{"id":1869,"date":"2017-12-30T21:00:45","date_gmt":"2017-12-30T21:00:45","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-sam%c2%9celsb%c2%97k-16-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:29:01","modified_gmt":"2024-02-06T18:29:01","slug":"fyrri-samuelsbok-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-16-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri Sam\u00faelsb\u00f3k 16. kafli"},"content":{"rendered":"<h2 class=\"millifyrirsogn_2007\">S\u00e1l og Dav\u00ed\u00f0 <\/h2>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dav\u00ed\u00f0 smur\u00f0ur til konungs<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 Sam\u00fael: <br \/>\u201eHversu lengi \u00e6tlar\u00f0u a\u00f0 vera sorgm\u00e6ddur vegna S\u00e1ls? \u00c9g hef hafna\u00f0 honum sem konungi yfir \u00cdsrael. Fylltu horn \u00feitt af ol\u00edu og haltu af sta\u00f0. \u00c9g sendi \u00feig til \u00cdsa\u00ed fr\u00e1 Betlehem \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef vali\u00f0 m\u00e9r einn af sonum hans til a\u00f0 ver\u00f0a konungur.\u201c <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Sam\u00fael svara\u00f0i: \u201eHvernig get \u00e9g fari\u00f0 \u00feanga\u00f0? S\u00e1l drepur mig ef hann fr\u00e9ttir \u00feetta.\u201c \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn: \u201eTaktu me\u00f0 \u00fe\u00e9r kv\u00edgu og seg\u00f0u: \u00c9g er kominn til a\u00f0 f\u00e6ra Drottni f\u00f3rn. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skaltu bj\u00f3\u00f0a \u00cdsa\u00ed til f\u00f3rnarveislunnar og \u00e9g mun l\u00e1ta \u00feig vita hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt a\u00f0 gera. \u00deann sem \u00e9g nefni skaltu smyrja m\u00e9r.\u201c<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Sam\u00fael ger\u00f0i eins og Drottinn bau\u00f0. \u00deegar hann kom til Betlehem gengu \u00f6ldungar borgarinnar skelfdir \u00e1 m\u00f3ti honum og spur\u00f0u: \u201eKemur \u00fe\u00fa me\u00f0 fri\u00f0i?\u201c <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Hann svara\u00f0i: \u201eJ\u00e1, \u00e9g er kominn til a\u00f0 f\u00e6ra Drottni f\u00f3rn. Helgi\u00f0 ykkur og komi\u00f0 me\u00f0 m\u00e9r til f\u00f3rnarveislunnar.\u201c S\u00ed\u00f0an helga\u00f0i hann \u00cdsa\u00ed og syni hans og bau\u00f0 \u00feeim til f\u00f3rnarveislunnar.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir komu og Sam\u00fael s\u00e1 El\u00edab hugsa\u00f0i hann: \u201eH\u00e9r stendur Drottins smur\u00f0i \u00e1rei\u00f0anlega frammi fyrir honum.\u201c <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> En Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 Sam\u00fael: \u201eHorf\u00f0u ekki \u00e1 h\u00e6\u00f0 hans og gl\u00e6sileik \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef hafna\u00f0 honum. Gu\u00f0 l\u00edtur ekki \u00e1 \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0urinn l\u00edtur \u00e1. Ma\u00f0urinn s\u00e9r hi\u00f0 ytra en Drottinn horfir \u00e1 hjarta\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kalla\u00f0i \u00cdsa\u00ed \u00e1 Ab\u00ednadab og l\u00e9t hann ganga fyrir Sam\u00fael en hann sag\u00f0i: \u201eEkki hefur Drottinn heldur vali\u00f0 \u00feennan.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an l\u00e9t \u00cdsa\u00ed Samma ganga fram en hann sag\u00f0i: \u201eEkki hefur Drottinn heldur vali\u00f0 \u00feennan.\u201c<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00cdsa\u00ed l\u00e9t syni s\u00edna sj\u00f6 ganga fram fyrir Sam\u00fael en Sam\u00fael sag\u00f0i vi\u00f0 \u00cdsa\u00ed: \u201eEngan \u00feeirra hefur Drottinn vali\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st spur\u00f0i Sam\u00fael \u00cdsa\u00ed: \u201eEru \u00feetta allir synir \u00fe\u00ednir?\u201c Hann svara\u00f0i: \u201e\u00deann yngsta vantar enn \u00fev\u00ed a\u00f0 hann situr yfir f\u00e9nu.\u201c \u00de\u00e1 sag\u00f0i Sam\u00fael vi\u00f0 \u00cdsa\u00ed: \u201eSendu einhvern eftir honum. Vi\u00f0 setjumst ekki til bor\u00f0s fyrr en hann er kominn.\u201c <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00cdsa\u00ed sendi \u00fe\u00e1 mann eftir Dav\u00ed\u00f0 sem var rau\u00f0birkinn, fagureygur og vel vaxinn. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn: \u201eStattu upp og smyr\u00f0u hann \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feetta er hann.\u201c<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Sam\u00fael t\u00f3k \u00fe\u00e1 ol\u00eduhorni\u00f0 og smur\u00f0i hann a\u00f0 br\u00e6\u00f0rum hans vi\u00f0st\u00f6ddum. Andi Drottins kom yfir Dav\u00ed\u00f0 fr\u00e1 \u00feessum degi. En Sam\u00fael h\u00e9lt af sta\u00f0 og f\u00f3r til Rama.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Dav\u00ed\u00f0 vi\u00f0 hir\u00f0 S\u00e1ls<\/h3>\n<p><a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Andi Drottins haf\u00f0i \u00fe\u00e1 yfirgefi\u00f0 S\u00e1l en illur andi fr\u00e1 Drottni var tekinn a\u00f0 \u00fejaka hann. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00dej\u00f3nar S\u00e1ls s\u00f6g\u00f0u \u00fe\u00e1 vi\u00f0 hann: \u201e\u00dea\u00f0 er illur andi fr\u00e1 Gu\u00f0i sem s\u00edfellt \u00fejakar \u00feig. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Herra okkar \u00fearf ekki anna\u00f0 en nefna \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 skulu \u00fej\u00f3nar \u00fe\u00ednir, sem b\u00ed\u00f0a frammi fyrir \u00fe\u00e9r, leita a\u00f0 einhverjum sem kann a\u00f0 leika \u00e1 h\u00f6rpu. Hann getur leiki\u00f0 \u00e1 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri\u00f0 og \u00fe\u00e1 l\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e9r betur \u00feegar illi andinn fr\u00e1 Gu\u00f0i kemur yfir \u00feig.\u201c<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> S\u00e1l sag\u00f0i \u00fe\u00e1 vi\u00f0 \u00fej\u00f3na s\u00edna: \u201eFinni\u00f0 fyrir mig mann, sem leikur vel \u00e1 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri, og komi\u00f0 me\u00f0 hann til m\u00edn.\u201c <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 svara\u00f0i einn \u00fej\u00f3nanna og sag\u00f0i: \u201e\u00c9g \u00feekki son \u00cdsa\u00ed fr\u00e1 Betlehem sem kann a\u00f0 leika \u00e1 hlj\u00f3\u00f0f\u00e6ri. Auk \u00feess er hann hraustmenni og g\u00f3\u00f0ur herma\u00f0ur. Hann er vel m\u00e1li farinn og vel vaxinn og Drottinn er me\u00f0 honum.\u201c<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00e1 ger\u00f0i S\u00e1l menn \u00e1 fund \u00cdsa\u00ed me\u00f0 \u00feessi skilabo\u00f0: \u201eSendu Dav\u00ed\u00f0, son \u00feinn, sem g\u00e6tir fj\u00e1rins, til m\u00edn.\u201c <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00cdsa\u00ed s\u00f3tti \u00fe\u00e1 asna, lag\u00f0i \u00e1 hann brau\u00f0, v\u00ednbelg og ki\u00f0ling og sendi \u00fea\u00f0 me\u00f0 Dav\u00ed\u00f0, syni s\u00ednum, til S\u00e1ls. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deannig kom Dav\u00ed\u00f0 til S\u00e1ls og gekk \u00ed \u00fej\u00f3nustu hans. S\u00e1l f\u00e9ll mj\u00f6g vel vi\u00f0 hann og var\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 skjaldsveinn hans. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> S\u00e1l sendi \u00fev\u00ed skilabo\u00f0 til \u00cdsa\u00ed: \u201eDav\u00ed\u00f0 \u00e1 a\u00f0 vera \u00e1fram \u00ed \u00fej\u00f3nustu minni \u00fev\u00ed a\u00f0 m\u00e9r fellur hann vel \u00ed ge\u00f0.\u201c <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Alltaf \u00feegar illi andinn fr\u00e1 Gu\u00f0i kom yfir S\u00e1l t\u00f3k Dav\u00ed\u00f0 h\u00f6rpuna og l\u00e9k \u00e1 hana. \u00de\u00e1 l\u00e9tti S\u00e1l og honum lei\u00f0 betur og illi andinn yfirgaf hann. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00e1l og Dav\u00ed\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 smur\u00f0ur til konungs 1 Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 Sam\u00fael: \u201eHversu lengi \u00e6tlar\u00f0u a\u00f0 vera sorgm\u00e6ddur vegna S\u00e1ls? \u00c9g hef hafna\u00f0 honum sem konungi yfir \u00cdsrael. Fylltu horn \u00feitt af ol\u00edu og haltu af sta\u00f0. \u00c9g sendi \u00feig til \u00cdsa\u00ed fr\u00e1 Betlehem \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef vali\u00f0 m\u00e9r einn af sonum hans til a\u00f0 ver\u00f0a konungur.\u201c 2 Sam\u00fael svara\u00f0i: \u201eHvernig get \u00e9g fari\u00f0 \u00feanga\u00f0? S\u00e1l drepur mig ef hann fr\u00e9ttir \u00feetta.\u201c \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn: \u201eTaktu me\u00f0 \u00fe\u00e9r kv\u00edgu og seg\u00f0u: \u00c9g er kominn til a\u00f0 f\u00e6ra Drottni f\u00f3rn. 3 S\u00ed\u00f0an skaltu bj\u00f3\u00f0a \u00cdsa\u00ed til f\u00f3rnarveislunnar og \u00e9g mun <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1869","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1869","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1869"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1869\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1869"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}