{"id":1775,"date":"2017-12-30T21:00:21","date_gmt":"2017-12-30T21:00:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-5-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:32:01","modified_gmt":"2024-05-06T22:32:01","slug":"fimmta-mosebok-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-5-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 5. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> S\u00e1ttm\u00e1linn hj\u00e1 H\u00f3reb: Bo\u00f0or\u00f0in t\u00edu<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> M\u00f3se kalla\u00f0i allan \u00cdsrael saman og sag\u00f0i: Heyr \u00fe\u00fa, \u00cdsrael, l\u00f6gin og \u00e1kv\u00e6\u00f0in sem \u00e9g bo\u00f0a ykkur n\u00fa \u00ed dag. L\u00e6ri\u00f0 \u00feau, haldi\u00f0 \u00feau af kostg\u00e6fni.<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 okkar, ger\u00f0i s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 okkur hj\u00e1 H\u00f3reb. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Drottinn ger\u00f0i \u00feennan s\u00e1ttm\u00e1la ekki vi\u00f0 fe\u00f0ur okkar heldur okkur sem n\u00fa lifum, okkur \u00f6ll sem erum h\u00e9r \u00ed dag. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 ykkur \u00e1 fjallinu, augliti til auglitis \u00far eldinum. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 \u00e9g \u00e1 milli Drottins og ykkar til a\u00f0 flytja ykkur r\u00e6\u00f0u Drottins \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 h\u00f6f\u00f0u\u00f0 ekki gengi\u00f0 \u00e1 fjalli\u00f0 af \u00f3tta vi\u00f0 eldinn. Drottinn sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u201e\u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, sem leiddi \u00feig \u00fat \u00far Egyptalandi, \u00fat \u00far \u00fer\u00e6lah\u00fasinu.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki hafa a\u00f0ra gu\u00f0i en mig.<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki gera \u00fe\u00e9r skur\u00f0go\u00f0 \u00ed l\u00edkingu neins sem er \u00e1 himnum uppi e\u00f0a \u00e1 j\u00f6r\u00f0u ni\u00f0ri e\u00f0a \u00ed vatninu undir j\u00f6r\u00f0inni. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki tilbi\u00f0ja skur\u00f0go\u00f0 og ekki d\u00fdrka \u00feau \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, er vandl\u00e1tur Gu\u00f0. \u00c9g refsa b\u00f6rnum \u00feeirra sem eru m\u00e9r fjandsamlegir \u00ed \u00feri\u00f0ja og fj\u00f3r\u00f0a \u00e6ttli\u00f0 fyrir afbrot fe\u00f0ra \u00feeirra. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> En \u00feeim sem elska mig og halda bo\u00f0 m\u00edn s\u00fdni \u00e9g g\u00e6sku \u00ed \u00fe\u00fasund \u00e6ttli\u00f0i.<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki leggja nafn Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, vi\u00f0 h\u00e9g\u00f3ma \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn mun ekki l\u00e1ta \u00feeim \u00f3hegnt sem leggur nafn hans vi\u00f0 h\u00e9g\u00f3ma.<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> Minnstu hv\u00edldardagsins, a\u00f0 halda hann heilagan eins og Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur fyrir \u00feig lagt. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00cd sex daga skalt \u00fe\u00fa starfa og vinna \u00f6ll \u00fe\u00edn verk. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> En sj\u00f6undi dagurinn er hv\u00edldardagur, helga\u00f0ur Drottni, Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum. \u00de\u00e1 skaltu ekkert verk vinna, hvorki \u00fe\u00fa, sonur \u00feinn n\u00e9 d\u00f3ttir, \u00fer\u00e6ll \u00feinn n\u00e9 amb\u00e1tt, naut \u00feitt n\u00e9 asni n\u00e9 neitt af b\u00faf\u00e9na\u00f0i \u00fe\u00ednum n\u00e9 a\u00f0komuma\u00f0urinn sem hefur h\u00e6li hj\u00e1 \u00fe\u00e9r \u00ed borg \u00feinni. \u00der\u00e6ll \u00feinn og amb\u00e1tt eiga a\u00f0 hv\u00edlast eins og \u00fe\u00fa sj\u00e1lfur <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> og \u00fe\u00fa skalt minnast \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa varst sj\u00e1lfur \u00fer\u00e6ll \u00ed Egyptalandi. Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, leiddi \u00feig \u00fea\u00f0an me\u00f0 sterkri hendi og \u00fatr\u00e9ttum armi. \u00deess vegna hefur Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r a\u00f0 halda hv\u00edldardaginn.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Hei\u00f0ra f\u00f6\u00f0ur \u00feinn og m\u00f3\u00f0ur \u00fe\u00edna eins og Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r svo a\u00f0 \u00fe\u00fa ver\u00f0ir langl\u00edfur og \u00fe\u00e9r vegni vel \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki mor\u00f0 fremja.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki dr\u00fdgja h\u00f3r.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki stela.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki bera lj\u00fagvitni gegn n\u00e1unga \u00fe\u00ednum.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki girnast konu n\u00e1unga \u00fe\u00edns. \u00de\u00fa skalt ekki girnast h\u00fas n\u00e1unga \u00fe\u00edns, akur hans, \u00fer\u00e6l hans e\u00f0a amb\u00e1tt, uxa hans e\u00f0a asna, n\u00e9 neitt sem n\u00e1ungi \u00feinn \u00e1.\u201c<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00deessi bo\u00f0or\u00f0 flutti Drottinn \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0i ykkar \u00e1 fjallinu. Hann tala\u00f0i \u00fat \u00far eldinum, sk\u00fdja\u00feykkninu og myrkrinu, me\u00f0 \u00ferumuraust og b\u00e6tti engu vi\u00f0. S\u00ed\u00f0an skr\u00e1\u00f0i hann \u00feau \u00e1 tv\u00e6r steint\u00f6flur og f\u00e9kk m\u00e9r \u00fe\u00e6r.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Me\u00f0algangari milli Gu\u00f0s og \u00cdsraels<\/h3>\n<p><a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00deegar \u00fei\u00f0 h\u00f6f\u00f0u\u00f0 heyrt \u00ferumuraustina \u00far myrkrinu og fjalli\u00f0 st\u00f3\u00f0 enn \u00ed bj\u00f6rtu b\u00e1li komu\u00f0 \u00fei\u00f0 til m\u00edn, allir h\u00f6f\u00f0ingjar \u00e6ttb\u00e1lka ykkar og \u00f6ldungar, <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> og s\u00f6g\u00f0u\u00f0: \u201eDrottinn, Gu\u00f0 okkar, hefur birt okkur d\u00fdr\u00f0 s\u00edna og m\u00e1tt og vi\u00f0 heyr\u00f0um r\u00f6dd hans \u00far eldinum. \u00cd dag h\u00f6fum vi\u00f0 reynt a\u00f0 Gu\u00f0 hefur tala\u00f0 til manna og \u00feeir haldi\u00f0 l\u00edfi. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> Hv\u00ed skyldum vi\u00f0 \u00fe\u00e1 deyja? \u00deessi mikli eldur g\u00e6ti gleypt okkur. Ef vi\u00f0 heyrum raust Drottins, Gu\u00f0s okkar, einu sinni enn munum vi\u00f0 deyja. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 hva\u00f0a dau\u00f0legur ma\u00f0ur hefur nokkru sinni heyrt raust hins lifanda Gu\u00f0s \u00far eldi eins og vi\u00f0 og haldi\u00f0 l\u00edfi? <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt fara einn og hlusta \u00e1 allt sem Drottinn, Gu\u00f0 okkar, segir og sk\u00fdra okkur s\u00ed\u00f0an fr\u00e1 \u00f6llu sem Drottinn, Gu\u00f0 okkar, segir vi\u00f0 \u00feig. Vi\u00f0 munum hlusta \u00e1 \u00fea\u00f0 og hl\u00fd\u00f0a.\u201c<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Drottinn heyr\u00f0i hva\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00f6g\u00f0u\u00f0 \u00feegar \u00fei\u00f0 t\u00f6lu\u00f0u\u00f0 vi\u00f0 mig og sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u201e\u00c9g heyr\u00f0i hva\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk sag\u00f0i \u00feegar \u00fea\u00f0 tala\u00f0i vi\u00f0 \u00feig. Allt sem \u00fea\u00f0 sag\u00f0i var r\u00e9tt. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Megi \u00fea\u00f0 \u00e1vallt vera sama sinnis og \u00f3ttast mig og halda \u00f6ll bo\u00f0 m\u00edn svo a\u00f0 \u00fev\u00ed og ni\u00f0jum \u00feess vegni \u00e6vinlega vel. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Far\u00f0u og seg\u00f0u f\u00f3lkinu: Sn\u00fai\u00f0 aftur til tjalda ykkar. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> En \u00fe\u00fa skalt sj\u00e1lfur vera h\u00e9r kyrr hj\u00e1 m\u00e9r. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 flytja \u00fe\u00e9r \u00f6ll \u00feau fyrirm\u00e6li, l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem \u00fe\u00fa \u00e1tt a\u00f0 kenna \u00fev\u00ed a\u00f0 breyta eftir \u00ed landinu sem \u00e9g f\u00e6 \u00fev\u00ed til eignar.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> G\u00e6ti\u00f0 \u00feess a\u00f0 breyta eins og Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, hefur bo\u00f0i\u00f0 ykkur. V\u00edki\u00f0 ekki fr\u00e1 \u00fev\u00ed, hvorki til h\u00e6gri n\u00e9 vinstri. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Gangi\u00f0 \u00feann veg einan sem Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, hefur bent ykkur \u00e1 svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 lifi\u00f0 og ykkur vegni vel og \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 langl\u00edf \u00ed landinu sem \u00fei\u00f0 munu\u00f0 taka til eignar.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>S\u00e1ttm\u00e1linn hj\u00e1 H\u00f3reb: Bo\u00f0or\u00f0in t\u00edu 1 M\u00f3se kalla\u00f0i allan \u00cdsrael saman og sag\u00f0i: Heyr \u00fe\u00fa, \u00cdsrael, l\u00f6gin og \u00e1kv\u00e6\u00f0in sem \u00e9g bo\u00f0a ykkur n\u00fa \u00ed dag. L\u00e6ri\u00f0 \u00feau, haldi\u00f0 \u00feau af kostg\u00e6fni. 2 Drottinn, Gu\u00f0 okkar, ger\u00f0i s\u00e1ttm\u00e1la vi\u00f0 okkur hj\u00e1 H\u00f3reb. 3 Drottinn ger\u00f0i \u00feennan s\u00e1ttm\u00e1la ekki vi\u00f0 fe\u00f0ur okkar heldur okkur sem n\u00fa lifum, okkur \u00f6ll sem erum h\u00e9r \u00ed dag. 4 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 ykkur \u00e1 fjallinu, augliti til auglitis \u00far eldinum. 5 \u00de\u00e1 st\u00f3\u00f0 \u00e9g \u00e1 milli Drottins og ykkar til a\u00f0 flytja ykkur r\u00e6\u00f0u Drottins \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fei\u00f0 h\u00f6f\u00f0u\u00f0 ekki gengi\u00f0 \u00e1 fjalli\u00f0 af \u00f3tta <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1775","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1775","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1775"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1775\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1775"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}