{"id":1863,"date":"2017-12-30T21:00:45","date_gmt":"2017-12-30T21:00:45","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-sam%c2%9celsb%c2%97k-10-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:28:57","modified_gmt":"2024-02-06T18:28:57","slug":"fyrri-samuelsbok-10-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-10-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri Sam\u00faelsb\u00f3k 10. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> S\u00e1l smur\u00f0ur til konungs<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st t\u00f3k Sam\u00fael ol\u00edukr\u00fas s\u00edna og hellti yfir h\u00f6fu\u00f0 hans, kyssti hann og sag\u00f0i: \u201eDrottinn smyr \u00feig n\u00fa til h\u00f6f\u00f0ingja yfir arfleif\u00f0 s\u00edna. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Eftir a\u00f0 \u00fe\u00fa ert farinn fr\u00e1 m\u00e9r muntu m\u00e6ta tveimur m\u00f6nnum vi\u00f0 gr\u00f6f Rakelar \u00ed Selsa \u00ed landi Benjam\u00edns. \u00deeir munu segja vi\u00f0 \u00feig: \u00d6snurnar, sem \u00fe\u00fa f\u00f3rst a\u00f0 leita a\u00f0, eru fundnar og fa\u00f0ir \u00feinn \u00fev\u00ed h\u00e6ttur a\u00f0 hugsa um \u00fe\u00e6r en hann hefur \u00e1hyggjur af ykkur og spyr: Hvernig get \u00e9g fundi\u00f0 son minn? <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa heldur \u00e1fram \u00fea\u00f0an og kemur a\u00f0 Taboreikinni muntu m\u00e6ta \u00feremur m\u00f6nnum sem eru \u00e1 lei\u00f0 til Betel a\u00f0 \u00fej\u00f3na Gu\u00f0i. Einn \u00feeirra ber \u00ferj\u00e1 ki\u00f0linga, annar \u00ferj\u00fa brau\u00f0 og s\u00e1 \u00feri\u00f0ji v\u00ednbelg. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deeir heilsa \u00fe\u00e9r og gefa \u00fe\u00e9r tv\u00f6 brau\u00f0 sem \u00fe\u00fa skalt \u00feiggja. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st kemur\u00f0u til G\u00edbeu Gu\u00f0s \u00fear sem landstj\u00f3ri Filistea b\u00fdr. \u00deegar \u00fe\u00fa kemur inn \u00ed borgina muntu m\u00e6ta h\u00f3pi sp\u00e1manna sem eru a\u00f0 koma ni\u00f0ur af f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0inni. Fyrir \u00feeim fara hlj\u00f3\u00f0f\u00e6raleikarar sem leika \u00e1 h\u00f6rpu, trumbu, flautu og s\u00edtar en sp\u00e1mennirnir eru \u00ed gu\u00f0m\u00f3\u00f0i. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00de\u00e1 mun andi Gu\u00f0s koma skyndilega yfir \u00feig svo a\u00f0 \u00fe\u00fa munt komast \u00ed sp\u00e1mannlegan gu\u00f0m\u00f3\u00f0 \u00e1samt \u00feeim og ver\u00f0a allur annar ma\u00f0ur. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa ver\u00f0ur var vi\u00f0 \u00feessi t\u00e1kn skaltu gera \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00e9r kemur fyrst \u00ed hug \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 er me\u00f0 \u00fe\u00e9r. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skaltu fara \u00e1 undan m\u00e9r til Gilgal. \u00c9g kem \u00feanga\u00f0 \u00e1 eftir \u00fe\u00e9r til a\u00f0 f\u00e6ra brennif\u00f3rn og sl\u00e1tra heillaf\u00f3rninni. \u00de\u00fa skalt b\u00ed\u00f0a \u00ed sj\u00f6 daga \u00fear til \u00e9g kem til \u00fe\u00edn. \u00de\u00e1 skal \u00e9g segja \u00fe\u00e9r hva\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt a\u00f0 gera.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deegar S\u00e1l sneri vi\u00f0 og yfirgaf Sam\u00fael breytti Gu\u00f0 hugarfari hans. \u00d6ll \u00feessi t\u00e1kn komu fram \u00feennan dag.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar S\u00e1l og vinnuma\u00f0ur hans komu til G\u00edbeu kom h\u00f3pur sp\u00e1manna skyndilega \u00e1 m\u00f3ti honum. Andi Gu\u00f0s hreif hann og \u00e1 hann rann sp\u00e1mannlegur gu\u00f0m\u00f3\u00f0ur mitt \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deegar \u00feeir sem \u00feekktu hann s\u00e1u a\u00f0 hann var \u00ed gu\u00f0m\u00f3\u00f0i \u00ed sp\u00e1mannah\u00f3pnum undru\u00f0ust \u00feeir og s\u00f6g\u00f0u: \u201eHva\u00f0 hefur komi\u00f0 fyrir son K\u00edss? Er S\u00e1l einnig me\u00f0al sp\u00e1mannanna?\u201c <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Og ma\u00f0ur nokkur \u00fea\u00f0an \u00far borginni spur\u00f0i: \u201eHver er fa\u00f0ir \u00feeirra?\u201c \u00deannig var\u00f0 m\u00e1lt\u00e6ki\u00f0 til: \u201eEr S\u00e1l einnig me\u00f0al sp\u00e1mannanna?\u201c <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deegar gu\u00f0m\u00f3\u00f0urinn rann af honum f\u00f3r hann heim til s\u00edn.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> F\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir S\u00e1ls spur\u00f0i hann og vinnumann hans hvar \u00feeir hef\u00f0u veri\u00f0 og S\u00e1l svara\u00f0i: \u201eVi\u00f0 f\u00f3rum a\u00f0 leita a\u00f0 \u00f6snunum. En \u00feegar vi\u00f0 fundum \u00fe\u00e6r hvergi f\u00f3rum vi\u00f0 til Sam\u00faels.\u201c <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ir S\u00e1ls: \u201eSeg\u00f0u m\u00e9r hva\u00f0 Sam\u00fael sag\u00f0i vi\u00f0 ykkur.\u201c <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> S\u00e1l svara\u00f0i f\u00f6\u00f0urbr\u00f3\u00f0ur s\u00ednum: \u201eHann sag\u00f0i okkur a\u00f0 \u00f6snurnar v\u00e6ru fundnar.\u201c En hann sag\u00f0i honum ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem Sam\u00fael haf\u00f0i sagt um konungd\u00e6mi\u00f0. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Konungskj\u00f6ri\u00f0 \u00ed Mispa<\/h3>\n<p><a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Sam\u00fael stefndi \u00fej\u00f3\u00f0inni saman til Drottins \u00ed Mispa <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn: \u201eSvo segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels: \u00dea\u00f0 er \u00e9g sem leiddi \u00cdsrael fr\u00e1 Egyptalandi. \u00c9g frelsa\u00f0i ykkur \u00far h\u00f6ndum Egypta og allra \u00feeirra konungsr\u00edkja sem hafa k\u00faga\u00f0 ykkur. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> En \u00ed dag hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 hafna\u00f0 Gu\u00f0i ykkar, honum sem hefur frelsa\u00f0 ykkur fr\u00e1 s\u00e9rhverju b\u00f6li og \u00far \u00f6llum \u00ferengingum ykkar. N\u00fa segi\u00f0 \u00fei\u00f0 vi\u00f0 hann: \u00de\u00fa skalt setja konung yfir okkur. Gangi\u00f0 n\u00fa fram fyrir auglit Drottins eftir \u00e6ttb\u00e1lkum ykkar og \u00e6ttum.\u201c<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an l\u00e9t Sam\u00fael alla \u00e6ttb\u00e1lka \u00cdsraels ganga fram og kom \u00fe\u00e1 upp hlutur \u00e6ttb\u00e1lks Benjam\u00edns. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t hann \u00e6ttb\u00e1lk Benjam\u00edns ganga fram, \u00e6tt fyrir \u00e6tt, og kom \u00fe\u00e1 upp hlutur Matr\u00eds \u00e6ttar og loks S\u00e1ls K\u00edssonar. Hans var \u00fe\u00e1 leita\u00f0 en hann fannst ekki. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 spur\u00f0u \u00feeir Drottin aftur: \u201eEr ma\u00f0urinn h\u00e9r?\u201c Drottinn svara\u00f0i: \u201eJ\u00e1, en hann hefur fali\u00f0 sig hj\u00e1 farangrinum.\u201c <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00de\u00e1 hlupu \u00feeir til og s\u00f3ttu S\u00e1l og \u00feegar hann st\u00f3\u00f0 mitt \u00e1 me\u00f0al f\u00f3lksins reyndist hann vera h\u00f6f\u00f0inu h\u00e6rri en allir a\u00f0rir. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Sam\u00fael sag\u00f0i \u00fe\u00e1 vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0: \u201eSj\u00e1i\u00f0 \u00feann sem Drottinn hefur vali\u00f0 s\u00e9r. Hann \u00e1 s\u00e9r engan l\u00edka me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0arinnar.\u201c Allt f\u00f3lki\u00f0 hyllti hann og hr\u00f3pa\u00f0i: \u201eLifi konungurinn!\u201c<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an kunngj\u00f6r\u00f0i Sam\u00fael konungsl\u00f6gin og skr\u00e1\u00f0i \u00feau \u00ed b\u00f3k sem hann lag\u00f0i fram fyrir auglit Drottins. \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t Sam\u00fael f\u00f3lki\u00f0 fara til s\u00edns heima. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> S\u00e1l f\u00f3r einnig heim til G\u00edbeu og fylgdu honum nokkrir kappar. Gu\u00f0 haf\u00f0i snorti\u00f0 hjarta \u00feeirra. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> En nokkrir \u00f3nytjungar s\u00f6g\u00f0u: \u201eHva\u00f0 \u00e6tli hann geti hj\u00e1lpa\u00f0 okkur?\u201c Og \u00feeir s\u00fdndu honum fyrirlitningu me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 f\u00e6ra honum ekki gjafir en hann l\u00e9t sem ekkert v\u00e6ri. <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00e1l smur\u00f0ur til konungs 1 \u00dev\u00ed n\u00e6st t\u00f3k Sam\u00fael ol\u00edukr\u00fas s\u00edna og hellti yfir h\u00f6fu\u00f0 hans, kyssti hann og sag\u00f0i: \u201eDrottinn smyr \u00feig n\u00fa til h\u00f6f\u00f0ingja yfir arfleif\u00f0 s\u00edna. 2 Eftir a\u00f0 \u00fe\u00fa ert farinn fr\u00e1 m\u00e9r muntu m\u00e6ta tveimur m\u00f6nnum vi\u00f0 gr\u00f6f Rakelar \u00ed Selsa \u00ed landi Benjam\u00edns. \u00deeir munu segja vi\u00f0 \u00feig: \u00d6snurnar, sem \u00fe\u00fa f\u00f3rst a\u00f0 leita a\u00f0, eru fundnar og fa\u00f0ir \u00feinn \u00fev\u00ed h\u00e6ttur a\u00f0 hugsa um \u00fe\u00e6r en hann hefur \u00e1hyggjur af ykkur og spyr: Hvernig get \u00e9g fundi\u00f0 son minn? 3 \u00deegar \u00fe\u00fa heldur \u00e1fram \u00fea\u00f0an og kemur a\u00f0 Taboreikinni muntu m\u00e6ta \u00feremur m\u00f6nnum <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-10-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1863","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1863","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1863"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1863\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1863"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}