{"id":1785,"date":"2017-12-30T21:00:25","date_gmt":"2017-12-30T21:00:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-15-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:56","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:56","slug":"fimmta-mosebok-15-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-15-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 15. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Sj\u00f6unda \u00e1ri\u00f0: Uppgj\u00f6f skulda<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Sj\u00f6unda hvert \u00e1r skaltu fella ni\u00f0ur skuldir. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Eftir \u00feessum reglum skaltu fella ni\u00f0ur skuldir: S\u00e9rhver l\u00e1nardrottinn skal falla fr\u00e1 kr\u00f6fum vegna l\u00e1ns sem hann hefur veitt n\u00e1unga s\u00ednum. Hann skal ekki ganga eftir grei\u00f0slu hj\u00e1 n\u00e1unga s\u00ednum og me\u00f0br\u00f3\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 ni\u00f0urfelling skulda hefur veri\u00f0 bo\u00f0u\u00f0 vegna Drottins. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00de\u00fa m\u00e1tt ganga hart a\u00f0 \u00fatlendingi en \u00fe\u00fa skalt gefa br\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00ednum \u00fea\u00f0 eftir sem \u00fe\u00fa \u00e1tt hj\u00e1 honum.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Raunar \u00e1 enginn \u00fe\u00edn \u00e1 me\u00f0al a\u00f0 vera f\u00e1t\u00e6kur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed landinu, sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, f\u00e6r \u00fe\u00e9r sem erf\u00f0aland og \u00fe\u00fa tekur til eignar, mun Drottinn blessa \u00feig r\u00edkulega <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> ef \u00fe\u00fa a\u00f0eins hl\u00fd\u00f0ir Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, og g\u00e6tir \u00feess a\u00f0 halda \u00f6ll \u00e1kv\u00e6\u00f0in sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun blessa \u00feig eins og hann h\u00e9t \u00fe\u00e9r. \u00de\u00e1 munt \u00fe\u00fa l\u00e1na m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um en sj\u00e1lfur ekki \u00feurfa a\u00f0 taka l\u00e1n og \u00fe\u00fa munt r\u00edkja yfir m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um en engin mun r\u00edkja yfir \u00fe\u00e9r.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">L\u00e1n til f\u00e1t\u00e6kra \u00cdsraelsmanna<\/h3>\n<p><a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Ef einhver br\u00e6\u00f0ra \u00feinna er f\u00e1t\u00e6kur \u00ed einni af borgum \u00fe\u00ednum \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r skaltu ekki loka hendi \u00feinni fyrir f\u00e1t\u00e6kum br\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00ednum me\u00f0 har\u00f0\u00fd\u00f0gi <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> heldur skalt \u00fe\u00fa lj\u00faka upp hendi \u00feinni fyrir honum. \u00de\u00fa skalt l\u00e1na honum \u00fea\u00f0 sem hann skortir.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> G\u00e6t \u00feess a\u00f0 hleypa ekki \u00feessari \u00f3drengilegu hugsun a\u00f0: \u201eN\u00fa er skammt til sj\u00f6unda \u00e1rsins \u00feegar skuldir skulu felldar ni\u00f0ur,\u201c og \u00fe\u00fa l\u00edtir \u00feurfandi br\u00f3\u00f0ur \u00feinn illu auga og gefir honum ekkert. \u00de\u00e1 mun hann \u00e1kalla Drottin og \u00e1saka \u00feig og \u00fea\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00e9r til syndar.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt gefa honum f\u00faslega en ekki me\u00f0 \u00f3lund \u00fev\u00ed a\u00f0 fyrir \u00fea\u00f0 mun Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, blessa \u00f6ll \u00fe\u00edn verk og hva\u00f0 sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 aldrei mun f\u00e1t\u00e6kra vant ver\u00f0a \u00ed landinu og \u00feess vegna geri \u00e9g \u00fe\u00e9r \u00feetta a\u00f0 skyldu: Lj\u00faktu upp hendi \u00feinni fyrir me\u00f0br\u00e6\u00f0rum \u00fe\u00ednum, f\u00e1t\u00e6kum og \u00feurfandi \u00ed landi \u00fe\u00ednu.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Lausn hebreskra \u00fer\u00e6la<\/h3>\n<p><a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Selji landi \u00feinn sig \u00fe\u00e9r, hvort sem er hebreskur karl e\u00f0a kona, skal hann \u00fej\u00f3na \u00fe\u00e9r \u00ed sex \u00e1r en sj\u00f6unda \u00e1ri\u00f0 skaltu l\u00e1ta hann frj\u00e1lsan fr\u00e1 \u00fe\u00e9r fara. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa leysir hann skaltu ekki l\u00e1ta hann fara t\u00f3mhentan. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt f\u00e1 honum svo miki\u00f0 sem hann getur bori\u00f0 af sau\u00f0ahj\u00f6r\u00f0 \u00feinni og \u00fereskivelli og \u00far v\u00ednpressu \u00feinni og gefa honum af \u00f6llu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur blessa\u00f0 \u00feig me\u00f0. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Minnstu \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa varst sj\u00e1lfur \u00fer\u00e6ll \u00ed Egyptalandi og Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, keypti \u00feig lausan. \u00deess vegna legg \u00e9g \u00feetta bo\u00f0 fyrir \u00feig \u00ed dag.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> En segi n\u00fa \u00feessi \u00fer\u00e6ll vi\u00f0 \u00feig: \u201e\u00c9g vil ekki fara fr\u00e1 \u00fe\u00e9r,\u201c af \u00fev\u00ed a\u00f0 honum \u00feykir v\u00e6nt um \u00feig og fj\u00f6lskyldu \u00fe\u00edna og l\u00ed\u00f0ur vel hj\u00e1 \u00fe\u00e9r, <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00fe\u00e1 skaltu taka al og stinga honum \u00ed gegnum eyrnasnepil hans og \u00ed hur\u00f0ina. Hann ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 \u00fer\u00e6ll \u00feinn \u00e6vilangt. \u00c1 sama h\u00e1tt skaltu fara me\u00f0 amb\u00e1tt \u00fe\u00edna.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Taktu \u00fea\u00f0 ekki n\u00e6rri \u00fe\u00e9r a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 senda hann fr\u00e1 \u00fe\u00e9r frj\u00e1lsan mann \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefur unni\u00f0 fyrir \u00feig \u00ed sex \u00e1r fyrir jafngildi \u00feess sem \u00fe\u00fa hef\u00f0ir \u00feurft a\u00f0 grei\u00f0a kaupamanni. Og Drottinn mun blessa \u00feig \u00ed \u00f6llu sem \u00fe\u00fa gerir.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Frumbur\u00f0ir b\u00fafj\u00e1r<\/h3>\n<p><a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt helga Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, alla karlkyns frumbur\u00f0i nautgripa \u00feinna og sau\u00f0fj\u00e1r. \u00de\u00fa skalt ekki hafa frumbur\u00f0i nauta \u00feinna til vinnu og ekki r\u00fdja frumbur\u00f0i sau\u00f0fj\u00e1r \u00fe\u00edns.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00c1 hverju \u00e1ri skaltu eta frumbur\u00f0i b\u00fafj\u00e1r \u00fe\u00edns me\u00f0 fj\u00f6lskyldu \u00feinni, frammi fyrir Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, \u00e1 sta\u00f0num sem Drottinn velur.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> En s\u00e9u einhver l\u00fdti \u00e1 d\u00fdri, \u00fea\u00f0 halt e\u00f0a blint e\u00f0a me\u00f0 annan sl\u00e6man galla, skaltu ekki f\u00e6ra \u00fea\u00f0 Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, a\u00f0 sl\u00e1turf\u00f3rn. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt neyta \u00feess \u00ed heimaborg \u00feinni. B\u00e6\u00f0i hreinn ma\u00f0ur og \u00f3hreinn mega eta \u00fea\u00f0 saman eins og \u00fea\u00f0 v\u00e6ri sk\u00f3gargeit e\u00f0a hj\u00f6rtur. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa m\u00e1tt ekki neyta bl\u00f3\u00f0sins, \u00fe\u00fa skalt hella \u00fev\u00ed \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina eins og vatni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Sj\u00f6unda \u00e1ri\u00f0: Uppgj\u00f6f skulda 1 Sj\u00f6unda hvert \u00e1r skaltu fella ni\u00f0ur skuldir. 2 Eftir \u00feessum reglum skaltu fella ni\u00f0ur skuldir: S\u00e9rhver l\u00e1nardrottinn skal falla fr\u00e1 kr\u00f6fum vegna l\u00e1ns sem hann hefur veitt n\u00e1unga s\u00ednum. Hann skal ekki ganga eftir grei\u00f0slu hj\u00e1 n\u00e1unga s\u00ednum og me\u00f0br\u00f3\u00f0ur \u00fev\u00ed a\u00f0 ni\u00f0urfelling skulda hefur veri\u00f0 bo\u00f0u\u00f0 vegna Drottins. 3 \u00de\u00fa m\u00e1tt ganga hart a\u00f0 \u00fatlendingi en \u00fe\u00fa skalt gefa br\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00ednum \u00fea\u00f0 eftir sem \u00fe\u00fa \u00e1tt hj\u00e1 honum. 4 Raunar \u00e1 enginn \u00fe\u00edn \u00e1 me\u00f0al a\u00f0 vera f\u00e1t\u00e6kur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed landinu, sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, f\u00e6r \u00fe\u00e9r sem erf\u00f0aland og \u00fe\u00fa tekur til <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-15-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1785","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1785","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1785"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1785\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1785"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}