{"id":1826,"date":"2017-12-30T21:00:35","date_gmt":"2017-12-30T21:00:35","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%97s%c2%9cab%c2%97k-22-kafli\/"},"modified":"2024-06-27T02:39:13","modified_gmt":"2024-06-27T02:39:13","slug":"josuabok-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-22-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 22. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00de\u00e1 kvaddi J\u00f3s\u00faa til s\u00edn ni\u00f0ja R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfan \u00e6ttb\u00e1lk Manasse <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201e\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 fylgt \u00f6llu, sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, lag\u00f0i fyrir ykkur. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 einnig hl\u00fdtt \u00f6llu sem \u00e9g bau\u00f0 ykkur. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Allan \u00feennan t\u00edma og allt til \u00feessa dags hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki brug\u00f0ist br\u00e6\u00f0rum ykkar. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 g\u00e6tt \u00feess a\u00f0 halda bo\u00f0 Drottins, Gu\u00f0s ykkar, \u00ed einu og \u00f6llu. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> En n\u00fa hefur Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, veitt br\u00e6\u00f0rum ykkar \u00f6ryggi og fri\u00f0, eins og hann haf\u00f0i heiti\u00f0 \u00feeim. Sn\u00fai\u00f0 \u00fev\u00ed aftur til tjalda ykkar, til ykkar eigin lands sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, f\u00e9kk ykkur handan J\u00f3rdanar. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En g\u00e6ti\u00f0 \u00feess vandlega a\u00f0 halda bo\u00f0 \u00fea\u00f0 og l\u00f6gm\u00e1l sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, lag\u00f0i fyrir ykkur, a\u00f0 elska Drottin, Gu\u00f0 ykkar, ganga \u00e1 \u00f6llum vegum hans, halda \u00f6ll bo\u00f0 hans, bindast honum og \u00fej\u00f3na af \u00f6llu hjarta og allri s\u00e1lu.\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> A\u00f0 svo m\u00e6ltu kvaddi J\u00f3s\u00faa \u00fe\u00e1, l\u00e9t \u00fe\u00e1 fara og h\u00e9ldu \u00feeir til tjalda sinna.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> M\u00f3se haf\u00f0i fengi\u00f0 \u00f6\u00f0rum helmingi Manasse\u00e6ttb\u00e1lks land \u00ed Basan en J\u00f3s\u00faa f\u00e9kk hinum helmingnum land hj\u00e1 br\u00e6\u00f0rum \u00feeirra vestan vi\u00f0 J\u00f3rdan. \u00deegar J\u00f3s\u00faa l\u00e9t \u00fe\u00e1 fara aftur til tjalda sinna og kvaddi \u00fe\u00e1, <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> sag\u00f0i hann: \u201eHverfi\u00f0 n\u00fa aftur heim til tjalda ykkar me\u00f0 mikinn au\u00f0, st\u00f3rar hjar\u00f0ir b\u00fafj\u00e1r, silfur og gull, eir, j\u00e1rn og miki\u00f0 af kl\u00e6\u00f0na\u00f0i. Skipti\u00f0 me\u00f0 br\u00e6\u00f0rum ykkar herfanginu sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 teki\u00f0 af fjandm\u00f6nnum ykkar.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Ni\u00f0jar R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfur \u00e6ttb\u00e1lkur Manasse h\u00e9ldu n\u00fa fr\u00e1 \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00ed S\u00edl\u00f3 \u00ed Kanaanslandi og f\u00f3ru til G\u00edlea\u00f0s, til s\u00edns eigin lands, sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u teki\u00f0 til eignar samkv\u00e6mt fyrirm\u00e6lum Drottins af munni M\u00f3se.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Altari vi\u00f0 J\u00f3rdan<\/h3>\n<p><a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar ni\u00f0jar R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfur \u00e6ttb\u00e1lkur Manasse komu a\u00f0 steinhringjunum vi\u00f0 J\u00f3rdan \u00ed Kanaanslandi reistu \u00feeir \u00fear altari vi\u00f0 J\u00f3rdan. Var \u00fea\u00f0 miki\u00f0 altari \u00e1 a\u00f0 l\u00edta. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00cdsraelsmenn fr\u00e9ttu a\u00f0 ni\u00f0jar R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfur \u00e6ttb\u00e1lkur Manasse hef\u00f0u reist altari vi\u00f0 landam\u00e6ri Kanaans, vi\u00f0 steinhringina n\u00e6rri J\u00f3rdan handan vi\u00f0 landsv\u00e6\u00f0i \u00cdsraelsmanna. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deegar \u00cdsraelsm\u00f6nnum barst \u00feetta til eyrna safna\u00f0ist allur s\u00f6fnu\u00f0ur \u00feeirra saman \u00ed S\u00edl\u00f3 til \u00feess a\u00f0 halda herv\u00e6ddur gegn \u00feeim.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an sendu \u00feeir P\u00ednehas, son Eleasars prests, til G\u00edlea\u00f0s til fundar vi\u00f0 ni\u00f0ja R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfan \u00e6ttb\u00e1lk Manasse. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Me\u00f0 honum f\u00f3ru t\u00edu h\u00f6f\u00f0ingjar, einn fyrir hverja fj\u00f6lskyldu, hvern \u00e6ttb\u00e1lk \u00cdsraels, en hver \u00feeirra var h\u00f6f\u00f0ingi sinnar \u00e6ttar me\u00f0al \u00fe\u00fasunda \u00cdsraels.<span class=\"nedan_mal\" title=\" Sennilega er h\u00e9r \u00e1tt vi\u00f0 \u00fe\u00fasund manna li\u00f0ssveitir.\">[<\/span> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deeir komu til ni\u00f0ja R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfs \u00e6ttb\u00e1lks Manasse \u00ed G\u00edlea\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u201eSvo segir allur s\u00f6fnu\u00f0ur Drottins: Hv\u00edl\u00edk svik eru \u00feetta? \u00cd dag hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 brug\u00f0ist Gu\u00f0i \u00cdsraels me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sn\u00faa baki vi\u00f0 Drottni. Me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reisa ykkur altari hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 n\u00fa \u00ed dag gert uppreisn gegn Drottni. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> N\u00e6gir ekki s\u00f6kin vi\u00f0 Pe\u00f3r? Enn \u00ed dag h\u00f6fum vi\u00f0 ekki hreinsa\u00f0 okkur af henni og s\u00f6kum hennar kom pl\u00e1ga yfir s\u00f6fnu\u00f0 Drottins. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> N\u00fa hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 samt horfi\u00f0 fr\u00e1 fylgd vi\u00f0 Drottin. Ef \u00fei\u00f0 r\u00edsi\u00f0 gegn Drottni \u00ed dag kemur rei\u00f0i hans yfir allan s\u00f6fnu\u00f0 \u00cdsraels \u00e1 morgun. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Ef landi\u00f0, sem \u00fei\u00f0 eigi\u00f0, er \u00f3hreint, komi\u00f0 \u00fe\u00e1 yfir til landsins sem er eign Drottins og \u00fear sem b\u00fasta\u00f0ur Drottins er og taki\u00f0 ykkur land \u00e1 me\u00f0al okkar. En r\u00edsi\u00f0 ekki gegn Drottni. Komi\u00f0 okkur ekki til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed uppreisn me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reisa anna\u00f0 altari en altari Drottins, Gu\u00f0s okkar. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deegar Akan Seraksson stal af herfanginu, sem var helga\u00f0 banni, kom \u00fe\u00e1 ekki rei\u00f0i Drottins yfir allan s\u00f6fnu\u00f0 \u00cdsraels? Og ekki var\u00f0 hann einn a\u00f0 deyja s\u00f6kum afbrots s\u00edns.\u201c<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sv\u00f6ru\u00f0u ni\u00f0jar R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfur \u00e6ttb\u00e1lkur Manasse og s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 foringja me\u00f0al \u00fe\u00fasunda \u00cdsraels: <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u201eDrottinn, Gu\u00f0 gu\u00f0anna, Drottinn, Gu\u00f0 gu\u00f0anna, veit og \u00cdsrael skal vita: Ef \u00feetta var uppreisn, ef \u00feetta voru svik vi\u00f0 Drottin, \u00fe\u00e1 skal hann ekki hj\u00e1lpa okkur \u00ed dag. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Drottinn mun sj\u00e1lfur kanna hvort vi\u00f0 h\u00f6fum reist okkur altari til \u00feess a\u00f0 hverfa fr\u00e1 fylgd vi\u00f0 Drottin<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00d6nnur hugsanleg \u00fe\u00fd\u00f0ing: Megi Drottinn hefna \u00feess ef vi\u00f0 h\u00f6fum reist altari \u2026\">[<\/span> e\u00f0a til \u00feess a\u00f0 f\u00e6ra \u00e1 \u00fev\u00ed brennif\u00f3rn, kornf\u00f3rn og sl\u00e1turf\u00f3rnir. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Nei, vi\u00f0 ger\u00f0um \u00feetta af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um af \u00fev\u00ed \u00e1hyggjur a\u00f0 einhvern t\u00edma kynnu ni\u00f0jar ykkar a\u00f0 spyrja ni\u00f0ja okkar: Hva\u00f0 kemur ykkur Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels, vi\u00f0? <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Drottinn hefur sett J\u00f3rdan sem landam\u00e6ri milli okkar og ykkar, ni\u00f0ja R\u00fabens og Ga\u00f0s. \u00dei\u00f0 eigi\u00f0 engan hlut \u00ed Drottni. \u00deannig geta ni\u00f0jar ykkar hindra\u00f0 okkur \u00ed a\u00f0 s\u00fdna Drottni lotningu. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00deess vegna hugsu\u00f0um vi\u00f0 me\u00f0 okkur: Vi\u00f0 skulum reisa altari en \u00fe\u00f3 hvorki fyrir brennif\u00f3rnir n\u00e9 sl\u00e1turf\u00f3rnir <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> heldur skal \u00fea\u00f0 vera vitni \u00feess fyrir okkur og ykkur og komandi kynsl\u00f3\u00f0ir a\u00f0 vi\u00f0 munum \u00fej\u00f3na Drottni eins og honum ber fyrir augliti hans, me\u00f0 brennif\u00f3rnum okkar, sl\u00e1turf\u00f3rnum og heillaf\u00f3rnum. \u00de\u00e1 munu ni\u00f0jar ykkar ekki segja vi\u00f0 ni\u00f0ja okkar \u00ed framt\u00ed\u00f0inni: \u00dei\u00f0 eigi\u00f0 engan hlut \u00ed Drottni. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Vi\u00f0 hugsu\u00f0um me\u00f0 okkur: Ef \u00feeir tala \u00feannig til okkar e\u00f0a ni\u00f0ja okkar \u00ed framt\u00ed\u00f0inni munum vi\u00f0 segja: L\u00edti\u00f0 \u00e1 eftirmynd altaris Drottins, sem fe\u00f0ur okkar ger\u00f0u, en hvorki til brennif\u00f3rna n\u00e9 sl\u00e1turf\u00f3rna heldur til vitnis fyrir okkur og ykkur. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Fjarri s\u00e9 okkur a\u00f0 r\u00edsa gegn Drottni og hverfa fr\u00e1 fylgd vi\u00f0 hann n\u00fa \u00ed dag, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 reisa okkur anna\u00f0 altari fyrir brennif\u00f3rnir, kornf\u00f3rnir og sl\u00e1turf\u00f3rnir en altari Drottins, Gu\u00f0s okkar, sem stendur frammi fyrir b\u00fasta\u00f0 hans.\u201c<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deegar P\u00ednehas prestur og h\u00f6f\u00f0ingjar safna\u00f0arins og h\u00f6f\u00f0ingjar \u00fe\u00fasunda \u00cdsraels, sem me\u00f0 honum voru, h\u00f6f\u00f0u hlusta\u00f0 \u00e1 r\u00e6\u00f0una, sem ni\u00f0jar R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfur \u00e6ttb\u00e1lkur Manasse h\u00f6f\u00f0u flutt, l\u00e9tu \u00feeir s\u00e9r vel l\u00edka. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st \u00e1varpa\u00f0i P\u00ednehas, sonur Eleasars prests, ni\u00f0ja R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfan \u00e6ttb\u00e1lk Manasse og sag\u00f0i: \u201eN\u00fa vitum vi\u00f0 a\u00f0 Drottinn er me\u00f0al okkar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 ekki brug\u00f0ist Drottni. \u00dear me\u00f0 hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 bjarga\u00f0 \u00cdsrael \u00far hendi Drottins.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sneru P\u00ednehas, sonur Eleasars prests, og h\u00f6f\u00f0ingjarnir fr\u00e1 ni\u00f0jum R\u00fabens og Ga\u00f0s \u00ed G\u00edlea\u00f0 og h\u00e9ldu heim til \u00cdsraelsmanna \u00ed Kanaanslandi og sk\u00fdr\u00f0u \u00feeim fr\u00e1 m\u00e1lalokum. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00cdsraelsmenn gl\u00f6ddust og lofu\u00f0u Gu\u00f0 og hugsu\u00f0u ekki framar til \u00feess a\u00f0 halda me\u00f0 herna\u00f0i gegn ni\u00f0jum R\u00fabens og Ga\u00f0s, til \u00feess a\u00f0 ey\u00f0a landi\u00f0 sem \u00feeir bjuggu \u00ed.<br \/> <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Ni\u00f0jar R\u00fabens og Ga\u00f0s nefndu altari\u00f0: \u201e\u00dea\u00f0 er vitni okkar um a\u00f0 Drottinn einn er Gu\u00f0.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1 \u00de\u00e1 kvaddi J\u00f3s\u00faa til s\u00edn ni\u00f0ja R\u00fabens og Ga\u00f0s og h\u00e1lfan \u00e6ttb\u00e1lk Manasse 2 og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201e\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 fylgt \u00f6llu, sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, lag\u00f0i fyrir ykkur. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 einnig hl\u00fdtt \u00f6llu sem \u00e9g bau\u00f0 ykkur. 3 Allan \u00feennan t\u00edma og allt til \u00feessa dags hafi\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki brug\u00f0ist br\u00e6\u00f0rum ykkar. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 g\u00e6tt \u00feess a\u00f0 halda bo\u00f0 Drottins, Gu\u00f0s ykkar, \u00ed einu og \u00f6llu. 4 En n\u00fa hefur Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, veitt br\u00e6\u00f0rum ykkar \u00f6ryggi og fri\u00f0, eins og hann haf\u00f0i heiti\u00f0 \u00feeim. Sn\u00fai\u00f0 \u00fev\u00ed aftur til tjalda ykkar, til ykkar eigin lands sem M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1826","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1826","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1826"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1826\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1826"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}