{"id":1795,"date":"2017-12-30T21:00:25","date_gmt":"2017-12-30T21:00:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-25-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:58","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:58","slug":"fimmta-mosebok-25-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-25-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 25. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar deila r\u00eds milli manna og \u00feeir fara fyrir r\u00e9tt og d\u00f3mur er kve\u00f0inn upp yfir \u00feeim \u00e1 \u00feann veg a\u00f0 s\u00e1 saklausi er s\u00fdkna\u00f0ur en s\u00e1 seki sakfelldur <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> og hefur veri\u00f0 d\u00e6mdur til h\u00fd\u00f0ingar, skal d\u00f3marinn l\u00e1ta leggja hann ni\u00f0ur og h\u00fd\u00f0a \u00ed vi\u00f0urvist sinni, jafnm\u00f6rgum h\u00f6ggum og s\u00f6k hans h\u00e6fir. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hann m\u00e1 l\u00e1ta h\u00fd\u00f0a hann fj\u00f6rut\u00edu vandarh\u00f6gg, ekki fleiri. Yr\u00f0i hann h\u00fdddur umfram \u00fea\u00f0 kynni \u00feessi br\u00f3\u00f0ir \u00feinn a\u00f0 ver\u00f0a l\u00edtill\u00e6kka\u00f0ur \u00ed augum \u00fe\u00ednum.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki m\u00falbinda uxann er hann \u00fereskir.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">M\u00e1gskyldan<\/h3>\n<p><a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00deegar br\u00e6\u00f0ur b\u00faa saman og annar \u00feeirra deyr \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa eignast son skal ekkja hins l\u00e1tna ekki giftast neinum utan fj\u00f6lskyldunnar heldur skal m\u00e1gur hennar ganga inn til hennar, taka hana s\u00e9r fyrir konu og gegna m\u00e1gskyldunni vi\u00f0 hana. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Fyrsti sonurinn, sem h\u00fan f\u00e6\u00f0ir, skal bera nafn hins l\u00e1tna svo a\u00f0 nafn hans afm\u00e1ist ekki \u00far \u00cdsrael. <span class=\"nedan_mal\" title=\" Fyrsti sonur hj\u00faskaparins me\u00f0 m\u00e1ginum telst vera eins konar sta\u00f0gengill hins l\u00e1tna eiginmanns.\">[<\/span> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Vilji ma\u00f0urinn ekki kv\u00e6nast m\u00e1gkonu sinni skal h\u00fan ganga til \u00f6ldunganna \u00e1 \u00feingsta\u00f0num \u00ed borgarhli\u00f0inu og segja: \u201eM\u00e1gur minn hefur neita\u00f0 a\u00f0 halda vi\u00f0 nafni br\u00f3\u00f0ur s\u00edns \u00ed \u00cdsrael. Hann vill ekki gegna m\u00e1gskyldunni vi\u00f0 mig.\u201c <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skulu \u00f6ldungar \u00ed borg hans kalla hann fyrir sig og tala vi\u00f0 hann. Reynist hann \u00f3sveigjanlegur og segi: \u201e\u00c9g vil ekki kv\u00e6nast henni,\u201c <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> skal m\u00e1gkona hans ganga til hans frammi fyrir \u00f6ldungunum, draga sk\u00f3inn af f\u00e6ti hans, hr\u00e6kja framan \u00ed hann, taka til m\u00e1ls og segja: \u201e\u00deannig skal fari\u00f0 me\u00f0 hvern \u00feann sem ekki vill reisa vi\u00f0 \u00e6tt br\u00f3\u00f0ur s\u00edns. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Hvarvetna \u00ed \u00cdsrael skal \u00e6tt hans nefnd Berf\u00f3tar\u00e6tt.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">\u00ddmis laga\u00e1kv\u00e6\u00f0i<\/h3>\n<p><a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deegar tveir menn lenda \u00ed \u00e1flogum og kona annars \u00feeirra kemur til \u00feeirra til a\u00f0 bjarga manni s\u00ednum \u00far greipum andst\u00e6\u00f0ingsins og h\u00fan r\u00e9ttir \u00fat h\u00f6ndina og gr\u00edpur um hre\u00f0jar honum, <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> skaltu h\u00f6ggva af henni h\u00f6ndina og ekki s\u00fdna henni neina miskunn.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki hafa tvenns konar vogarsteina \u00ed poka \u00fe\u00ednum, l\u00e9ttan og \u00feungan. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki hafa tvenns konar efu \u00ed h\u00fasi \u00fe\u00ednu, langa og stutta. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt hafa n\u00e1kv\u00e6ma og r\u00e9tta vogarsteina og \u00fe\u00fa skalt hafa n\u00e1kv\u00e6ma og r\u00e9tta efu svo a\u00f0 \u00fe\u00fa lifir lengi \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 hver sem \u00feetta gerir, s\u00e9rhver svikari, er Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, vi\u00f0urstygg\u00f0.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Minnstu \u00feess hvernig Amalek l\u00e9k \u00feig \u00e1 lei\u00f0inni \u00feegar \u00fei\u00f0 f\u00f3ru\u00f0 fr\u00e1 Egyptalandi. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00c1n \u00feess a\u00f0 \u00f3ttast Gu\u00f0 r\u00e9\u00f0st hann \u00e1 \u00feig \u00e1 lei\u00f0inni, \u00feegar \u00fe\u00fa varst \u00fereyttur og uppgefinn, og vann \u00e1 \u00f6llum sem voru or\u00f0nir \u00f6rmagna og h\u00f6f\u00f0u dregist aftur \u00far. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deess vegna skalt \u00fe\u00fa afm\u00e1 allt undir himninum sem minnir \u00e1 Amalek. Gleymdu \u00fev\u00ed ekki \u00feegar Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur veitt \u00fe\u00e9r fri\u00f0 fyrir \u00f6llum \u00f3vinum \u00fe\u00ednum kringum \u00feig \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, f\u00e6r \u00fe\u00e9r a\u00f0 erf\u00f0ahlut og \u00fe\u00fa tekur til eignar.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1 \u00deegar deila r\u00eds milli manna og \u00feeir fara fyrir r\u00e9tt og d\u00f3mur er kve\u00f0inn upp yfir \u00feeim \u00e1 \u00feann veg a\u00f0 s\u00e1 saklausi er s\u00fdkna\u00f0ur en s\u00e1 seki sakfelldur 2 og hefur veri\u00f0 d\u00e6mdur til h\u00fd\u00f0ingar, skal d\u00f3marinn l\u00e1ta leggja hann ni\u00f0ur og h\u00fd\u00f0a \u00ed vi\u00f0urvist sinni, jafnm\u00f6rgum h\u00f6ggum og s\u00f6k hans h\u00e6fir. 3 Hann m\u00e1 l\u00e1ta h\u00fd\u00f0a hann fj\u00f6rut\u00edu vandarh\u00f6gg, ekki fleiri. Yr\u00f0i hann h\u00fdddur umfram \u00fea\u00f0 kynni \u00feessi br\u00f3\u00f0ir \u00feinn a\u00f0 ver\u00f0a l\u00edtill\u00e6kka\u00f0ur \u00ed augum \u00fe\u00ednum. 4 \u00de\u00fa skalt ekki m\u00falbinda uxann er hann \u00fereskir. M\u00e1gskyldan 5 \u00deegar br\u00e6\u00f0ur b\u00faa saman og annar \u00feeirra deyr \u00e1n \u00feess <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-25-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1795","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1795","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1795"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1795\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1795"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}