{"id":1898,"date":"2017-12-30T21:00:55","date_gmt":"2017-12-30T21:00:55","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/s%c2%92_ari-sam%c2%9celsb%c2%97k-14-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:29:18","modified_gmt":"2024-02-06T18:29:18","slug":"sidari-samuelsbok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-samuelsbok-14-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari Sam\u00faelsb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Absalon sn\u00fdr til Jer\u00fasalem<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar J\u00f3ab Ser\u00fajusyni var\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 Absalon var\u00f0 konungi aftur hjartf\u00f3lginn <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> sendi hann mann til Tek\u00f3a til a\u00f0 s\u00e6kja \u00feanga\u00f0 vitra konu og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u201e\u00de\u00fa skalt l\u00e1ta eins og \u00fe\u00fa s\u00e9rt a\u00f0 syrgja einhvern. B\u00fa\u00f0u \u00feig sorgarb\u00faningi og h\u00e6ttu a\u00f0 bera \u00e1 \u00feig smyrsl. \u00de\u00fa skalt heg\u00f0a \u00fe\u00e9r eins og kona sem lengi hefur syrgt l\u00e1tinn mann. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Far\u00f0u svo til konungsins og seg\u00f0u vi\u00f0 hann.\u201c Og J\u00f3ab lag\u00f0i henni or\u00f0 \u00ed munn.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Konan fr\u00e1 Tek\u00f3a f\u00f3r s\u00ed\u00f0an til konungs, f\u00e9ll fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna, s\u00fdndi honum lotningu og sag\u00f0i: \u201eHj\u00e1lpa\u00f0u m\u00e9r, konungur.\u201c <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Konungur spur\u00f0i hana: \u201eHva\u00f0 amar a\u00f0 \u00fe\u00e9r?\u201c H\u00fan svara\u00f0i: \u201e\u00c9g er ekkja. \u00deegar eiginma\u00f0ur minn d\u00f3 <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00e1tti amb\u00e1tt \u00fe\u00edn tvo syni. Um daginn lenti \u00feeim saman \u00fati \u00e1 akri. \u00dear e\u00f0 enginn var n\u00e6rstaddur til a\u00f0 skilja \u00fe\u00e1 a\u00f0 drap annar \u00feeirra hinn. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> N\u00fa hefur \u00f6ll \u00e6ttin sn\u00faist gegn amb\u00e1tt \u00feinni og segir: Framseldu br\u00f3\u00f0urmor\u00f0ingjann svo a\u00f0 vi\u00f0 getum teki\u00f0 hann af l\u00edfi og hefnt br\u00f3\u00f0ur hans sem hann drap. \u00deannig getum vi\u00f0 rutt erfingjanum \u00far vegi. \u00deeir \u00e6tla a\u00f0 k\u00e6fa \u00fe\u00e1 gl\u00f3\u00f0 sem var skilin eftir handa m\u00e9r og \u00feeir \u00e6tla hvorki a\u00f0 skilja eiginmanni m\u00ednum eftir nafn n\u00e9 ni\u00f0ja \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.\u201c<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Konungur svara\u00f0i konunni: \u201eFar\u00f0u heim. \u00c9g skal sj\u00e1lfur leysa vanda \u00feinn.\u201c <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Konan fr\u00e1 Tek\u00f3a sag\u00f0i \u00fe\u00e1 vi\u00f0 konung: \u201eHerra konungur, s\u00f6kin hv\u00edlir \u00e1 m\u00e9r og fj\u00f6lskyldu minni. Konungur er saklaus og einnig h\u00e1s\u00e6ti hans.\u201c <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i konungur: \u201e\u00deann sem \u00e1sakar \u00feig skaltu senda til m\u00edn. Hann mun ekki \u00e1reita \u00feig aftur.\u201c <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> H\u00fan sag\u00f0i: \u201eKonungur nefni nafn Drottins, Gu\u00f0s s\u00edns, \u00fev\u00ed til sta\u00f0festu a\u00f0 bl\u00f3\u00f0hefnandinn vinni ekki enn verra n\u00ed\u00f0ingsverk og grandi syni m\u00ednum.\u201c Hann svara\u00f0i: \u201eSvo sannarlega sem Drottinn lifir skal ekki nokkurt h\u00e1r \u00e1 h\u00f6f\u00f0i sonar \u00fe\u00edns skert.\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i konan: \u201eLeyf\u00f0u amb\u00e1tt \u00feinni a\u00f0 segja enn eitt or\u00f0 vi\u00f0 \u00feig, herra minn og konungur.\u201c Hann svara\u00f0i: \u201eTala \u00fe\u00fa,\u201c <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> og h\u00fan sag\u00f0i: \u201eHvers vegna hefur\u00f0u sl\u00edkt \u00ed hyggju me\u00f0 l\u00fd\u00f0 Gu\u00f0s? Konungur sakfellir sj\u00e1lfan sig leyfi hann \u00feeim ekki a\u00f0 sn\u00faa heim sem hann hefur reki\u00f0 \u00ed \u00fatleg\u00f0. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Vissulega hlj\u00f3tum vi\u00f0 \u00f6ll a\u00f0 deyja. Vi\u00f0 erum eins og vatn sem hellt er \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina og eigi ver\u00f0ur n\u00e1\u00f0 upp aftur. Gu\u00f0 vill ekki svipta neinn l\u00edfi heldur finnur hann r\u00e1\u00f0 til \u00feess a\u00f0 s\u00e1 sem hann hefur hraki\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r geti sn\u00fai\u00f0 aftur. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00c9g er n\u00fa komin til \u00feess a\u00f0 leggja \u00feetta m\u00e1l fyrir \u00feig, konungur og herra, vegna \u00feess a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 ger\u00f0i mig hr\u00e6dda. Amb\u00e1tt \u00fe\u00edn hugsa\u00f0i \u00fev\u00ed me\u00f0 s\u00e9r: \u00c9g skal tala vi\u00f0 konunginn. Ef til vill gerir konungur b\u00f3n m\u00edna. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Konungur mun \u00e1rei\u00f0anlega hlusta og hj\u00e1lpa amb\u00e1tt sinni \u00far greipum \u00feess manns sem \u00e6tlar a\u00f0 afm\u00e1 b\u00e6\u00f0i mig og son minn \u00far erf\u00f0alandi Gu\u00f0s. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Amb\u00e1tt \u00fe\u00edn hugsa\u00f0i me\u00f0 s\u00e9r: Svar herra m\u00edns, konungsins, mun r\u00f3a huga minn. Herra minn, konungurinn, er eins og engill Drottins, hann skilur allt. Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, s\u00e9 me\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Konungur svara\u00f0i og sag\u00f0i vi\u00f0 konuna: \u201eSvara\u00f0u n\u00fa spurningu minni undanbrag\u00f0alaust.\u201c Konan sag\u00f0i: \u201eJ\u00e1, herra minn og konungur.\u201c <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00e1 spur\u00f0i konungur: \u201eEr h\u00f6nd J\u00f3abs me\u00f0 \u00ed \u00feessum leik?\u201c Konan svara\u00f0i og sag\u00f0i: \u201eSvo sannarlega sem \u00fe\u00fa lifir, herra minn og konungur, \u00fe\u00e1 er ekki h\u00e6gt a\u00f0 fara \u00ed kringum neitt sem herra minn, konungurinn, hefur sagt. J\u00e1, \u00fea\u00f0 var J\u00f3ab, \u00fej\u00f3nn \u00feinn, sem gaf fyrirm\u00e6lin og lag\u00f0i m\u00e9r, amb\u00e1tt \u00feinni, \u00f6ll \u00feessi or\u00f0 \u00ed munn. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> J\u00f3ab, \u00fej\u00f3nn \u00feinn, ger\u00f0i \u00feetta til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa s\u00e6ir m\u00e1li\u00f0 \u00ed \u00f6\u00f0ru lj\u00f3si. En herra minn er eins vitur og engill Gu\u00f0s. \u00de\u00fa veist allt sem gerist \u00ed landinu.\u201c<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Konungur sag\u00f0i n\u00fa vi\u00f0 J\u00f3ab: \u201e\u00c9g hef gert upp hug minn \u00ed \u00feessu m\u00e1li. Far\u00f0u og s\u00e6ktu unglinginn Absalon.\u201c <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> J\u00f3ab varpa\u00f0i s\u00e9r fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna, s\u00fdndi konungi lotningu, kvaddi hann og sag\u00f0i: \u201eN\u00fa veit \u00e9g, \u00fej\u00f3nn \u00feinn, a\u00f0 \u00e9g n\u00fdt velvildar \u00feinnar, herra minn og konungur. Konungur hefur gert \u00fea\u00f0 sem \u00fej\u00f3nn hans ba\u00f0 um.\u201c<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st h\u00e9lt J\u00f3ab af sta\u00f0 og f\u00f3r til Ges\u00far og kom aftur til Jer\u00fasalem me\u00f0 Absalon. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i konungur: \u201eHann \u00e1 a\u00f0 fara heim til s\u00edn. Hann m\u00e1 ekki ganga fyrir mig.\u201c Absalon f\u00f3r \u00fev\u00ed heim til s\u00edn og gekk ekki fyrir konung.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dav\u00ed\u00f0 s\u00e6ttist vi\u00f0 Absalon<\/h3>\n<p><a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00cd \u00f6llum \u00cdsrael var enginn eins d\u00e1\u00f0ur fyrir gl\u00e6simennsku og Absalon. Hann var l\u00fdtalaus fr\u00e1 hvirfli til ilja. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00d6\u00f0ru hverju \u00feurfti hann a\u00f0 l\u00e1ta skera h\u00e1r sitt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 honum til trafala. \u00deegar hann l\u00e9t skera \u00fea\u00f0 v\u00f3 \u00fea\u00f0 tv\u00f6 hundru\u00f0 sikla \u00e1 konungsvog. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Absalon eigna\u00f0ist \u00ferj\u00e1 syni og eina d\u00f3ttur sem h\u00e9t Tamar. H\u00fan var\u00f0 mj\u00f6g f\u00f6gur kona.<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Absalon bj\u00f3 n\u00fa \u00ed tv\u00f6 \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem \u00e1n \u00feess a\u00f0 ganga fyrir konung. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi Absalon mann \u00e1 fund J\u00f3abs til \u00feess a\u00f0 bi\u00f0ja hann a\u00f0 fara til konungs en J\u00f3ab sinnti ekki bo\u00f0i hans. Hann sendi \u00fe\u00e1 \u00f6\u00f0ru sinni eftir honum en hann vildi samt ekki koma. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Absalon vi\u00f0 menn s\u00edna: \u201eJ\u00f3ab \u00e1 byggakur sem liggur a\u00f0 landi m\u00ednu. Fari\u00f0 og kveiki\u00f0 \u00ed honum.\u201c Menn Absalons brenndu \u00fe\u00e1 akurinn.<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00f3r J\u00f3ab heim til Absalons og spur\u00f0i: \u201eHvers vegna kveiktu menn \u00fe\u00ednir \u00ed akri m\u00ednum?\u201c <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Absalon svara\u00f0i: \u201e\u00c9g sendi menn til \u00fe\u00edn me\u00f0 \u00feessi bo\u00f0: Komdu til m\u00edn. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 senda \u00feig til konungsins me\u00f0 \u00feessi bo\u00f0: Til hvers kom \u00e9g fr\u00e1 Ges\u00far? M\u00e9r hef\u00f0i veri\u00f0 n\u00e6r a\u00f0 vera \u00fear um kyrrt. En n\u00fa vil \u00e9g ganga fyrir konunginn. Ef \u00e9g er enn sekur getur hann drepi\u00f0 mig.\u201c<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> J\u00f3ab gekk s\u00ed\u00f0an fyrir konung og sk\u00fdr\u00f0i honum fr\u00e1 \u00feessu. Hann kalla\u00f0i Absalon fyrir sig. Hann kom til konungs, varpa\u00f0i s\u00e9r til jar\u00f0ar frammi fyrir honum og konungur kyssti Absalon.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Absalon sn\u00fdr til Jer\u00fasalem 1 \u00deegar J\u00f3ab Ser\u00fajusyni var\u00f0 lj\u00f3st a\u00f0 Absalon var\u00f0 konungi aftur hjartf\u00f3lginn 2 sendi hann mann til Tek\u00f3a til a\u00f0 s\u00e6kja \u00feanga\u00f0 vitra konu og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u201e\u00de\u00fa skalt l\u00e1ta eins og \u00fe\u00fa s\u00e9rt a\u00f0 syrgja einhvern. B\u00fa\u00f0u \u00feig sorgarb\u00faningi og h\u00e6ttu a\u00f0 bera \u00e1 \u00feig smyrsl. \u00de\u00fa skalt heg\u00f0a \u00fe\u00e9r eins og kona sem lengi hefur syrgt l\u00e1tinn mann. 3 Far\u00f0u svo til konungsins og seg\u00f0u vi\u00f0 hann.\u201c Og J\u00f3ab lag\u00f0i henni or\u00f0 \u00ed munn. 4 Konan fr\u00e1 Tek\u00f3a f\u00f3r s\u00ed\u00f0an til konungs, f\u00e9ll fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna, s\u00fdndi honum lotningu og sag\u00f0i: \u201eHj\u00e1lpa\u00f0u <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/sidari-samuelsbok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1898","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1898","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1898"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1898\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1898"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}