{"id":1855,"date":"2017-12-30T21:00:40","date_gmt":"2017-12-30T21:00:40","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-sam%c2%9celsb%c2%97k-2-kafli\/"},"modified":"2024-02-06T18:29:03","modified_gmt":"2024-02-06T18:29:03","slug":"fyrri-samuelsbok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-2-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri Sam\u00faelsb\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Lofs\u00f6ngur H\u00f6nnu<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Hanna ba\u00f0 og sag\u00f0i: <br \/> <span class=\"ljodatexti\"> Hjarta mitt fagnar \u00ed Drottni. <br \/>Horn mitt <span class=\"nedan_mal\" title=\" Horni\u00f0 er t\u00e1kn styrkleika og merkingin \u00fev\u00ed: Drottinn hefur styrkt mig.\">[<\/span> er upphafi\u00f0 af Drottni. <br \/>\u00c9g hl\u00e6 a\u00f0 fjandm\u00f6nnum m\u00ednum <span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00d6nnur hugsanleg \u00fe\u00fd\u00f0ing: \u00c9g tala djarflega vi\u00f0 fjandmenn m\u00edna.\">[<\/span> <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g gle\u00f0st yfir hj\u00e1lp \u00feinni. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_ljod\">2<\/span><\/a>Enginn er heilagur sem Drottinn, <br \/>enginn er til nema \u00fe\u00fa, <br \/>enginn er klettur sem Gu\u00f0 vor. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_ljod\">3<\/span><\/a>Hreyki\u00f0 y\u00f0ur ekki \u00ed or\u00f0um,<br \/>sleppi\u00f0 engum st\u00f3ryr\u00f0um af v\u00f6rum<br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn er vitur Gu\u00f0, <br \/>hann metur verkin. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_ljod\">4<\/span><\/a>Bogi kappanna er brotinn <br \/>en \u00f6rmagna menn gyr\u00f0ast styrkleika. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_ljod\">5<\/span><\/a>Saddir selja sig fyrir brau\u00f0 <br \/>en hungra\u00f0ir \u00feurfa \u00feess ekki. <br \/>\u00d3byrja elur sj\u00f6 b\u00f6rn <br \/>en barnm\u00f6rg m\u00f3\u00f0ir visnar.<br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_ljod\">6<\/span><\/a>Drottinn dey\u00f0ir og l\u00edfgar, <br \/>sendir menn til heljar<br \/>og lei\u00f0ir \u00fe\u00e1 upp \u00fea\u00f0an.<br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_ljod\">7<\/span><\/a>Drottinn sviptir menn eigum og au\u00f0gar \u00fe\u00e1, <br \/>hann ni\u00f0url\u00e6gir og upphefur. <br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_ljod\">8<\/span><\/a>Hann lyftir hinum auma \u00far duftinu <br \/>og hefur hinn snau\u00f0a \u00far skarninu, <br \/>lei\u00f0ir hann til s\u00e6tis hj\u00e1 h\u00f6f\u00f0ingjum <br \/>og skipar honum \u00ed \u00f6ndvegi.<br \/>Sto\u00f0ir jar\u00f0ar eru eign Drottins,<br \/>\u00e1 \u00feeim reisti hann heiminn.<br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_ljod\">9<\/span><\/a>Hann ver f\u00e6tur sinna r\u00e9ttl\u00e1tu <br \/>en rangl\u00e1tir \u00feagna \u00ed myrkrinu <br \/>\u00fev\u00ed a\u00f0 enginn er m\u00e1ttugur af eigin afli.<br \/> <\/span> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_ljod\">10<\/span><\/a>Drottinn kremur \u00fe\u00e1 sem r\u00edsa gegn honum, <br \/>Hinn h\u00e6sti sendir \u00ferumur af himni gegn \u00feeim. <br \/>Drottinn d\u00e6mir alla j\u00f6r\u00f0ina. <br \/>Hann eflir konung sinn a\u00f0 m\u00e6tti<br \/>og hefur upp horn s\u00edns smur\u00f0a. <\/span> <br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Elkana sneri aftur heim til Rama en drengurinn var\u00f0 eftir og \u00fej\u00f3na\u00f0i Drottni undir handlei\u00f0slu El\u00ed prests. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Synir El\u00ed<\/h3>\n<p><a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Synir El\u00ed voru \u00ferj\u00f3tar og skeyttu ekki um Drottin.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Prestarnir breyttu \u00feannig vi\u00f0 almenning a\u00f0 \u00ed hvert sinn sem einhver f\u00e6r\u00f0i sl\u00e1turf\u00f3rn og kj\u00f6ti\u00f0 f\u00f3r a\u00f0 sj\u00f3\u00f0a, kom \u00fej\u00f3nn prestsins me\u00f0 \u00fer\u00edtenntan gaffal \u00ed hendi. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Hann stakk gafflinum ofan \u00ed pottinn, ketilinn, keri\u00f0 e\u00f0a kirnuna og allt, sem upp kom \u00e1 gafflinum, t\u00f3k presturinn handa sj\u00e1lfum s\u00e9r. \u00deannig f\u00f3rst \u00feeim vi\u00f0 alla \u00cdsraelsmenn sem komu til S\u00edl\u00f3. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Jafnvel \u00e1\u00f0ur en fitan haf\u00f0i veri\u00f0 brennd kom \u00fej\u00f3nn prestsins og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00feann sem var a\u00f0 f\u00e6ra sl\u00e1turf\u00f3rn: \u201eGef\u00f0u prestinum kj\u00f6t til a\u00f0 steikja. Hann vill ekki so\u00f0i\u00f0 kj\u00f6t heldur hr\u00e1tt.\u201c <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Ef ma\u00f0urinn svara\u00f0i: \u201eFyrst ver\u00f0ur \u00fe\u00f3 a\u00f0 brenna fituna og s\u00ed\u00f0an getur\u00f0u teki\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00fe\u00fa vilt,\u201c \u00fe\u00e1 sag\u00f0i \u00fej\u00f3nninn: \u201eNei, l\u00e1ttu mig f\u00e1 \u00fea\u00f0 strax, annars tek \u00e9g \u00fea\u00f0 me\u00f0 valdi.\u201c<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Synd \u00feessara ungu manna frammi fyrir augliti Drottins var mj\u00f6g mikil \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir l\u00edtilsvirtu f\u00f3rn Drottins. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Sam\u00fael \u00ed helgid\u00f3minum<\/h3>\n<p><a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt Sam\u00fael v\u00e6ri ungur a\u00f0 \u00e1rum \u00fej\u00f3na\u00f0i hann frammi fyrir augliti Drottins, kl\u00e6ddur l\u00ednh\u00f6kli.<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00cd hebreska textanum stendur \u201eef\u00f3\u00f0\u201c en merking or\u00f0sins er \u00f3lj\u00f3s.\">[<\/span> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deegar m\u00f3\u00f0ir hans f\u00f3r upp eftir me\u00f0 manni s\u00ednum til a\u00f0 f\u00e6ra hina \u00e1rlegu sl\u00e1turf\u00f3rn ger\u00f0i h\u00fan jafnan litla yfirh\u00f6fn og f\u00e6r\u00f0i honum. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> El\u00ed blessa\u00f0i \u00fe\u00e1 Elkana og konu hans og sag\u00f0i: \u201eDrottinn gefi \u00fe\u00e9r barn me\u00f0 \u00feessari konu \u00ed sta\u00f0 \u00feess sem Drottinn ba\u00f0 um og h\u00fan gaf honum.\u201c<br \/>S\u00ed\u00f0an f\u00f3ru \u00feau heim <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> og Drottinn var H\u00f6nnu n\u00e1\u00f0ugur. H\u00fan var\u00f0 \u00feungu\u00f0 og f\u00e6ddi \u00ferj\u00e1 syni og tv\u00e6r d\u00e6tur. En sveinninn Sam\u00fael \u00f3x upp hj\u00e1 Drottni. <\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">D\u00f3mur yfir \u00e6tt El\u00ed<\/h3>\n<p><a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> El\u00ed ger\u00f0ist n\u00fa mj\u00f6g gamall. \u00deegar hann fr\u00e9tti hvernig synir hans breyttu vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn og a\u00f0 \u00feeir leg\u00f0ust me\u00f0 konunum, sem unnu vi\u00f0 inngang samfundatjaldsins, spur\u00f0i hann: <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u201eHvers vegna heg\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0 ykkur svona? \u00c9g heyri hvarvetna tala\u00f0 um illvirki ykkar. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> L\u00e1ti\u00f0 af \u00feessu, synir m\u00ednir. \u00dea\u00f0 er ekki fallegt sem \u00e9g heyri \u00fej\u00f3\u00f0 Drottins brei\u00f0a \u00fat um ykkur. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Brj\u00f3ti ma\u00f0ur af s\u00e9r gegn \u00f6\u00f0rum manni getur Gu\u00f0 skori\u00f0 \u00far en brj\u00f3ti ma\u00f0ur af s\u00e9r gegn Gu\u00f0i, hver er \u00fe\u00e1 f\u00e6r um a\u00f0 \u00farskur\u00f0a?\u201c En \u00feeir hlustu\u00f0u ekki \u00e1 f\u00f6\u00f0ur sinn \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn vildi dey\u00f0a \u00fe\u00e1.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> En sveinninn Sam\u00fael \u00f3x og dafna\u00f0i og var \u00feekkur b\u00e6\u00f0i Gu\u00f0i og m\u00f6nnum. <br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kom gu\u00f0sma\u00f0ur nokkur til El\u00ed og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: \u201eSvo segir Drottinn: Opinbera\u00f0i \u00e9g mig ekki fyrir \u00e6ttm\u00f6nnum f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns \u00feegar \u00feeir voru \u00fer\u00e6lar fj\u00f6lskyldu fara\u00f3s \u00ed Egyptalandi? <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dar \u00f6llum \u00e6ttb\u00e1lkum \u00cdsraels valdi \u00e9g m\u00e9r \u00e6tt f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns a\u00f0 prestum til a\u00f0 standa vi\u00f0 altari mitt, brenna reykelsi og bera h\u00f6kul frammi fyrir augliti m\u00ednu. \u00c9g f\u00f3l einnig \u00e6tt f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns allar eldf\u00f3rnir \u00cdsraelsmanna. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Hvers vegna tro\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0 f\u00f3tum sl\u00e1turf\u00f3rnir m\u00ednar og kornf\u00f3rnir sem \u00e9g hef fyrirskipa\u00f0? Hvers vegna metur \u00fe\u00fa syni \u00fe\u00edna meira en mig og svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 fiti\u00f0 ykkur \u00e1 \u00fev\u00ed besta af f\u00f3rnum \u00feeim sem \u00cdsrael, \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edn, f\u00e6rir? <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deess vegna segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels: \u00c9g hef \u00e1\u00f0ur sagt a\u00f0 \u00e6tt \u00fe\u00edn og f\u00f6\u00f0ur \u00fe\u00edns skuli \u00e6vinlega gegna \u00fej\u00f3nustu fyrir augliti m\u00ednu. En n\u00fa segir Drottinn: \u00dea\u00f0 s\u00e9 fjarri m\u00e9r. \u00c9g hei\u00f0ra \u00fe\u00e1 eina sem hei\u00f0ra mig og \u00feeir sem fyrirl\u00edta mig munu til skammar ver\u00f0a. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> S\u00e1 t\u00edmi kemur a\u00f0 \u00e9g mun binda enda \u00e1 styrkleika \u00feinn og ey\u00f0a m\u00e6tti fj\u00f6lskyldu \u00feinnar svo a\u00f0 enginn ver\u00f0i gamall \u00ed \u00e6tt \u00feinni. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00de\u00fa munt horfa \u00f6fundaraugum \u00e1 allt hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem Drottinn mun veita \u00cdsrael en \u00ed \u00e6tt \u00feinni skal enginn ver\u00f0a gamall. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> A\u00f0eins einum af \u00e6tt \u00feinni mun \u00e9g ekki \u00fatr\u00fdma fr\u00e1 altari m\u00ednu. En \u00e9g mun blinda augu \u00fe\u00edn og svipta \u00feig l\u00edfskrafti \u00fe\u00ednum. Allir a\u00f0rir af \u00e6tt \u00feinni munu deyja \u00ed bl\u00f3ma l\u00edfs s\u00edns. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 sem kemur fyrir syni \u00fe\u00edna, Hofn\u00ed og P\u00ednehas, skal ver\u00f0a \u00fe\u00e9r t\u00e1kn. \u00deeir munu b\u00e1\u00f0ir deyja sama dag. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> En \u00e9g mun setja tr\u00faan prest \u00ed emb\u00e6tti. Hann mun fara a\u00f0 vilja m\u00ednum og \u00f3skum. \u00c9g mun festa \u00e6tt hans \u00ed sessi og hann mun \u00e6vinlega gegna \u00fej\u00f3nustu frammi fyrir augliti m\u00edns smur\u00f0a. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu allir, sem eftir eru af \u00e6tt \u00feinni, koma og l\u00fata honum, bi\u00f0ja um skilding e\u00f0a brau\u00f0hleif og segja: Komdu m\u00e9r a\u00f0 \u00ed einhverjum prestaflokknum svo a\u00f0 \u00e9g f\u00e1i brau\u00f0bita a\u00f0 bor\u00f0a.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Lofs\u00f6ngur H\u00f6nnu 1 Hanna ba\u00f0 og sag\u00f0i: Hjarta mitt fagnar \u00ed Drottni. Horn mitt [ er upphafi\u00f0 af Drottni. \u00c9g hl\u00e6 a\u00f0 fjandm\u00f6nnum m\u00ednum [ \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g gle\u00f0st yfir hj\u00e1lp \u00feinni. 2Enginn er heilagur sem Drottinn, enginn er til nema \u00fe\u00fa, enginn er klettur sem Gu\u00f0 vor. 3Hreyki\u00f0 y\u00f0ur ekki \u00ed or\u00f0um,sleppi\u00f0 engum st\u00f3ryr\u00f0um af v\u00f6rum\u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn er vitur Gu\u00f0, hann metur verkin. 4Bogi kappanna er brotinn en \u00f6rmagna menn gyr\u00f0ast styrkleika. 5Saddir selja sig fyrir brau\u00f0 en hungra\u00f0ir \u00feurfa \u00feess ekki. \u00d3byrja elur sj\u00f6 b\u00f6rn en barnm\u00f6rg m\u00f3\u00f0ir visnar. 6Drottinn dey\u00f0ir og l\u00edfgar, sendir menn til heljarog <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fyrri-samuelsbok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1855","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1855","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1855"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1855\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1855"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}