{"id":1777,"date":"2017-12-30T21:00:21","date_gmt":"2017-12-30T21:00:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-7-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:32:01","modified_gmt":"2024-05-06T22:32:01","slug":"fimmta-mosebok-7-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-7-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 7. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> B\u00f6nnu\u00f0 samskipti vi\u00f0 hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00deegar Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur leitt \u00feig inn \u00ed landi\u00f0 sem \u00fe\u00fa heldur n\u00fa inn \u00ed til a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar, mun hann ry\u00f0ja m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um \u00far vegi fyrir \u00fe\u00e9r, Het\u00edtum, G\u00edrgas\u00edtum, Amor\u00edtum, Kanverjum, Peres\u00edtum, Hev\u00edtum og Jeb\u00fas\u00edtum, \u00feeim sj\u00f6 \u00fej\u00f3\u00f0um sem eru fj\u00f6lmennari og voldugri en \u00fe\u00fa. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00deegar Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e6r \u00e1 vald og \u00fe\u00fa hefur sigra\u00f0 \u00fe\u00e6r skaltu helga \u00fe\u00e6r banni. \u00de\u00fa m\u00e1tt ekki gera vi\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e1ttm\u00e1la, ekki hl\u00edfa \u00feeim <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> og ekki m\u00e6gjast vi\u00f0 \u00fe\u00e6r. \u00de\u00fa skalt hvorki gefa d\u00e6tur \u00fe\u00ednar sonum \u00feeirra n\u00e9 taka d\u00e6tur \u00feeirra til handa sonum \u00fe\u00ednum.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 mundi sn\u00faa sonum \u00fe\u00ednum fr\u00e1 fylgd vi\u00f0 mig svo a\u00f0 \u00feeir f\u00e6ru a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um. \u00de\u00e1 mundi rei\u00f0i Drottins blossa upp gegn ykkur og ey\u00f0a \u00fe\u00e9r \u00feegar \u00ed sta\u00f0. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> En \u00feannig skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 fara me\u00f0 \u00fe\u00e6r: \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 r\u00edfa ni\u00f0ur \u00f6lturu \u00feeirra, brj\u00f3ta merkisteina \u00feeirra, h\u00f6ggva ni\u00f0ur As\u00e9rust\u00f3lpa og brenna skur\u00f0go\u00f0 \u00feeirra \u00ed eldi. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa ert heil\u00f6g \u00fej\u00f3\u00f0 fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum. Drottinn valdi \u00feig til a\u00f0 ver\u00f0a eignarl\u00fd\u00f0ur hans me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a sem b\u00faa \u00e1 yfirbor\u00f0i jar\u00f0ar.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Ekki var \u00fea\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 v\u00e6ru\u00f0 fj\u00f6lmennari en allar a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir a\u00f0 Drottinn f\u00e9kk \u00e1st \u00e1 ykkur og valdi ykkur \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 eru\u00f0 f\u00e1mennari en allar a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> En s\u00f6kum \u00feess a\u00f0 Drottinn elska\u00f0i ykkur og h\u00e9lt ei\u00f0inn sem hann s\u00f3r fe\u00f0rum ykkar leiddi hann ykkur \u00fat \u00far \u00fer\u00e6lah\u00fasinu me\u00f0 sterkri hendi og keypti ykkur frj\u00e1lsa \u00far hendi fara\u00f3s Egyptalandskonungs. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Vita skaltu: Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hann einn er Gu\u00f0, hinn tr\u00fafasti Gu\u00f0 sem heldur s\u00e1ttm\u00e1lann og veitir \u00feeim heill \u00ed \u00fe\u00fasund \u00e6ttli\u00f0i sem elska hann og halda bo\u00f0or\u00f0 hans. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En hann endurgeldur \u00feeim umsvifalaust sem hatar hann og afm\u00e1ir hann. Hann hikar ekki heldur endurgeldur \u00feeim umsvifalaust sem hatar hann. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deess vegna skaltu halda fyrirm\u00e6lin, l\u00f6gin og \u00e1kv\u00e6\u00f0in, sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r n\u00fa \u00ed dag, og framfylgja \u00feeim.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Fyrirheit um blessun Gu\u00f0s<\/h3>\n<p><a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 hl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1 \u00feessi \u00e1kv\u00e6\u00f0i og haldi\u00f0 \u00feau af kostg\u00e6fni mun Drottinn halda s\u00e1ttm\u00e1lann vi\u00f0 \u00feig og veita \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 heill sem hann h\u00e9t fe\u00f0rum \u00fe\u00ednum. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Hann mun elska \u00feig, blessa \u00feig og fj\u00f6lga \u00fe\u00e9r. Hann mun blessa \u00e1v\u00f6xt kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xt lands \u00fe\u00edns, korn \u00feitt, v\u00edn, ol\u00edu, k\u00e1lfa \u00fe\u00edna og l\u00f6mb \u00ed landinu sem hann h\u00e9t fe\u00f0rum \u00fe\u00ednum a\u00f0 gefa \u00fe\u00e9r. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00fa munt hlj\u00f3ta meiri blessun en allar a\u00f0rar \u00fej\u00f3\u00f0ir. Me\u00f0al \u00fe\u00edn ver\u00f0ur hvorki \u00f3frj\u00f3r karl n\u00e9 kona og ekkert af b\u00faf\u00e9na\u00f0i \u00fe\u00ednum gelt. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Drottinn mun b\u00e6gja fr\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00f6llum sj\u00fakd\u00f3mum. Hann mun ekki leggja \u00e1 \u00feig neina af hinum \u00feungb\u00e6ru s\u00f3ttum Egyptalands sem \u00fe\u00fa \u00feekkir heldur mun hann leggja \u00fe\u00e6r \u00e1 fjandmenn \u00fe\u00edna. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ey\u00f0a \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r \u00e1 vald. Haf\u00f0u enga sam\u00fa\u00f0 me\u00f0 \u00feeim. \u00de\u00fa skalt ekki \u00fej\u00f3na gu\u00f0um \u00feeirra \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 gengur \u00fe\u00fa \u00ed gildru.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00de\u00fa kynnir a\u00f0 hugsa: \u201e\u00deessar \u00fej\u00f3\u00f0ir eru fj\u00f6lmennari en \u00e9g, hvernig \u00e1 \u00e9g a\u00f0 geta hraki\u00f0 \u00fe\u00e6r burt?\u201c <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa \u00fearft ekki a\u00f0 \u00f3ttast \u00fe\u00e6r. Haf\u00f0u heldur hugfast hvernig Drottinn f\u00f3r me\u00f0 fara\u00f3 og alla Egypta. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00fa s\u00e1st me\u00f0 eigin augum hin voldugu m\u00e1ttarverk, t\u00e1kn og undur og hvernig Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, leiddi \u00feig \u00fat me\u00f0 sterkri hendi og \u00fatr\u00e9ttum armi. Eins mun Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, fara me\u00f0 allar \u00fej\u00f3\u00f0irnar sem \u00fe\u00fa hr\u00e6\u00f0ist. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Auk \u00feess mun Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, l\u00e1ta \u00f6rv\u00e6ntingu koma yfir \u00fe\u00e6r uns jafnvel \u00feeim hefur veri\u00f0 tort\u00edmt sem af komast og fela sig fyrir \u00fe\u00e9r.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki hr\u00e6\u00f0ast \u00fe\u00e6r \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, er mitt \u00e1 me\u00f0al ykkar, m\u00e1ttugur og \u00f3gnvekjandi Gu\u00f0. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun sm\u00e1m saman ry\u00f0ja \u00feessum \u00fej\u00f3\u00f0um \u00far vegi fyrir \u00fe\u00e9r. \u00de\u00fa munt ekki geta tort\u00edmt \u00feeim \u00ed einni svipan svo a\u00f0 villid\u00fdrunum fj\u00f6lgi ekki \u00fe\u00e9r til ska\u00f0a. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> En Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, mun gefa \u00feessar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00fe\u00e9r \u00e1 vald. Hann mun gera \u00fe\u00e6r fr\u00e1vita \u00fear til \u00feeim hefur veri\u00f0 gereytt. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> Hann mun gefa konunga \u00feeirra \u00fe\u00e9r \u00e1 vald og \u00fe\u00fa munt afm\u00e1 n\u00f6fn \u00feeirra undir himninum. Enginn ma\u00f0ur mun geta sta\u00f0i\u00f0 gegn \u00fe\u00e9r uns \u00fe\u00fa hefur gereytt \u00feeim.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Skur\u00f0go\u00f0 \u00feeirra skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 brenna \u00ed eldi. \u00de\u00fa skalt ekki girnast silfri\u00f0 e\u00f0a gulli\u00f0 sem \u00feau eru l\u00f6g\u00f0 og ekki halda \u00fev\u00ed, ella ver\u00f0ur \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e9r gildra \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er Drottni \u00fe\u00ednum vi\u00f0urstygg\u00f0. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00fa m\u00e1tt ekki flytja neina vi\u00f0urstygg\u00f0 \u00ed h\u00fas \u00feitt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 ver\u00f0ur \u00fe\u00fa helga\u00f0ur banni eins og h\u00fan. \u00de\u00fa \u00e1tt a\u00f0 hafa andstygg\u00f0 og vi\u00f0bj\u00f3\u00f0 \u00e1 henni \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan er helgu\u00f0 banni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>B\u00f6nnu\u00f0 samskipti vi\u00f0 hei\u00f0nar \u00fej\u00f3\u00f0ir 1 \u00deegar Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur leitt \u00feig inn \u00ed landi\u00f0 sem \u00fe\u00fa heldur n\u00fa inn \u00ed til a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar, mun hann ry\u00f0ja m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um \u00far vegi fyrir \u00fe\u00e9r, Het\u00edtum, G\u00edrgas\u00edtum, Amor\u00edtum, Kanverjum, Peres\u00edtum, Hev\u00edtum og Jeb\u00fas\u00edtum, \u00feeim sj\u00f6 \u00fej\u00f3\u00f0um sem eru fj\u00f6lmennari og voldugri en \u00fe\u00fa. 2 \u00deegar Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e6r \u00e1 vald og \u00fe\u00fa hefur sigra\u00f0 \u00fe\u00e6r skaltu helga \u00fe\u00e6r banni. \u00de\u00fa m\u00e1tt ekki gera vi\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e1ttm\u00e1la, ekki hl\u00edfa \u00feeim 3 og ekki m\u00e6gjast vi\u00f0 \u00fe\u00e6r. \u00de\u00fa skalt hvorki gefa d\u00e6tur \u00fe\u00ednar sonum \u00feeirra n\u00e9 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-7-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1777","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1777","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1777"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1777\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1777"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}