{"id":1828,"date":"2017-12-30T21:00:35","date_gmt":"2017-12-30T21:00:35","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%97s%c2%9cab%c2%97k-24-kafli\/"},"modified":"2024-06-27T02:39:13","modified_gmt":"2024-06-27T02:39:13","slug":"josuabok-24-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-24-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 24. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> \u00deingi\u00f0 \u00ed S\u00edkem<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> N\u00fa stefndi J\u00f3s\u00faa \u00f6llum \u00e6ttb\u00e1lkum \u00cdsraels saman \u00ed S\u00edkem. Hann kvaddi til \u00f6ldunga \u00cdsraels, h\u00f6f\u00f0ingja hans, d\u00f3mara og emb\u00e6ttismenn og \u00feeir gengu fram fyrir auglit Gu\u00f0s.<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00e1 \u00e1varpa\u00f0i J\u00f3s\u00faa allt f\u00f3lki\u00f0:<br \/>\u201eSvo segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Fe\u00f0ur ykkar, \u00feeir Tara, fa\u00f0ir Abrahams og Nahors, bjuggu \u00ed fyrndinni handan vi\u00f0 Efrat og \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f3tti \u00e9g Abraham, forf\u00f6\u00f0ur ykkar, yfir um Efrat og leiddi hann um allt Kanaansland og gaf honum fj\u00f6lmarga ni\u00f0ja. \u00c9g gaf honum \u00cdsak <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> og \u00cdsak gaf \u00e9g Jakob og Esa\u00fa. \u00c9g f\u00e9kk Esa\u00fa Se\u00edrfjalllendi\u00f0 og hann t\u00f3k \u00fea\u00f0 til eignar en Jakob og synir hans f\u00f3ru su\u00f0ur til Egyptalands. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi \u00e9g M\u00f3se og Aron og \u00e9g laust Egyptaland me\u00f0 \u00fev\u00ed sem \u00e9g vann \u00fear og leiddi ykkur \u00fea\u00f0an. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deegar \u00e9g leiddi forfe\u00f0ur ykkar \u00fat \u00far Egyptalandi komu\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 hafinu. Egyptar veittu forfe\u00f0rum ykkar eftirf\u00f6r a\u00f0 Sefhafinu me\u00f0 herv\u00f6gnum og riddurum. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00de\u00e1 hr\u00f3pu\u00f0u forfe\u00f0ur ykkar til Drottins um hj\u00e1lp og hann lag\u00f0i sorta milli ykkar og Egyptanna og steypti hafinu yfir \u00fe\u00e1 svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 huldi \u00fe\u00e1. Me\u00f0 eigin augum s\u00e1u\u00f0 \u00fei\u00f0 hvernig \u00e9g f\u00f3r me\u00f0 Egypta. \u00dev\u00ed n\u00e6st dv\u00f6ldust \u00fei\u00f0 lengi \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> og \u00e9g leiddi ykkur til lands Amor\u00edta sem bjuggu handan J\u00f3rdanar. \u00deeir r\u00e9\u00f0ust \u00e1 ykkur en \u00e9g seldi \u00fe\u00e1 ykkur \u00ed hendur. \u00dei\u00f0 t\u00f3ku\u00f0 land \u00feeirra til eignar og \u00e9g tort\u00edmdi \u00feeim fyrir ykkur. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Balak Sipp\u00f3rsson M\u00f3abskonungur t\u00f3k \u00fe\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00cdsrael. Hann sendi eftir B\u00edleam Be\u00f3rssyni og kalla\u00f0i hann til s\u00edn til a\u00f0 b\u00f6lva ykkur. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En \u00e9g vildi ekki hlusta \u00e1 B\u00edleam en hann var\u00f0 a\u00f0 blessa ykkur og \u00e9g bjarga\u00f0i ykkur \u00far greipum hans. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00f3ru\u00f0 \u00fei\u00f0 yfir J\u00f3rdan og komu\u00f0 til Jer\u00edk\u00f3. H\u00f6f\u00f0ingjarnir \u00ed Jer\u00edk\u00f3 b\u00f6r\u00f0ust gegn ykkur, einnig Amor\u00edtar, Peres\u00edtar, Kanverjar, Het\u00edtar, G\u00edrgas\u00edtar, Hev\u00edtar og Jeb\u00fas\u00edtar, en \u00e9g seldi \u00fe\u00e1 ykkur \u00ed hendur. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00c9g sendi skelfingu \u00e1 undan ykkur sem hrakti Amor\u00edtakonungana b\u00e1\u00f0a \u00far vegi ykkar, en hvorki sver\u00f0 \u00feitt n\u00e9 bogi. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c9g f\u00e9kk ykkur land sem \u00fei\u00f0 h\u00f6f\u00f0u\u00f0 ekkert haft fyrir og borgir, sem \u00fei\u00f0 reistu\u00f0 ekki en hafi\u00f0 sest a\u00f0 \u00ed, \u00e9g gaf ykkur v\u00edngar\u00f0a og ol\u00eduvi\u00f0arlundi sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 ekki planta\u00f0 en lifi\u00f0 af. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00d3ttist \u00fev\u00ed Drottin og \u00fej\u00f3ni\u00f0 honum af fullkominni tr\u00famennsku. Kasti\u00f0 burt gu\u00f0unum sem forfe\u00f0ur ykkar \u00fej\u00f3nu\u00f0u handan vi\u00f0 Efrat og \u00ed Egyptalandi. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> En l\u00edki ykkur ekki<span class=\"nedan_mal\" title=\" Or\u00f0r\u00e9tt: s\u00e9 \u00fea\u00f0 rangt \u00ed ykkar augum.\">[<\/span> a\u00f0 \u00fej\u00f3na Drottni, kj\u00f3si\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00ed dag hverjum \u00fei\u00f0 vilji\u00f0 \u00fej\u00f3na, hvort heldur gu\u00f0unum sem forfe\u00f0ur ykkar \u00fej\u00f3nu\u00f0u handan Efrat e\u00f0a gu\u00f0um Amor\u00edta en \u00ed landi \u00feeirra b\u00fai\u00f0 \u00fei\u00f0 n\u00fa. En \u00e9g og m\u00ednir \u00e6ttmenn munum \u00fej\u00f3na Drottni.\u201c<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 svara\u00f0i og sag\u00f0i: \u201e\u00dea\u00f0 s\u00e9 fjarri okkur a\u00f0 yfirgefa Drottin til a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Drottinn er Gu\u00f0 okkar. Hann leiddi okkur og forfe\u00f0ur okkar fr\u00e1 Egyptalandi, \u00far \u00fer\u00e6lah\u00fasinu. \u00dea\u00f0 var hann sem ger\u00f0i \u00feessi miklu t\u00e1kn fyrir augum okkar. Hann vernda\u00f0i okkur \u00e1 allri \u00feeirri vegfer\u00f0, sem vi\u00f0 h\u00f6fum lagt a\u00f0 baki, og fyrir \u00f6llum \u00feeim \u00fej\u00f3\u00f0um sem lei\u00f0 okkar l\u00e1 me\u00f0al. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Og Drottinn r\u00fdmdi \u00far vegi okkar \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0unum, \u00feeirra \u00e1 me\u00f0al Amor\u00edtum sem bjuggu \u00ed landinu \u00e1 undan okkur. Vi\u00f0 munum einnig \u00fej\u00f3na Drottni \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er Gu\u00f0 okkar.\u201c<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i J\u00f3s\u00faa vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0: \u201e\u00dei\u00f0 geti\u00f0 ekki \u00fej\u00f3na\u00f0 Drottni. Hann er heilagur Gu\u00f0, vandl\u00e1tur Gu\u00f0. Hann mun ekki fyrirgefa ykkur afbrot ykkar og syndir. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 yfirgefi\u00f0 Drottin og \u00fej\u00f3ni\u00f0 framandi gu\u00f0um mun hann sn\u00faa baki vi\u00f0 ykkur og senda b\u00f6l yfir ykkur og tort\u00edma ykkur \u00fe\u00f3tt hann hafi \u00e1\u00f0ur reynst ykkur vel.\u201c<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 sag\u00f0i vi\u00f0 J\u00f3s\u00faa: \u201eNei, vi\u00f0 viljum \u00fej\u00f3na Drottni.\u201c<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i J\u00f3s\u00faa vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0: \u201e\u00dei\u00f0 eru\u00f0 vitni \u00feess gegn sj\u00e1lfum ykkur a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sj\u00e1lf kosi\u00f0 a\u00f0 \u00fej\u00f3na Drottni.\u201c<br \/>F\u00f3lki\u00f0 svara\u00f0i: \u201eJ\u00e1, vi\u00f0 erum vitni \u00feess.\u201c<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u201eKasti\u00f0 fr\u00e1 ykkur \u00feeim framandi gu\u00f0um sem enn eru \u00e1 me\u00f0al ykkar. Sn\u00fai\u00f0 hjarta ykkar til Drottins, Gu\u00f0s \u00cdsraels.\u201c<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 svara\u00f0i J\u00f3s\u00faa: \u201eVi\u00f0 viljum \u00fej\u00f3na Drottni, Gu\u00f0i okkar, og hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0um hans.\u201c<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00c1 \u00feeim degi ger\u00f0i J\u00f3s\u00faa s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 og setti \u00fev\u00ed l\u00f6g og r\u00e9tt \u00ed S\u00edkem. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> J\u00f3s\u00faa skr\u00e1\u00f0i \u00feessi \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00ed l\u00f6gb\u00f3k Gu\u00f0s. \u00dev\u00ed n\u00e6st t\u00f3k hann stein mikinn og reisti hann \u00fear upp undir eikinni sem er \u00ed helgid\u00f3mi Drottins. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an \u00e1varpa\u00f0i J\u00f3s\u00faa allt f\u00f3lki\u00f0: \u201e\u00deessi steinn skal vera vitni gegn okkur \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur heyrt \u00f6ll or\u00f0in sem Drottinn hefur tala\u00f0 til okkar. Hann skal vera vitni gegn ykkur svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 afneiti\u00f0 ekki Gu\u00f0i ykkar.\u201c<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an l\u00e9t J\u00f3s\u00faa f\u00f3lki\u00f0 fara, hvern til s\u00edns erf\u00f0alands.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Greftrun J\u00f3s\u00faa, J\u00f3sefs og Eleasars<\/h3>\n<p><a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Eftir \u00feessa atbur\u00f0i d\u00f3 J\u00f3s\u00faa N\u00fansson, \u00fej\u00f3nn Drottins, hundra\u00f0 og t\u00edu \u00e1ra. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Hann var grafinn \u00ed erf\u00f0alandi s\u00ednu, \u00ed Timnat Sera \u00ed fjalllendi Efra\u00edms, nor\u00f0an vi\u00f0 Gaasfjall. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00cdsrael \u00fej\u00f3na\u00f0i Drottni \u00e1 me\u00f0an J\u00f3s\u00faa var \u00e1 l\u00edfi og \u00feeir \u00f6ldungar sem lif\u00f0u J\u00f3s\u00faa og \u00feekktu \u00f6ll \u00feau m\u00e1ttarverk sem Drottinn haf\u00f0i unni\u00f0 fyrir \u00cdsrael.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Bein J\u00f3sefs, sem \u00cdsraelsmenn h\u00f6f\u00f0u flutt me\u00f0 s\u00e9r fr\u00e1 Egyptalandi, voru grafin \u00ed S\u00edkem \u00e1 landspildunni sem Jakob keypti fyrir hundra\u00f0 kes\u00edta af sonum Hemors, f\u00f6\u00f0ur S\u00edkems, og var\u00f0 erf\u00f0ahluti ni\u00f0ja J\u00f3sefs.<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Eleasar Aronsson d\u00f3 einnig og var grafinn \u00ed G\u00edbeu, borg sem P\u00ednehas sonur hans haf\u00f0i fengi\u00f0 \u00ed sinn hlut \u00ed Efra\u00edmsfjalllendinu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deingi\u00f0 \u00ed S\u00edkem 1 N\u00fa stefndi J\u00f3s\u00faa \u00f6llum \u00e6ttb\u00e1lkum \u00cdsraels saman \u00ed S\u00edkem. Hann kvaddi til \u00f6ldunga \u00cdsraels, h\u00f6f\u00f0ingja hans, d\u00f3mara og emb\u00e6ttismenn og \u00feeir gengu fram fyrir auglit Gu\u00f0s. 2 \u00de\u00e1 \u00e1varpa\u00f0i J\u00f3s\u00faa allt f\u00f3lki\u00f0:\u201eSvo segir Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels: Fe\u00f0ur ykkar, \u00feeir Tara, fa\u00f0ir Abrahams og Nahors, bjuggu \u00ed fyrndinni handan vi\u00f0 Efrat og \u00fej\u00f3nu\u00f0u \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um. 3 \u00de\u00e1 s\u00f3tti \u00e9g Abraham, forf\u00f6\u00f0ur ykkar, yfir um Efrat og leiddi hann um allt Kanaansland og gaf honum fj\u00f6lmarga ni\u00f0ja. \u00c9g gaf honum \u00cdsak 4 og \u00cdsak gaf \u00e9g Jakob og Esa\u00fa. \u00c9g f\u00e9kk Esa\u00fa Se\u00edrfjalllendi\u00f0 og hann t\u00f3k \u00fea\u00f0 til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-24-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1828","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1828","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1828"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1828\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1828"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}