{"id":1801,"date":"2017-12-30T21:00:30","date_gmt":"2017-12-30T21:00:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-31-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:32:00","modified_gmt":"2024-05-06T22:32:00","slug":"fimmta-mosebok-31-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-31-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 31. kafli"},"content":{"rendered":"<h2 class=\"millifyrirsogn_2007\">S\u00ed\u00f0ustu or\u00f0 M\u00f3se <\/h2>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">J\u00f3s\u00faa eftirma\u00f0ur M\u00f3se<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an gekk M\u00f3se fram og flutti \u00f6llum \u00cdsrael \u00feessa r\u00e6\u00f0u <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> og sag\u00f0i:<br \/>\u201e\u00c9g er n\u00fa or\u00f0inn hundra\u00f0 og tuttugu \u00e1ra og get ekki lengur fari\u00f0 fyrir ykkur og Drottinn hefur sagt vi\u00f0 mig: \u00de\u00fa munt ekki komast yfir J\u00f3rdan. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun sj\u00e1lfur fara fyrir ykkur. Hann mun tort\u00edma \u00feessum \u00fej\u00f3\u00f0um frammi fyrir \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa getir teki\u00f0 l\u00f6nd \u00feeirra til eignar. J\u00f3s\u00faa mun fara yfir \u00ed broddi fylkingar eins og Drottinn hefur sagt. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Drottinn mun fara me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0irnar eins og hann f\u00f3r me\u00f0 S\u00edhon og \u00d3g, konunga Amor\u00edta, og land \u00feeirra \u00feegar hann eyddi \u00feeim. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Drottinn mun selja \u00feessar \u00fej\u00f3\u00f0ir ykkur \u00e1 vald og \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 fara me\u00f0 \u00fe\u00e6r n\u00e1kv\u00e6mlega eftir \u00feeim fyrirm\u00e6lum sem \u00e9g hef sett ykkur. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Veri\u00f0 djarfir og hughraustir, \u00f3ttist ekki og skelfist ekki frammi fyrir \u00feeim \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, fer sj\u00e1lfur me\u00f0 \u00fe\u00e9r. Hann mun hvorki breg\u00f0ast \u00fe\u00e9r n\u00e9 yfirgefa \u00feig.\u201c<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> M\u00f3se kalla\u00f0i \u00fev\u00ed n\u00e6st \u00e1 J\u00f3s\u00faa og sag\u00f0i vi\u00f0 hann frammi fyrir \u00f6llum \u00cdsrael: \u201eVertu djarfur og hughraustur. \u00de\u00fa \u00e1tt a\u00f0 lei\u00f0a \u00feetta f\u00f3lk inn \u00ed landi\u00f0 sem Drottinn h\u00e9t fe\u00f0rum \u00feess a\u00f0 gefa \u00fev\u00ed og \u00fe\u00fa \u00e1tt a\u00f0 skipta landinu \u00e1 milli \u00feeirra \u00ed erf\u00f0ahluti. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Drottinn fer sj\u00e1lfur fyrir \u00fe\u00e9r, hann ver\u00f0ur me\u00f0 \u00fe\u00e9r. Hann mun hvorki sleppa af \u00fe\u00e9r hendinni n\u00e9 yfirgefa \u00feig. \u00d3ttastu ekki og l\u00e1ttu ekki hugfallast.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Upplestur l\u00f6gm\u00e1lsins<\/h3>\n<p><a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> M\u00f3se skr\u00e1\u00f0i \u00feetta l\u00f6gm\u00e1l og f\u00e9kk \u00fea\u00f0 prestunum, ni\u00f0jum Lev\u00ed, sem b\u00e1ru s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins, og \u00f6llum \u00f6ldungum \u00cdsraels. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st gaf M\u00f3se \u00feeim \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u201eSj\u00f6unda hvert \u00e1r, \u00e1ri\u00f0 sem skuldir eru felldar ni\u00f0ur, \u00e1 laufsk\u00e1lah\u00e1t\u00ed\u00f0inni <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00feegar allur \u00cdsrael kemur til a\u00f0 sj\u00e1 auglit Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, \u00e1 sta\u00f0num sem hann velur, \u00fe\u00e1 skaltu flytja \u00feessi l\u00f6g fyrir allan \u00cdsrael. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Stefndu f\u00f3lkinu saman, b\u00e6\u00f0i k\u00f6rlum, konum og b\u00f6rnum \u00e1samt a\u00f0komum\u00f6nnunum innan borgarhli\u00f0a \u00feinna, til \u00feess a\u00f0 \u00feeir hlusti \u00e1 \u00feau og l\u00e6ri \u00feau, \u00f3ttist Drottin, Gu\u00f0 ykkar, og g\u00e6ti \u00feess a\u00f0 framfylgja \u00f6llum \u00e1kv\u00e6\u00f0um \u00feessara laga. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> B\u00f6rn \u00feeirra, sem \u00feekkja ekki l\u00f6gin enn \u00fe\u00e1, skulu hl\u00fd\u00f0a \u00e1 og l\u00e6ra a\u00f0 \u00f3ttast Drottin. \u00deetta skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 gera svo lengi sem \u00fei\u00f0 lifi\u00f0 \u00ed landinu sem \u00fei\u00f0 haldi\u00f0 n\u00fa inn \u00ed yfir J\u00f3rdan til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Fyrirm\u00e6li Drottins til M\u00f3se og J\u00f3s\u00faa<\/h3>\n<p><a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se:<br \/>\u201eDagar \u00fe\u00ednir eru br\u00e1tt taldir. Kalla\u00f0u n\u00fa \u00e1 J\u00f3s\u00faa og gangi\u00f0 inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g mun setja hann \u00ed emb\u00e6tti\u00f0.\u201c M\u00f3se f\u00f3r \u00fe\u00e1 \u00e1samt J\u00f3s\u00faa og \u00feeir t\u00f3ku s\u00e9r st\u00f6\u00f0u \u00ed samfundatjaldinu. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 birtist Drottinn \u00ed sk\u00fdst\u00f3lpa \u00ed tjaldinu og sk\u00fdst\u00f3lpinn nam sta\u00f0ar vi\u00f0 tjalddyrnar.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se:<br \/>\u201eN\u00fa leggst \u00fe\u00fa til hv\u00edldar hj\u00e1 forfe\u00f0rum \u00fe\u00ednum. \u00de\u00e1 mun \u00feetta f\u00f3lk gera uppreisn. \u00dea\u00f0 mun taka fram hj\u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 elta hina framandi gu\u00f0i \u00ed landinu sem \u00fea\u00f0 heldur n\u00fa inn \u00ed. \u00dea\u00f0 mun yfirgefa mig og rj\u00fafa s\u00e1ttm\u00e1la minn sem \u00e9g ger\u00f0i vi\u00f0 \u00fea\u00f0.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00c1 \u00feeim degi mun heift m\u00edn blossa upp gegn \u00fev\u00ed. \u00c9g mun yfirgefa \u00fea\u00f0 og hylja auglit mitt fyrir \u00fev\u00ed og \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 au\u00f0veld br\u00e1\u00f0. Margs kyns b\u00f6l og \u00ferengingar munu hremma \u00fea\u00f0. \u00c1 \u00feeim degi mun f\u00f3lki\u00f0 spyrja: Er \u00feetta b\u00f6l komi\u00f0 yfir mig af \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 minn er ekki me\u00f0 m\u00e9r?<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> En \u00e1 \u00feeim degi mun \u00e9g hylja auglit mitt sakir alls hins illa sem \u00fea\u00f0 ger\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r a\u00f0 \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Skrifi\u00f0 \u00fev\u00ed upp \u00feetta lj\u00f3\u00f0 og kenni\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00cdsraelsm\u00f6nnum. Leggi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feeim \u00ed munn svo a\u00f0 \u00feetta lj\u00f3\u00f0 ver\u00f0i vitni mitt gegn \u00cdsraelsm\u00f6nnum. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00deegar \u00e9g hef leitt \u00feetta f\u00f3lk inn \u00ed landi\u00f0 sem \u00e9g h\u00e9t fe\u00f0rum \u00feess, landi\u00f0 sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi, mun \u00fea\u00f0 eta n\u00e6gju s\u00edna og fitna. \u00de\u00e1 mun \u00fea\u00f0 sn\u00faa s\u00e9r a\u00f0 \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um og \u00fej\u00f3na \u00feeim en m\u00e9r mun \u00fea\u00f0 hafna og rj\u00fafa s\u00e1ttm\u00e1la minn. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deegar margs kyns b\u00f6l og \u00ferengingar hremma \u00fea\u00f0 mun lj\u00f3\u00f0 \u00feetta bera vitni gegn \u00feessu f\u00f3lki \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun ekki gleymast, \u00fea\u00f0 mun geymast \u00ed munni ni\u00f0ja \u00feess. \u00c9g veit hvert hugur \u00feess hneigist n\u00fa \u00feegar, \u00e1\u00f0ur en \u00e9g lei\u00f0i \u00fea\u00f0 inn \u00ed landi\u00f0 sem \u00e9g h\u00e9t \u00fev\u00ed.\u201c<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Sama dag rita\u00f0i M\u00f3se upp lj\u00f3\u00f0 \u00feetta og kenndi \u00fea\u00f0 \u00cdsraelsm\u00f6nnum.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skipa\u00f0i Drottinn J\u00f3s\u00faa N\u00fansson \u00ed emb\u00e6tti sitt og sag\u00f0i: \u201eVertu styrkur og djarfur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00e1tt a\u00f0 lei\u00f0a \u00cdsraelsmenn inn \u00ed landi\u00f0 sem \u00e9g h\u00e9t \u00feeim. \u00c9g ver\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r.\u201c <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00deegar M\u00f3se haf\u00f0i loki\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 skr\u00e1 s\u00e9rhvert \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00feessa l\u00f6gm\u00e1ls \u00e1 b\u00f3k <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> bau\u00f0 hann Lev\u00edtunum sem b\u00e1ru \u00f6rk s\u00e1ttm\u00e1la Drottins og sag\u00f0i: <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u201eTaki\u00f0 vi\u00f0 \u00feessari l\u00f6gb\u00f3k og leggi\u00f0 hana vi\u00f0 hli\u00f0ina \u00e1 \u00f6rk s\u00e1ttm\u00e1la Drottins, Gu\u00f0s ykkar. \u00dear skal h\u00fan vera vitni gegn ykkur. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00c9g \u00feekki svo sannarlega m\u00f3t\u00fer\u00f3a \u00feinn og \u00ferj\u00f3sku. \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 \u00f3hl\u00fd\u00f0nast Drottni n\u00fa \u00ed dag \u00e1 me\u00f0an \u00e9g er enn \u00e1 l\u00edfi og hj\u00e1 ykkur. Hva\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 a\u00f0 m\u00e9r l\u00e1tnum? <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Stefni\u00f0 n\u00fa til m\u00edn \u00f6llum \u00f6ldungum \u00e6ttb\u00e1lka ykkar og skrifurum. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 flytja \u00feeim \u00feessi or\u00f0 og kve\u00f0ja himin og j\u00f6r\u00f0 til vitnis gegn \u00feeim <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g veit a\u00f0 eftir dau\u00f0a minn munu\u00f0 \u00fei\u00f0 gerspillast og v\u00edkja af \u00feeim vegi sem \u00e9g hef bo\u00f0i\u00f0 ykkur. S\u00ed\u00f0ar mun \u00f3g\u00e6fan koma yfir ykkur af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 geri\u00f0 \u00fea\u00f0 sem illt er \u00ed augum Drottins og veki\u00f0 rei\u00f0i hans me\u00f0 ath\u00e6fi ykkar.\u201c<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> M\u00f3se flutti \u00fe\u00e1 \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0i \u00cdsraels \u00feetta lj\u00f3\u00f0 allt fr\u00e1 upphafi til enda.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00ed\u00f0ustu or\u00f0 M\u00f3se J\u00f3s\u00faa eftirma\u00f0ur M\u00f3se 1 S\u00ed\u00f0an gekk M\u00f3se fram og flutti \u00f6llum \u00cdsrael \u00feessa r\u00e6\u00f0u 2 og sag\u00f0i:\u201e\u00c9g er n\u00fa or\u00f0inn hundra\u00f0 og tuttugu \u00e1ra og get ekki lengur fari\u00f0 fyrir ykkur og Drottinn hefur sagt vi\u00f0 mig: \u00de\u00fa munt ekki komast yfir J\u00f3rdan. 3 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun sj\u00e1lfur fara fyrir ykkur. Hann mun tort\u00edma \u00feessum \u00fej\u00f3\u00f0um frammi fyrir \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa getir teki\u00f0 l\u00f6nd \u00feeirra til eignar. J\u00f3s\u00faa mun fara yfir \u00ed broddi fylkingar eins og Drottinn hefur sagt. 4 Drottinn mun fara me\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0irnar eins og hann f\u00f3r me\u00f0 S\u00edhon og \u00d3g, konunga Amor\u00edta, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-31-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1801","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1801","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1801"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1801\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1801"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}