{"id":1910,"date":"2017-12-30T21:00:55","date_gmt":"2017-12-30T21:00:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungab%c2%97k-2-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:26:07","modified_gmt":"2024-02-06T18:26:07","slug":"fyrri-konungabok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-2-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> S\u00ed\u00f0ustu or\u00f0 Dav\u00ed\u00f0s vi\u00f0 Sal\u00f3mon<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar lei\u00f0 a\u00f0 \u00e6vilokum Dav\u00ed\u00f0s br\u00fdndi hann Sal\u00f3mon, son sinn, og sag\u00f0i: <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201e\u00c9g geng n\u00fa veg allrar veraldar. Vertu \u00fev\u00ed sta\u00f0fastur og s\u00fdndu karlmennsku. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> G\u00e6ttu skyldunnar vi\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 \u00feinn. Gakktu \u00e1 hans vegum og var\u00f0veittu bo\u00f0 hans, fyrirm\u00e6li, skipanir og l\u00f6g sem skr\u00e1\u00f0 eru \u00ed l\u00f6gm\u00e1li M\u00f3se. \u00de\u00e1 mun \u00fe\u00e9r vel farnast og l\u00e1nast allt sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00e1 mun Drottinn efna \u00feetta heit sem hann vann m\u00e9r: Ef synir \u00fe\u00ednir g\u00e6ta l\u00edfernis s\u00edns og lifa fyrir augliti m\u00ednu \u00ed tr\u00fafesti, heils hugar og af \u00f6llum m\u00e6tti, ver\u00f0ur afkomendum \u00fe\u00ednum ekki hrundi\u00f0 \u00far h\u00e1s\u00e6ti \u00cdsraels. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00fa veist sj\u00e1lfur hva\u00f0 J\u00f3ab Ser\u00fajuson ger\u00f0i m\u00e9r, hvernig hann l\u00e9k b\u00e1\u00f0a hersh\u00f6f\u00f0ingja \u00cdsraels, Abner Nersson og Amasa Jetersson. Hann myrti \u00fe\u00e1 og \u00fathellti \u00feannig bl\u00f3\u00f0i \u00e1 fri\u00f0art\u00edmum eins og \u00ed herna\u00f0i v\u00e6ri. Hann ata\u00f0i bl\u00f3\u00f0i belti\u00f0 um lendar s\u00e9r og sk\u00f3na \u00e1 f\u00f3tum s\u00e9r eins og \u00ed herna\u00f0i. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Vertu skynsamur og l\u00e1ttu hann ekki bera h\u00e6rur s\u00ednar \u00f3skertar til heljar.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hins vegar skaltu s\u00fdna sonum Barsilla\u00ed fr\u00e1 G\u00edlea\u00f0 vinsemd. L\u00e1ttu \u00fe\u00e1 vera me\u00f0al \u00feeirra sem matast vi\u00f0 bor\u00f0 \u00feitt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feannig t\u00f3ku \u00feeir \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r \u00feegar \u00e9g fl\u00fd\u00f0i undan Absalon, br\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00ednum. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> S\u00edme\u00ed, sonur Benjam\u00edn\u00edtans Gera fr\u00e1 Bah\u00far\u00edm, er einnig hj\u00e1 \u00fe\u00e9r. Hann form\u00e6lti m\u00e9r sv\u00edvir\u00f0ilega \u00feegar \u00e9g var \u00e1 lei\u00f0inni til Makana\u00edm. Hann kom a\u00f0 v\u00edsu til m\u00f3ts vi\u00f0 mig vi\u00f0 J\u00f3rdan og \u00e9g s\u00f3r honum ei\u00f0 vi\u00f0 Drottin: \u00c9g skal ekki drepa \u00feig me\u00f0 sver\u00f0i. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> En l\u00e1ttu hann ekki sleppa vi\u00f0 refsingu. \u00de\u00fa ert skynsamur ma\u00f0ur og veist hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt a\u00f0 gera vi\u00f0 hann. Sendu h\u00e6rur hans bl\u00f3\u00f0ugar til heljar.\u201c<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 var lag\u00f0ur til hv\u00edldar hj\u00e1 forfe\u00f0rum s\u00ednum og var grafinn \u00ed borg Dav\u00ed\u00f0s. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Hann r\u00edkti yfir \u00cdsrael um fj\u00f6rut\u00edu \u00e1ra skei\u00f0, sj\u00f6 \u00e1r \u00ed Hebron og \u00ferj\u00e1t\u00edu og \u00ferj\u00fa \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Sal\u00f3mon festir sig \u00ed sessi<\/h3>\n<p><a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Sal\u00f3mon sat n\u00fa \u00ed h\u00e1s\u00e6ti Dav\u00ed\u00f0s, f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, og st\u00f3\u00f0 konungd\u00f3mur hans mj\u00f6g traustum f\u00f3tum.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Einhverju sinni kom Ad\u00f3n\u00eda, sonur Hagg\u00edtar, til Batsebu, m\u00f3\u00f0ur Sal\u00f3mons. H\u00fan spur\u00f0i: \u201eKemur \u00fe\u00fa me\u00f0 fri\u00f0i?\u201c Hann j\u00e1ta\u00f0i \u00fev\u00ed <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> og sag\u00f0i: \u201e\u00c9g \u00e1 erindi vi\u00f0 \u00feig.\u201c H\u00fan svara\u00f0i: \u201eGreindu fr\u00e1 \u00fev\u00ed.\u201c <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u201e\u00de\u00fa veist,\u201c sag\u00f0i hann, \u201ea\u00f0 m\u00e9r bar konungd\u00f3murinn og allur \u00cdsrael haf\u00f0i augasta\u00f0 \u00e1 m\u00e9r sem konungi. Eigi a\u00f0 s\u00ed\u00f0ur gekk konungd\u00f3murinn m\u00e9r \u00far greipum. Br\u00f3\u00f0ir minn hlaut hann af \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn haf\u00f0i \u00e6tla\u00f0 honum hann. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> N\u00fa vil \u00e9g bi\u00f0ja \u00feig einnar b\u00f3nar og v\u00edsa\u00f0u m\u00e9r ekki fr\u00e1.\u201c H\u00fan sag\u00f0i: \u201eHaltu \u00e1fram.\u201c <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u201eBi\u00f0 Sal\u00f3mon konung,\u201c sag\u00f0i hann, \u201ea\u00f0 gefa m\u00e9r Ab\u00edsag fr\u00e1 S\u00fanem fyrir konu. \u00de\u00e9r mun hann ekki v\u00edsa fr\u00e1.\u201c <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Batseba svara\u00f0i: \u201eL\u00e1tum svo vera, \u00e9g skal tala m\u00e1li \u00fe\u00ednu vi\u00f0 konung.\u201c <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Batseba f\u00f3r n\u00fa til Sal\u00f3mons konungs til \u00feess a\u00f0 flytja honum erindi Ad\u00f3n\u00eda. Konungur st\u00f3\u00f0 upp, gekk til m\u00f3ts vi\u00f0 hana og laut henni. S\u00ed\u00f0an settist hann \u00ed h\u00e1s\u00e6ti sitt og l\u00e9t f\u00e6ra fram h\u00e1s\u00e6ti handa konungsm\u00f3\u00f0urinni og settist h\u00fan honum til h\u00e6gri handar.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u201eMig langar a\u00f0 bi\u00f0ja \u00feig um l\u00edtilr\u00e6\u00f0i,\u201c sag\u00f0i h\u00fan, \u201ev\u00edsa\u00f0u m\u00e9r ekki fr\u00e1.\u201c \u201eBi\u00f0 mig, m\u00f3\u00f0ir m\u00edn, \u00fe\u00e9r mun \u00e9g ekki v\u00edsa fr\u00e1,\u201c svara\u00f0i konungur. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i h\u00fan: \u201eGef\u00f0u Ad\u00f3n\u00eda, br\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00ednum, Ab\u00edsag fr\u00e1 S\u00fanem fyrir konu.\u201c <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungur svara\u00f0i og sag\u00f0i vi\u00f0 m\u00f3\u00f0ur s\u00edna: \u201eHvers vegna bi\u00f0ur \u00fe\u00fa um Ab\u00edsag fr\u00e1 S\u00fanem handa Ad\u00f3n\u00eda? \u00de\u00fa g\u00e6tir eins be\u00f0i\u00f0 um konungd\u00f3minn handa honum. Hann er eldri br\u00f3\u00f0ir minn og Abjatar prestur og J\u00f3ab Ser\u00fajuson eru menn hans.\u201c<span class=\"nedan_mal\" title=\" S\u00e1 sem ger\u00f0i tilkall til kvenna konungs kraf\u00f0ist \u00fear me\u00f0 konungd\u00f3ms s\u00e9r til handa. Ad\u00f3n\u00eda var \u00fev\u00ed sekur um landr\u00e1\u00f0.\">[<\/span> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungur s\u00f3r vi\u00f0 nafn Drottins og sag\u00f0i: \u201e\u00deessi \u00f3sk skal kosta Ad\u00f3n\u00eda l\u00edfi\u00f0, annars geri Gu\u00f0 vi\u00f0 mig \u00fea\u00f0 sem hann vill, n\u00fa og s\u00ed\u00f0ar. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Svo sannarlega sem Drottinn lifir, sem hefur tryggt m\u00e9r v\u00f6ldin og sett mig \u00ed h\u00e1s\u00e6ti Dav\u00ed\u00f0s, f\u00f6\u00f0ur m\u00edns, og stofna\u00f0 handa m\u00e9r konungs\u00e6tt eins og hann haf\u00f0i heiti\u00f0, \u00fe\u00e1 skal Ad\u00f3n\u00eda l\u00edfl\u00e1tinn \u00ed dag.\u201c <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an sendi Sal\u00f3mon konungur Benaja J\u00f3jadason og hj\u00f3 hann Ad\u00f3n\u00eda banah\u00f6gg.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> En konungur sag\u00f0i vi\u00f0 Abjatar prest: \u201eFar\u00f0u til b\u00fas \u00fe\u00edns \u00ed Anat\u00f3t. A\u00f0 v\u00edsu \u00e1ttu skili\u00f0 a\u00f0 deyja en \u00e9g l\u00e6t ekki drepa \u00feig n\u00fa \u00feegar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur bori\u00f0 \u00f6rk Drottins Gu\u00f0s fyrir Dav\u00ed\u00f0, f\u00f6\u00f0ur m\u00ednum, og \u00fe\u00fa \u00feoldir s\u00f6mu ni\u00f0url\u00e6gingu og hann.\u201c <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00deannig rak Sal\u00f3mon Abjatar fr\u00e1 \u00fev\u00ed emb\u00e6tti a\u00f0 vera prestur Drottins og \u00fear me\u00f0 r\u00e6ttist or\u00f0 Drottins sem hann haf\u00f0i tala\u00f0 gegn \u00e6tt El\u00ed \u00ed S\u00edl\u00f3.<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00deessi t\u00ed\u00f0indi b\u00e1rust J\u00f3ab. Hann haf\u00f0i fylgt Ad\u00f3n\u00eda a\u00f0 m\u00e1lum \u00fe\u00f3 a\u00f0 hann v\u00e6ri ekki li\u00f0sma\u00f0ur Absalons. Fl\u00fd\u00f0i J\u00f3ab \u00ed tjaldb\u00fa\u00f0 Drottins og greip um horn altarisins. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Sal\u00f3mon konungi var tilkynnt a\u00f0 J\u00f3ab v\u00e6ri fl\u00fainn \u00ed tjald Drottins og st\u00e6\u00f0i vi\u00f0 altari\u00f0. \u00de\u00e1 sendi hann Benaja J\u00f3jadason og skipa\u00f0i honum a\u00f0 fara og h\u00f6ggva hann. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deegar Benaja kom til tjalds Drottins skipa\u00f0i hann J\u00f3ab \u00ed nafni konungs a\u00f0 ganga \u00fat. Hann svara\u00f0i: \u201eNei, h\u00e9r vil \u00e9g deyja.\u201c Benaja f\u00e6r\u00f0i konungi svar hans og sag\u00f0i: \u201e\u00deetta sag\u00f0i J\u00f3ab, \u00feannig svara\u00f0i hann m\u00e9r.\u201c <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u201eGer\u00f0u \u00fea\u00f0 sem hann sag\u00f0i,\u201c skipa\u00f0i konungur, \u201eh\u00f6gg\u00f0u hann og graf\u00f0u. Me\u00f0 \u00fev\u00ed hreinsar \u00fe\u00fa af m\u00e9r og \u00e6tt f\u00f6\u00f0ur m\u00edns bl\u00f3\u00f0 saklausra manna sem J\u00f3ab hefur \u00fathellt. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Drottinn l\u00e1ti bl\u00f3\u00f0 hans koma honum \u00ed koll. Hann hj\u00f3 tvo menn til bana \u00e1n vitundar f\u00f6\u00f0ur m\u00edns. \u00dea\u00f0 voru r\u00e9ttl\u00e1tari og betri menn en hann, \u00feeir Abner Nersson, hersh\u00f6f\u00f0ingi \u00cdsraels, og Amasa Jetersson, hersh\u00f6f\u00f0ingi J\u00fada. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Komi bl\u00f3\u00f0 \u00feeirra J\u00f3ab og afkomendum hans \u00e6vinlega \u00ed koll. En Dav\u00ed\u00f0 og \u00e6tt hans, afkomendur og h\u00e1s\u00e6ti hlj\u00f3ti \u00e6vinlega heill fr\u00e1 Drottni.\u201c <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Benaja J\u00f3jadason f\u00f3r \u00fe\u00e1 og hj\u00f3 J\u00f3ab. Var hann grafinn \u00ed h\u00fasi s\u00ednu \u00fati \u00ed au\u00f0ninni. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Konungur setti Benaja J\u00f3jadason yfir herinn \u00ed hans sta\u00f0 og Sad\u00f3k prest setti hann \u00ed emb\u00e6tti Abjatars.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Konungur sendi eftir S\u00edme\u00ed og skipa\u00f0i honum: \u201eBygg\u00f0u \u00fe\u00e9r h\u00fas \u00ed Jer\u00fasalem og sestu \u00fear a\u00f0. \u00dea\u00f0an m\u00e1ttu alls ekki fara. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt vita fyrir v\u00edst a\u00f0 \u00fe\u00fa deyr\u00f0 um lei\u00f0 og \u00fe\u00fa fer\u00f0 yfir Kedronl\u00e6k. \u00de\u00fa ber\u00f0 \u00fe\u00e1 sj\u00e1lfur \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 dau\u00f0a \u00fe\u00ednum.\u201c <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> S\u00edme\u00ed svara\u00f0i konungi: \u201eL\u00e1tum svo vera. \u00c9g, \u00fej\u00f3nn \u00feinn, mun gera \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa, herra minn og konungur, hefur skipa\u00f0.\u201c Eftir \u00fea\u00f0 bj\u00f3 S\u00edme\u00ed lengi \u00ed Jer\u00fasalem. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00deremur \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar bar svo vi\u00f0 a\u00f0 tveir \u00fer\u00e6lar hans struku til Ak\u00edss, sonar Maaka, konungs \u00ed Gat. S\u00edme\u00ed barst til eyrna a\u00f0 \u00fer\u00e6lar hans v\u00e6ru \u00ed Gat. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> Hann bj\u00f3st \u00fe\u00e1 til fer\u00f0ar, s\u00f6\u00f0la\u00f0i asna sinn og f\u00f3r til Ak\u00edss \u00ed Gat til a\u00f0 leita \u00fer\u00e6la sinna og haf\u00f0i hann \u00fe\u00e1 heim me\u00f0 s\u00e9r \u00fea\u00f0an. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> Sal\u00f3mon var sk\u00fdrt fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 S\u00edme\u00ed hef\u00f0i fari\u00f0 fr\u00e1 Jer\u00fasalem til Gat og v\u00e6ri kominn aftur. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Konungur l\u00e9t \u00fe\u00e1 kalla S\u00edme\u00ed fyrir sig og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201eHef \u00e9g ekki l\u00e1ti\u00f0 \u00feig sverja vi\u00f0 nafn Drottins? \u00c9g vara\u00f0i \u00feig vi\u00f0 og sag\u00f0i: \u00de\u00fa skalt vita \u00fea\u00f0 fyrir v\u00edst a\u00f0 \u00fe\u00fa deyr\u00f0 um lei\u00f0 og \u00fe\u00fa fer\u00f0 h\u00e9\u00f0an. \u00de\u00fa svara\u00f0ir m\u00e9r: L\u00e1tum svo vera. \u00c9g hef heyrt bo\u00f0 \u00feitt. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Hvers vegna h\u00e9lstu hvorki ei\u00f0 \u00feinn vi\u00f0 nafn Drottins n\u00e9 virtir skipun m\u00edna? <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> \u00de\u00fa veist innst inni,\u201c h\u00e9lt konungur \u00e1fram, \u201ehva\u00f0a illvirki \u00fe\u00fa vannst gegn Dav\u00ed\u00f0, f\u00f6\u00f0ur m\u00ednum. N\u00fa l\u00e6tur Drottinn \u00fe\u00e9r hefnast fyrir illvirki \u00fe\u00edn. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> En Sal\u00f3mon konungur s\u00e9 blessa\u00f0ur og h\u00e1s\u00e6ti Dav\u00ed\u00f0s standi \u00e6vinlega st\u00f6\u00f0ugt frammi fyrir Drottni.\u201c <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an gaf konungur Benaja J\u00f3jadasyni skipun um a\u00f0 fara og h\u00f6ggva S\u00edme\u00ed og \u00feannig l\u00e9t hann l\u00edfi\u00f0. Var n\u00fa Sal\u00f3mon konungur fastur \u00ed sessi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00ed\u00f0ustu or\u00f0 Dav\u00ed\u00f0s vi\u00f0 Sal\u00f3mon 1 \u00deegar lei\u00f0 a\u00f0 \u00e6vilokum Dav\u00ed\u00f0s br\u00fdndi hann Sal\u00f3mon, son sinn, og sag\u00f0i: 2 \u201e\u00c9g geng n\u00fa veg allrar veraldar. Vertu \u00fev\u00ed sta\u00f0fastur og s\u00fdndu karlmennsku. 3 G\u00e6ttu skyldunnar vi\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 \u00feinn. Gakktu \u00e1 hans vegum og var\u00f0veittu bo\u00f0 hans, fyrirm\u00e6li, skipanir og l\u00f6g sem skr\u00e1\u00f0 eru \u00ed l\u00f6gm\u00e1li M\u00f3se. \u00de\u00e1 mun \u00fe\u00e9r vel farnast og l\u00e1nast allt sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur. 4 \u00de\u00e1 mun Drottinn efna \u00feetta heit sem hann vann m\u00e9r: Ef synir \u00fe\u00ednir g\u00e6ta l\u00edfernis s\u00edns og lifa fyrir augliti m\u00ednu \u00ed tr\u00fafesti, heils hugar og af \u00f6llum m\u00e6tti, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-konungabok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1910","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1910","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1910"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1910\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1910"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}