{"id":1918,"date":"2017-12-30T21:01:00","date_gmt":"2017-12-30T21:01:00","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungab%c2%97k-10-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:00","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:00","slug":"fyrri-konungabok-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-10-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 10. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Drottningin af Saba<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottningin af Saba heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 or\u00f0 sem f\u00f3r af Sal\u00f3mon og kom til \u00feess a\u00f0 reyna hann me\u00f0 g\u00e1tum. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> H\u00fan kom til Jer\u00fasalem \u00e1samt miklu fylgdarli\u00f0i og haf\u00f0i \u00falfalda klyfja\u00f0a balsami, gulli og d\u00fdrindis steinum. H\u00fan gekk fyrir Sal\u00f3mon og lag\u00f0i fyrir hann allt sem henni l\u00e1 \u00e1 hjarta. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Sal\u00f3mon svara\u00f0i \u00f6llum spurningum hennar, ekkert var konungi huli\u00f0 og aldrei var\u00f0 honum svara f\u00e1tt. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deegar drottningin af Saba haf\u00f0i kynnst speki Sal\u00f3mons, s\u00e9\u00f0 h\u00fasi\u00f0, sem hann haf\u00f0i byggt, <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> matinn \u00e1 bor\u00f0i hans, s\u00e6taskipan hir\u00f0manna, \u00fej\u00f3nustu skutilsveina hans og kl\u00e6\u00f0na\u00f0, byrlara hans og brennif\u00f3rnir, sem hann f\u00e6r\u00f0i \u00ed h\u00fasi Drottins, var\u00f0 h\u00fan agndofa. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> H\u00fan sag\u00f0i vi\u00f0 konung: \u201e\u00dea\u00f0 sem \u00e9g heyr\u00f0i heima \u00ed landi m\u00ednu um or\u00f0snilld \u00fe\u00edna og visku hefur reynst r\u00e9tt. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> En ekki tr\u00fa\u00f0i \u00e9g \u00fev\u00ed sem sagt var fyrr en \u00e9g kom og kynntist \u00fev\u00ed af eigin raun. \u00de\u00f3 var m\u00e9r ekki sk\u00fdrt fr\u00e1 helmingnum. Viska \u00fe\u00edn og velmegun er meiri en \u00e9g haf\u00f0i heyrt um. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> S\u00e6lir eru menn \u00fe\u00ednir, s\u00e6lir hir\u00f0menn \u00fe\u00ednir, sem s\u00edfellt eru hj\u00e1 \u00fe\u00e9r og hl\u00fd\u00f0a \u00e1 speki \u00fe\u00edna. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Lofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, sem haf\u00f0i vel\u00fe\u00f3knun \u00e1 \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 hann setti \u00feig \u00ed h\u00e1s\u00e6ti \u00cdsraels. Drottinn ger\u00f0i \u00feig a\u00f0 konungi til \u00feess a\u00f0 \u00e1stunda r\u00e9tt og r\u00e9ttl\u00e6ti af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann elskar \u00cdsrael \u00e6vinlega.\u201c <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> H\u00fan gaf konungi hundra\u00f0 og tuttugu talentur gulls, gn\u00e6g\u00f0 balsams og d\u00fdrindis steina. Aldrei framar barst hinga\u00f0 eins miki\u00f0 balsam og drottningin af Saba gaf Sal\u00f3mon konungi.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Skip H\u00edrams, sem komu me\u00f0 gull fr\u00e1 \u00d3f\u00edr, fluttu \u00fea\u00f0an einnig mj\u00f6g miki\u00f0 af alm\u00fagg\u00edmvi\u00f0i og d\u00fdrindis steinum. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Konungurinn l\u00e9t gera handri\u00f0 \u00ed h\u00fas Drottins og konungsh\u00f6llina \u00far alm\u00fagg\u00edmvi\u00f0num, einnig s\u00edtara og h\u00f6rpur handa s\u00f6ngvurunum. Allt til \u00feessa dags hafa sl\u00edk b\u00fdsn af alm\u00fagg\u00edmvi\u00f0i hvorki borist hinga\u00f0 n\u00e9 s\u00e9st h\u00e9r.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungur veitti drottningunni af Saba allt sem h\u00fan girntist og ba\u00f0 um, auk \u00feess sem hann gaf henni hef\u00f0bundna konungsgj\u00f6f. S\u00ed\u00f0an sneri h\u00fan aftur og h\u00e9lt til lands s\u00edns \u00e1samt fylgdarm\u00f6nnum s\u00ednum.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Au\u00f0\u00e6fi Sal\u00f3mons<\/h3>\n<p><a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Gulli\u00f0, sem Sal\u00f3mon var f\u00e6rt \u00e1rlega, var sex hundru\u00f0 sext\u00edu og sex talentur a\u00f0 \u00feyngd. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Auk \u00feess b\u00e1rust honum tollar fr\u00e1 kaupm\u00f6nnum sem f\u00f3ru um landi\u00f0, skattar fr\u00e1 verslunarm\u00f6nnum, \u00f6llum konungum Arab\u00edu og h\u00e9ra\u00f0sstj\u00f3runum.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungur l\u00e9t gera tv\u00f6 hundru\u00f0 st\u00f3ra skildi \u00far slegnu gulli. \u00deurfti sex hundru\u00f0 sikla af gulli \u00ed hvern skj\u00f6ld. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Hann l\u00e9t einnig gera \u00ferj\u00fa hundru\u00f0 minni skildi \u00far slegnu gulli. F\u00f3ru \u00ferj\u00e1r m\u00ednur gulls \u00ed hvern \u00feeirra. Konungur kom skj\u00f6ldunum fyrir \u00ed L\u00edbanonssk\u00f3garh\u00fasinu.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Konungur l\u00e9t enn fremur gera st\u00f3rt h\u00e1s\u00e6ti \u00far f\u00edlabeini og leggja \u00fea\u00f0 sk\u00edragulli. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Sex \u00ferep voru upp a\u00f0 h\u00e1s\u00e6tinu og var efsti hluti baks \u00feess bogadreginn. Br\u00edkur voru b\u00e1\u00f0um megin vi\u00f0 s\u00e6ti\u00f0 og st\u00f3\u00f0 lj\u00f3n vi\u00f0 hvora br\u00edk. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> T\u00f3lf lj\u00f3n st\u00f3\u00f0u \u00e1 \u00ferepunum, sex hvorum megin. Anna\u00f0 eins hefur ekki veri\u00f0 gert \u00ed neinu \u00f6\u00f0ru konungsr\u00edki.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00d6ll drykkjarker Sal\u00f3mons konungs voru \u00far gulli og \u00f6ll \u00e1h\u00f6ld \u00ed L\u00edbanonssk\u00f3garh\u00fasinu \u00far sk\u00edru gulli. Ekkert var \u00far silfri, enda var \u00fea\u00f0 einskis meti\u00f0 \u00e1 d\u00f6gum Sal\u00f3mons, <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 konungur \u00e1tti Tarsisskip<span class=\"nedan_mal\" title=\" St\u00f3r seglskip voru nefnd Tarsisskip eftir f\u00f6nik\u00edsku n\u00fdlendunni Tartessor \u00e1 Su\u00f0ur-Sp\u00e1ni.\">[<\/span> \u00ed f\u00f6rum \u00e1samt skipum H\u00edrams. Tarsisskipin komu \u00feri\u00f0ja hvert \u00e1r me\u00f0 gull og silfur, f\u00edlabein, apa og bav\u00edana.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungur var au\u00f0ugri og vitrari en allir konungar heims. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Allur heimurinn leita\u00f0i til Sal\u00f3mons til \u00feess a\u00f0 heyra hann tala af \u00feeirri visku sem Gu\u00f0 haf\u00f0i lagt honum \u00ed brj\u00f3st. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00c1r eftir \u00e1r komu menn me\u00f0 gjafir s\u00ednar, gripi \u00far silfri og gulli, kl\u00e6\u00f0i, vopn, balsam, hesta og m\u00fald\u00fdr.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Sal\u00f3mon kom s\u00e9r upp herv\u00f6gnum og manna\u00f0i \u00fe\u00e1. Haf\u00f0i hann fj\u00f3rt\u00e1n hundru\u00f0 vagna og t\u00f3lf \u00fe\u00fasund vagnli\u00f0a. Hann kom \u00feeim fyrir \u00ed vagnli\u00f0sborgum og \u00ed Jer\u00fasalem hj\u00e1 konungi sj\u00e1lfum.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Konungur nota\u00f0i silfur eins og grj\u00f3t \u00ed Jer\u00fasalem og sedrusvi\u00f0 eins og m\u00f3rberjaf\u00edkjuvi\u00f0inn sem vex \u00e1 l\u00e1glendinu.<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Hestar Sal\u00f3mons voru fluttir inn fr\u00e1 Egyptalandi og K\u00f3e. Kaupmenn konungs keyptu \u00fe\u00e1 \u00ed K\u00f3e. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Vagn, sem fluttur var inn fr\u00e1 Egyptalandi, kosta\u00f0i sex hundru\u00f0 sikla silfurs og hver hestur hundra\u00f0 og fimmt\u00edu sikla. S\u00ed\u00f0an voru \u00feeir seldir \u00e1fram til allra konunga Het\u00edta og konunga Arams.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Drottningin af Saba 1 Drottningin af Saba heyr\u00f0i \u00fea\u00f0 or\u00f0 sem f\u00f3r af Sal\u00f3mon og kom til \u00feess a\u00f0 reyna hann me\u00f0 g\u00e1tum. 2 H\u00fan kom til Jer\u00fasalem \u00e1samt miklu fylgdarli\u00f0i og haf\u00f0i \u00falfalda klyfja\u00f0a balsami, gulli og d\u00fdrindis steinum. H\u00fan gekk fyrir Sal\u00f3mon og lag\u00f0i fyrir hann allt sem henni l\u00e1 \u00e1 hjarta. 3 Sal\u00f3mon svara\u00f0i \u00f6llum spurningum hennar, ekkert var konungi huli\u00f0 og aldrei var\u00f0 honum svara f\u00e1tt. 4 \u00deegar drottningin af Saba haf\u00f0i kynnst speki Sal\u00f3mons, s\u00e9\u00f0 h\u00fasi\u00f0, sem hann haf\u00f0i byggt, 5 matinn \u00e1 bor\u00f0i hans, s\u00e6taskipan hir\u00f0manna, \u00fej\u00f3nustu skutilsveina hans og kl\u00e6\u00f0na\u00f0, byrlara hans og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1918","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1918","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1918"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1918\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1918"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}