{"id":1902,"date":"2017-12-30T21:00:55","date_gmt":"2017-12-30T21:00:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-sam%c2%9celsb%c2%97k-18-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:29:21","modified_gmt":"2024-02-06T18:29:21","slug":"sidari-samuelsbok-18-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-samuelsbok-18-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari Sam\u00faelsb\u00f3k 18. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Absalon sigra\u00f0ur og deyddur<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 kanna\u00f0i n\u00fa li\u00f0 sitt og setti foringja yfir \u00fe\u00fasund manna sveitir og hundra\u00f0 manna flokka. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skipti hann hernum \u00ed \u00ferj\u00e1r fylkingar. Var ein \u00feeirra undir stj\u00f3rn J\u00f3abs, \u00f6nnur undir stj\u00f3rn Ab\u00edsa\u00ed Ser\u00fajusonar, br\u00f3\u00f0ur J\u00f3abs, og s\u00fa \u00feri\u00f0ja undir stj\u00f3rn Itta\u00ed fr\u00e1 Gat. \u00dev\u00ed n\u00e6st m\u00e6lti konungurinn vi\u00f0 herinn: \u201e\u00c9g \u00e6tla sj\u00e1lfur a\u00f0 fara me\u00f0 ykkur.\u201c <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> En herinn svara\u00f0i: \u201e\u00de\u00fa skalt hvergi fara. Ef vi\u00f0 fl\u00fdjum veldur \u00fea\u00f0 engum \u00e1hyggjum. \u00de\u00f3 a\u00f0 helmingur okkar falli hefur enginn \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed. En \u00fe\u00fa ert d\u00fdrm\u00e6tari en t\u00edu \u00fe\u00fasund okkar. \u00dev\u00ed er betra a\u00f0 \u00fe\u00fa komir \u00fat \u00far borginni okkur til hj\u00e1lpar.\u201c <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i konungurinn vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201e\u00c9g skal gera eins og \u00fei\u00f0 vilji\u00f0.\u201c \u00dev\u00ed n\u00e6st t\u00f3k konungurinn s\u00e9r st\u00f6\u00f0u vi\u00f0 borgarhli\u00f0i\u00f0 \u00e1 me\u00f0an allur herinn gekk \u00fat fylktu li\u00f0i \u00ed hundra\u00f0 manna flokkum og \u00fe\u00fasund manna sveitum. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Loks gaf konungurinn J\u00f3ab, Ab\u00edsa\u00ed og Itta\u00ed \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eFari\u00f0 g\u00e6tilega me\u00f0 unga manninn Absalon.\u201c Allur herinn heyr\u00f0i a\u00f0 konungurinn gaf hersh\u00f6f\u00f0ingjum s\u00ednum \u00feessi fyrirm\u00e6li um Absalon.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Herinn f\u00f3r n\u00fa \u00fat \u00e1 vellina gegn \u00cdsrael og kom til bardaga \u00ed Efra\u00edmssk\u00f3gi. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dear bi\u00f0u \u00cdsraelsmenn \u00f3sigur fyrir m\u00f6nnum Dav\u00ed\u00f0s. Var\u00f0 mannfall miki\u00f0 \u00feennan dag og misstu \u00cdsraelsmenn tuttugu \u00fe\u00fasund menn. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Bardaginn barst um allt landsv\u00e6\u00f0i\u00f0 og \u00feennan dag gleypti sk\u00f3gurinn fleiri menn en sver\u00f0i\u00f0.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Absalon blasti n\u00fa allt \u00ed einu vi\u00f0 sj\u00f3num manna Dav\u00ed\u00f0s. Hann haf\u00f0i ri\u00f0i\u00f0 m\u00fald\u00fdri sem f\u00f3r inn undir greina\u00feykkni \u00e1 miklu eikartr\u00e9. \u00de\u00e1 festist h\u00f6fu\u00f0 hans \u00ed eikinni en m\u00fald\u00fdri\u00f0, sem hann rei\u00f0, h\u00e9lt \u00e1fram. Hann h\u00e9kk \u00fev\u00ed \u00ed lausu lofti. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Ma\u00f0ur nokkur s\u00e1 \u00feetta og sag\u00f0i vi\u00f0 J\u00f3ab: \u201eR\u00e9tt \u00ed \u00feessu s\u00e1 \u00e9g Absalon hanga \u00ed eikartr\u00e9.\u201c <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> J\u00f3ab svara\u00f0i manninum sem sag\u00f0i honum \u00feetta: \u201eHvers vegna hj\u00f3stu hann ekki banah\u00f6gg \u00fearna \u00far \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e1st hann? \u00c9g hef\u00f0i gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r t\u00edu sikla silfurs og belti fyrir viki\u00f0.\u201c <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> En ma\u00f0urinn svara\u00f0i J\u00f3ab: \u201e\u00de\u00f3 a\u00f0 \u00fe\u00fasund siklar silfurs v\u00e6ru taldir \u00ed l\u00f3fa m\u00e9r leg\u00f0i \u00e9g ekki h\u00f6nd \u00e1 son konungsins. Vi\u00f0 heyr\u00f0um me\u00f0 okkar eigin eyrum a\u00f0 konungurinn gaf \u00fe\u00e9r, Ab\u00edsa\u00ed og Itta\u00ed \u00feessi fyrirm\u00e6li: G\u00e6ti\u00f0 unga mannsins Absalons. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hef\u00f0i \u00e9g brug\u00f0ist og gert honum eitthva\u00f0 &#8211; engu ver\u00f0ur leynt fyrir konungi &#8211; \u00fe\u00e1 hef\u00f0ir \u00fe\u00fa sta\u00f0i\u00f0 fjarri.\u201c <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> J\u00f3ab svara\u00f0i: \u201e\u00c9g get ekki eytt t\u00edma m\u00ednum til einskis me\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c S\u00ed\u00f0an \u00fereif hann \u00ferj\u00fa spj\u00f3t og rak \u00feau \u00ed hjarta Absalons sem enn var \u00e1 l\u00edfi og h\u00e9kk \u00ed eikinni. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st umkringdu t\u00edu skjaldsveinar J\u00f3abs Absalon og hjuggu hann banah\u00f6gg. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> J\u00f3ab l\u00e9t \u00fe\u00e1 \u00feeyta hafurshorni\u00f0 og herinn h\u00e6tti a\u00f0 veita \u00cdsraelsm\u00f6nnum eftirf\u00f6r. \u00deegar J\u00f3ab haf\u00f0i st\u00f6\u00f0va\u00f0 herinn <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> t\u00f3ku \u00feeir Absalon, hentu honum \u00ed st\u00f3ra gj\u00f3tu \u00ed sk\u00f3ginum og ger\u00f0u mikla steindys yfir. \u00de\u00e1 voru allir \u00cdsraelsmenn fl\u00fanir hver \u00ed sitt tjald.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Absalon haf\u00f0i \u00feegar \u00ed lifanda l\u00edfi l\u00e1ti\u00f0 s\u00e6kja stein og reisa s\u00e9r minnisvar\u00f0ann sem n\u00fa er \u00ed K\u00f3ngsdalnum. \u00dev\u00ed a\u00f0 hann sag\u00f0i: \u201e\u00c9g \u00e1 engan son sem getur haldi\u00f0 nafni m\u00ednu \u00e1 loft.\u201c Hann nefndi minnisvar\u00f0ann eftir s\u00e9r og enn \u00ed dag er hann nefndur Absalonsvar\u00f0i.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: h\u00f6nd Absalons.\">[<\/span> <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dav\u00ed\u00f0 harmar Absalon<\/h3>\n<p><a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Ak\u00edmaas Sad\u00f3ksson sag\u00f0i: \u201e\u00c9g \u00e6tla a\u00f0 fl\u00fdta m\u00e9r til konungsins og f\u00e6ra honum \u00fe\u00e1 gle\u00f0ifr\u00e9tt a\u00f0 Drottinn hafi d\u00e6mt honum \u00ed vil gegn fjandm\u00f6nnum hans.\u201c <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En J\u00f3ab svara\u00f0i: \u201e\u00cd dag flytur \u00fe\u00fa ekki fagna\u00f0art\u00ed\u00f0indi. Einhvern annan dag getur \u00fe\u00fa flutt gle\u00f0ifr\u00e9tt en \u00ed dag flytur \u00fe\u00fa ekki gle\u00f0ifr\u00e9tt \u00fev\u00ed a\u00f0 sonur konungsins er d\u00e1inn.\u201c <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skipa\u00f0i J\u00f3ab N\u00fab\u00edumanni nokkrum: \u201eFar\u00f0u og seg\u00f0u konungi hva\u00f0 \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0.\u201c N\u00fab\u00eduma\u00f0urinn varpa\u00f0i s\u00e9r ni\u00f0ur frammi fyrir J\u00f3ab og hlj\u00f3p s\u00ed\u00f0an af sta\u00f0.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> En Ak\u00edmaas Sad\u00f3ksson h\u00e9lt \u00e1fram og sag\u00f0i vi\u00f0 J\u00f3ab: \u201eM\u00e9r er sama hva\u00f0 gerist, \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 hlaupa \u00e1 eftir N\u00fab\u00edumanninum.\u201c J\u00f3ab spur\u00f0i: \u201eHvers vegna viltu vera a\u00f0 hlaupa \u00feetta, sonur minn, fyrst \u00fe\u00fa f\u00e6r\u00f0 engin s\u00f6gulaun?\u201c<span class=\"nedan_mal\" title=\" Sbr. 1Sam 4.10.\">[<\/span> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En Ak\u00edmaas svara\u00f0i: \u201eM\u00e9r er sama. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 hlaupa \u00feanga\u00f0.\u201c \u201eHlauptu \u00fe\u00e1,\u201c sag\u00f0i J\u00f3ab. Ak\u00edmaas hlj\u00f3p \u00fe\u00e1 af sta\u00f0, f\u00f3r lei\u00f0ina um J\u00f3rdanardalinn og var\u00f0 \u00e1 undan N\u00fab\u00edumanninum.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 sat \u00e1 milli beggja borgarhli\u00f0anna. V\u00f6r\u00f0urinn haf\u00f0i gengi\u00f0 upp \u00e1 \u00feak hli\u00f0sins vi\u00f0 borgarm\u00farinn og s\u00e1 \u00fe\u00e1 mann sem kom hlaupandi einsamall. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> V\u00f6r\u00f0urinn kalla\u00f0i til konungs og sk\u00fdr\u00f0i honum fr\u00e1 \u00feessu en konungur svara\u00f0i: \u201eEf hann er einsamall flytur hann g\u00f3\u00f0ar fr\u00e9ttir.\u201c \u00deegar hann n\u00e1lga\u00f0ist <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> kom v\u00f6r\u00f0urinn auga \u00e1 annan mann \u00e1 hlaupum. \u00de\u00e1 kalla\u00f0i v\u00f6r\u00f0urinn ni\u00f0ur til hli\u00f0var\u00f0arins: \u201eAnnar ma\u00f0ur kemur einsamall \u00e1 hlaupum.\u201c Konungur sag\u00f0i: \u201eHann flytur einnig g\u00f3\u00f0ar fr\u00e9ttir.\u201c <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kalla\u00f0i v\u00f6r\u00f0urinn: \u201eN\u00fa s\u00e9 \u00e9g a\u00f0 s\u00e1 fyrri hleypur l\u00edkt og Ak\u00edmaas Sad\u00f3ksson.\u201c Konungurinn sag\u00f0i: \u201e\u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0ur ma\u00f0ur, hann flytur g\u00f3\u00f0ar fr\u00e9ttir.\u201c<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Ak\u00edmaas hr\u00f3pa\u00f0i til konungs: \u201eHeill s\u00e9rt \u00fe\u00fa,\u201c og varpa\u00f0i s\u00e9r fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna frammi fyrir konungi og sag\u00f0i: \u201eLofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn. Hann hefur selt \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 menn \u00ed hendur sem hafa lyft hendi sinni gegn \u00fe\u00e9r, herra minn og konungur.\u201c <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Konungur spur\u00f0i: \u201eEr ungi ma\u00f0urinn Absalon heill \u00e1 h\u00fafi?\u201c Ak\u00edmaas svara\u00f0i: \u201e\u00c9g s\u00e1 mikla ringulrei\u00f0 \u00feegar J\u00f3ab sendi mig, \u00fej\u00f3n \u00feinn, af sta\u00f0. \u00deess vegna veit \u00e9g ekki hva\u00f0 ger\u00f0ist.\u201c <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skipa\u00f0i konungur: \u201eFar\u00f0u til hli\u00f0ar og stattu \u00fear.\u201c Ak\u00edmaas gekk \u00fe\u00e1 til hli\u00f0ar og st\u00f3\u00f0 \u00fear.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00cd \u00fev\u00ed kom N\u00fab\u00eduma\u00f0urinn og sag\u00f0i: \u201eH\u00e9r me\u00f0 f\u00e6ri \u00e9g \u00fe\u00e9r, herra minn og konungur, \u00fe\u00e1 gle\u00f0ifr\u00e9tt a\u00f0 Drottinn hefur \u00ed dag d\u00e6mt \u00fe\u00e9r \u00ed vil gegn \u00f6llum sem risi\u00f0 hafa gegn \u00fe\u00e9r.\u201c <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Konungur spur\u00f0i N\u00fab\u00edumanninn: \u201eEr ungi ma\u00f0urinn Absalon heill \u00e1 h\u00fafi?\u201c N\u00fab\u00eduma\u00f0urinn svara\u00f0i: \u201e\u00deess v\u00e6ri \u00f3skandi a\u00f0 allir fjandmenn \u00fe\u00ednir, herra minn og konungur, og allir sem r\u00edsa gegn \u00fe\u00e9r hlj\u00f3ti s\u00f6mu \u00f6rl\u00f6g og s\u00e1 ungi ma\u00f0ur.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Absalon sigra\u00f0ur og deyddur 1 Dav\u00ed\u00f0 kanna\u00f0i n\u00fa li\u00f0 sitt og setti foringja yfir \u00fe\u00fasund manna sveitir og hundra\u00f0 manna flokka. 2 S\u00ed\u00f0an skipti hann hernum \u00ed \u00ferj\u00e1r fylkingar. Var ein \u00feeirra undir stj\u00f3rn J\u00f3abs, \u00f6nnur undir stj\u00f3rn Ab\u00edsa\u00ed Ser\u00fajusonar, br\u00f3\u00f0ur J\u00f3abs, og s\u00fa \u00feri\u00f0ja undir stj\u00f3rn Itta\u00ed fr\u00e1 Gat. \u00dev\u00ed n\u00e6st m\u00e6lti konungurinn vi\u00f0 herinn: \u201e\u00c9g \u00e6tla sj\u00e1lfur a\u00f0 fara me\u00f0 ykkur.\u201c 3 En herinn svara\u00f0i: \u201e\u00de\u00fa skalt hvergi fara. Ef vi\u00f0 fl\u00fdjum veldur \u00fea\u00f0 engum \u00e1hyggjum. \u00de\u00f3 a\u00f0 helmingur okkar falli hefur enginn \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed. En \u00fe\u00fa ert d\u00fdrm\u00e6tari en t\u00edu \u00fe\u00fasund okkar. \u00dev\u00ed er betra a\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-samuelsbok-18-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1902","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1902","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1902"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1902\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1902"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}