{"id":1798,"date":"2017-12-30T21:00:30","date_gmt":"2017-12-30T21:00:30","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-28-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:59","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:59","slug":"fimmta-mosebok-28-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-28-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 28. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Blessanir<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir n\u00e1kv\u00e6mlega bo\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, heldur \u00fea\u00f0 og fer\u00f0 a\u00f0 \u00f6llum fyrirm\u00e6lum sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag mun Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefja \u00feig yfir allar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu allar \u00feessar blessanir koma fram vi\u00f0 \u00feig og r\u00e6tast \u00e1 \u00fe\u00e9r ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir bo\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns:<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00ed borginni og blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00e1 akrinum.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Blessa\u00f0ur er \u00e1v\u00f6xtur kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur akurlands \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur b\u00fafj\u00e1r \u00fe\u00edns, k\u00e1lfar nauta \u00feinna og l\u00f6mb sau\u00f0fj\u00e1r \u00fe\u00edns.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Blessu\u00f0 er karfa \u00fe\u00edn og deigtrog.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00feegar \u00fe\u00fa kemur heim og blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00feegar \u00fe\u00fa gengur \u00fat.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Drottinn sigrar \u00fe\u00e1 fjandmenn \u00fe\u00edna sem r\u00e1\u00f0ast gegn \u00fe\u00e9r. Um einn veg halda \u00feeir gegn \u00fe\u00e9r en um sj\u00f6 vegu munu \u00feeir fl\u00fdja undan \u00fe\u00e9r.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Drottinn b\u00fd\u00f0ur blessuninni a\u00f0 vera me\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed hl\u00f6\u00f0um \u00fe\u00ednum og \u00ed \u00f6llu sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur. Hann blessar \u00feig \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Drottinn mun hefja \u00feig til a\u00f0 gera \u00feig a\u00f0 heilagri \u00fej\u00f3\u00f0 sinni eins og hann hefur heiti\u00f0 \u00fe\u00e9r ef \u00fe\u00fa heldur bo\u00f0 Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, og gengur \u00e1 hans vegum. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu allar \u00fej\u00f3\u00f0ir jar\u00f0ar skilja a\u00f0 \u00fe\u00fa ert kennd vi\u00f0 nafn Drottins og \u00fe\u00e6r munu \u00f3ttast \u00feig. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Drottinn veitir \u00fe\u00e9r r\u00edkuleg g\u00e6\u00f0i \u00ed \u00e1vexti kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns, \u00ed \u00e1vexti b\u00fafj\u00e1r \u00fe\u00edns og \u00ed \u00e1vexti jar\u00f0ar \u00feinnar \u00ed landinu sem Drottinn h\u00e9t fe\u00f0rum \u00fe\u00ednum a\u00f0 gefa \u00fe\u00e9r. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Drottinn mun lj\u00faka upp fyrir \u00fe\u00e9r hinu g\u00f3\u00f0a for\u00f0ab\u00fari s\u00ednu, himninum, til a\u00f0 gefa landi \u00fe\u00ednu regn \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma. Hann mun blessa hvert \u00fea\u00f0 verk sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur og \u00fe\u00fa munt l\u00e1na m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um en sj\u00e1lfur muntu aldrei \u00feurfa a\u00f0 taka l\u00e1n. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Drottinn gerir \u00feig a\u00f0 h\u00f6f\u00f0i en ekki hala. \u00de\u00fa skalt \u00e6t\u00ed\u00f0 hafa betur og aldrei ver\u00f0a undir ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir bo\u00f0um Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, sem \u00e9g legg fyrir \u00feig \u00ed dag, og breytir eftir \u00feeim <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> og v\u00edkur hvorki til h\u00e6gri n\u00e9 vinstri fr\u00e1 neinum \u00feeim fyrirm\u00e6lum, sem \u00e9g legg fyrir ykkur \u00ed dag, til \u00feess a\u00f0 elta a\u00f0ra gu\u00f0i og \u00fej\u00f3na \u00feeim.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00f6lvanir<\/h3>\n<p><a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> En ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir ekki Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 breyta eftir \u00f6llum bo\u00f0um hans og l\u00f6gum, sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag, munu allar \u00feessar b\u00f6lvanir fram vi\u00f0 \u00feig koma og \u00e1 \u00fe\u00e9r hr\u00edna:<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> B\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00ed borginni og b\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00e1 akrinum.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> B\u00f6lvu\u00f0 er karfa \u00fe\u00edn og deigtrog.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> B\u00f6lva\u00f0ur er \u00e1v\u00f6xtur kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur akurlands \u00fe\u00edns, k\u00e1lfar nauta \u00feinna og l\u00f6mb sau\u00f0fj\u00e1r \u00fe\u00edns.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> B\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00feegar \u00fe\u00fa kemur heim og b\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00feegar \u00fe\u00fa gengur \u00fat. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Drottinn sendir yfir \u00feig b\u00f6lvun, upplausn og \u00f3gnun og yfir allt sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur, yfir allt sem \u00fe\u00fa gerir. Svo ver\u00f0ur uns \u00fe\u00fa hefur veri\u00f0 afm\u00e1\u00f0ur og skyndilega a\u00f0 engu ger\u00f0ur vegna illra verka \u00feinna sem \u00fe\u00fa sveikst mig me\u00f0. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Drottinn l\u00e6tur dreps\u00f3tt lo\u00f0a vi\u00f0 \u00feig \u00fear til hann hefur eytt \u00fe\u00e9r \u00far landinu sem \u00fe\u00fa ert a\u00f0 fara inn \u00ed til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Drottinn sl\u00e6r \u00feig me\u00f0 t\u00e6ringu, hita, hitas\u00f3tt og hitabruna, me\u00f0 \u00feurrki, korndrepi og korngulnun. \u00deetta mun \u00e1s\u00e6kja \u00feig \u00fear til \u00fe\u00e9r hefur veri\u00f0 eytt. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Himinninn yfir h\u00f6f\u00f0i \u00fe\u00e9r ver\u00f0ur a\u00f0 eir og j\u00f6r\u00f0in undir f\u00f3tum \u00fe\u00e9r a\u00f0 j\u00e1rni. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Drottinn breytir regni lands \u00fe\u00edns \u00ed sand og \u00f6sku sem fellur yfir \u00feig \u00fear til \u00fe\u00e9r hefur veri\u00f0 tort\u00edmt. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Drottinn l\u00e6tur fjandmenn \u00fe\u00edna sigra \u00feig. Um einn veg heldur \u00fe\u00fa gegn \u00feeim en um sj\u00f6 vegu fl\u00fdr\u00f0 \u00fe\u00fa undan \u00feeim. \u00de\u00fa munt vekja \u00f6llum konungsr\u00edkjum jar\u00f0ar hroll. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Hr\u00e6 \u00fe\u00edn ver\u00f0a \u00e6ti handa \u00f6llum fuglum himins og d\u00fdrum jar\u00f0ar og enginn f\u00e6lir \u00feau burt. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Drottinn sl\u00e6r \u00feig egypskum kaunum, k\u00fdlum, kl\u00e1\u00f0a og \u00fatbrotum og enginn getur l\u00e6kna\u00f0 \u00feig. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Drottinn sl\u00e6r \u00feig vitfirringu, blindu og sturlun <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> svo a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fearft a\u00f0 \u00fereifa \u00feig \u00e1fram um h\u00e1bjartan dag eins og blindur ma\u00f0ur \u00ed myrkri og \u00fe\u00e9r mun ekki farnast vel. \u00c1n afl\u00e1ts ver\u00f0ur \u00fe\u00fa k\u00faga\u00f0ur og r\u00e6ndur og enginn hj\u00e1lpar \u00fe\u00e9r. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00de\u00fa festir \u00fe\u00e9r konu en annar leggst me\u00f0 henni. \u00de\u00fa reisir \u00fe\u00e9r h\u00fas en b\u00fdr\u00f0 ekki \u00ed \u00fev\u00ed. \u00de\u00fa plantar v\u00edngar\u00f0 en n\u00fdtur ekki einu sinni fyrstu uppskerunnar. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Nauti \u00fe\u00ednu ver\u00f0ur sl\u00e1tra\u00f0 fyrir augum \u00fe\u00ednum en \u00fe\u00fa f\u00e6r\u00f0 ekki a\u00f0 neyta neins af \u00fev\u00ed. Asna \u00fe\u00ednum ver\u00f0ur stoli\u00f0 a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00e1sj\u00e1andi og ver\u00f0ur ekki skila\u00f0 aftur. Sau\u00f0f\u00e9 \u00feitt ver\u00f0ur afhent fjandm\u00f6nnum en enginn hj\u00e1lpar \u00fe\u00e9r. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Synir \u00fe\u00ednir og d\u00e6tur ver\u00f0a seld \u00ed hendur annarri \u00fej\u00f3\u00f0. Augu \u00fe\u00edn munu daprast af a\u00f0 m\u00e6na \u00e1 eftir \u00feeim allan daginn en \u00fe\u00fa f\u00e6r\u00f0 ekkert a\u00f0 gert. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00c1v\u00f6xt akurlands \u00fe\u00edns og allan afrakstur af striti \u00fe\u00ednu gleypir \u00fej\u00f3\u00f0 sem \u00fe\u00fa \u00feekkir ekki. \u00de\u00fa ver\u00f0ur einungis k\u00faga\u00f0ur og p\u00edndur \u00e6vinlega <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> og \u00fe\u00fa munt ganga af vitinu sakir \u00feess sem \u00fe\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 horfa \u00e1 me\u00f0 eigin augum.<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Drottinn sl\u00e6r \u00feig illkynju\u00f0um kaunum \u00e1 hnj\u00e1m og l\u00e6rum, \u00f3l\u00e6knandi s\u00e1rum fr\u00e1 hvirfli til ilja. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Drottinn lei\u00f0ir \u00feig og konunginn, sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r, til \u00fej\u00f3\u00f0ar sem hvorki \u00fe\u00fa n\u00e9 forfe\u00f0ur \u00fe\u00ednir hafa \u00feekkt. \u00dear muntu \u00fej\u00f3na \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um, stokkum og steinum. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00de\u00fa munt vekja hroll og \u00fe\u00fa munt haf\u00f0ur a\u00f0 h\u00e1\u00f0i og spotti \u00e1 me\u00f0al allra \u00feeirra \u00fej\u00f3\u00f0a sem Drottinn lei\u00f0ir \u00feig til. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00de\u00fa flytur miki\u00f0 s\u00e1\u00f0korn \u00fat \u00e1 akurinn en uppsker\u00f0 l\u00edti\u00f0 eitt \u00fev\u00ed a\u00f0 engisprettur \u00e9ta \u00fea\u00f0 upp. <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00de\u00fa plantar v\u00edngar\u00f0a og yrkir \u00fe\u00e1 en f\u00e6r\u00f0 hvorki v\u00edn til a\u00f0 drekka n\u00e9 til a\u00f0 geyma \u00fev\u00ed a\u00f0 ormar \u00e1tu \u00fer\u00fagurnar. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00d3l\u00edfutr\u00e9 vaxa um land \u00feitt allt en \u00fe\u00fa smyr\u00f0 \u00feig ekki me\u00f0 ol\u00edu \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3l\u00edfur \u00fe\u00ednar detta af trj\u00e1num. <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> \u00de\u00fa eignast syni og d\u00e6tur en f\u00e6r\u00f0 ekki a\u00f0 hafa \u00feau hj\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau fara \u00ed \u00fatleg\u00f0. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Skord\u00fdr leggja undir sig \u00f6ll \u00fe\u00edn tr\u00e9 og \u00e1v\u00f6xt lands \u00fe\u00edns. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> A\u00f0komuma\u00f0urinn, sem b\u00fdr hj\u00e1 \u00fe\u00e9r, st\u00edgur h\u00e6rra og h\u00e6rra yfir \u00feig en \u00fe\u00fa sj\u00e1lfur ni\u00f0url\u00e6gist meira og meira. <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> Hann l\u00e1nar \u00fe\u00e9r en \u00fe\u00fa getur ekki l\u00e1na\u00f0 honum neitt. Hann ver\u00f0ur h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, \u00fe\u00fa halinn.<br \/> <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> Allar \u00feessar b\u00f6lvanir munu fram vi\u00f0 \u00feig koma. \u00de\u00e6r munu elta \u00feig og hr\u00edna \u00e1 \u00fe\u00e9r \u00fear til \u00fe\u00e9r hefur veri\u00f0 tort\u00edmt af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fdddir ekki bo\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, og h\u00e9lst ekki fyrirm\u00e6li hans og l\u00f6g sem hann hefur sett \u00fe\u00e9r. <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> \u00de\u00e6r skulu \u00e6vinlega fylgja \u00fe\u00e9r og ni\u00f0jum \u00fe\u00ednum sem t\u00e1kn og st\u00f3rmerki.<br \/> <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> Af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefur ekki \u00fej\u00f3na\u00f0 Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, me\u00f0 gle\u00f0i og me\u00f0 f\u00f6gnu\u00f0 \u00ed hjarta af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa haf\u00f0ir allsn\u00e6gtir <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> ver\u00f0ur \u00fe\u00fa a\u00f0 \u00fej\u00f3na fjandm\u00f6nnum \u00fe\u00ednum sem Drottinn sendir gegn \u00fe\u00e9r. \u00de\u00fa m\u00e1tt \u00feola hungur, \u00feorsta og kl\u00e6\u00f0leysi og fara alls \u00e1 mis. Drottinn leggur j\u00e1rnok \u00e1 h\u00e1ls \u00fe\u00e9r uns hann hefur gereytt \u00fe\u00e9r. <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_2007\">49<\/span><\/a> Drottinn mun stefna gegn \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3\u00f0 fr\u00e1 fjarl\u00e6gu landi, fr\u00e1 endim\u00f6rkum jar\u00f0ar, sem steypir s\u00e9r yfir \u00feig eins og \u00f6rn, \u00fej\u00f3\u00f0 sem talar m\u00e1l sem \u00fe\u00fa skilur ekki, <a name=\"50\"><span class=\"versanumer_2007\">50<\/span><\/a> h\u00f6rkulega \u00fej\u00f3\u00f0 \u00e1s\u00fdndum sem hvorki skeytir um \u00f6ldunginn n\u00e9 v\u00e6gir unglingnum. <a name=\"51\"><span class=\"versanumer_2007\">51<\/span><\/a> \u00deessi \u00fej\u00f3\u00f0 etur upp \u00e1v\u00f6xt b\u00fafj\u00e1r \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xt akurs \u00fe\u00edns \u00fear til \u00fe\u00e9r hefur veri\u00f0 gereytt. H\u00fan skilur hvorki eftir handa \u00fe\u00e9r korn, v\u00edn, ol\u00edu n\u00e9 k\u00e1lfa nauta \u00feinna n\u00e9 l\u00f6mb sau\u00f0fj\u00e1r \u00fe\u00edns fyrr en h\u00fan hefur afm\u00e1\u00f0 \u00feig. <a name=\"52\"><span class=\"versanumer_2007\">52<\/span><\/a> H\u00fan sest um \u00feig \u00ed \u00f6llum borgum \u00fe\u00ednum uns hinir h\u00e1u og rammger\u00f0u m\u00farar \u00fe\u00ednir, sem \u00fe\u00fa treystir \u00e1, eru fallnir alls sta\u00f0ar \u00ed landi \u00fe\u00ednu. H\u00fan sest um \u00feig \u00ed \u00f6llum borgum landsins sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r. <a name=\"53\"><span class=\"versanumer_2007\">53<\/span><\/a> Svo n\u00e6rri \u00fe\u00e9r mun ums\u00e1tri\u00f0 ganga og h\u00f6rmungarnar, sem fjandma\u00f0ur \u00feinn lei\u00f0ir yfir \u00feig, a\u00f0 \u00fe\u00fa munt leggja \u00fe\u00e9r til munns \u00e1v\u00f6xt kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns, hold sona \u00feinna og d\u00e6tra sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r. <a name=\"54\"><span class=\"versanumer_2007\">54<\/span><\/a> Jafnvel s\u00e1 bl\u00ed\u00f0lyndasti og s\u00e6ll\u00edfasti me\u00f0al \u00fe\u00edn mun sj\u00e1 eftir f\u00e6\u00f0u handa br\u00f3\u00f0ur s\u00ednum, konunni \u00ed fa\u00f0mi s\u00ednum og b\u00f6rnunum sem hann enn \u00e1 eftir. <a name=\"55\"><span class=\"versanumer_2007\">55<\/span><\/a> Hann t\u00edmir ekki a\u00f0 gefa neinu \u00feeirra neitt af holdi barna sinna, sem hann leggur s\u00e9r til munns, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er \u00fea\u00f0 eina sem hann \u00e1 \u00ed ums\u00e1trinu og ney\u00f0inni sem fjandma\u00f0ur \u00feinn veldur \u00fe\u00e9r \u00ed \u00f6llum borgum \u00fe\u00ednum. <a name=\"56\"><span class=\"versanumer_2007\">56<\/span><\/a> Hin bl\u00ed\u00f0lyndasta og s\u00e6ll\u00edfasta kona me\u00f0al \u00fe\u00edn, sem er svo tepruleg a\u00f0 h\u00fan reynir ekki a\u00f0 tylla t\u00e1 \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina, l\u00edtur illu auga til mannsins \u00ed fa\u00f0mi s\u00ednum, sonar s\u00edns og d\u00f3ttur <a name=\"57\"><span class=\"versanumer_2007\">57<\/span><\/a> og s\u00e9r eftir fylgjunni, sem \u00fat gengur af skauti hennar, og b\u00f6rnunum, sem h\u00fan elur, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan etur \u00feau sj\u00e1lf \u00e1 laun enda allar bjargir banna\u00f0ar. Sl\u00edk ver\u00f0ur ney\u00f0in \u00ed ums\u00e1trinu \u00feegar fjandma\u00f0ur \u00feinn \u00ferengir a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00ed \u00f6llum borgum \u00fe\u00ednum.<br \/> <a name=\"58\"><span class=\"versanumer_2007\">58<\/span><\/a> Ef \u00fe\u00fa heldur ekki \u00f6ll \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00feessa l\u00f6gm\u00e1ls sem skr\u00e1\u00f0 eru \u00e1 \u00feessa b\u00f3k og breytir eftir \u00feeim, og ber\u00f0 lotningu fyrir hinu d\u00fdrlega og \u00f3gnvekjandi nafni, nafninu Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, <a name=\"59\"><span class=\"versanumer_2007\">59<\/span><\/a> mun Drottinn sl\u00e1 \u00feig og ni\u00f0ja \u00fe\u00edna \u00f3venjulegum pl\u00e1gum, \u00feungum og \u00fer\u00e1l\u00e1tum pl\u00e1gum og illkynja og \u00fer\u00e1l\u00e1tum sj\u00fakd\u00f3mum. <a name=\"60\"><span class=\"versanumer_2007\">60<\/span><\/a> Hann mun senda aftur yfir \u00feig allar s\u00f3ttir Egyptalands sem \u00fe\u00fa hr\u00e6ddist og \u00fe\u00e6r munu lo\u00f0a vi\u00f0 \u00feig. <a name=\"61\"><span class=\"versanumer_2007\">61<\/span><\/a> Enn fremur mun Drottinn senda yfir \u00feig allar \u00fe\u00e6r s\u00f3ttir og pl\u00e1gur, sem ekki eru skr\u00e1\u00f0ar \u00e1 \u00feessa l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k, \u00fear til \u00fe\u00e9r hefur veri\u00f0 eytt. <a name=\"62\"><span class=\"versanumer_2007\">62<\/span><\/a> \u00de\u00f3tt \u00fei\u00f0 v\u00e6ru\u00f0 \u00e1\u00f0ur jafnm\u00f6rg og stj\u00f6rnur himins ver\u00f0a einungis f\u00e1 ykkar eftir af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 hl\u00fdddu\u00f0 ekki bo\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns. <a name=\"63\"><span class=\"versanumer_2007\">63<\/span><\/a> \u00c1 sama h\u00e1tt og Drottinn haf\u00f0i \u00e1\u00f0ur yndi af a\u00f0 gera vel vi\u00f0 ykkur og fj\u00f6lga ykkur, eins mun Drottinn hafa yndi af \u00fev\u00ed a\u00f0 tort\u00edma ykkur og ey\u00f0a. \u00dei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 rekin \u00fat \u00far landinu sem \u00fe\u00fa ert a\u00f0 halda inn \u00ed til a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar. <a name=\"64\"><span class=\"versanumer_2007\">64<\/span><\/a> Drottinn mun dreifa \u00fe\u00e9r me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna til ystu endimarka jar\u00f0ar og \u00fear muntu \u00fej\u00f3na \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um, stokkum og steinum, sem hvorki \u00fe\u00fa n\u00e9 fe\u00f0ur \u00fe\u00ednir vissu deili \u00e1. <a name=\"65\"><span class=\"versanumer_2007\">65<\/span><\/a> Me\u00f0al \u00feessara \u00fej\u00f3\u00f0a f\u00e6r\u00f0u ekki a\u00f0 b\u00faa \u00ed n\u00e6\u00f0i og \u00fear finnur\u00f0u f\u00e6ti \u00fe\u00ednum engan hv\u00edldarsta\u00f0 heldur mun Drottinn gefa \u00fe\u00e9r \u00f3r\u00f3tt hjarta, d\u00f6pur augu og b\u00f6ls\u00fdni. <a name=\"66\"><span class=\"versanumer_2007\">66<\/span><\/a> L\u00edf \u00feitt mun hanga \u00e1 bl\u00e1\u00fer\u00e6\u00f0i og \u00fe\u00fa ver\u00f0ur hr\u00e6ddur dag og n\u00f3tt, aldrei \u00f3hultur um l\u00edf \u00feitt. <a name=\"67\"><span class=\"versanumer_2007\">67<\/span><\/a> A\u00f0 morgni munt \u00fe\u00fa segja: \u201e\u00c9g vildi a\u00f0 komi\u00f0 v\u00e6ri kv\u00f6ld,\u201c og a\u00f0 kv\u00f6ldi: \u201e\u00c9g vildi a\u00f0 kominn v\u00e6ri morgunn,\u201c sakir \u00f3ttans sem hefur gagnteki\u00f0 hjarta \u00feitt og sakir \u00feess sem \u00fe\u00fa m\u00e1tt horfa \u00e1 me\u00f0 eigin augum. <a name=\"68\"><span class=\"versanumer_2007\">68<\/span><\/a> Drottinn mun flytja \u00feig \u00e1 skipum aftur til Egyptalands, lei\u00f0ina sem \u00e9g sag\u00f0i vi\u00f0 \u00feig um: \u201e\u00de\u00fa skalt aldrei sj\u00e1 hana framar.\u201c \u00dear munu\u00f0 \u00fei\u00f0 bj\u00f3\u00f0a sj\u00e1lf ykkur fjandm\u00f6nnum til kaups sem \u00fer\u00e6la og amb\u00e1ttir en enginn vilja kaupa.<br \/> <a name=\"69\"><span class=\"versanumer_2007\">69<\/span><\/a> \u00deetta eru or\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1lans sem Drottinn f\u00f3l M\u00f3se a\u00f0 gera vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn \u00ed M\u00f3abslandi auk s\u00e1ttm\u00e1lans sem hann ger\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1 hj\u00e1 H\u00f3reb.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Blessanir 1 Ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir n\u00e1kv\u00e6mlega bo\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, heldur \u00fea\u00f0 og fer\u00f0 a\u00f0 \u00f6llum fyrirm\u00e6lum sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag mun Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefja \u00feig yfir allar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni. 2 \u00de\u00e1 munu allar \u00feessar blessanir koma fram vi\u00f0 \u00feig og r\u00e6tast \u00e1 \u00fe\u00e9r ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir bo\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns: 3 Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00ed borginni og blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00e1 akrinum. 4 Blessa\u00f0ur er \u00e1v\u00f6xtur kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur akurlands \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur b\u00fafj\u00e1r \u00fe\u00edns, k\u00e1lfar nauta \u00feinna og l\u00f6mb sau\u00f0fj\u00e1r \u00fe\u00edns. 5 Blessu\u00f0 er karfa \u00fe\u00edn og deigtrog. 6 Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00feegar <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-28-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1798","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1798","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1798"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1798\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1798"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}