{"id":1917,"date":"2017-12-30T21:00:55","date_gmt":"2017-12-30T21:00:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungab%c2%97k-9-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:13","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:13","slug":"fyrri-konungabok-9-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-9-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 9. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Drottinn birtist Sal\u00f3mon<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar Sal\u00f3mon haf\u00f0i reist musteri Drottins og konungsh\u00f6llina og komi\u00f0 \u00f6llu \u00ed verk sem hugur hans st\u00f3\u00f0 til, <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00fe\u00e1 birtist Drottinn Sal\u00f3mon \u00f6\u00f0ru sinni eins og hann haf\u00f0i birst honum \u00ed G\u00edbeon. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g hef heyrt \u00e1kall \u00feitt og b\u00e6n sem \u00fe\u00fa fluttir fyrir augliti m\u00ednu. \u00c9g hef helga\u00f0 \u00feetta h\u00fas sem \u00fe\u00fa hefur reist til \u00feess a\u00f0 nafn mitt b\u00fai \u00fear \u00e6vinlega. Augu m\u00edn og hjarta munu \u00e6t\u00ed\u00f0 vera \u00fear. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Ef \u00fe\u00fa gengur fyrir auglit mitt, eins og Dav\u00ed\u00f0, fa\u00f0ir \u00feinn, ger\u00f0i af heilum huga og \u00ed einl\u00e6gni, og ef \u00fe\u00fa gerir allt sem \u00e9g hef bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r, heldur \u00e1kv\u00e6\u00f0i m\u00edn og l\u00f6g, <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> mun \u00e9g um aldur og \u00e6vi sty\u00f0ja h\u00e1s\u00e6ti konungd\u00f3ms \u00fe\u00edns yfir \u00cdsrael eins og \u00e9g lofa\u00f0i Dav\u00ed\u00f0, f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00ednum: Ni\u00f0jar \u00fe\u00ednir munu \u00e6t\u00ed\u00f0 sitja \u00ed h\u00e1s\u00e6ti \u00cdsraels. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> En ef \u00fei\u00f0 og synir ykkar sn\u00fai\u00f0 fr\u00e1 m\u00e9r og haldi\u00f0 ekki bo\u00f0 \u00feau og fyrirm\u00e6li sem \u00e9g hef sett ykkur en fari\u00f0 og \u00fej\u00f3ni\u00f0 \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um og s\u00fdni\u00f0 \u00feeim lotningu, <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> mun \u00e9g ey\u00f0a \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00far landinu sem \u00e9g f\u00e9kk \u00feeim. H\u00fasi\u00f0, sem \u00e9g hef helga\u00f0 nafni m\u00ednu, mun \u00e9g fjarl\u00e6gja fr\u00e1 augliti m\u00ednu og \u00cdsrael mun ver\u00f0a haf\u00f0ur a\u00f0 h\u00e1\u00f0i og spotti me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deetta h\u00fas skal ver\u00f0a r\u00fast og s\u00e9rhver, sem gengur \u00fear hj\u00e1, mun fyllast skelfingu. Menn munu gr\u00edpa andann \u00e1 lofti og spyrja: Hvers vegna hefur Drottinn leiki\u00f0 svo hart \u00feetta land og \u00feetta h\u00fas? <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Og svari\u00f0 ver\u00f0ur: Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edb\u00faarnir yfirg\u00e1fu Drottin, Gu\u00f0 sinn, sem leiddi forfe\u00f0ur \u00feeirra \u00fat \u00far Egyptalandi. \u00deeir bundust \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um, s\u00fdndu \u00feeim lotningu og \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00feeim. \u00deess vegna hefur Drottinn sent allt \u00feetta b\u00f6l yfir \u00fe\u00e1.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Laun H\u00edrams<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar \u00feau tuttugu \u00e1r voru li\u00f0in sem Sal\u00f3mon var a\u00f0 reisa b\u00e6\u00f0i h\u00fasin, musteri Drottins og h\u00f6llina, <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> afhenti Sal\u00f3mon konungur H\u00edram tuttugu borgir \u00ed Gal\u00edleuh\u00e9ra\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 H\u00edram, konungur \u00ed T\u00fdrus, haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 Sal\u00f3mon fyrir \u00f6llum \u00feeim sedrusvi\u00f0i, k\u00fdprusvi\u00f0i og gulli sem hann \u00f3ska\u00f0i. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> H\u00edram kom fr\u00e1 T\u00fdrus til \u00feess a\u00f0 sko\u00f0a borgirnar sem Sal\u00f3mon haf\u00f0i fengi\u00f0 honum en hann var ekki \u00e1n\u00e6g\u00f0ur me\u00f0 \u00fe\u00e6r. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hann sag\u00f0i: \u201eHvers konar borgir eru \u00feetta sem \u00fe\u00fa hefur fengi\u00f0 m\u00e9r, br\u00f3\u00f0ir?\u201c Allt til dagsins \u00ed dag hefur h\u00e9ra\u00f0i\u00f0 \u00fear sem \u00fe\u00e6r eru veri\u00f0 nefnt Kab\u00fal.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Kab\u00fal hlj\u00f3mar l\u00edkt og or\u00f0 sem merkir f\u00e1n\u00fdtur, einskis vir\u00f0i.\">[<\/span> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> H\u00edram haf\u00f0i sent konungi hundra\u00f0 og tuttugu talentur gulls.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Kva\u00f0avinna<\/h3>\n<p><a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> H\u00e9r ver\u00f0ur sagt fr\u00e1 kva\u00f0avinnunni sem Sal\u00f3mon konungur kom \u00e1 til \u00feess a\u00f0 byggja musteri Drottins og sitt eigi\u00f0 h\u00fas, einnig Mill\u00f3, m\u00fara Jer\u00fasalem, Has\u00f3r, Megidd\u00f3 og Geser: <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Fara\u00f3, konungur Egypta, haf\u00f0i komi\u00f0 og teki\u00f0 Geser, brennt hana og drepi\u00f0 Kanverjana sem bjuggu \u00ed borginni. S\u00ed\u00f0an haf\u00f0i hann gefi\u00f0 hana d\u00f3ttur sinni, eiginkonu Sal\u00f3mons, \u00ed heimanmund. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Sal\u00f3mon reisti Geser a\u00f0 n\u00fdju, einnig ne\u00f0ri Bet H\u00f3ron, <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Baalat og Tamar \u00ed \u00f3bygg\u00f0um landsins. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Auk \u00feess reisti Sal\u00f3mon allar birg\u00f0aborgirnar, sem hann \u00e1tti, og borgirnar fyrir hervagna s\u00edna og str\u00ed\u00f0shesta og allt sem hann vildi byggja \u00ed Jer\u00fasalem, \u00e1 L\u00edbanon og hvarvetna \u00ed r\u00edki s\u00ednu. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Sal\u00f3mon lag\u00f0i kva\u00f0avinnu \u00e1 alla \u00fe\u00e1 sem eftir voru af Amor\u00edtum, Het\u00edtum, Peres\u00edtum, Hev\u00edtum og Jeb\u00fas\u00edtum og ekki voru \u00cdsraelsmenn. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 voru afkomendur \u00feeirra sem enn h\u00f6f\u00f0u b\u00fasetu \u00ed landinu og \u00cdsraelsmenn h\u00f6f\u00f0u ekki geta\u00f0 tort\u00edmt. Hafa \u00feeir unni\u00f0 \u00feessa vinnu til \u00feessa dags. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> En Sal\u00f3mon ger\u00f0i enga \u00cdsraelsmenn a\u00f0 \u00fer\u00e6lum. \u00deeir voru hermenn hans, emb\u00e6ttismenn, hersh\u00f6f\u00f0ingjar, vagnstj\u00f3rar og foringjar yfir herv\u00f6gnum hans og hervagnali\u00f0i. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Yfir framkv\u00e6mdum Sal\u00f3mons voru fimm hundru\u00f0 og fimmt\u00edu verkstj\u00f3rar sem heyr\u00f0u undir h\u00e9ra\u00f0sstj\u00f3rana og st\u00fdr\u00f0u \u00feeim sem verkin unnu.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00deegar d\u00f3ttir fara\u00f3s haf\u00f0i flutt fr\u00e1 borg Dav\u00ed\u00f0s til h\u00fass s\u00edns, sem Sal\u00f3mon haf\u00f0i reist handa henni, bygg\u00f0i hann Mill\u00f3.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00derisvar \u00e1 \u00e1ri f\u00e6r\u00f0i Sal\u00f3mon brennif\u00f3rn og heillaf\u00f3rn \u00e1 altarinu sem hann haf\u00f0i reist Drottni. Hann l\u00e9t f\u00f3rnir s\u00ednar l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk fyrir augliti Drottins og me\u00f0 \u00fev\u00ed lauk hann vi\u00f0 a\u00f0 reisa h\u00fas hans. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungur sm\u00ed\u00f0a\u00f0i einnig skip \u00ed Esj\u00f3n Geber sem er vi\u00f0 Elat \u00e1 str\u00f6nd Sefhafsins<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00dear sem n\u00fa heitir Akabafl\u00f3i.\">[<\/span> \u00ed Ed\u00f3mslandi. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> H\u00edram sendi menn s\u00edna \u00e1 skipin, reynda sj\u00f3menn, \u00e1samt m\u00f6nnum Sal\u00f3mons. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deeir komu til \u00d3f\u00edr, fluttu \u00fea\u00f0an gull, fj\u00f6gur hundru\u00f0 og tuttugu talentur, og f\u00e6r\u00f0u Sal\u00f3mon konungi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Drottinn birtist Sal\u00f3mon 1 \u00deegar Sal\u00f3mon haf\u00f0i reist musteri Drottins og konungsh\u00f6llina og komi\u00f0 \u00f6llu \u00ed verk sem hugur hans st\u00f3\u00f0 til, 2 \u00fe\u00e1 birtist Drottinn Sal\u00f3mon \u00f6\u00f0ru sinni eins og hann haf\u00f0i birst honum \u00ed G\u00edbeon. 3 Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201e\u00c9g hef heyrt \u00e1kall \u00feitt og b\u00e6n sem \u00fe\u00fa fluttir fyrir augliti m\u00ednu. \u00c9g hef helga\u00f0 \u00feetta h\u00fas sem \u00fe\u00fa hefur reist til \u00feess a\u00f0 nafn mitt b\u00fai \u00fear \u00e6vinlega. Augu m\u00edn og hjarta munu \u00e6t\u00ed\u00f0 vera \u00fear. 4 Ef \u00fe\u00fa gengur fyrir auglit mitt, eins og Dav\u00ed\u00f0, fa\u00f0ir \u00feinn, ger\u00f0i af heilum huga og \u00ed einl\u00e6gni, og <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-9-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1917","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1917","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1917"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1917\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1917"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}