{"id":1920,"date":"2017-12-30T21:01:00","date_gmt":"2017-12-30T21:01:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungab%c2%97k-12-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:02","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:02","slug":"fyrri-konungabok-12-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-12-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 12. kafli"},"content":{"rendered":"<h2 class=\"millifyrirsogn_2007\">Konungsr\u00edkin tv\u00f6, \u00cdsrael og J\u00fada <\/h2>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Konungd\u00e6mi\u00f0 klofnar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Rehabeam f\u00f3r til S\u00edkem \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feanga\u00f0 var allur \u00cdsrael kominn til \u00feess a\u00f0 taka hann til konungs. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Jer\u00f3b\u00f3am Nebatsson fr\u00e9tti \u00feetta me\u00f0an hann var enn \u00ed Egyptalandi en \u00feanga\u00f0 haf\u00f0i hann fl\u00fai\u00f0 undan Sal\u00f3mon konungi. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Bo\u00f0 var gert eftir honum og hann kalla\u00f0ur heim. \u00deegar Jer\u00f3b\u00f3am og allur s\u00f6fnu\u00f0ur \u00cdsraels var kominn til S\u00edkem s\u00f6g\u00f0u \u00feeir vi\u00f0 Rehabeam: <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u201eFa\u00f0ir \u00feinn lag\u00f0i \u00e1 okkur \u00feungt ok. Ef \u00fe\u00fa l\u00e9ttir hinn har\u00f0a \u00fer\u00e6ld\u00f3m f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns og hi\u00f0 \u00feunga ok, sem hann lag\u00f0i \u00e1 okkur, skulum vi\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fe\u00e9r.\u201c <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En hann svara\u00f0i \u00feeim: \u201eFari\u00f0 og komi\u00f0 aftur til m\u00edn a\u00f0 \u00feremur d\u00f6gum li\u00f0num.\u201c F\u00f3lki\u00f0 f\u00f3r lei\u00f0ar sinnar <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> en Rehabeam konungur r\u00e1\u00f0ga\u00f0ist vi\u00f0 g\u00f6mlu mennina sem h\u00f6f\u00f0u veri\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3nustu Sal\u00f3mons, f\u00f6\u00f0ur hans, me\u00f0an hann lif\u00f0i. \u201eHva\u00f0 r\u00e1\u00f0leggi\u00f0 \u00fei\u00f0 m\u00e9r?\u201c spur\u00f0i hann. \u201eHverju \u00e1 \u00e9g a\u00f0 svara \u00feessu f\u00f3lki?\u201c <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deeir sv\u00f6ru\u00f0u honum og s\u00f6g\u00f0u: \u201eEf \u00fe\u00fa gerist \u00fej\u00f3nn \u00feessa f\u00f3lks \u00ed dag, l\u00e6tur a\u00f0 vilja \u00feess og talar vingjarnlega til \u00feess, \u00fe\u00e1 mun \u00feetta f\u00f3lk \u00fej\u00f3na \u00fe\u00e9r h\u00e9\u00f0an \u00ed fr\u00e1.\u201c <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Rehabeam f\u00f3r \u00fe\u00f3 ekki a\u00f0 r\u00e1\u00f0um g\u00f6mlu mannanna heldur leita\u00f0i \u00ed sta\u00f0inn r\u00e1\u00f0a hj\u00e1 ungu m\u00f6nnunum sem alist h\u00f6f\u00f0u upp me\u00f0 honum og voru n\u00fa \u00ed \u00fej\u00f3nustu hans. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Hann spur\u00f0i \u00fe\u00e1: \u201eHva\u00f0 r\u00e1\u00f0leggi\u00f0 \u00fei\u00f0 m\u00e9r? Hverju \u00e1 \u00e9g a\u00f0 svara \u00feessu f\u00f3lki sem segir vi\u00f0 mig: L\u00e9ttu oki\u00f0 sem fa\u00f0ir \u00feinn lag\u00f0i \u00e1 okkur?\u201c <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Ungu mennirnir, sem h\u00f6f\u00f0u alist upp me\u00f0 honum, sv\u00f6ru\u00f0u: \u201e\u00deannig skaltu svara \u00feessu f\u00f3lki sem hefur sagt vi\u00f0 \u00feig: L\u00e9ttu hi\u00f0 \u00feunga ok sem fa\u00f0ir \u00feinn lag\u00f0i \u00e1 okkur. \u00deannig skaltu svara \u00fev\u00ed: Litli fingur minn er gildari en lendar f\u00f6\u00f0ur m\u00edns. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Fa\u00f0ir minn lag\u00f0i \u00e1 ykkur \u00feungt ok en \u00e9g mun \u00feyngja \u00fea\u00f0 enn. Fa\u00f0ir minn aga\u00f0i ykkur me\u00f0 hn\u00fatasvipu en \u00e9g mun aga ykkur me\u00f0 gaddasvipu.\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Jer\u00f3b\u00f3am og allt f\u00f3lki\u00f0 kom til Rehabeams \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi eins og konungurinn haf\u00f0i fyrirskipa\u00f0 \u00feegar hann sag\u00f0i: \u201eKomi\u00f0 aftur til m\u00edn a\u00f0 \u00feremur d\u00f6gum li\u00f0num.\u201c <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Konungur svara\u00f0i f\u00f3lkinu hranalega, haf\u00f0i r\u00e1\u00f0 g\u00f6mlu mannanna a\u00f0 engu <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> en svara\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e1\u00f0i ungu mannanna og sag\u00f0i: \u201eFa\u00f0ir minn lag\u00f0i \u00e1 ykkur \u00feungt ok en \u00e9g mun \u00feyngja \u00fea\u00f0 enn. Fa\u00f0ir minn aga\u00f0i ykkur me\u00f0 hn\u00fatasvipu en \u00e9g mun aga ykkur me\u00f0 gaddasvipu.\u201c <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Konungur hlusta\u00f0i ekki \u00e1 f\u00f3lki\u00f0 af \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i sn\u00fai\u00f0 atbur\u00f0unum \u00e1 \u00feennan veg til \u00feess a\u00f0 \u00fea\u00f0 r\u00e6ttist sem hann haf\u00f0i sagt vi\u00f0 Jer\u00f3b\u00f3am Nebatsson fyrir munn Ah\u00eda fr\u00e1 S\u00edl\u00f3. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deegar \u00cdsraelsm\u00f6nnum var\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 konungurinn vildi ekki hlusta \u00e1 \u00fe\u00e1, sv\u00f6ru\u00f0u \u00feeir honum og s\u00f6g\u00f0u:<br \/> <span class=\"ljodatexti\"> Hva\u00f0a hlutdeild eigum vi\u00f0 \u00ed Dav\u00ed\u00f0?<br \/>Vi\u00f0 eigum engan erf\u00f0ahlut \u00ed syni \u00cdsa\u00ed.<br \/> \u00cdsrael, far\u00f0u til tjalda \u00feinna.<br \/>Dav\u00ed\u00f0, g\u00e6ttu a\u00f0 \u00feinni eigin \u00e6tt. <\/span> <br \/>\u00dev\u00ed n\u00e6st h\u00e9lt allur \u00cdsrael til tjalda sinna <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> en Rehabeam var\u00f0 konungur yfir \u00feeim \u00cdsraelsm\u00f6nnum sem bjuggu \u00ed borgum J\u00fada. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deegar konungur sendi Ad\u00f3n\u00edram, yfirmann kva\u00f0avinnunnar, til \u00cdsraels gr\u00fdtti allur \u00cdsrael hann til bana. En Rehabeam konungi t\u00f3kst a\u00f0 komast upp \u00ed vagn sinn og fl\u00fdja til Jer\u00fasalem. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deannig ger\u00f0u \u00cdsraelsmenn uppreisn gegn \u00e6tt Dav\u00ed\u00f0s og hafa veri\u00f0 skildir fr\u00e1 henni allt til \u00feessa dags.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Stofnun Nor\u00f0urr\u00edkisins<\/h3>\n<p><a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deegar \u00cdsraelsmenn fr\u00e9ttu a\u00f0 Jer\u00f3b\u00f3am v\u00e6ri sn\u00fainn aftur sendu \u00feeir honum bo\u00f0, kv\u00f6ddu hann til \u00feings og ger\u00f0u hann a\u00f0 konungi yfir \u00f6llum \u00cdsrael. \u00c6ttb\u00e1lkur J\u00fada h\u00e9lt einn trygg\u00f0 vi\u00f0 \u00e6tt Dav\u00ed\u00f0s.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deegar Rehabeam kom til Jer\u00fasalem safna\u00f0i hann saman \u00f6llum \u00e6ttb\u00e1lki J\u00fada og \u00e6ttb\u00e1lki Benjam\u00edns, hundra\u00f0 og \u00e1ttat\u00edu \u00fe\u00fasund manna einvalali\u00f0i, til a\u00f0 hefja str\u00ed\u00f0 og berjast gegn konungs\u00e6tt \u00cdsraels og vinna konungd\u00e6mi\u00f0 aftur handa Rehabeam, syni Sal\u00f3mons.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kom or\u00f0 Gu\u00f0s til gu\u00f0smannsins Semaja: <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u201eSeg\u00f0u Rehabeam J\u00fadakonungi, syni Sal\u00f3mons, og allri konungs\u00e6tt J\u00fada og Benjam\u00edns og allri \u00fej\u00f3\u00f0inni: <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Svo segir Drottinn: Fari\u00f0 ekki til a\u00f0 berjast vi\u00f0 br\u00e6\u00f0ur ykkar, \u00cdsraelsmenn. Hver ykkar skal halda til s\u00edns heima \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er valdur a\u00f0 \u00fev\u00ed sem gerst hefur.\u201c \u00deeir hl\u00fdddu bo\u00f0skap Drottins, sneru vi\u00f0 og f\u00f3ru heim eins og Drottinn haf\u00f0i sagt.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Helgista\u00f0ir Nor\u00f0urr\u00edkisins<\/h3>\n<p><a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Jer\u00f3b\u00f3am v\u00edggirti S\u00edkem \u00ed Efra\u00edmsfj\u00f6llum og settist \u00fear a\u00f0. S\u00ed\u00f0ar fluttist hann \u00fea\u00f0an og bygg\u00f0i Pen\u00fael.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Jer\u00f3b\u00f3am hugsa\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r: \u201eN\u00fa g\u00e6ti konungd\u00e6mi\u00f0 aftur lent undir stj\u00f3rn Dav\u00ed\u00f0s \u00e6ttar. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Ef f\u00f3lki\u00f0 fer h\u00e9\u00f0an upp eftir til a\u00f0 f\u00e6ra sl\u00e1turf\u00f3rnir \u00ed musteri Drottins \u00ed Jer\u00fasalem, \u00fe\u00e1 mun \u00fea\u00f0 sn\u00faast til fylgis vi\u00f0 Rehabeam J\u00fadakonung a\u00f0 n\u00fdju. \u00dea\u00f0 mun drepa mig og ganga Rehabeam konungi J\u00fada aftur \u00e1 h\u00f6nd.\u201c <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Konungur hugsa\u00f0i \u00fev\u00ed r\u00e1\u00f0 sitt, l\u00e9t b\u00faa til tvo k\u00e1lfa \u00far gulli og sag\u00f0i \u00fev\u00ed n\u00e6st vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0: \u201eOf lengi hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 leita\u00f0 upp til Jer\u00fasalem. \u00deetta er Gu\u00f0 \u00feinn, \u00cdsrael, sem leiddi \u00feig \u00fat \u00far Egyptalandi.\u201c <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Hann kom \u00f6\u00f0rum k\u00e1lfinum fyrir \u00ed Betel en hinn flutti hann til Dan. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deetta var\u00f0 \u00cdsrael tilefni til syndar. En f\u00f3lki\u00f0 f\u00f3r fyrir \u00f6\u00f0rum k\u00e1lfinum til Dan.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Jer\u00f3b\u00f3am bygg\u00f0i einnig hof \u00e1 f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0unum og skipa\u00f0i presta af \u00f6llum st\u00e9ttum \u00fej\u00f3\u00f0arinnar, jafnvel \u00fe\u00e1 sem ekki voru af \u00e6tt Lev\u00ed. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Hann l\u00e9t halda h\u00e1t\u00ed\u00f0 fimmt\u00e1nda dag hins \u00e1ttunda m\u00e1na\u00f0ar sem samsvara\u00f0i h\u00e1t\u00ed\u00f0inni \u00ed J\u00fada. \u00cd Betel gekk hann upp a\u00f0 altarinu til \u00feess a\u00f0 f\u00e6ra nautk\u00e1lfunum, sem hann haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 sm\u00ed\u00f0a, sl\u00e1turf\u00f3rnir. Einnig l\u00e9t hann prestana, sem hann haf\u00f0i sett til \u00fej\u00f3nustu \u00e1 f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0irnar, \u00fej\u00f3na \u00ed Betel.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Gu\u00f0sma\u00f0urinn fr\u00e1 J\u00fada og sp\u00e1ma\u00f0urinn \u00ed Betel<\/h3>\n<p><a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Jer\u00f3b\u00f3am gekk upp a\u00f0 altarinu, sem hann haf\u00f0i l\u00e1ti\u00f0 gera \u00ed Betel, \u00e1 fimmt\u00e1nda degi hins \u00e1ttunda m\u00e1na\u00f0ar. Hann haf\u00f0i a\u00f0 eigin ge\u00f0\u00fe\u00f3tta vali\u00f0 \u00feennan m\u00e1nu\u00f0 og \u00e1kve\u00f0i\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0isdag fyrir \u00cdsraelsmenn. \u00c1 \u00feeim degi gekk hann upp a\u00f0 altarinu til \u00feess a\u00f0 f\u00e6ra reykelsisf\u00f3rn.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Konungsr\u00edkin tv\u00f6, \u00cdsrael og J\u00fada Konungd\u00e6mi\u00f0 klofnar 1 Rehabeam f\u00f3r til S\u00edkem \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feanga\u00f0 var allur \u00cdsrael kominn til \u00feess a\u00f0 taka hann til konungs. 2 Jer\u00f3b\u00f3am Nebatsson fr\u00e9tti \u00feetta me\u00f0an hann var enn \u00ed Egyptalandi en \u00feanga\u00f0 haf\u00f0i hann fl\u00fai\u00f0 undan Sal\u00f3mon konungi. 3 Bo\u00f0 var gert eftir honum og hann kalla\u00f0ur heim. \u00deegar Jer\u00f3b\u00f3am og allur s\u00f6fnu\u00f0ur \u00cdsraels var kominn til S\u00edkem s\u00f6g\u00f0u \u00feeir vi\u00f0 Rehabeam: 4 \u201eFa\u00f0ir \u00feinn lag\u00f0i \u00e1 okkur \u00feungt ok. Ef \u00fe\u00fa l\u00e9ttir hinn har\u00f0a \u00fer\u00e6ld\u00f3m f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns og hi\u00f0 \u00feunga ok, sem hann lag\u00f0i \u00e1 okkur, skulum vi\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fe\u00e9r.\u201c 5 En <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-12-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1920","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1920","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1920"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1920\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1920"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}