{"id":1915,"date":"2017-12-30T21:00:55","date_gmt":"2017-12-30T21:00:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungab%c2%97k-7-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:12","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:12","slug":"fyrri-konungabok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-7-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> H\u00f6ll Sal\u00f3mons<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Sal\u00f3mon var \u00ferett\u00e1n \u00e1r a\u00f0 fullgera h\u00f6ll s\u00edna. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Hann bygg\u00f0i einnig L\u00edbanonssk\u00f3garh\u00fasi\u00f0. Var \u00fea\u00f0 hundra\u00f0 \u00e1lna langt og fimmt\u00edu \u00e1lna breitt og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1lna h\u00e1tt. \u00cd \u00fev\u00ed voru \u00ferj\u00e1r ra\u00f0ir af s\u00falum \u00far sedrusvi\u00f0i og ofan \u00e1 s\u00falunum voru bj\u00e1lkar \u00far sedrusvi\u00f0i. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deak \u00far sedrusvi\u00f0i var lagt ofan \u00e1 bj\u00e1lkana sem l\u00e1gu \u00e1 s\u00falunum. \u00de\u00e6r voru fj\u00f6rut\u00edu og fimm, fimmt\u00e1n \u00ed hverri r\u00f6\u00f0. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00derj\u00e1r gluggara\u00f0ir voru \u00e1 h\u00fasinu. Var \u00fear gluggi gegnt glugga \u00ed \u00feremur r\u00f6\u00f0um. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Allar dyr og gluggar h\u00f6f\u00f0u ferhyrnda umgj\u00f6r\u00f0 og var gluggi gegnt glugga \u00ed \u00feremur r\u00f6\u00f0um.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Hann bygg\u00f0i einnig s\u00falnasal sem var fimmt\u00edu \u00e1lna langur og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1lna brei\u00f0ur. Framan vi\u00f0 hann bygg\u00f0i hann forsal me\u00f0 s\u00falum og skyggni \u00fear fyrir framan. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hann bygg\u00f0i einnig h\u00e1s\u00e6tissal, d\u00f3msalinn, \u00fear sem hann h\u00e9lt d\u00f3m\u00feing. Var hann \u00feilja\u00f0ur me\u00f0 sedrusvi\u00f0i fr\u00e1 g\u00f3lfi til lofts.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00cdb\u00fa\u00f0arh\u00fas hans sj\u00e1lfs st\u00f3\u00f0 \u00ed \u00f6\u00f0rum forgar\u00f0i fr\u00e1 s\u00falnasalnum og var reist me\u00f0 sama h\u00e6tti. Sal\u00f3mon reisti einnig h\u00fas, sem l\u00edktist s\u00falnasalnum, handa d\u00f3ttur fara\u00f3s sem hann haf\u00f0i teki\u00f0 s\u00e9r fyrir konu.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00d6ll \u00feessi h\u00fas og \u00fatveggurinn a\u00f0 st\u00f3ra forgar\u00f0inum voru \u00far v\u00f6ldum steini fr\u00e1 grunni og upp \u00e1 veggbr\u00fanir. Steinarnir voru h\u00f6ggnir til eftir vi\u00f0urkenndu m\u00e1li og sl\u00e9tta\u00f0ir innan og utan me\u00f0 steins\u00f6g. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Undirsta\u00f0an var ger\u00f0 \u00far v\u00f6ldum steinum, st\u00f3rum steinum, sem voru t\u00edu \u00e1lnir og \u00e1tta \u00e1lnir. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Ofan \u00e1 \u00feeim voru ver\u00f0m\u00e6tir steinar, h\u00f6ggnir eftir m\u00e1li, og sedrusvi\u00f0ur. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> M\u00farinn umhverfis st\u00f3ra forgar\u00f0inn og innri forgar\u00f0inn umhverfis musteri Drottins og forsal hallarinnar var \u00far \u00feremur l\u00f6gum af h\u00f6ggnum steinum og einu lagi af sedrusbj\u00e1lkum.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00c1h\u00f6ld musterisins<\/h3>\n<p><a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungur sendi eftir H\u00edram fr\u00e1 T\u00fdrus. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Hann var sonur ekkju af \u00e6ttb\u00e1lki Naftal\u00ed en fa\u00f0ir hans var fr\u00e1 T\u00fdrus og haf\u00f0i veri\u00f0 eirsmi\u00f0ur. H\u00edram var hagleiksma\u00f0ur og g\u00e6ddur skilningi og kunn\u00e1ttu til \u00feess a\u00f0 vinna a\u00f0 hvers konar eirsm\u00ed\u00f0i. Hann kom til Sal\u00f3mons konungs og s\u00e1 um alla sm\u00ed\u00f0avinnuna fyrir hann. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hann m\u00f3ta\u00f0i b\u00e1\u00f0ar eirs\u00falurnar. Hvor \u00feeirra var \u00e1tj\u00e1n \u00e1lnir \u00e1 h\u00e6\u00f0 en t\u00f3lf \u00e1lna langan \u00fer\u00e1\u00f0 \u00feurfti til a\u00f0 n\u00e1 utan um \u00fe\u00e6r. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Hann ger\u00f0i einnig tv\u00f6 s\u00faluh\u00f6fu\u00f0 til \u00feess a\u00f0 setja ofan \u00e1 \u00fe\u00e6r. \u00deau voru steypt \u00far eir og var hvort \u00feeirra fimm \u00e1lnir \u00e1 h\u00e6\u00f0. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00c1 hvoru s\u00faluh\u00f6f\u00f0i voru sj\u00f6 fl\u00e9ttur og net \u00far festum.<span class=\"nedan_mal\" title=\" L\u00fdsingin \u00e1 ger\u00f0 s\u00faluh\u00f6f\u00f0anna er \u00f3lj\u00f3s en einhvers konar netverk \u00far ke\u00f0jum er nefnt sem skraut. 2Kro 3.16 nefnir l\u00edka ke\u00f0jur sem voru ofanvert \u00e1 s\u00falunum. \u00c1 ke\u00f0junum h\u00e9ngu granatepli.\">[<\/span> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Hann ger\u00f0i einnig granatepli sem voru \u00ed tveimur r\u00f6\u00f0um umhverfis neti\u00f0 svo a\u00f0 \u00feau \u00fe\u00f6ktu h\u00f6fu\u00f0i\u00f0 ofan \u00e1 s\u00falunni. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> H\u00f6fu\u00f0in, sem voru ofan \u00e1 s\u00falunum \u00ed forsalnum, voru m\u00f3tu\u00f0 eins og l\u00f3tusbl\u00f3m. Voru \u00feau fj\u00f3rar \u00e1lnir. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> H\u00f6fu\u00f0 voru \u00e1 b\u00e1\u00f0um s\u00falunum ofan vi\u00f0 bunguna hj\u00e1 netinu og tv\u00f6 hundru\u00f0 granatepli \u00ed r\u00f6\u00f0um umhverfis h\u00f6fu\u00f0 annarrar s\u00falunnar. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Hann reisti s\u00falurnar vi\u00f0 forsal musterisins. A\u00f0ra s\u00faluna reisti hann h\u00e6gra megin og nefndi hana Jakin og hina reisti hann vinstra megin og nefndi hana B\u00f3as. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Efst voru s\u00falurnar \u00ed laginu eins og l\u00f3tusbl\u00f3m. \u00deannig lauk sm\u00ed\u00f0i s\u00falnanna.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Hann steypti einnig hafi\u00f0.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Hafi\u00f0 var \u00e6tla\u00f0 fyrir helgi\u00fevott prestanna, skv. 2Kro 4.6. Sl\u00edkar vatns\u00fer\u00e6r eru \u00feekktar fr\u00e1 Lagas og Bab\u00fdlon.\">[<\/span> T\u00edu \u00e1lnir voru milli barma. \u00dea\u00f0 var hringlaga og fimm \u00e1lnir \u00e1 d\u00fdpt. \u00derj\u00e1t\u00edu \u00e1lna langa sn\u00faru \u00feurfti til a\u00f0 n\u00e1 umhverfis \u00fea\u00f0. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Ne\u00f0an vi\u00f0 barm \u00feess voru bl\u00f3mhnappar allan hringinn, t\u00edu \u00e1 hverri alin. Bl\u00f3mhnapparnir voru \u00ed tveimur r\u00f6\u00f0um og voru \u00feeir steyptir \u00ed sama m\u00f3ti og hafi\u00f0. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Hafi\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00e1 t\u00f3lf nautum. Sneru \u00ferj\u00fa \u00ed nor\u00f0ur, \u00ferj\u00fa \u00ed vestur, \u00ferj\u00fa \u00ed su\u00f0ur og \u00ferj\u00fa \u00ed austur. Hafi\u00f0 hv\u00edldi \u00e1 \u00feeim og sneru bakhlutar \u00feeirra inn. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 var \u00feverhandar\u00feykkt og barmur \u00feess m\u00f3ta\u00f0ur eins og barmur bikars, eins og \u00fatsprungi\u00f0 l\u00f3tusbl\u00f3m, og t\u00f3k tv\u00f6 \u00fe\u00fasund b\u00f6t.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> H\u00edram ger\u00f0i einnig t\u00edu grindarvagna<span class=\"nedan_mal\" title=\" L\u00fdsing \u00feessara vagna er \u00f3lj\u00f3s og illskiljanleg. Skv. 2Kro 4.6 voru kerin \u00e1 grindarv\u00f6gnunum notu\u00f0 til a\u00f0 \u00fevo kj\u00f6ti\u00f0 sem f\u00f3rnf\u00e6rt var.\">[<\/span> \u00far eir. Hver grind var fj\u00f3rar \u00e1lnir \u00e1 lengd, fj\u00f3rar \u00e1lnir \u00e1 breidd og \u00ferj\u00e1r \u00e1lnir \u00e1 h\u00e6\u00f0. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Grindurnar voru ger\u00f0ar \u00far sl\u00e1m og rimlum milli hornst\u00f3lpanna. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00c1 rimlunum voru myndir af lj\u00f3num, nautum og ker\u00fabum og einnig \u00e1 hornst\u00f3lpunum. Ofan og ne\u00f0an vi\u00f0 lj\u00f3nin og nautin voru hamra\u00f0ir bl\u00f3msveigar. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00c1 hverri grind voru fj\u00f6gur eirhj\u00f3l og \u00f6xlar \u00far eir. \u00c1 fj\u00f3rum f\u00f3tum \u00feeirra voru sto\u00f0ir ne\u00f0an vi\u00f0 keri\u00f0 og var hver \u00feeirra skreytt bl\u00f3msveig. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Barmar kersins voru m\u00f3ta\u00f0ir eins og bl\u00f3msveigur og voru ein alin \u00e1 h\u00e6\u00f0. Opi\u00f0 var hringlaga, ein og h\u00e1lf alin, og vi\u00f0 opi\u00f0 var einnig grafi\u00f0 skraut. Sl\u00e1rnar voru ferstrendar, ekki s\u00edvalar. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Undir sl\u00e1num voru fj\u00f6gur hj\u00f3l og sat festing hj\u00f3lanna \u00e1 grindinni. Hvert hj\u00f3l var ein og h\u00e1lf alin \u00e1 h\u00e6\u00f0. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Hj\u00f3lin voru ger\u00f0 eins og vagnhj\u00f3l. Festingar, gjar\u00f0ir, rimlar og nafir var allt steypt. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Fj\u00f3rar sto\u00f0ir voru tengdar vi\u00f0 fj\u00f3ra hornst\u00f3lpa hverrar vagngrindar og myndu\u00f0u sto\u00f0irnar og vagngrindin eina heild. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Ofan \u00e1 hverri vagngrind var pallur, h\u00e1lf alin \u00e1 h\u00e6\u00f0, og var hann hringlaga. \u00c1 palli grindarinnar voru festingar hennar og sl\u00e1r. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Hann gr\u00f3f myndir af ker\u00fabum, lj\u00f3num, p\u00e1lmum og bl\u00f3msveigum \u00e1 hli\u00f0arfestingar pallsins, hvar sem ey\u00f0a var. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00deannig ger\u00f0i hann vagngrindurnar t\u00edu. \u00de\u00e6r voru allar steyptar \u00e1 sama h\u00e1tt, jafnst\u00f3rar og eins \u00ed \u00fatliti. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> H\u00edram steypti einnig t\u00edu ker \u00far eir, eitt fyrir hverja hinna t\u00edu vagngrinda. Hvert ker t\u00f3k fj\u00f6rut\u00edu b\u00f6t og var fj\u00f3rar \u00e1lnir \u00ed \u00feverm\u00e1l. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> Fimm vagngrindum kom hann fyrir vi\u00f0 su\u00f0urvegg h\u00fassins og fimm vi\u00f0 nor\u00f0urvegg. Hafi\u00f0 setti hann vi\u00f0 su\u00f0urvegginn, su\u00f0austan megin.<br \/> <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> H\u00edram ger\u00f0i einnig kerin, sk\u00f3flurnar og sk\u00e1larnar. A\u00f0 lokum sm\u00ed\u00f0a\u00f0i hann fyrir Sal\u00f3mon konung \u00ed musteri Drottins: <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> tv\u00e6r s\u00falur, tv\u00f6 hvelfd h\u00f6fu\u00f0 ofan \u00e1 s\u00falunum, b\u00e6\u00f0i netin til a\u00f0 hylja hvelfdu s\u00falnah\u00f6fu\u00f0in, <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> fj\u00f6gur hundru\u00f0 granatepli \u00e1 b\u00e1\u00f0um netunum \u00ed tveimur r\u00f6\u00f0um \u00e1 hvoru neti sem huldu b\u00e6\u00f0i hvelfdu s\u00falnah\u00f6fu\u00f0in, <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> vagngrindurnar t\u00edu og kerin t\u00edu sem voru \u00e1 vagngrindunum, <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> hafi\u00f0 og nautin t\u00f3lf undir hafinu, <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> kerin, sk\u00f3flurnar og sk\u00e1larnar. \u00d6ll \u00e1h\u00f6ldin, sem H\u00edram sm\u00ed\u00f0a\u00f0i \u00ed musteri Drottins fyrir Sal\u00f3mon konung, voru \u00far f\u00e6g\u00f0um eir. <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> Konungur l\u00e9t steypa \u00feau \u00ed leirm\u00f3tum \u00ed J\u00f3rdanardalnum, milli S\u00fakk\u00f3t og Saretan. <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> Sal\u00f3mon kom \u00f6llum \u00e1h\u00f6ldunum fyrir en vegna hins g\u00edfurlega fj\u00f6lda \u00feeirra var ekki h\u00e6gt a\u00f0 giska \u00e1 \u00feyngd eirsins.<br \/> <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> Sal\u00f3mon l\u00e9t sm\u00ed\u00f0a allan b\u00fana\u00f0 \u00ed musteri Drottins: gullaltari\u00f0 og gullbor\u00f0i\u00f0 sem sko\u00f0unarbrau\u00f0in l\u00e1gu \u00e1, <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_2007\">49<\/span><\/a> fimm lj\u00f3sastikur \u00far sk\u00edragulli sunnan megin og fimm lj\u00f3sastikur nor\u00f0an megin framan vi\u00f0 innsta herbergi\u00f0 og auk \u00feess bl\u00f3min, lampana og skarb\u00edtana \u00far gulli, <a name=\"50\"><span class=\"versanumer_2007\">50<\/span><\/a> enn fremur kerin, hn\u00edfana, sk\u00e1larnar, bollana og eldf\u00f6tin, allt \u00far sk\u00edru gulli. Hjarirnar \u00e1 hur\u00f0unum fyrir innsta hluta h\u00fassins, hinu allra helgasta, og \u00e1 b\u00e1\u00f0um hur\u00f0arv\u00e6ngjunum fyrir musterissalnum voru \u00far gulli.<br \/> <a name=\"51\"><span class=\"versanumer_2007\">51<\/span><\/a> \u00deegar \u00f6llu \u00fev\u00ed verki, sem Sal\u00f3mon konungur l\u00e9t vinna vi\u00f0 musteri Drottins, var loki\u00f0 flutti Sal\u00f3mon \u00feanga\u00f0 helgigjafir Dav\u00ed\u00f0s, f\u00f6\u00f0ur s\u00edns. Silfrinu, gullinu og kerunum kom hann fyrir \u00ed fj\u00e1rhirslum h\u00fass Drottins.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>H\u00f6ll Sal\u00f3mons 1 Sal\u00f3mon var \u00ferett\u00e1n \u00e1r a\u00f0 fullgera h\u00f6ll s\u00edna. 2 Hann bygg\u00f0i einnig L\u00edbanonssk\u00f3garh\u00fasi\u00f0. Var \u00fea\u00f0 hundra\u00f0 \u00e1lna langt og fimmt\u00edu \u00e1lna breitt og \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00e1lna h\u00e1tt. \u00cd \u00fev\u00ed voru \u00ferj\u00e1r ra\u00f0ir af s\u00falum \u00far sedrusvi\u00f0i og ofan \u00e1 s\u00falunum voru bj\u00e1lkar \u00far sedrusvi\u00f0i. 3 \u00deak \u00far sedrusvi\u00f0i var lagt ofan \u00e1 bj\u00e1lkana sem l\u00e1gu \u00e1 s\u00falunum. \u00de\u00e6r voru fj\u00f6rut\u00edu og fimm, fimmt\u00e1n \u00ed hverri r\u00f6\u00f0. 4 \u00derj\u00e1r gluggara\u00f0ir voru \u00e1 h\u00fasinu. Var \u00fear gluggi gegnt glugga \u00ed \u00feremur r\u00f6\u00f0um. 5 Allar dyr og gluggar h\u00f6f\u00f0u ferhyrnda umgj\u00f6r\u00f0 og var gluggi gegnt glugga \u00ed \u00feremur r\u00f6\u00f0um. 6 Hann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1915","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1915","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1915"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1915\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1915"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}