{"id":1810,"date":"2017-12-30T21:00:30","date_gmt":"2017-12-30T21:00:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/j%c2%97s%c2%9cab%c2%97k-6-kafli\/"},"modified":"2024-06-27T02:39:14","modified_gmt":"2024-06-27T02:39:14","slug":"josuabok-6-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-6-kafli\/","title":{"rendered":"J\u00f3s\u00faab\u00f3k 6. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> M\u00farar Jer\u00edk\u00f3 hrynja<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Jer\u00edk\u00f3 var umlukt, rammlega v\u00edggirt og loku\u00f0 vegna \u00cdsraelsmanna. \u00dear komst enginn \u00fat e\u00f0a inn.<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 J\u00f3s\u00faa:<br \/>\u201e\u00c9g sel Jer\u00edk\u00f3 \u00fe\u00e9r \u00ed hendur, konung borgarinnar og kappa. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Gangi\u00f0 umhverfis borgina. Allir hermennirnir skulu fara einu sinni umhverfis borgina. \u00deetta skaltu gera \u00ed sex daga. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Sj\u00f6 prestar skulu bera sj\u00f6 hafurshorn fyrir \u00f6rkinni. Sj\u00f6unda daginn skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 fara sj\u00f6 sinnum umhverfis borgina og \u00fe\u00e1 eiga prestarnir a\u00f0 \u00feeyta hafurshornin. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deegar hafurshorni\u00f0 kve\u00f0ur vi\u00f0 og \u00fei\u00f0 heyri\u00f0 hornabl\u00e1sturinn skal allt f\u00f3lki\u00f0 \u00e6pa miki\u00f0 her\u00f3p. \u00de\u00e1 mun borgarm\u00farinn hrynja til grunna og \u00fe\u00e1 skal hver og einn halda upp \u00ed borgina \u00fea\u00f0an sem hann er staddur.\u201c<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> J\u00f3s\u00faa N\u00fansson kvaddi prestana til s\u00edn og sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1:<br \/>\u201eHefji\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rkina upp. Sj\u00f6 prestar skulu fara fyrir s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins me\u00f0 sj\u00f6 hafurshorn.\u201c <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skipa\u00f0i hann f\u00f3lkinu: \u201eGangi\u00f0 n\u00fa umhverfis borgina. Fyrir \u00f6rk Drottins skulu herkl\u00e6ddir menn fara.\u201c<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 var\u00f0 sem J\u00f3s\u00faa haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 f\u00f3lkinu. Sj\u00f6 prestar b\u00e1ru sj\u00f6 hafurshorn fyrir Drottni og \u00feeyttu hornin. Eftir \u00feeim fylgdi s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> og herkl\u00e6ddir menn gengu \u00e1 undan prestunum sem \u00feeyttu hornin en bakvar\u00f0arsveitin gekk \u00e1 eftir \u00f6rkinni vi\u00f0 hornabl\u00e1stur.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> J\u00f3s\u00faa skipa\u00f0i n\u00fa f\u00f3lkinu:<br \/>\u201e\u00c6pi\u00f0 ekki her\u00f3p, hefji\u00f0 ekki raustina og m\u00e6li\u00f0 ekki or\u00f0 af v\u00f6rum fyrr en \u00feann dag sem \u00e9g segi: \u00c6pi\u00f0 her\u00f3p! \u00de\u00e1 skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00e6pa her\u00f3p.\u201c<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st l\u00e9t hann \u00f6rk Drottins fara umhverfis borgina. \u00deegar h\u00fan haf\u00f0i fari\u00f0 einu sinni \u00ed kringum hana h\u00e9ldu \u00feeir aftur til herb\u00fa\u00f0anna og voru \u00fear um n\u00f3ttina. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Morguninn eftir var J\u00f3s\u00faa snemma \u00e1 f\u00f3tum. Prestarnir h\u00f3fu \u00f6rk Drottins upp <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> og prestarnir sj\u00f6, sem b\u00e1ru hafurshornin sj\u00f6 \u00e1 undan \u00f6rkinni, \u00feeyttu \u00feau \u00ed s\u00edfellu. Herkl\u00e6ddir menn gengu \u00e1 undan \u00feeim en bakvar\u00f0arsveitin fylgdi \u00f6rk Drottins. Hornin voru \u00feeytt \u00e1n afl\u00e1ts. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deeir gengu einu sinni umhverfis borgina annan daginn og sneru \u00fev\u00ed n\u00e6st aftur \u00ed b\u00fa\u00f0irnar. \u00deetta ger\u00f0u \u00feeir \u00ed sex daga.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Sj\u00f6unda daginn f\u00f3ru \u00feeir \u00e1 f\u00e6tur \u00feegar l\u00fdsti af degi og f\u00f3ru sj\u00f6 sinnum umhverfis borgina \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00e1\u00f0ur. A\u00f0eins \u00feennan eina dag f\u00f3ru \u00feeir sj\u00f6 sinnum umhverfis borgina.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deegar prestarnir h\u00f6f\u00f0u \u00feeytt hornin \u00ed sj\u00f6unda sinn bau\u00f0 J\u00f3s\u00faa f\u00f3lkinu:<br \/> \u201e\u00c6pi\u00f0 her\u00f3p! Drottinn hefur selt ykkur borgina \u00ed hendur. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Borgin og allt sem \u00ed henni er skal helga\u00f0 banni, \u00fea\u00f0 tilheyrir Drottni. A\u00f0eins sk\u00e6kjan Rahab og allir sem eru me\u00f0 henni \u00ed h\u00fasinu skulu l\u00edfi halda \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan faldi mennina sem vi\u00f0 sendum. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> En for\u00f0ist hi\u00f0 bannf\u00e6r\u00f0a. \u00c1s\u00e6list hvorki n\u00e9 taki\u00f0 neitt af \u00fev\u00ed sem hefur veri\u00f0 helga\u00f0 banni \u00fev\u00ed \u00fe\u00e1 lei\u00f0i\u00f0 \u00fei\u00f0 bann yfir herb\u00fa\u00f0ir \u00cdsraels og steypi\u00f0 \u00feeim \u00ed gl\u00f6tun. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Allt silfur og gull og gripir \u00far eir og j\u00e1rni er helga\u00f0 Drottni og \u00e1 a\u00f0 fara \u00ed fj\u00e1rhirslu Drottins.\u201c<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> N\u00fa \u00e6pti f\u00f3lki\u00f0 her\u00f3p og hafurshornin voru \u00feeytt. \u00deegar f\u00f3lki\u00f0 heyr\u00f0i hornabl\u00e1sturinn \u00e6pti \u00fea\u00f0 her\u00f3p miki\u00f0 og borgarm\u00farinn hrundi til grunna. F\u00f3lki\u00f0 f\u00f3r \u00fe\u00e1 inn \u00ed borgina, hver \u00fear sem hann var staddur. \u00deannig unnu \u00feeir borgina. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Allt sem \u00ed borginni var helgu\u00f0u \u00feeir banni, karla og konur, unga og gamla, nautgripi, sau\u00f0f\u00e9 og asna, allt helgu\u00f0u \u00feeir banni me\u00f0 sver\u00f0seggjum.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i J\u00f3s\u00faa vi\u00f0 mennina tvo sem h\u00f6f\u00f0u nj\u00f3sna\u00f0 um landi\u00f0:<br \/>\u201eFari\u00f0 \u00ed h\u00fas sk\u00e6kjunnar og s\u00e6ki\u00f0 konuna og allt hennar f\u00f3lk eins og \u00fei\u00f0 s\u00f3ru\u00f0 henni.\u201c<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00f3ru b\u00e1\u00f0ir ungu mennirnir sem h\u00f6f\u00f0u nj\u00f3sna\u00f0 og s\u00f3ttu Rahab, f\u00f6\u00f0ur hennar, m\u00f3\u00f0ur og br\u00e6\u00f0ur og allt sem h\u00fan \u00e1tti. \u00deeir s\u00f3ttu \u00f6ll skyldmenni hennar og fengu \u00feeim dvalarsta\u00f0 utan herb\u00fa\u00f0a \u00cdsraels.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an brenndu \u00feeir borgina og allt sem \u00ed henni var. En silfur og gull og gripi \u00far eir og j\u00e1rni settu \u00feeir \u00ed fj\u00e1rhirslu h\u00fass Drottins. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> En J\u00f3s\u00faa gaf sk\u00e6kjunni Rahab l\u00edf og fj\u00f6lskyldu hennar og \u00f6llu sem hennar var. H\u00fan hefur b\u00fai\u00f0 me\u00f0al \u00cdsraelsmanna allt til \u00feessa dags \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan faldi mennina sem J\u00f3s\u00faa sendi til a\u00f0 nj\u00f3sna um Jer\u00edk\u00f3.<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00e1 s\u00f3r J\u00f3s\u00faa \u00feennan ei\u00f0: \u201eB\u00f6lva\u00f0ur s\u00e9 hver s\u00e1 frammi fyrir Drottni sem hefst handa um a\u00f0 endurreisa \u00feessa borg, Jer\u00edk\u00f3. \u00dea\u00f0 skal kosta elsta son hans l\u00edfi\u00f0 a\u00f0 leggja grunn hennar og l\u00edf yngsta sonarins a\u00f0 setja hli\u00f0 fyrir borgina.\u201c<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Drottinn var me\u00f0 J\u00f3s\u00faa og or\u00f0st\u00edr hans barst um landi\u00f0 allt.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>M\u00farar Jer\u00edk\u00f3 hrynja 1 Jer\u00edk\u00f3 var umlukt, rammlega v\u00edggirt og loku\u00f0 vegna \u00cdsraelsmanna. \u00dear komst enginn \u00fat e\u00f0a inn. 2 \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 J\u00f3s\u00faa:\u201e\u00c9g sel Jer\u00edk\u00f3 \u00fe\u00e9r \u00ed hendur, konung borgarinnar og kappa. 3 Gangi\u00f0 umhverfis borgina. Allir hermennirnir skulu fara einu sinni umhverfis borgina. \u00deetta skaltu gera \u00ed sex daga. 4 Sj\u00f6 prestar skulu bera sj\u00f6 hafurshorn fyrir \u00f6rkinni. Sj\u00f6unda daginn skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 fara sj\u00f6 sinnum umhverfis borgina og \u00fe\u00e1 eiga prestarnir a\u00f0 \u00feeyta hafurshornin. 5 \u00deegar hafurshorni\u00f0 kve\u00f0ur vi\u00f0 og \u00fei\u00f0 heyri\u00f0 hornabl\u00e1sturinn skal allt f\u00f3lki\u00f0 \u00e6pa miki\u00f0 her\u00f3p. \u00de\u00e1 mun borgarm\u00farinn hrynja til grunna og \u00fe\u00e1 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/josuabok-6-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1810","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1810","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1810"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1810\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1810"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}