{"id":1878,"date":"2017-12-30T21:00:50","date_gmt":"2017-12-30T21:00:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-sam%c2%9celsb%c2%97k-25-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:29:07","modified_gmt":"2024-02-06T18:29:07","slug":"fyrri-samuelsbok-25-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-25-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri Sam\u00faelsb\u00f3k 25. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Dav\u00ed\u00f0 og Ab\u00edgail<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Sam\u00fael d\u00f3 og allur \u00cdsrael safna\u00f0ist saman og syrg\u00f0i hann. Hann var grafinn \u00ed h\u00fasi s\u00ednu \u00ed Rama. En Dav\u00ed\u00f0 h\u00e9lt til Paraney\u00f0imerkur. <br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00cd Maon var ma\u00f0ur nokkur sem \u00e1tti b\u00fa sitt \u00ed Karmel. Hann var vellau\u00f0ugur og \u00e1tti \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund fj\u00e1r og \u00fe\u00fasund geitur. N\u00fa var hann a\u00f0 r\u00fdja sau\u00f0f\u00e9 sitt \u00ed Karmel. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Ma\u00f0ur \u00feessi h\u00e9t Nabal en kona hans Ab\u00edgail. H\u00fan var skyns\u00f6m kona og fr\u00ed\u00f0 s\u00fdnum en hann har\u00f0ur \u00ed lund og illmenni. Hann var af \u00e6tt Kalebs.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 fr\u00e9tti \u00fati \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni a\u00f0 Nabal v\u00e6ri a\u00f0 r\u00fdja f\u00e9 sitt. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi hann t\u00edu unga menn af sta\u00f0 me\u00f0 \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eFari\u00f0 upp til Karmel. \u00deegar \u00fei\u00f0 komi\u00f0 til Nabals skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 bera honum kve\u00f0ju m\u00edna <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> og segja vi\u00f0 br\u00f3\u00f0ur minn: Heill \u00fe\u00e9r, fj\u00f6lskyldu \u00feinni og \u00f6llu sem \u00fe\u00fa \u00e1tt. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00c9g hef fr\u00e9tt a\u00f0 veri\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 r\u00fdja fyrir \u00feig. \u00deegar hir\u00f0ar \u00fe\u00ednir h\u00e9ldu f\u00e9nu \u00e1 beit hj\u00e1 okkur ger\u00f0um vi\u00f0 \u00feeim ekkert mein enda hefur ekkert vanta\u00f0 af f\u00e9nu \u00feann t\u00edma sem \u00feeir hafa veri\u00f0 \u00ed Karmel. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Spyr\u00f0u vinnumenn \u00fe\u00edna, \u00feeir geta sj\u00e1lfir sagt \u00fe\u00e9r \u00feetta. Taktu \u00feessum unglingum \u00fev\u00ed vinsamlega. Vi\u00f0 komum \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0isdegi. Gef\u00f0u \u00fev\u00ed \u00fej\u00f3num \u00fe\u00ednum og Dav\u00ed\u00f0, syni \u00fe\u00ednum, \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa hefur vi\u00f0 h\u00f6ndina.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Sendimenn Dav\u00ed\u00f0s komu til Nabals, fluttu honum \u00feessi skilabo\u00f0 \u00ed nafni Dav\u00ed\u00f0s og bi\u00f0u s\u00ed\u00f0an \u00e1tekta. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00e1 svara\u00f0i Nabal \u00fej\u00f3num Dav\u00ed\u00f0s og sag\u00f0i: \u201eHver er Dav\u00ed\u00f0 og hver er sonur \u00cdsa\u00ed? Margir gerast \u00feeir n\u00fa \u00fer\u00e6larnir sem strj\u00faka fr\u00e1 h\u00fasb\u00e6ndum s\u00ednum. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00c1 \u00e9g a\u00f0 taka brau\u00f0 mitt og vatn og dilkana, sem \u00e9g sl\u00e1tra\u00f0i handa r\u00faningsm\u00f6nnum m\u00ednum, og gefa einhverjum sem \u00e9g veit ekki einu sinni hva\u00f0an eru?\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Sendimenn Dav\u00ed\u00f0s sneru \u00fe\u00e1 vi\u00f0, komu og s\u00f6g\u00f0u honum allt af l\u00e9tta. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Dav\u00ed\u00f0 vi\u00f0 menn s\u00edna: \u201eGyr\u00f0ist allir sver\u00f0um ykkar.\u201c \u00deeir ger\u00f0u \u00fea\u00f0 og Dav\u00ed\u00f0 gyrti sig sj\u00e1lfur sver\u00f0i s\u00ednu. S\u00ed\u00f0an f\u00f3ru \u00feeir upp eftir me\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 \u00ed broddi fylkingar og voru \u00feeir um \u00fea\u00f0 bil fj\u00f6gur hundru\u00f0 saman. Tv\u00f6 hundru\u00f0 menn ur\u00f0u eftir og g\u00e6ttu farangursins.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Einn af vinnum\u00f6nnum Nabals haf\u00f0i sk\u00fdrt Ab\u00edgail, konu hans, fr\u00e1 \u00feessu og sagt: \u201eDav\u00ed\u00f0 hefur sent menn \u00far ey\u00f0im\u00f6rkinni me\u00f0 kve\u00f0ju til h\u00fasb\u00f3nda okkar sem svara\u00f0i me\u00f0 f\u00fakyr\u00f0um. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Samt voru \u00feeir mj\u00f6g vingjarnlegir vi\u00f0 okkur. \u00deeir \u00e1reittu okkur ekki og aldrei vanta\u00f0i neitt af f\u00e9nu allan t\u00edmann sem vi\u00f0 h\u00e9ldum okkur \u00ed n\u00e1munda vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed haganum. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deeir myndu\u00f0u varnargar\u00f0 umhverfis okkur dag og n\u00f3tt, allan t\u00edmann sem vi\u00f0 beittum f\u00e9nu \u00ed grennd vi\u00f0 \u00fe\u00e1. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Hugsa\u00f0u \u00feig n\u00fa um og reyndu a\u00f0 l\u00e1ta \u00fe\u00e9r detta \u00ed hug hva\u00f0 \u00fe\u00fa getir gert \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3g\u00e6fa blasir vi\u00f0 h\u00fasb\u00f3nda okkar og allri fj\u00f6lskyldu hans. Hann er svo br\u00e1\u00f0ur a\u00f0 ekki er h\u00e6gt a\u00f0 yr\u00f0a \u00e1 hann.\u201c<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Ab\u00edgail s\u00f3tti \u00fe\u00e1 \u00ed skyndi tv\u00f6 hundru\u00f0 brau\u00f0, tvo v\u00ednbelgi, fimm dilka, fimm seur af ristu\u00f0u korni, hundra\u00f0 r\u00fas\u00ednuk\u00f6kur og tv\u00f6 hundru\u00f0 f\u00edkjuk\u00f6kur. H\u00fan lag\u00f0i \u00feetta \u00e1 asna <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> og sag\u00f0i vi\u00f0 vinnumenn s\u00edna: \u201eFari\u00f0 \u00e1 undan m\u00e9r. \u00c9g kem r\u00e9tt \u00e1 eftir ykkur.\u201c En Nabal, manni s\u00ednum, sag\u00f0i h\u00fan ekkert.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> N\u00fa bar svo vi\u00f0 a\u00f0 h\u00fan m\u00e6tti Dav\u00ed\u00f0 og m\u00f6nnum hans sem komu \u00f3v\u00e6nt \u00e1 m\u00f3ti henni \u00fear sem h\u00fan var r\u00ed\u00f0andi \u00e1 asnanum \u00ed hvarfi bak vi\u00f0 fjall nokkurt. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> R\u00e9tt \u00ed \u00fev\u00ed haf\u00f0i Dav\u00ed\u00f0 sagt: \u201e\u00dea\u00f0 var \u00fe\u00e1 til einskis a\u00f0 \u00e9g g\u00e6tti \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni alls sem \u00feessi ma\u00f0ur \u00e1. Ekkert vanta\u00f0i af eigum hans en hann launar m\u00e9r gott me\u00f0 illu. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Gu\u00f0 geri m\u00e9r hva\u00f0 sem er n\u00fa og s\u00ed\u00f0ar hafi \u00e9g \u00feyrmt einum af karlm\u00f6nnum hans \u00ed birtingu \u00e1 morgun.\u201c<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00deegar Ab\u00edgail s\u00e1 Dav\u00ed\u00f0 steig h\u00fan \u00ed skyndi af asnanum, varpa\u00f0i s\u00e9r ni\u00f0ur frammi fyrir Dav\u00ed\u00f0 og hneig\u00f0i sig til jar\u00f0ar. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> H\u00fan f\u00e9ll til f\u00f3ta honum og sag\u00f0i: \u201eHerra, s\u00f6kin er a\u00f0eins m\u00edn. Leyf\u00f0u n\u00fa amb\u00e1tt \u00feinni a\u00f0 tala vi\u00f0 \u00feig og hlusta\u00f0u \u00e1 or\u00f0 hennar. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Herra minn, skiptu \u00fe\u00e9r ekki af \u00feessu illmenni, honum Nabal. Hann ber nafn me\u00f0 rentu:<span class=\"nedan_mal\" title=\" Nabal merkir heimskingi.\">[<\/span> heimskingi heitir hann og heimskingi er hann. Herra minn, \u00e9g, amb\u00e1tt \u00fe\u00edn, s\u00e1 ekki einu sinni ungu mennina sem \u00fe\u00fa sendir. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> En, herra, svo sannarlega sem Drottinn lifir og svo sannarlega sem \u00fe\u00fa lifir \u00fe\u00e1 hefur Drottinn hindra\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00fa baka\u00f0ir \u00fe\u00e9r bl\u00f3\u00f0skuld me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka m\u00e1li\u00f0 \u00ed \u00fe\u00ednar hendur. \u00deess vegna fari fyrir fjandm\u00f6nnum herra m\u00edns og \u00feeim sem vilja honum illt eins og fyrir Nabal. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> L\u00e1ttu n\u00fa afhenda ungu m\u00f6nnunum, sem fylgja \u00fe\u00e9r, gj\u00f6fina sem \u00e9g, amb\u00e1tt \u00fe\u00edn, hef f\u00e6rt \u00fe\u00e9r, herra minn. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Fyrirgef\u00f0u framhleypni amb\u00e1ttar \u00feinnar. Drottinn mun \u00e1rei\u00f0anlega l\u00e1ta \u00fe\u00e1 \u00e6tt, sem af herra m\u00ednum kemur, st\u00f6\u00f0uga standa. S\u00f6kum \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa, herra minn, heyr str\u00ed\u00f0 fyrir Drottin ver\u00f0ur ekkert illt fundi\u00f0 hj\u00e1 \u00fe\u00e9r me\u00f0an \u00fe\u00fa lifir. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> En veitist einhver a\u00f0 \u00fe\u00e9r og s\u00e6kist eftir l\u00edfi \u00fe\u00ednu mun l\u00edf herra m\u00edns bundi\u00f0 fast \u00ed knippi lifandi manna hj\u00e1 Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum. En l\u00edfi fjandmanna \u00feinna mun hann sl\u00f6ngva \u00ed burtu. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deegar Drottinn hefur sta\u00f0i\u00f0 vi\u00f0 allt hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, sem hann hefur heiti\u00f0 \u00fe\u00e9r, herra, og gert \u00feig a\u00f0 h\u00f6f\u00f0ingja yfir \u00cdsrael, <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0 ekki ver\u00f0a \u00fe\u00e9r til falls n\u00e9 \u00ed\u00feyngja samvisku \u00feinni a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir \u00fathellt bl\u00f3\u00f0i a\u00f0 \u00e1st\u00e6\u00f0ulausu, herra minn, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka r\u00e9ttinn \u00ed \u00fe\u00ednar hendur. \u00deegar Drottinn gerir vel vi\u00f0 herra minn minnstu \u00fe\u00e1 amb\u00e1ttar \u00feinnar.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00de\u00e1 svara\u00f0i Dav\u00ed\u00f0 Ab\u00edgail: \u201eLofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels, sem sendi \u00feig til m\u00f3ts vi\u00f0 mig \u00ed dag. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Blessu\u00f0 s\u00e9u hyggindi \u00fe\u00edn og \u00fe\u00fa sj\u00e1lf sem for\u00f0a\u00f0ir m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 baka m\u00e9r bl\u00f3\u00f0skuld me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka r\u00e9ttinn \u00ed m\u00ednar hendur. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> En svo sannarlega sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels, lifir sem for\u00f0a\u00f0i m\u00e9r fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna \u00fe\u00e9r mein, \u00fe\u00e1 hef\u00f0i ekki nokkur af karlm\u00f6nnum Nabals veri\u00f0 \u00e1 l\u00edfi \u00ed fyrram\u00e1li\u00f0 ef \u00fe\u00fa hef\u00f0ir ekki komi\u00f0 svona flj\u00f3tt til m\u00f3ts vi\u00f0 mig.\u201c<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 t\u00f3k vi\u00f0 \u00fev\u00ed sem h\u00fan haf\u00f0i f\u00e6rt honum og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u201eFar\u00f0u \u00ed fri\u00f0i heim til \u00fe\u00edn. \u00c9g hlusta\u00f0i \u00e1 or\u00f0 \u00fe\u00edn og mun ver\u00f0a vi\u00f0 \u00f3sk \u00feinni.\u201c <br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00deegar Ab\u00edgail kom heim til Nabals var hann a\u00f0 veislu \u00ed h\u00fasi s\u00ednu sem konungur v\u00e6ri. Nabal var hinn k\u00e1tasti og mj\u00f6g drukkinn. \u00deess vegna sag\u00f0i h\u00fan honum ekkert fyrr en birti af degi. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> En um morguninn, \u00feegar runni\u00f0 var af Nabal, sag\u00f0i kona hans honum fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem gerst haf\u00f0i. \u00de\u00e1 d\u00f3 hjarta\u00f0 \u00ed brj\u00f3sti hans og var\u00f0 a\u00f0 steini. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Um \u00fea\u00f0 bil t\u00edu d\u00f6gum s\u00ed\u00f0ar laust Drottinn Nabal og hann d\u00f3.<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00deegar Dav\u00ed\u00f0 fr\u00e9tti a\u00f0 Nabal v\u00e6ri d\u00e1inn sag\u00f0i hann: \u201eLofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn sem hefur reki\u00f0 r\u00e9ttar m\u00edns og veitt m\u00e9r uppreisn \u00e6ru. Hann hefur for\u00f0a\u00f0 \u00fej\u00f3ni s\u00ednum fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vinna \u00f3d\u00e6\u00f0i en l\u00e1ti\u00f0 illsku Nabals koma honum \u00ed koll.\u201c S\u00ed\u00f0an sendi Dav\u00ed\u00f0 bo\u00f0 til Ab\u00edgail um a\u00f0 hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 taka hana s\u00e9r fyrir eiginkonu. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00dej\u00f3nar Dav\u00ed\u00f0s komu til Ab\u00edgail \u00ed Karmel og s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 hana: \u201eDav\u00ed\u00f0 hefur sent okkur til \u00fe\u00edn til \u00feess a\u00f0 taka \u00feig til eiginkonu handa honum.\u201c <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> H\u00fan st\u00f3\u00f0 \u00e1 f\u00e6tur, varpa\u00f0i s\u00e9r s\u00ed\u00f0an \u00e1 gr\u00fafu til jar\u00f0ar og sag\u00f0i: \u201eAmb\u00e1tt \u00fe\u00edn er rei\u00f0ub\u00fain a\u00f0 gerast \u00fej\u00f3nustust\u00falka og \u00fevo f\u00e6tur \u00fej\u00f3na herra m\u00edns.\u201c <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Ab\u00edgail steig \u00feegar \u00ed sta\u00f0 \u00e1 bak asna s\u00ednum og fimm \u00fej\u00f3nustust\u00falkur hennar fylgdu henni. Fylgdist h\u00fan me\u00f0 sendim\u00f6nnum Dav\u00ed\u00f0s og ger\u00f0ist eiginkona hans.<br \/> <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Dav\u00ed\u00f0 haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur teki\u00f0 Ak\u00edn\u00f3am fr\u00e1 Jesreel s\u00e9r fyrir eiginkonu svo a\u00f0 \u00fe\u00e6r voru b\u00e1\u00f0ar eiginkonur hans. <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> En S\u00e1l haf\u00f0i gefi\u00f0 Palt\u00ed La\u00edssyni fr\u00e1 Gall\u00edm M\u00edkal, d\u00f3ttur s\u00edna, sem veri\u00f0 haf\u00f0i kona Dav\u00ed\u00f0s. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Dav\u00ed\u00f0 og Ab\u00edgail 1 Sam\u00fael d\u00f3 og allur \u00cdsrael safna\u00f0ist saman og syrg\u00f0i hann. Hann var grafinn \u00ed h\u00fasi s\u00ednu \u00ed Rama. En Dav\u00ed\u00f0 h\u00e9lt til Paraney\u00f0imerkur. 2 \u00cd Maon var ma\u00f0ur nokkur sem \u00e1tti b\u00fa sitt \u00ed Karmel. Hann var vellau\u00f0ugur og \u00e1tti \u00ferj\u00fa \u00fe\u00fasund fj\u00e1r og \u00fe\u00fasund geitur. N\u00fa var hann a\u00f0 r\u00fdja sau\u00f0f\u00e9 sitt \u00ed Karmel. 3 Ma\u00f0ur \u00feessi h\u00e9t Nabal en kona hans Ab\u00edgail. H\u00fan var skyns\u00f6m kona og fr\u00ed\u00f0 s\u00fdnum en hann har\u00f0ur \u00ed lund og illmenni. Hann var af \u00e6tt Kalebs. 4 Dav\u00ed\u00f0 fr\u00e9tti \u00fati \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni a\u00f0 Nabal v\u00e6ri a\u00f0 r\u00fdja f\u00e9 sitt. <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-25-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1878","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1878","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1878"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1878\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1878"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}