{"id":1903,"date":"2017-12-30T21:00:55","date_gmt":"2017-12-30T21:00:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-sam%c2%9celsb%c2%97k-19-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:29:21","modified_gmt":"2024-02-06T18:29:21","slug":"sidari-samuelsbok-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-samuelsbok-19-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari Sam\u00faelsb\u00f3k 19. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> J\u00f3ab \u00e1v\u00edtar Dav\u00ed\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Konungi var mj\u00f6g brug\u00f0i\u00f0, hann gekk upp \u00ed herbergi\u00f0 yfir borgarhli\u00f0inu og brast \u00ed gr\u00e1t. \u00c1 me\u00f0an hann gekk um g\u00f3lf sag\u00f0i hann: \u201eSonur minn, Absalon. Sonur minn, sonur minn, Absalon. \u00c9g hef\u00f0i betur d\u00e1i\u00f0 \u00ed \u00feinn sta\u00f0. Sonur minn, Absalon, sonur minn!\u201c<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> J\u00f3ab var \u00fe\u00e1 tilkynnt: \u201eKonungurinn gr\u00e6tur og syrgir Absalon.\u201c <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Sigurinn var\u00f0 \u00f6llum hernum harmsefni \u00feennan dag \u00feegar honum b\u00e1rust t\u00ed\u00f0indin: \u201eKonungurinn syrgir son sinn.\u201c <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deennan dag lauma\u00f0ist herinn inn \u00ed borgina eins og her sem hefur fl\u00fai\u00f0 me\u00f0 sk\u00f6mm \u00far orrustu. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En konungur huldi andlit sitt og kveina\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum: \u201eSonur minn, Absalon. Absalon, sonur minn, sonur minn.\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00de\u00e1 gekk J\u00f3ab inn \u00ed h\u00fasi\u00f0 til konungs og sag\u00f0i: \u201e\u00cd dag hefur \u00fe\u00fa sm\u00e1na\u00f0 alla \u00fej\u00f3na \u00fe\u00edna sem hafa bjarga\u00f0 l\u00edfi \u00fe\u00ednu, l\u00edfi sona \u00feinna og d\u00e6tra, l\u00edfi kvenna \u00feinna og hj\u00e1kvenna, <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00fdna hatursm\u00f6nnum \u00fe\u00ednum vin\u00e1ttu en vinum \u00fe\u00ednum fjandskap. \u00cd dag hefur \u00fe\u00fa gert okkur lj\u00f3st a\u00f0 hersh\u00f6f\u00f0ingjar \u00fe\u00ednir og hermenn eru \u00fe\u00e9r einskis vir\u00f0i. \u00cd dag hef \u00e9g komist a\u00f0 raun um a\u00f0 \u00fe\u00fa vildir helst a\u00f0 Absalon v\u00e6ri \u00e1 l\u00edfi en vi\u00f0 allir dau\u00f0ir. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> R\u00edstu n\u00fa \u00e1 f\u00e6tur, far\u00f0u \u00fat og seg\u00f0u nokkur vi\u00f0urkenningaror\u00f0 vi\u00f0 menn \u00fe\u00edna. \u00c9g sver vi\u00f0 Drottin a\u00f0 enginn ver\u00f0ur eftir hj\u00e1 \u00fe\u00e9r n\u00e6stu n\u00f3tt ef \u00fe\u00fa fer\u00f0 ekki \u00fat til \u00feeirra. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur meiri \u00f3g\u00e6fa en \u00fe\u00fa hefur or\u00f0i\u00f0 fyrir fr\u00e1 barn\u00e6sku og allt til \u00feessa dags.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00de\u00e1 reis konungur \u00e1 f\u00e6tur og settist \u00ed borgarhli\u00f0i\u00f0. Og \u00feegar hernum var tilkynnt a\u00f0 konungurinn s\u00e6ti \u00ed borgarhli\u00f0inu gekk allur herinn fyrir konung.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dav\u00ed\u00f0 sn\u00fdr aftur<\/h3>\n<p>Eftir a\u00f0 \u00cdsraelsmenn voru fl\u00fanir til tjalda sinna <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> t\u00f3k f\u00f3lk \u00ed \u00f6llum \u00e6ttb\u00e1lkum \u00cdsraels a\u00f0 kvarta og sag\u00f0i: \u201eKonungurinn bjarga\u00f0i okkur \u00far greipum fjandmanna okkar og hann bjarga\u00f0i okkur \u00far greipum Filistea. N\u00fa hefur hann sj\u00e1lfur \u00feurft a\u00f0 fl\u00fdja land undan Absalon <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> en Absalon, sem vi\u00f0 smur\u00f0um til konungs yfir okkur, er fallinn \u00ed str\u00ed\u00f0inu. Hvers vegna hiki\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fe\u00e1 vi\u00f0 a\u00f0 s\u00e6kja konunginn aftur n\u00fa \u00feegar?\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Konungi barst n\u00fa or\u00f0r\u00f3mur um \u00feessa afst\u00f6\u00f0u \u00cdsraelsmanna. \u00de\u00e1 sendi Dav\u00ed\u00f0 konungur bo\u00f0 til prestanna Sad\u00f3ks og Abjatars: \u201eSegi\u00f0 vi\u00f0 \u00f6ldunga J\u00fada: \u00c6tli\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a s\u00ed\u00f0astir til a\u00f0 flytja konunginn heim aftur? <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 eru\u00f0 \u00e6ttmenn m\u00ednir, \u00fei\u00f0 eru\u00f0 bein m\u00edn og hold. \u00c6tli\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 ver\u00f0a s\u00ed\u00f0astir til a\u00f0 s\u00e6kja konunginn? <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Og \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 segja vi\u00f0 Amasa: Ert \u00fe\u00fa ekki hold mitt og bein? Gu\u00f0 l\u00e1ti mig gjalda \u00feess n\u00fa og s\u00ed\u00f0ar ef \u00fe\u00fa ver\u00f0ur ekki \u00e6vinlega hersh\u00f6f\u00f0ingi hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed sta\u00f0 J\u00f3abs.\u201c <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deannig vann Dav\u00ed\u00f0 hj\u00f6rtu allra J\u00fadamanna svo a\u00f0 \u00feeir studdu hann allir sem einn og sendu konungi \u00feessi bo\u00f0: \u201eSn\u00fa\u00f0u heim aftur \u00e1samt \u00f6llum \u00fej\u00f3num \u00fe\u00ednum.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dav\u00ed\u00f0 s\u00e6ttist vi\u00f0 S\u00edme\u00ed og Mef\u00edb\u00f3set<\/h3>\n<p><a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Konungur h\u00e9lt \u00fe\u00e1 heim \u00e1 lei\u00f0. \u00deegar hann kom a\u00f0 J\u00f3rdan voru J\u00fadamenn komnir til Gilgal til m\u00f3ts vi\u00f0 konung til a\u00f0 fylgja honum yfir J\u00f3rdan.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> S\u00edme\u00ed Gerason, sem var af \u00e6ttb\u00e1lki Benjam\u00edns fr\u00e1 Bah\u00far\u00edm, fl\u00fdtti s\u00e9r \u00e1samt J\u00fadam\u00f6nnum ni\u00f0ur eftir til m\u00f3ts vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 konung. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00fasund manns af \u00e6ttb\u00e1lki Benjam\u00edns voru me\u00f0 honum. S\u00edba, \u00fej\u00f3nn fj\u00f6lskyldu S\u00e1ls, var \u00e1samt fimmt\u00e1n sonum s\u00ednum og tuttugu \u00fej\u00f3num kominn a\u00f0 J\u00f3rdan \u00e1 undan konungi. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deeir h\u00f6f\u00f0u fari\u00f0 yfir \u00e1 va\u00f0inu til a\u00f0 flytja fj\u00f6lskyldu konungs yfir og uppfylla \u00f3skir hans.<br \/>\u00deegar konungur var a\u00f0 leggja af sta\u00f0 yfir J\u00f3rdan varpa\u00f0i S\u00edme\u00ed Gerason s\u00e9r ni\u00f0ur frammi fyrir honum <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201eHerra minn, sakfelldu mig ekki vegna afbrots m\u00edns. Gleymdu \u00fev\u00ed sem \u00e9g, \u00fer\u00e6ll \u00feinn, braut af m\u00e9r daginn sem \u00fe\u00fa, herra minn og konungur, f\u00f3rst burt \u00far Jer\u00fasalem. Erf\u00f0u \u00fea\u00f0 ekki vi\u00f0 mig. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00c9g, sem er \u00fer\u00e6ll \u00feinn, vi\u00f0urkenni a\u00f0 hafa broti\u00f0 af m\u00e9r. En \u00e9g er s\u00e1 af \u00e6tt J\u00f3sefs sem kemur fyrstur hinga\u00f0 ni\u00f0ur eftir til m\u00f3ts vi\u00f0 \u00feig, herra minn og konungur.\u201c<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 spur\u00f0i Ab\u00edsa\u00ed Ser\u00fajuson: \u201e\u00c1 ekki a\u00f0 drepa S\u00edme\u00ed fyrir a\u00f0 form\u00e6la Drottins smur\u00f0a?\u201c<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En Dav\u00ed\u00f0 sag\u00f0i: \u201eG\u00e6ti\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1lfum ykkur, Ser\u00fajusynir. \u00c6tli\u00f0 \u00fei\u00f0 n\u00fa a\u00f0 gerast andst\u00e6\u00f0ingar m\u00ednir? Ver\u00f0ur einhver l\u00edfl\u00e1tinn \u00ed \u00cdsrael \u00ed dag? Svo miki\u00f0 veit \u00e9g a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00e9g sem er konungur \u00ed \u00cdsrael.\u201c <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st sag\u00f0i konungur vi\u00f0 S\u00edme\u00ed: \u201e\u00de\u00fa skalt ekki deyja.\u201c S\u00ed\u00f0an sta\u00f0festi konungur \u00feetta me\u00f0 ei\u00f0i.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Mef\u00edb\u00f3set, sonarsonur S\u00e1ls, kom einnig ni\u00f0ur eftir til m\u00f3ts vi\u00f0 konung. Fr\u00e1 \u00feeim degi, er konungur f\u00f3r og \u00feanga\u00f0 til hann kom aftur heill \u00e1 h\u00fafi, haf\u00f0i Mef\u00edb\u00f3set hvorki \u00ferifi\u00f0 f\u00e6tur s\u00edna n\u00e9 skegg, n\u00e9 heldur \u00fevegi\u00f0 f\u00f6t s\u00edn. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00deegar hann kom fr\u00e1 Jer\u00fasalem \u00e1 m\u00f3ti konungi spur\u00f0i konungur hann: \u201eHvers vegna komstu ekki me\u00f0 m\u00e9r, Mef\u00edb\u00f3set?\u201c <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Hann svara\u00f0i: \u201eHerra minn og konungur, \u00fej\u00f3nn minn sveik mig. \u00c9g, \u00fer\u00e6ll \u00feinn, sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Leggi\u00f0 \u00e1 \u00f6snu m\u00edna. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 r\u00ed\u00f0a h\u00e9\u00f0an me\u00f0 konungi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er lama\u00f0ur. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dej\u00f3nn minn hefur r\u00e6gt mig, \u00fer\u00e6l \u00feinn, vi\u00f0 \u00feig, herra minn og konungur. \u00de\u00fa, herra minn og konungur, ert eins og engill Gu\u00f0s. Ger\u00f0u \u00fev\u00ed \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r s\u00fdnist. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00de\u00f3 a\u00f0 \u00f6ll fj\u00f6lskylda f\u00f6\u00f0ur m\u00edns hafi ekki \u00e1tt anna\u00f0 skili\u00f0 af \u00feinni hendi en dau\u00f0a, herra minn og konungur, bau\u00f0stu m\u00e9r, \u00fer\u00e6li \u00fe\u00ednum, samt s\u00e6ti me\u00f0al \u00feeirra sem setjast til bor\u00f0s me\u00f0 \u00fe\u00e9r. Hva\u00f0a r\u00e9tt hef \u00e9g til a\u00f0 krefjast einhvers frekar af \u00fe\u00e9r, konungur?\u201c<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Konungur svara\u00f0i: \u201eHvers vegna ertu a\u00f0 or\u00f0lengja \u00feetta? \u00c9g er b\u00fainn a\u00f0 taka \u00e1kv\u00f6r\u00f0un. \u00dei\u00f0 S\u00edba skulu\u00f0 skipta landareigninni.\u201c <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Mef\u00edb\u00f3set vi\u00f0 konunginn: \u201eHann m\u00e1 f\u00e1 allt landi\u00f0 \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa, herra minn og konungur, ert kominn aftur heim heill \u00e1 h\u00fafi.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Barsilla\u00ed fr\u00e1 G\u00edlea\u00f0 haf\u00f0i komi\u00f0 ni\u00f0ur eftir fr\u00e1 R\u00f3gel\u00edm til \u00feess a\u00f0 fylgja konungi yfir J\u00f3rdan og kve\u00f0ja hann. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Barsilla\u00ed var or\u00f0inn h\u00e1aldra\u00f0ur, \u00e1ttat\u00edu \u00e1ra, og haf\u00f0i s\u00e9\u00f0 konungi fyrir vistum me\u00f0an hann var \u00ed Mahana\u00edm enda var hann st\u00f3rau\u00f0ugur ma\u00f0ur.<br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Konungur sag\u00f0i n\u00fa vi\u00f0 Barsilla\u00ed: \u201eKomdu me\u00f0 m\u00e9r. \u00c9g skal sj\u00e1 fyrir \u00fe\u00e9r heima hj\u00e1 m\u00e9r \u00ed Jer\u00fasalem.\u201c<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Barsilla\u00ed svara\u00f0i konungi: \u201e\u00c6tli \u00e9g eigi svo m\u00f6rg \u00e1r eftir \u00f3lifu\u00f0, konungur, a\u00f0 \u00fea\u00f0 taki \u00fev\u00ed fyrir mig a\u00f0 fara upp til Jer\u00fasalem me\u00f0 \u00fe\u00e9r? <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> N\u00fa stend \u00e9g \u00e1 \u00e1ttr\u00e6\u00f0u. Get \u00e9g \u00fe\u00e1 enn greint \u00e1 milli g\u00f3\u00f0s og ills? Getur \u00fer\u00e6ll \u00feinn enn fundi\u00f0 brag\u00f0 a\u00f0 \u00fev\u00ed sem hann etur og drekkur? Get \u00e9g enn heyrt raddir s\u00f6ngvara og s\u00f6ngkvenna? Hvers vegna \u00e6tti \u00e9g, \u00fer\u00e6ll \u00feinn, a\u00f0 \u00ed\u00feyngja herra m\u00ednum og konungi? <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00c9g, \u00fer\u00e6ll \u00feinn, \u00e6tla ekki a\u00f0 fylgja \u00fe\u00e9r, konungur, lengra en yfir J\u00f3rdan. Hvers vegna \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 launa m\u00e9r \u00fea\u00f0 svo r\u00edkulega? <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Leyf\u00f0u m\u00e9r a\u00f0 fara aftur heim svo a\u00f0 \u00e9g geti d\u00e1i\u00f0 \u00ed heimaborg minni n\u00e6rri gr\u00f6f f\u00f6\u00f0ur m\u00edns og m\u00f3\u00f0ur. En h\u00e9r er K\u00edmham, \u00fer\u00e6ll \u00feinn. Hann getur fari\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r, herra minn og konungur. Fyrir hann getur\u00f0u gert \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r s\u00fdnist.\u201c<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> Konungur svara\u00f0i: \u201eK\u00edmham kemur me\u00f0 m\u00e9r og \u00e9g mun gera \u00fea\u00f0 fyrir hann sem \u00fe\u00fa vilt. \u00c9g skal gera hva\u00f0 sem \u00fe\u00fa bi\u00f0ur mig um.\u201c<br \/> <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st f\u00f3r allur herinn yfir J\u00f3rdan. \u00deegar konungurinn var kominn yfir J\u00f3rdan kyssti hann Barsilla\u00ed \u00ed kve\u00f0juskyni og Barsilla\u00ed f\u00f3r til s\u00edns heima. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> Konungurinn h\u00e9lt \u00e1fram til Gilgal og K\u00edmham me\u00f0 honum.<br \/>Allur her J\u00fada og h\u00e1lfur her \u00cdsraels haf\u00f0i fylgt konungi yfir. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Komu \u00fe\u00e1 allir \u00cdsraelsmenn til konungs og s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 hann: \u201eHvers vegna hafa br\u00e6\u00f0ur okkar, J\u00fadamenn, fengi\u00f0 a\u00f0 r\u00e6na \u00fe\u00e9r fr\u00e1 okkur og fara me\u00f0 \u00feig og fj\u00f6lskyldu \u00fe\u00edna \u00e1samt l\u00edfver\u00f0inum yfir J\u00f3rdan?\u201c<br \/> <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> J\u00fadamenn sv\u00f6ru\u00f0u \u00cdsraelsm\u00f6nnum og s\u00f6g\u00f0u: \u201e\u00dea\u00f0 var vegna \u00feess a\u00f0 konungurinn er n\u00e1kominn okkur. Hvers vegna rei\u00f0ist \u00fei\u00f0 \u00feessu? H\u00f6fum vi\u00f0 neytt einhvers \u00e1 kostna\u00f0 konungs e\u00f0a h\u00f6fum vi\u00f0 numi\u00f0 hann \u00e1 brott eins og r\u00e1nsfeng?\u201c<br \/> <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> \u00cdsraelsmenn sv\u00f6ru\u00f0u J\u00fadam\u00f6nnum: \u201eVi\u00f0 eigum t\u00edu sinnum meira \u00ed konungi. Auk \u00feess erum vi\u00f0 frumbur\u00f0irnir en \u00fei\u00f0 ekki. Hvers vegna hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 l\u00edtill\u00e6kka\u00f0 okkur? Ur\u00f0um vi\u00f0 ekki fyrri til a\u00f0 tala um a\u00f0 flytja konung aftur heim?\u201c Svar J\u00fadamanna var enn har\u00f0or\u00f0ara en umm\u00e6li \u00cdsraelsmanna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>J\u00f3ab \u00e1v\u00edtar Dav\u00ed\u00f0 1 Konungi var mj\u00f6g brug\u00f0i\u00f0, hann gekk upp \u00ed herbergi\u00f0 yfir borgarhli\u00f0inu og brast \u00ed gr\u00e1t. \u00c1 me\u00f0an hann gekk um g\u00f3lf sag\u00f0i hann: \u201eSonur minn, Absalon. Sonur minn, sonur minn, Absalon. \u00c9g hef\u00f0i betur d\u00e1i\u00f0 \u00ed \u00feinn sta\u00f0. Sonur minn, Absalon, sonur minn!\u201c 2 J\u00f3ab var \u00fe\u00e1 tilkynnt: \u201eKonungurinn gr\u00e6tur og syrgir Absalon.\u201c 3 Sigurinn var\u00f0 \u00f6llum hernum harmsefni \u00feennan dag \u00feegar honum b\u00e1rust t\u00ed\u00f0indin: \u201eKonungurinn syrgir son sinn.\u201c 4 \u00deennan dag lauma\u00f0ist herinn inn \u00ed borgina eins og her sem hefur fl\u00fai\u00f0 me\u00f0 sk\u00f6mm \u00far orrustu. 5 En konungur huldi andlit sitt og kveina\u00f0i h\u00e1st\u00f6fum: <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-samuelsbok-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1903","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1903","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1903"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1903\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1903"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}