \u00fe\u00edna. \u00de\u00fa og synir \u00fe\u00ednir geti\u00f0 lifa\u00f0 af \u00fev\u00ed sem eftir ver\u00f0ur.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">El\u00edsa og r\u00edka konan \u00ed S\u00fanem<\/h3>\n<p><a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Dag nokkurn \u00e1tti El\u00edsa lei\u00f0 um S\u00fanemborg. \u00dear bj\u00f3 au\u00f0ug kona sem bau\u00f0 honum a\u00f0 \u00feiggja mat hj\u00e1 s\u00e9r. Upp fr\u00e1 \u00fev\u00ed mata\u00f0ist hann hj\u00e1 henni \u00feegar hann f\u00f3r \u00fear um.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> H\u00fan sag\u00f0i vi\u00f0 eiginmann sinn: \u201e\u00c9g er viss um a\u00f0 ma\u00f0urinn sem jafnan kemur vi\u00f0 hj\u00e1 okkur er heilagur gu\u00f0sma\u00f0ur. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Vi\u00f0 skulum \u00fatb\u00faa l\u00edti\u00f0 herbergi uppi \u00e1 lofti og koma \u00fear fyrir r\u00fami, bor\u00f0i, st\u00f3l og lampa handa honum. \u00deegar hann kemur til okkar getur hann dvalist \u00fear.\u201c<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Dag nokkurn, \u00feegar El\u00edsa kom \u00feanga\u00f0, flutti hann inn \u00ed loftherbergi\u00f0 til \u00feess a\u00f0 sofa \u00fear. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Hann sag\u00f0i vi\u00f0 Gehas\u00ed, \u00fej\u00f3n sinn: \u201eKalla\u00f0u \u00e1 \u00feessa s\u00fanemsku konu,\u201c og hann kalla\u00f0i \u00e1 hana. \u00deegar h\u00fan kom <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> sag\u00f0i hann vi\u00f0 Gehas\u00ed: \u201eSpyr\u00f0u hana: Hva\u00f0 get \u00e9g gert fyrir \u00feig \u00fear sem \u00fe\u00fa hefur haft svona miki\u00f0 fyrir okkur? Eigum vi\u00f0 a\u00f0 tala m\u00e1li \u00fe\u00ednu vi\u00f0 konunginn e\u00f0a yfirhersh\u00f6f\u00f0ingjann?\u201c H\u00fan svara\u00f0i: \u201e\u00c9g b\u00fd mitt \u00e1 me\u00f0al skyldmenna minna.\u201c <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deegar El\u00edsa spur\u00f0i hva\u00f0 hann g\u00e6ti \u00fe\u00e1 gert fyrir hana svara\u00f0i Gehas\u00ed: \u201eH\u00fan \u00e1 engan son og ma\u00f0ur hennar er or\u00f0inn gamall.\u201c <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hann sag\u00f0i: \u201eKalla\u00f0u \u00e1 hana.\u201c \u00deegar Gehas\u00ed haf\u00f0i kalla\u00f0 \u00e1 hana og h\u00fan st\u00f3\u00f0 \u00ed dyrag\u00e6ttinni <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> sag\u00f0i El\u00edsa: \u201eA\u00f0 \u00e1ri li\u00f0nu um \u00feetta leyti muntu halda \u00e1 syni \u00ed fanginu.\u201c H\u00fan sag\u00f0i: \u201eNei, herra, gu\u00f0sma\u00f0ur. Lj\u00fag\u00f0u ekki a\u00f0 amb\u00e1tt \u00feinni.\u201c <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> En konan var\u00f0 \u00feungu\u00f0 og f\u00e6ddi son um sama leyti a\u00f0 \u00e1ri li\u00f0nu eins og El\u00edsa haf\u00f0i heiti\u00f0 henni.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deegar drengurinn var kominn \u00e1 legg gekk hann dag nokkurn \u00fat til f\u00f6\u00f0ur s\u00edns og uppskeruf\u00f3lksins <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> og kveinka\u00f0i s\u00e9r vi\u00f0 f\u00f6\u00f0ur sinn: \u201e\u00c6, h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00e9r, h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 \u00e1 m\u00e9r.\u201c Fa\u00f0ir hans skipa\u00f0i \u00fe\u00e1 vinnumanni einum a\u00f0 bera hann heim til m\u00f3\u00f0ur sinnar.\u201c <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Hann bar hann heim og f\u00e6r\u00f0i hann m\u00f3\u00f0ur sinni. Drengurinn sat svo \u00ed kj\u00f6ltu hennar til h\u00e1degis. \u00de\u00e1 d\u00f3 hann. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> H\u00fan gekk upp, lag\u00f0i drenginn \u00e1 r\u00fam gu\u00f0smannsins og loka\u00f0i \u00e1 eftir s\u00e9r. S\u00ed\u00f0an gekk h\u00fan \u00fat, <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> kalla\u00f0i \u00e1 eiginmann sinn og sag\u00f0i: \u201eSendu einhvern vinnumannanna til m\u00edn og einn asna. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 fl\u00fdta m\u00e9r til gu\u00f0smannsins. \u00c9g kem strax aftur.\u201c <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Hann spur\u00f0i: \u201eHvers vegna \u00e6tlar\u00f0u a\u00f0 fara til hans \u00ed dag? \u00dea\u00f0 er hvorki n\u00fdtt tungl n\u00e9 hv\u00edldardagur.\u201c<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00c1 \u00feessum d\u00f6gum var fari\u00f0 \u00ed helgid\u00f3minn e\u00f0a leita\u00f0 til gu\u00f0smanns.\">[<\/span> En h\u00fan kvaddi, <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> lag\u00f0i \u00e1 asnann og skipa\u00f0i vinnumanninum: \u201eRektu asnann af sta\u00f0 og st\u00f6\u00f0va\u00f0u ekki f\u00f6r m\u00edna fyrr en \u00e9g segi \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> H\u00fan lag\u00f0i af sta\u00f0 og kom til gu\u00f0smannsins \u00e1 Karmelfjalli. \u00deegar gu\u00f0sma\u00f0urinn s\u00e1 hana \u00e1lengdar sag\u00f0i hann vi\u00f0 Gehas\u00ed, \u00fej\u00f3n sinn: \u201e\u00dearna kemur konan fr\u00e1 S\u00fanem. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Hlauptu n\u00fa \u00e1 m\u00f3ti henni og spyr\u00f0u hana: Hvernig l\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e9r? Hvernig l\u00ed\u00f0ur manni \u00fe\u00ednum og drengnum?\u201c \u201eOkkur l\u00ed\u00f0ur vel,\u201c svara\u00f0i h\u00fan. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00deegar h\u00fan kom til gu\u00f0smannsins \u00e1 fjallinu greip h\u00fan um f\u00e6tur hans. Gehas\u00ed kom \u00fe\u00e1 og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 \u00fdta henni fr\u00e1 en gu\u00f0sma\u00f0urinn sag\u00f0i: \u201eL\u00e1ttu hana vera \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er \u00f6rv\u00e6ntingarfull. En Drottinn hefur leynt ors\u00f6k \u00feess fyrir m\u00e9r og ekki sagt m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed.\u201c<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00fan: \u201eBa\u00f0 \u00e9g herra minn um son? Sag\u00f0i \u00e9g ekki: Vektu m\u00e9r ekki t\u00e1lvonir.\u201c <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Hann sag\u00f0i \u00fe\u00e1 vi\u00f0 Gehas\u00ed: \u201eBind upp kyrtil \u00feinn, taktu staf minn \u00ed h\u00f6nd \u00fe\u00e9r og haltu af sta\u00f0. Ef \u00fe\u00fa m\u00e6tir einhverjum skaltu ekki heilsa og ef einhver heilsar \u00fe\u00e9r skaltu ekki taka undir. Legg\u00f0u svo staf minn \u00e1 andlit drengsins.\u201c <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> En m\u00f3\u00f0ir drengsins sag\u00f0i: \u201eSvo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem \u00fe\u00fa lifir mun \u00e9g ekki yfirgefa \u00feig.\u201c Hann st\u00f3\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00e1 f\u00e6tur og fylgdi henni.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Gehas\u00ed haf\u00f0i fari\u00f0 \u00e1 undan \u00feeim og lagt stafinn \u00e1 andlit drengsins en ekkert hlj\u00f3\u00f0 heyr\u00f0ist og ekkert l\u00edfsmark var me\u00f0 honum. Hann sneri \u00fe\u00e1 til m\u00f3ts vi\u00f0 El\u00edsa og sk\u00fdr\u00f0i honum fr\u00e1 \u00feessu og sag\u00f0i: \u201eDrengurinn vaknar ekki.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00deegar El\u00edsa kom inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 l\u00e1 drengurinn d\u00e1inn \u00e1 r\u00fami hans. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Hann gekk \u00fe\u00e1 inn til hans, loka\u00f0i dyrunum og ba\u00f0 til Drottins. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an lag\u00f0ist hann upp \u00ed r\u00fami\u00f0 og yfir drenginn. Hann lag\u00f0i munn sinn vi\u00f0 munn hans, augu s\u00edn vi\u00f0 augu hans og hendur s\u00ednar vi\u00f0 hendur hans. \u00deegar hann lag\u00f0ist \u00feannig yfir hann f\u00e6r\u00f0ist hiti \u00ed l\u00edkama drengsins. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st f\u00f3r hann og gekk einu sinni fram og aftur um h\u00fasi\u00f0. S\u00ed\u00f0an lag\u00f0ist hann upp \u00ed r\u00fami\u00f0 og yfir drenginn. \u00de\u00e1 hnerra\u00f0i drengurinn sj\u00f6 sinnum og opna\u00f0i augun.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> El\u00edsa kalla\u00f0i \u00e1 Gehas\u00ed og sag\u00f0i: \u201eKalla\u00f0u \u00e1 s\u00fanemsku konuna.\u201c Hann kalla\u00f0i \u00e1 hana. \u00deegar h\u00fan kom inn til hans sag\u00f0i hann vi\u00f0 hana: \u201eTaktu son \u00feinn upp.\u201c <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> En h\u00fan kom til hans, f\u00e9ll til f\u00f3ta honum og laut til jar\u00f0ar. S\u00ed\u00f0an t\u00f3k h\u00fan son sinn og gekk \u00fat.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00d6nnur kraftaverk<\/h3>\n<p><a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Einhverju sinni, \u00feegar hungursney\u00f0 var \u00ed landinu, kom El\u00edsa til Gilgal. \u00deegar l\u00e6risveinar sp\u00e1mannanna s\u00e1tu frammi fyrir honum sag\u00f0i hann vi\u00f0 \u00fej\u00f3n sinn: \u201eSettu st\u00f3ra pottinn yfir og elda\u00f0u mat handa l\u00e6risveinum sp\u00e1mannanna.\u201c <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00f3r einn \u00feeirra \u00fat \u00ed hagann til a\u00f0 safna jurtum og fann villta vafningsjurt. Hann t\u00edndi af henni svo miki\u00f0 af villtum g\u00farkum sem r\u00fama\u00f0ist \u00ed k\u00e1pulafi hans. \u00deegar heim kom skar hann \u00fe\u00e6r \u00ed bita og setti \u00ed pottinn en \u00feeir \u00feekktu \u00fe\u00e6r ekki. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00deegar ausi\u00f0 var upp handa m\u00f6nnunum til a\u00f0 eta og \u00feeir sm\u00f6kku\u00f0u \u00e1 r\u00e9ttinum hr\u00f3pu\u00f0u \u00feeir: \u201eDau\u00f0inn er \u00ed pottinum, gu\u00f0sma\u00f0ur.\u201c Og \u00feeir g\u00e1tu ekki neytt matarins. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> En El\u00edsa sag\u00f0i: \u201eKomi\u00f0 me\u00f0 mj\u00f6l.\u201c Hann kasta\u00f0i \u00fev\u00ed \u00ed pottinn og sag\u00f0i: \u201eAusi\u00f0 upp handa f\u00f3lkinu svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 geti eti\u00f0.\u201c N\u00fa var ekkert lengur ska\u00f0legt \u00ed pottinum.<br \/> <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Einu sinni kom ma\u00f0ur fr\u00e1 Baal Sal\u00edsa og f\u00e6r\u00f0i gu\u00f0smanninum tuttugu byggbrau\u00f0, frumgr\u00f3\u00f0abrau\u00f0. D\u00e1l\u00edti\u00f0 af n\u00fdju korni haf\u00f0i hann einnig \u00ed poka s\u00ednum. El\u00edsa sag\u00f0i: \u201eGef\u00f0u f\u00f3lkinu \u00feetta.\u201c <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> \u201eHvernig get \u00e9g gefi\u00f0 \u00feetta hundra\u00f0 m\u00f6nnum?\u201c svara\u00f0i \u00fej\u00f3nn hans. En hann sag\u00f0i: \u201eGef\u00f0u f\u00f3lkinu \u00feetta a\u00f0 eta \u00fev\u00ed a\u00f0 svo segir Drottinn: \u00deeir munu eta og leifa.\u201c <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an bar hann \u00feetta fyrir \u00fe\u00e1 og \u00feeir \u00e1tu og leif\u00f0u eins og Drottinn haf\u00f0i sagt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>El\u00edsa hj\u00e1lpar f\u00e1t\u00e6kri ekkju 1 Kona nokkur, sem var gift einum af l\u00e6risveinum sp\u00e1mannanna, hr\u00f3pa\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum til El\u00edsa og sag\u00f0i: \u201e\u00dej\u00f3nn \u00feinn, eiginma\u00f0ur minn, er d\u00e1inn. \u00de\u00fa veist sj\u00e1lfur a\u00f0 \u00fej\u00f3nn \u00feinn var gu\u00f0hr\u00e6ddur ma\u00f0ur. En n\u00fa er l\u00e1nardrottinn hans kominn og \u00e6tlar a\u00f0 hneppa b\u00e1\u00f0a syni m\u00edna \u00ed \u00fer\u00e6ld\u00f3m.\u201c 2 El\u00edsa sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u201eHva\u00f0 get \u00e9g gert fyrir \u00feig? Seg\u00f0u m\u00e9r hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt til heima.\u201c H\u00fan svara\u00f0i: \u201eAmb\u00e1tt \u00fe\u00edn \u00e1 ekki anna\u00f0 en eina fl\u00f6sku af ol\u00edu.\u201c 3 Hann sag\u00f0i: \u201eFar\u00f0u \u00fat. Bi\u00f0 \u00fe\u00fa um krukku \u00fati \u00e1 g\u00f6tum, bi\u00f0 alla n\u00e1granna \u00fe\u00edna um t\u00f3mar krukkur en <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-konungabok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1934","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1934","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1934"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1934\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1934"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}