{"id":1812,"date":"2017-12-30T21:00:30","date_gmt":"2017-12-30T21:00:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%97s%c2%9cab%c2%97k-8-kafli\/"},"modified":"2024-06-27T02:39:15","modified_gmt":"2024-06-27T02:39:15","slug":"josuabok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-8-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> A\u00ed fellur<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 J\u00f3s\u00faa:<br \/>\u201e\u00d3ttastu ekki, l\u00e1t ekki hugfallast. Taktu allan herinn me\u00f0 \u00fe\u00e9r og haltu til A\u00ed. \u00c9g sel \u00fe\u00e9r konung A\u00ed \u00ed hendur, \u00fej\u00f3\u00f0 hans, borg og land. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt fara me\u00f0 A\u00ed og konung hennar eins og \u00fe\u00fa f\u00f3rst me\u00f0 Jer\u00edk\u00f3 og konung hennar. Samt megi\u00f0 \u00fei\u00f0 taka herfangi\u00f0 \u00far henni og f\u00e9na\u00f0 handa sj\u00e1lfum ykkur. L\u00e1ttu menn leggjast \u00ed launs\u00e1tur a\u00f0 baki borginni.\u201c<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00e1 h\u00e9lt J\u00f3s\u00faa og allur herinn upp til A\u00ed. J\u00f3s\u00faa valdi \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00fe\u00fasund reynda hermenn og sendi \u00fe\u00e1 af sta\u00f0 um n\u00f3ttina <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> og lag\u00f0i fyrir \u00fe\u00e1: \u201e\u00dei\u00f0 skulu\u00f0 leggjast \u00ed launs\u00e1tur \u00e1 bak vi\u00f0 borgina en samt ekki of langt fr\u00e1 henni og veri\u00f0 allir vi\u00f0b\u00fanir. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En \u00e9g og allt li\u00f0i\u00f0, sem me\u00f0 m\u00e9r er, mun halda gegn borginni. Ef borgarb\u00faar gera \u00fatr\u00e1s eins og \u00ed fyrra skipti\u00f0 munum vi\u00f0 fl\u00fdja undan \u00feeim. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00deeir munu veita okkur eftirf\u00f6r \u00fear til vi\u00f0 h\u00f6fum kr\u00f3a\u00f0 \u00fe\u00e1 af nokku\u00f0 fr\u00e1 borginni \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu hugsa me\u00f0 s\u00e9r: \u00deeir fl\u00fdja undan okkur eins og \u00ed fyrra skipti\u00f0. En \u00feegar vi\u00f0 erum lag\u00f0ir \u00e1 fl\u00f3tta undan \u00feeim <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e6kja fram \u00far launs\u00e1trinu og taka borgina. Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, mun selja ykkur borgina \u00ed hendur. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00deegar \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 teki\u00f0 borgina skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 leggja eld a\u00f0 henni. Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 bo\u00f0i Drottins. \u00dea\u00f0 b\u00fd\u00f0 \u00e9g ykkur.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an sendi J\u00f3s\u00faa \u00fe\u00e1 af sta\u00f0 og \u00feeir f\u00f3ru og l\u00f6g\u00f0ust \u00ed launs\u00e1tur vestan vi\u00f0 A\u00ed, \u00e1 milli Betel og A\u00ed. En J\u00f3s\u00faa dvaldist \u00feessa n\u00f3tt me\u00f0 f\u00f3lkinu.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Morguninn eftir var J\u00f3s\u00faa snemma \u00e1 f\u00f3tum. Hann kanna\u00f0i li\u00f0i\u00f0 og s\u00ed\u00f0an h\u00e9lt hann og \u00f6ldungar \u00cdsraels \u00ed broddi fylkingar upp til A\u00ed. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Allt herli\u00f0i\u00f0, sem var me\u00f0 honum, f\u00f3r upp eftir \u00ed \u00e1tt til borgarinnar og \u00fear til \u00feeir st\u00f3\u00f0u gegnt henni. \u00deeir settu herb\u00fa\u00f0ir s\u00ednar nor\u00f0an vi\u00f0 borgina en dalur var milli b\u00fa\u00f0anna og A\u00ed. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> J\u00f3s\u00faa valdi um fimm \u00fe\u00fasund menn og l\u00e9t \u00fe\u00e1 leggjast \u00ed launs\u00e1tur vestan vi\u00f0 A\u00ed, milli Betel og A\u00ed. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> F\u00f3lki\u00f0 haf\u00f0i sett upp b\u00fa\u00f0ir nor\u00f0an vi\u00f0 borgina og \u00ed launs\u00e1trinu vestan hennar. En J\u00f3s\u00faa dvaldist \u00ed dalnum um n\u00f3ttina.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deegar konungurinn \u00ed A\u00ed s\u00e1 \u00feetta hra\u00f0a\u00f0i hann s\u00e9r og allir borgarmenn me\u00f0 honum snemma morguns til a\u00f0 m\u00e6ta \u00cdsrael \u00ed bardaga \u00e1 tilteknum sta\u00f0 gegnt Arabasl\u00e9ttu.<span class=\"nedan_mal\" title=\" \u00de.e. J\u00f3rdanardal.\">[<\/span> En hann vissi ekki a\u00f0 honum haf\u00f0i veri\u00f0 gert launs\u00e1tur vestan vi\u00f0 borgina. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> J\u00f3s\u00faa og allur \u00cdsrael l\u00e9tu eins og \u00feeir hef\u00f0u veri\u00f0 ofurli\u00f0i bornir og fl\u00fd\u00f0u \u00ed \u00e1tt til ey\u00f0imerkurinnar.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Allir borgarb\u00faar voru \u00fe\u00e1 kalla\u00f0ir saman til \u00feess a\u00f0 reka fl\u00f3ttann. \u00deeir veittu J\u00f3s\u00faa eftirf\u00f6r og voru kr\u00f3a\u00f0ir af nokku\u00f0 fr\u00e1 borginni. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Allir sem eftir voru \u00ed A\u00ed og Betel h\u00e9ldu \u00e1 eftir \u00cdsrael. \u00deeir skildu borgina eftir opna og \u00f3var\u00f0a \u00e1 me\u00f0an \u00feeir eltu \u00cdsrael.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 J\u00f3s\u00faa:<br \/>\u201eR\u00e9ttu fram spj\u00f3ti\u00f0, sem er \u00ed hendi \u00feinni, \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 A\u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g sel \u00fe\u00e9r hana \u00ed hendur.\u201c<br \/>J\u00f3s\u00faa r\u00e9tti \u00fe\u00e1 fram spj\u00f3ti\u00f0, sem var \u00ed hendi hans, \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 borginni. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Um lei\u00f0 og hann r\u00e9tti \u00fat h\u00f6nd s\u00edna risu mennirnir, sem voru \u00ed launs\u00e1trinu, upp af sta\u00f0 s\u00ednum. \u00deeir \u00feustu fram og komust inn \u00ed borgina, unnu hana og l\u00f6g\u00f0u eld \u00ed hana umsvifalaust.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sneru A\u00edmenn s\u00e9r vi\u00f0 og s\u00e1u reykjarm\u00f6kk leggja upp af borginni til himins. En \u00feeir komust hvorki fram n\u00e9 aftur og \u00e1ttu enga undankomulei\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 li\u00f0i\u00f0, sem fl\u00fai\u00f0 haf\u00f0i \u00ed \u00e1tt til ey\u00f0imerkurinnar, sneri n\u00fa vi\u00f0 gegn \u00feeim sem r\u00e1ku fl\u00f3tta \u00feeirra.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deegar J\u00f3s\u00faa og allur \u00cdsrael s\u00e1u a\u00f0 launs\u00e1tursmennirnir h\u00f6f\u00f0u teki\u00f0 borgina og a\u00f0 reyk lag\u00f0i upp af henni sneru \u00feeir vi\u00f0 og t\u00f3ku a\u00f0 h\u00f6ggva A\u00edmenn. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00deeir h\u00f6f\u00f0u fari\u00f0 \u00fat \u00far borginni \u00e1 m\u00f3ti \u00cdsraelsm\u00f6nnum en lentu innan um \u00fe\u00e1, sumir h\u00e9r og a\u00f0rir \u00fear. \u00cdsraelsmenn hjuggu A\u00edmenn til s\u00ed\u00f0asta manns, enginn var\u00f0 eftir og enginn bjarga\u00f0i s\u00e9r \u00e1 fl\u00f3tta. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En \u00feeir gripu konunginn \u00ed A\u00ed lifandi og f\u00e6r\u00f0u J\u00f3s\u00faa hann.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00deegar \u00cdsraelsmenn h\u00f6f\u00f0u fellt alla \u00edb\u00faa A\u00ed \u00fati \u00e1 sl\u00e9ttunni og \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni \u00feanga\u00f0 sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u veitt \u00feeim eftirf\u00f6r, og allir sem einn voru fallnir fyrir sver\u00f0seggjum, sneru \u00cdsraelsmenn aftur til A\u00ed. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> T\u00f3lf \u00fe\u00fasund f\u00e9llu \u00feennan dag, karlar og konur, allir \u00edb\u00faar A\u00ed. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> En J\u00f3s\u00faa dr\u00f3 ekki a\u00f0 s\u00e9r h\u00f6ndina sem hann h\u00e9lt spj\u00f3tinu \u00ed fyrr en hann haf\u00f0i helga\u00f0 alla A\u00edmenn banni.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> En \u00cdsrael t\u00f3k b\u00faf\u00e9 og r\u00e1nsfeng eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 J\u00f3s\u00faa. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st brenndi J\u00f3s\u00faa A\u00ed<span class=\"nedan_mal\" title=\" A\u00ed merkir r\u00fast, ey\u00f0im\u00f6rk.\">[<\/span> og ger\u00f0i hana a\u00f0 \u00e6varandi grj\u00f3thaug, gereyddum sta\u00f0 eins og h\u00fan hefur veri\u00f0 allt til \u00feessa dags. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> En J\u00f3s\u00faa hengdi konung A\u00ed \u00ed tr\u00e9 og l\u00e9t hann hanga \u00fear til kv\u00f6lds. Um s\u00f3larlag skipa\u00f0i J\u00f3s\u00faa a\u00f0 taka l\u00edk hans ni\u00f0ur. Var \u00fev\u00ed fleygt \u00fat fyrir borgarhli\u00f0i\u00f0. \u00dev\u00ed n\u00e6st var ger\u00f0 mikil steindys yfir hann og er h\u00fan \u00fear enn \u00ed dag.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Altari reist \u00e1 Ebalfjalli<\/h3>\n<p><a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> J\u00f3s\u00faa reisti Drottni, Gu\u00f0i \u00cdsraels, altari \u00e1 Ebalfjalli. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 var \u00far \u00f3h\u00f6ggnum steinum sem ekkert j\u00e1rnverkf\u00e6ri haf\u00f0i snert, eins og M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, haf\u00f0i lagt fyrir \u00cdsraelsmenn og rita\u00f0 er \u00ed l\u00f6gb\u00f3k M\u00f3se. \u00c1 altarinu voru Drottni f\u00e6r\u00f0ar brennif\u00f3rnir og heillaf\u00f3rnir.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Enn fremur skr\u00e1\u00f0i J\u00f3s\u00faa \u00ed augs\u00fdn allra \u00cdsraelsmanna \u00fearna \u00e1 steinana eftirrit af l\u00f6gm\u00e1li M\u00f3se. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Allur \u00cdsrael, \u00f6ldungar, emb\u00e6ttismenn og d\u00f3marar st\u00f3\u00f0u b\u00e1\u00f0um megin vi\u00f0 \u00f6rkina andsp\u00e6nis Lev\u00edtaprestunum sem b\u00e1ru s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins, einnig innbornir og a\u00f0komumenn. Helmingur f\u00f3lksins sneri a\u00f0 Gar\u00eds\u00edmfjalli en hinn helmingurinn a\u00f0 Ebalfjalli eins og M\u00f3se, \u00fej\u00f3nn Drottins, haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 \u00ed upphafi \u00feegar hann gaf fyrirm\u00e6li um a\u00f0 blessa \u00cdsraels\u00fej\u00f3\u00f0. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st las J\u00f3s\u00faa upp lagasafni\u00f0, or\u00f0 fyrir or\u00f0, blessunina og b\u00f6lvunina, n\u00e1kv\u00e6mlega eins og skr\u00e1\u00f0 er \u00ed l\u00f6gb\u00f3kinni. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Allt \u00fea\u00f0 sem M\u00f3se haf\u00f0i gefi\u00f0 fyrirm\u00e6li um las J\u00f3s\u00faa frammi fyrir \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0i \u00cdsraels, einnig konum, b\u00f6rnum og \u00feeim a\u00f0komum\u00f6nnum sem slegist h\u00f6f\u00f0u \u00ed f\u00f6r me\u00f0 \u00feeim, og sleppti engu or\u00f0i.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>A\u00ed fellur 1 Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 J\u00f3s\u00faa:\u201e\u00d3ttastu ekki, l\u00e1t ekki hugfallast. Taktu allan herinn me\u00f0 \u00fe\u00e9r og haltu til A\u00ed. \u00c9g sel \u00fe\u00e9r konung A\u00ed \u00ed hendur, \u00fej\u00f3\u00f0 hans, borg og land. 2 \u00de\u00fa skalt fara me\u00f0 A\u00ed og konung hennar eins og \u00fe\u00fa f\u00f3rst me\u00f0 Jer\u00edk\u00f3 og konung hennar. Samt megi\u00f0 \u00fei\u00f0 taka herfangi\u00f0 \u00far henni og f\u00e9na\u00f0 handa sj\u00e1lfum ykkur. L\u00e1ttu menn leggjast \u00ed launs\u00e1tur a\u00f0 baki borginni.\u201c 3 \u00de\u00e1 h\u00e9lt J\u00f3s\u00faa og allur herinn upp til A\u00ed. J\u00f3s\u00faa valdi \u00ferj\u00e1t\u00edu \u00fe\u00fasund reynda hermenn og sendi \u00fe\u00e1 af sta\u00f0 um n\u00f3ttina 4 og lag\u00f0i fyrir \u00fe\u00e1: \u201e\u00dei\u00f0 skulu\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1812","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1812","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1812"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1812\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1812"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}