{"id":1778,"date":"2017-12-30T21:00:25","date_gmt":"2017-12-30T21:00:25","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-8-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:32:01","modified_gmt":"2024-05-06T22:32:01","slug":"fimmta-mosebok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-8-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Vara\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 gleyma Gu\u00f0i<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00d6ll \u00feau fyrirm\u00e6li sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 halda svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 megi\u00f0 lifa og ykkur fj\u00f6lgi og \u00fei\u00f0 komist inn \u00ed og sl\u00e1i\u00f0 eign ykkar \u00e1 landi\u00f0 sem Drottinn h\u00e9t fe\u00f0rum ykkar. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Haf\u00f0u hugfast hvernig Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, leiddi \u00feig alla lei\u00f0ina \u00feessi fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 til a\u00f0 beygja \u00feig og reyna \u00feig, til \u00feess a\u00f0 komast a\u00f0 raun um hva\u00f0 \u00fe\u00fa haf\u00f0ir \u00ed huga, hvort \u00fe\u00fa hyg\u00f0ist halda bo\u00f0or\u00f0 hans. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hann au\u00f0m\u00fdkti \u00feig me\u00f0 hungri en gaf \u00fe\u00e9r s\u00ed\u00f0an manna a\u00f0 eta sem hvorki \u00fe\u00fa n\u00e9 forfe\u00f0ur \u00fe\u00ednir \u00feekktu. Hann vildi gera \u00fe\u00e9r lj\u00f3st a\u00f0 ma\u00f0urinn lifir ekki \u00e1 einu saman brau\u00f0i heldur hverju \u00fev\u00ed sem fram gengur af munni Drottins.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Hvorki slitnu\u00f0u kl\u00e6\u00f0i \u00fe\u00edn utan af \u00fe\u00e9r n\u00e9 heldur \u00fer\u00fatnu\u00f0u f\u00e6tur \u00fe\u00ednir \u00feessi fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Af \u00fev\u00ed getur\u00f0u l\u00e6rt a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, elur \u00feig upp eins og ma\u00f0ur elur upp son sinn. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Haltu \u00fev\u00ed \u00e1kv\u00e6\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, gakktu \u00e1 hans vegum og \u00f3ttastu hann.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun lei\u00f0a \u00feig inn \u00ed gott land, inn \u00ed land me\u00f0 l\u00e6kjum, lindum og uppsprettum sem streyma fram \u00ed d\u00f6lum og \u00e1 fj\u00f6llum, <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> inn \u00ed land \u00fear sem n\u00f3g er af hveiti og byggi, v\u00ednvi\u00f0i, f\u00edkjutrj\u00e1m og granateplatrj\u00e1m, inn \u00ed land me\u00f0 ol\u00eduvi\u00f0i og hunangi, <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> inn \u00ed land \u00fear sem \u00fe\u00fa \u00fearft ekki a\u00f0 neyta matar \u00ed f\u00e1t\u00e6kt og \u00fear sem \u00feig mun ekkert skorta og \u00fear sem steinarnir eru j\u00e1rn og \u00fe\u00fa getur broti\u00f0 eir \u00far fj\u00f6llunum.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa hefur eti\u00f0 og ert or\u00f0inn mettur skaltu lofa Drottin, Gu\u00f0 \u00feinn, fyrir landi\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem hann hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> G\u00e6t \u00feess \u00fe\u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00fa gleymir ekki Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, og h\u00e6ttir a\u00f0 hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0um hans, \u00e1kv\u00e6\u00f0um og l\u00f6gum sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag.<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa hefur eti\u00f0 og ert or\u00f0inn mettur og hefur reist gl\u00e6sileg h\u00fas og hefur komi\u00f0 \u00fe\u00e9r fyrir <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> og \u00feegar nautpeningi \u00fe\u00ednum og sau\u00f0f\u00e9 fj\u00f6lgar og \u00fe\u00e9r gr\u00e6\u00f0ist gull og silfur og allar eigur \u00fe\u00ednar margfaldast, <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> g\u00e6t \u00feess \u00fe\u00e1 a\u00f0 fyllast ekki ofmetna\u00f0i og gleyma Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, sem leiddi \u00feig \u00fat \u00far Egyptalandi, \u00fat \u00far \u00fer\u00e6lah\u00fasinu. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Hann leiddi \u00feig yfir hina miklu og \u00f3gnvekjandi ey\u00f0im\u00f6rk \u00fear sem eitursn\u00e1kar og spor\u00f0drekar voru, gegnum skr\u00e6lna\u00f0 land \u00fear sem ekki fannst vatnsdropi en handa \u00fe\u00e9r l\u00e9t hann vatn streyma \u00far tinnuh\u00f6r\u00f0um kletti. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00cd ey\u00f0im\u00f6rkinni gaf hann \u00fe\u00e9r manna a\u00f0 eta sem fe\u00f0ur ykkar \u00feekktu ekki svo a\u00f0 hann g\u00e6ti au\u00f0m\u00fdkt \u00feig og reynt \u00feig og s\u00ed\u00f0an gert vel vi\u00f0 \u00feig.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki hugsa me\u00f0 \u00fe\u00e9r: \u201e\u00c9g hef afla\u00f0 \u00feessara au\u00f0\u00e6fa me\u00f0 eigin afli og styrk handar minnar.\u201c <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Minnstu heldur Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var hann sem gaf \u00fe\u00e9r styrk til a\u00f0 afla au\u00f0s til \u00feess a\u00f0 standa vi\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1lann sem hann s\u00f3r fe\u00f0rum \u00fe\u00ednum eins og hann gerir enn \u00ed dag.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> En ef \u00fe\u00fa gleymir Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, fylgir \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um, \u00fej\u00f3nar \u00feeim og tilbi\u00f0ur, \u00fe\u00e1 votta \u00e9g \u00ed dag a\u00f0 ykkur mun gereytt <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> eins og \u00fej\u00f3\u00f0unum sem Drottinn eyddi fyrir ykkur. \u00deannig ver\u00f0ur ykkur eytt vegna \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 hl\u00fdddu\u00f0 ekki r\u00f6dd Drottins, Gu\u00f0s ykkar.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vara\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0 gleyma Gu\u00f0i 1 \u00d6ll \u00feau fyrirm\u00e6li sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r \u00ed dag skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 halda svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 megi\u00f0 lifa og ykkur fj\u00f6lgi og \u00fei\u00f0 komist inn \u00ed og sl\u00e1i\u00f0 eign ykkar \u00e1 landi\u00f0 sem Drottinn h\u00e9t fe\u00f0rum ykkar. 2 Haf\u00f0u hugfast hvernig Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, leiddi \u00feig alla lei\u00f0ina \u00feessi fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. Hann ger\u00f0i \u00fea\u00f0 til a\u00f0 beygja \u00feig og reyna \u00feig, til \u00feess a\u00f0 komast a\u00f0 raun um hva\u00f0 \u00fe\u00fa haf\u00f0ir \u00ed huga, hvort \u00fe\u00fa hyg\u00f0ist halda bo\u00f0or\u00f0 hans. 3 Hann au\u00f0m\u00fdkti \u00feig me\u00f0 hungri en gaf \u00fe\u00e9r s\u00ed\u00f0an manna a\u00f0 eta sem <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1778","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1778","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1778"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1778\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1778"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}