{"id":1789,"date":"2017-12-30T21:00:25","date_gmt":"2017-12-30T21:00:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-19-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:57","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:57","slug":"fimmta-mosebok-19-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-19-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 19. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Gri\u00f0aborgir<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, uppr\u00e6tir \u00fej\u00f3\u00f0irnar sem b\u00faa \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun f\u00e1 \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00fa hefur teki\u00f0 eignir \u00feeirra og ert sestur a\u00f0 \u00ed borgum \u00feeirra og h\u00fasum, <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00fe\u00e1 skaltu veita \u00feremur borgum s\u00e9rst\u00f6\u00f0u \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, f\u00e6r \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa sl\u00e1ir eign \u00feinni \u00e1 \u00fea\u00f0. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt stika \u00fat veginn a\u00f0 \u00feeim og skipta landinu, sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r a\u00f0 erf\u00f0ahlut, \u00ed \u00ferennt til \u00feess a\u00f0 hver s\u00e1 sem or\u00f0i\u00f0 hefur \u00f6\u00f0rum a\u00f0 bana geti fl\u00fai\u00f0 til \u00feessara borga.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deetta skal gilda um \u00feann sem hefur or\u00f0i\u00f0 manni a\u00f0 bana og fl\u00fdr \u00feanga\u00f0 til a\u00f0 bjarga l\u00edfi s\u00ednu. Hafi hann \u00f3viljandi or\u00f0i\u00f0 \u00f6\u00f0rum a\u00f0 bana og \u00e1n \u00feess a\u00f0 hafa \u00e1\u00f0ur veri\u00f0 \u00f3vinur hans, <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> svo sem \u00feegar ma\u00f0ur fer vi\u00f0 annan mann \u00fat \u00ed sk\u00f3g til a\u00f0 fella tr\u00e9, rei\u00f0ir upp \u00f6xina til a\u00f0 h\u00f6ggva tr\u00e9\u00f0 en h\u00fan gengur af skaftinu og lendir \u00e1 n\u00e1unga hans svo a\u00f0 hann f\u00e6r bana af, getur s\u00e1 ma\u00f0ur fl\u00fai\u00f0 til einhverrar \u00feessara borga til a\u00f0 bjarga l\u00edfi s\u00ednu.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Lei\u00f0in til gri\u00f0aborgarinnar m\u00e1 ekki vera of l\u00f6ng svo a\u00f0 hefnandi, sem eltir veganda, geti n\u00e1\u00f0 honum og drepi\u00f0 hann, kn\u00fainn hefndar\u00feorsta, \u00fe\u00f3tt banama\u00f0urinn s\u00e9 ekki dau\u00f0asekur enda ekki \u00f3vinur hans \u00e1\u00f0ur.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Af \u00feessum s\u00f6kum b\u00fd\u00f0 \u00e9g \u00fe\u00e9r og segi: \u00de\u00fa skalt veita \u00feremur borgum s\u00e9rst\u00f6\u00f0u. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Ef Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, eykur land \u00feitt, eins og hann h\u00e9t forfe\u00f0rum \u00fe\u00ednum, og gefur \u00fe\u00e9r allt landi\u00f0 sem hann haf\u00f0i heiti\u00f0 \u00feeim, <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00fear sem \u00fe\u00fa heldur \u00f6ll bo\u00f0or\u00f0in sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag, framfylgir \u00feeim me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 elska Drottin, Gu\u00f0 \u00feinn, og ganga \u00e1 hans vegum alla \u00e6vi, \u00fe\u00e1 skaltu enn b\u00e6ta \u00feremur borgum vi\u00f0 \u00feessar \u00ferj\u00e1r. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Me\u00f0 \u00fev\u00ed skal komi\u00f0 \u00ed veg fyrir a\u00f0 saklausu bl\u00f3\u00f0i ver\u00f0i \u00fathellt og bl\u00f3\u00f0sekt komi yfir \u00feig \u00ed landi \u00fe\u00ednu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r a\u00f0 erf\u00f0ahlut.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> En hatist ma\u00f0ur vi\u00f0 n\u00e1unga sinn, sitji um hann, r\u00e1\u00f0ist \u00e1 hann og lj\u00f3sti hann til bana og fl\u00fdi s\u00ed\u00f0an \u00ed einhverja af gri\u00f0aborgunum, <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> skulu \u00f6ldungar heimaborgar hans senda menn og s\u00e6kja hann \u00feanga\u00f0. \u00deeir skulu framselja hann til l\u00edfl\u00e1ts \u00ed hendur \u00feess sem \u00e1 bl\u00f3\u00f0sektar a\u00f0 hefna. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki s\u00fdna honum neina sam\u00fa\u00f0 heldur hreinsa \u00cdsrael af s\u00f6k vegna saklauss bl\u00f3\u00f0s svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r farnist vel.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Um landamerki og vitnisbur\u00f0<\/h3>\n<p><a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki f\u00e6ra \u00far sta\u00f0 landamerki n\u00e1granna \u00fe\u00edns sem forfe\u00f0urnir hafa sett \u00ed erf\u00f0alandi \u00fe\u00ednu sem kemur \u00ed hlut \u00feinn \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, f\u00e6r \u00fe\u00e9r til eignar.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Ekki n\u00e6gir eitt vitni \u00e1 m\u00f3ti neinum \u00feeim sem saka\u00f0ur er um afbrot e\u00f0a gl\u00e6p, hvert svo sem broti\u00f0 er. \u00dev\u00ed a\u00f0eins skal frambur\u00f0ur gilda a\u00f0 tv\u00f6 e\u00f0a \u00ferj\u00fa vitni beri.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> En komi fram lj\u00fagvitni gegn einhverjum og beri a\u00f0 hann hyggi \u00e1 l\u00f6gbrot <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> skulu b\u00e1\u00f0ir sem hlut eiga a\u00f0 deilunni koma fram fyrir Drottin, prestana og d\u00f3marana sem \u00fe\u00e1 gegna emb\u00e6tti. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> D\u00f3mararnir skulu rannsaka m\u00e1lsatvik r\u00e6kilega. Komi \u00fe\u00e1 \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00feetta er lj\u00fagvitni, sem bori\u00f0 hefur br\u00f3\u00f0ur sinn lognum s\u00f6kum, <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 fara me\u00f0 hann eins og hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 fara me\u00f0 br\u00f3\u00f0ur sinn og \u00feannig skaltu ey\u00f0a hinu illa \u00fe\u00edn \u00e1 me\u00f0al. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Hinir skulu fr\u00e9tta \u00feetta svo a\u00f0 \u00feeir skelfist og dr\u00fdgi ekki framar \u00fev\u00edl\u00edkt \u00f3d\u00e6\u00f0i \u00fe\u00edn \u00e1 me\u00f0al. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt enga v\u00e6g\u00f0 s\u00fdna honum: L\u00edf fyrir l\u00edf, auga fyrir auga, t\u00f6nn fyrir t\u00f6nn, h\u00f6nd fyrir h\u00f6nd, f\u00f3t fyrir f\u00f3t.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gri\u00f0aborgir 1 \u00deegar Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, uppr\u00e6tir \u00fej\u00f3\u00f0irnar sem b\u00faa \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun f\u00e1 \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00fa hefur teki\u00f0 eignir \u00feeirra og ert sestur a\u00f0 \u00ed borgum \u00feeirra og h\u00fasum, 2 \u00fe\u00e1 skaltu veita \u00feremur borgum s\u00e9rst\u00f6\u00f0u \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, f\u00e6r \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa sl\u00e1ir eign \u00feinni \u00e1 \u00fea\u00f0. 3 \u00de\u00fa skalt stika \u00fat veginn a\u00f0 \u00feeim og skipta landinu, sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r a\u00f0 erf\u00f0ahlut, \u00ed \u00ferennt til \u00feess a\u00f0 hver s\u00e1 sem or\u00f0i\u00f0 hefur \u00f6\u00f0rum a\u00f0 bana geti fl\u00fai\u00f0 til \u00feessara borga. 4 \u00deetta skal gilda um \u00feann <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-19-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1789","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1789","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1789"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1789\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1789"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}