{"id":1774,"date":"2017-12-30T21:00:21","date_gmt":"2017-12-30T21:00:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-4-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:32:00","modified_gmt":"2024-05-06T22:32:00","slug":"fimmta-mosebok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-4-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Hvatning og vi\u00f0v\u00f6run<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 n\u00fa, \u00cdsraelsmenn, \u00e1 l\u00f6gin og \u00e1kv\u00e6\u00f0in sem \u00e9g kenni ykkur. Fylgi\u00f0 \u00feeim svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 haldi\u00f0 l\u00edfi og komist inn \u00ed landi\u00f0 sem Drottinn, Gu\u00f0 fe\u00f0ra ykkar, f\u00e6r ykkur til eignar.<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Engu megi\u00f0 \u00fei\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 ykkur og engu sleppa heldur skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 halda bo\u00f0 Drottins, Gu\u00f0s ykkar, sem \u00e9g set ykkur.<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 me\u00f0 eigin augum hva\u00f0 Drottinn ger\u00f0i vegna Baal Pe\u00f3rs. Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, uppr\u00e6tti hvern \u00feann \u00far samf\u00e9lagi ykkar sem fylgdi Baal Pe\u00f3r. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> En \u00fei\u00f0 sem h\u00e9ldu\u00f0 ykkur fast vi\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 ykkar, eru\u00f0 \u00f6ll \u00e1 l\u00edfi enn \u00ed dag.<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Sj\u00e1! Eins og Drottinn, Gu\u00f0 hefur fali\u00f0 m\u00e9r kenni \u00e9g ykkur l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 fara eftir \u00ed landinu sem \u00fei\u00f0 eru\u00f0 a\u00f0 halda inn \u00ed og taka til eignar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Haldi\u00f0 \u00feau og fylgi\u00f0 \u00feeim \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun s\u00fdna \u00f6\u00f0rum \u00fej\u00f3\u00f0um visku ykkar og skilning en \u00fe\u00e6r munu segja \u00feegar \u00fe\u00e6r heyra um \u00f6ll \u00feessi l\u00f6g: \u201e\u00deessi mikla \u00fej\u00f3\u00f0 er sannarlega vitur og vel a\u00f0 s\u00e9r.\u201c <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hver er s\u00fa st\u00f3r\u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 h\u00fan hafi gu\u00f0i jafnn\u00e6rri s\u00e9r og Drottinn, Gu\u00f0 okkar, er n\u00e6rri okkur \u00feegar vi\u00f0 \u00e1k\u00f6llum hann? <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Og hva\u00f0a st\u00f3r\u00fej\u00f3\u00f0 hefur \u00e1kv\u00e6\u00f0i og l\u00f6g sem jafnast \u00e1 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 l\u00f6gm\u00e1l sem \u00e9g legg fyrir ykkur \u00ed dag?<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> En vertu vark\u00e1r og g\u00e6ttu \u00fe\u00edn vel svo a\u00f0 \u00fe\u00fa gleymir ekki \u00feeim atbur\u00f0um sem \u00fe\u00fa hefur s\u00e9\u00f0 me\u00f0 eigin augum. L\u00e1ttu \u00fe\u00e1 ekki l\u00ed\u00f0a \u00fe\u00e9r \u00far minni me\u00f0an \u00fe\u00fa lifir og \u00fe\u00fa skalt segja b\u00f6rnum \u00fe\u00ednum og barnab\u00f6rnum fr\u00e1 \u00feeim.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Gleymdu ekki deginum \u00feegar \u00fe\u00fa st\u00f3\u00f0st frammi fyrir augliti Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, vi\u00f0 H\u00f3reb \u00feegar Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u201eStefndu f\u00f3lkinu saman svo a\u00f0 \u00fea\u00f0 heyri or\u00f0 m\u00edn og l\u00e6ri a\u00f0 \u00f3ttast mig me\u00f0an \u00fea\u00f0 lifir \u00ed landinu og kenni \u00fea\u00f0 einnig b\u00f6rnum s\u00ednum.\u201c<br \/> <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 komu\u00f0 og n\u00e1mu\u00f0 sta\u00f0ar undir fjallinu. Fjalli\u00f0 st\u00f3\u00f0 \u00ed bj\u00f6rtu b\u00e1li og eldtungurnar teyg\u00f0u sig til himins, upp \u00ed sorta, sk\u00fd og myrkur. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00de\u00e1 \u00e1varpa\u00f0i Drottinn ykkur \u00far eldinum. \u00dei\u00f0 heyr\u00f0u\u00f0 \u00ferumuraustina en s\u00e1u\u00f0 ekki mynd neins, \u00fei\u00f0 heyr\u00f0u\u00f0 a\u00f0eins hlj\u00f3minn.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Drottinn birti ykkur s\u00e1ttm\u00e1la sinn sem hann bau\u00f0 ykkur a\u00f0 fylgja, bo\u00f0or\u00f0in t\u00edu. Hann skr\u00e1\u00f0i \u00feau \u00e1 tv\u00e6r steint\u00f6flur. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00e1 bau\u00f0 Drottinn m\u00e9r a\u00f0 kenna ykkur l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i til a\u00f0 fylgja \u00ed landinu sem \u00fei\u00f0 haldi\u00f0 n\u00fa inn \u00ed til a\u00f0 sl\u00e1 eign ykkar \u00e1.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> En g\u00e6ti\u00f0 ykkar vel \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00edf ykkar liggur vi\u00f0. \u00dei\u00f0 s\u00e1u\u00f0 ekki mynd neins daginn sem Drottinn \u00e1varpa\u00f0i ykkur \u00far eldinum vi\u00f0 H\u00f3reb. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Steypi\u00f0 ykkur \u00fev\u00ed ekki \u00ed gl\u00f6tun me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera ykkur skur\u00f0go\u00f0 \u00ed einhverri mynd, hvorki \u00ed mynd karls n\u00e9 konu. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Geri\u00f0 enga mynd \u00ed l\u00edki nokkurs d\u00fdrs \u00e1 j\u00f6r\u00f0u e\u00f0a \u00ed l\u00edki nokkurs v\u00e6ngja\u00f0s fugls sem um lofti\u00f0 fl\u00fdgur <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> e\u00f0a \u00ed l\u00edki nokkurs kvikindis sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0u e\u00f0a \u00ed l\u00edki nokkurs fisks \u00ed vatninu undir j\u00f6r\u00f0inni. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa hefur augu \u00fe\u00edn til himins og s\u00e9r\u00f0 s\u00f3lina, tungli\u00f0, stj\u00f6rnurnar, allan himinsins her, l\u00e1ttu \u00fe\u00e1 ekki blekkjast til a\u00f0 s\u00fdna \u00feeim lotningu og \u00fej\u00f3na \u00feeim. Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur veitt \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um undir himninum hlutdeild \u00ed \u00feeim.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En ykkur hefur Drottinn teki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r og leitt ykkur \u00fat \u00far j\u00e1rnbr\u00e6\u00f0sluofninum, \u00fat \u00far Egyptalandi, til \u00feess a\u00f0 \u00fei\u00f0 yr\u00f0u\u00f0 eignar\u00fej\u00f3\u00f0 hans eins og \u00fei\u00f0 eru\u00f0 \u00ed dag. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Drottinn reiddist m\u00e9r a\u00f0 v\u00edsu vegna ykkar. Hann s\u00f3r a\u00f0 \u00e9g skyldi ekki fara yfir J\u00f3rdan, a\u00f0 \u00e9g skyldi ekki komast inn \u00ed landi\u00f0 g\u00f3\u00f0a sem Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, gefur \u00fe\u00e9r a\u00f0 erf\u00f0ahlut. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00c9g ver\u00f0 a\u00f0 deyja \u00ed \u00feessu landi, \u00e9g fer ekki yfir J\u00f3rdan. En \u00fei\u00f0 fari\u00f0 yfir hana og taki\u00f0 \u00feetta g\u00f3\u00f0a land til eignar.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> G\u00e6ti\u00f0 ykkar og gleymi\u00f0 ekki s\u00e1ttm\u00e1lanum sem Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, ger\u00f0i vi\u00f0 ykkur. \u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki gera ykkur skur\u00f0go\u00f0 \u00ed l\u00edki neins \u00feess sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur banna\u00f0 \u00fe\u00e9r, <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, er ey\u00f0andi eldur, afbr\u00fd\u00f0isamur Gu\u00f0.<br \/> <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa hefur eignast b\u00f6rn og barnab\u00f6rn og \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sest a\u00f0 \u00ed landinu, steypi\u00f0 ykkur \u00fe\u00e1 ekki \u00ed gl\u00f6tun me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera skur\u00f0go\u00f0 \u00ed einhverri mynd. Me\u00f0 \u00fev\u00ed geri\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fea\u00f0 sem illt er \u00ed augum Drottins, Gu\u00f0s ykkar, og veki\u00f0 heift hans. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> N\u00fa \u00ed dag kalla \u00e9g himin og j\u00f6r\u00f0 til vitnis gegn ykkur um a\u00f0 ykkur ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 br\u00e1tt eytt \u00far landinu sem \u00fei\u00f0 eru\u00f0 \u00e1 lei\u00f0inni til \u00feegar \u00fei\u00f0 fari\u00f0 yfir J\u00f3rdan til a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki b\u00faa \u00fear lengi heldur ver\u00f0ur ykkur eytt. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Drottinn mun dreifa ykkur me\u00f0al framandi \u00fej\u00f3\u00f0a og a\u00f0eins \u00f6rf\u00e1ir ykkar munu komast af me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna sem Drottinn flytur ykkur til. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dear munu\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00fej\u00f3na gu\u00f0um, handaverkum manna, stokkum og steinum sem hvorki sj\u00e1 n\u00e9 heyra, eta n\u00e9 finna lykt. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00dear munt \u00fe\u00fa leita Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, og \u00fe\u00fa munt finna hann ef \u00fe\u00fa leitar hans af \u00f6llu hjarta \u00fe\u00ednu og allri s\u00e1lu \u00feinni.<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00cd ney\u00f0 \u00feinni mun allur \u00feessi bo\u00f0skapur n\u00e1 eyrum \u00fe\u00ednum, \u00e1 komandi t\u00edmum munt \u00fe\u00fa sn\u00faa aftur til Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, og hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0um hans. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, er miskunnsamur Gu\u00f0. Hann bregst \u00fe\u00e9r ekki og l\u00e6tur \u00feig ekki farast. Hann gleymir ekki s\u00e1ttm\u00e1lanum vi\u00f0 fe\u00f0ur \u00fe\u00edna sem hann sta\u00f0festi me\u00f0 ei\u00f0i.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> Spyr\u00f0u um fyrri t\u00edma, sem voru fyrir \u00fe\u00edna t\u00ed\u00f0, allt fr\u00e1 \u00feeim degi a\u00f0 Gu\u00f0 skapa\u00f0i manninn \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, kanna\u00f0u heimskauta \u00e1 milli: Hefur nokkru sinni or\u00f0i\u00f0 jafnst\u00f3rfenglegur atbur\u00f0ur og \u00feessi e\u00f0a heyrst um nokku\u00f0 \u00feessu l\u00edkt? <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Hefur nokkur \u00fej\u00f3\u00f0 heyrt Gu\u00f0 tala h\u00e1tt \u00far eldi, \u00e1 sama h\u00e1tt og \u00fe\u00fa heyr\u00f0ir, og \u00fe\u00f3 haldi\u00f0 l\u00edfi? <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> E\u00f0a hefur nokkur gu\u00f0 reynt a\u00f0 s\u00e6kja s\u00e9r \u00fej\u00f3\u00f0 fr\u00e1 annarri \u00fej\u00f3\u00f0 me\u00f0 m\u00e1ttarverkum, t\u00e1knum og undrum og me\u00f0 str\u00ed\u00f0i, sterkri hendi og \u00fatr\u00e9ttum armi og miklum skelfingum eins og Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, ger\u00f0i fyrir augum ykkar \u00ed Egyptalandi? <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00de\u00e9r var leyft a\u00f0 sj\u00e1 \u00feetta svo a\u00f0 \u00fe\u00fa j\u00e1ta\u00f0ir a\u00f0 Drottinn er Gu\u00f0 og enginn annar en hann. <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Af himni l\u00e9t hann \u00feig heyra raust s\u00edna til \u00feess a\u00f0 lei\u00f0beina \u00fe\u00e9r. \u00c1 j\u00f6r\u00f0u s\u00fdndi hann \u00fe\u00e9r sinn mikla eld og \u00far eldinum heyr\u00f0ir \u00fe\u00fa or\u00f0 hans. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> Af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann elska\u00f0i forfe\u00f0ur \u00fe\u00edna valdi hann ni\u00f0ja \u00feeirra. Hann leiddi \u00feig sj\u00e1lfur \u00fat \u00far Egyptalandi me\u00f0 s\u00ednum mikla m\u00e6tti. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> Hann ruddi \u00far vegi \u00fe\u00ednum \u00fej\u00f3\u00f0um, sem voru fj\u00f6lmennari og voldugri en \u00fe\u00fa, til \u00feess a\u00f0 fara me\u00f0 \u00feig inn \u00ed land \u00feeirra og gefa \u00fe\u00e9r \u00fea\u00f0 a\u00f0 erf\u00f0alandi eins og n\u00fa er or\u00f0i\u00f0.<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00cd dag skalt \u00fe\u00fa j\u00e1ta og festa \u00fe\u00e9r \u00ed huga a\u00f0 Drottinn er Gu\u00f0 \u00e1 himnum uppi og \u00e1 j\u00f6r\u00f0u ni\u00f0ri og enginn annar. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> Haltu \u00fev\u00ed l\u00f6g hans og \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r n\u00fa \u00ed dag svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r vegni vel og s\u00ed\u00f0an ni\u00f0jum \u00fe\u00ednum og \u00fe\u00fa lifir lengi \u00ed landinu sem Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, gefur \u00fe\u00e9r til \u00e6varandi eignar.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Gri\u00f0aborgir austan vi\u00f0 J\u00f3rdan<\/h3>\n<p><a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> \u00de\u00e1 veitti M\u00f3se \u00feremur borgum austan vi\u00f0 J\u00f3rdan s\u00e9rst\u00f6\u00f0u. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Til \u00feeirra gat hver s\u00e1 fl\u00fai\u00f0 og haldi\u00f0 l\u00edfi sem \u00e1n \u00e1setnings var\u00f0 manni a\u00f0 bana og haf\u00f0i ekki s\u00fdnt honum fjandskap \u00e1\u00f0ur. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Borgirnar voru Beser \u00e1 h\u00e1sl\u00e9ttunni \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni fyrir ni\u00f0ja R\u00fabens, Ram\u00f3t \u00ed G\u00edlea\u00f0 fyrir Ga\u00f0 og G\u00f3lan \u00ed Basan fyrir Manasse.<\/p>\n<h2 class=\"millifyrirsogn_2007\">Bo\u00f0un l\u00f6gm\u00e1lsins <\/h2>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Inngangur<\/h3>\n<p><a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> \u00deetta er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 sem M\u00f3se lag\u00f0i fyrir \u00cdsraelsmenn. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> \u00deetta eru \u00feau fyrirm\u00e6li, l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i sem M\u00f3se bo\u00f0a\u00f0i \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00feegar \u00feeir f\u00f3ru \u00fat \u00far Egyptalandi <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> og voru handan J\u00f3rdanar \u00ed dalnum gegnt Bet Pe\u00f3r, \u00ed landi S\u00edhons Amor\u00edtakonungs sem r\u00edkti \u00ed Hesbon. M\u00f3se og \u00cdsraelsmenn h\u00f6f\u00f0u fellt hann \u00feegar \u00feeir f\u00f3ru \u00fat \u00far Egyptalandi. <a name=\"47\"><span class=\"versanumer_2007\">47<\/span><\/a> \u00de\u00e1 h\u00f6f\u00f0u \u00feeir teki\u00f0 land hans til eignar \u00e1samt landi \u00d3gs, konungs \u00ed Basan. \u00deeir h\u00f6f\u00f0u slegi\u00f0 eign sinni \u00e1 land hans og land \u00d3gs, konungs \u00ed Basan, land beggja konunga Amor\u00edta austan vi\u00f0 J\u00f3rdan, <a name=\"48\"><span class=\"versanumer_2007\">48<\/span><\/a> landi\u00f0 fr\u00e1 Ar\u00f3er, sem liggur \u00ed ja\u00f0ri Arnondalsins, allt a\u00f0 S\u00edonarfjalllendi, \u00fea\u00f0 er Hermon, <a name=\"49\"><span class=\"versanumer_2007\">49<\/span><\/a> og allt Arabal\u00e1glendi\u00f0 austan vi\u00f0 J\u00f3rdan, a\u00f0 Arabavatninu undir Pisgahl\u00ed\u00f0um.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hvatning og vi\u00f0v\u00f6run 1 Hl\u00fd\u00f0i\u00f0 n\u00fa, \u00cdsraelsmenn, \u00e1 l\u00f6gin og \u00e1kv\u00e6\u00f0in sem \u00e9g kenni ykkur. Fylgi\u00f0 \u00feeim svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 haldi\u00f0 l\u00edfi og komist inn \u00ed landi\u00f0 sem Drottinn, Gu\u00f0 fe\u00f0ra ykkar, f\u00e6r ykkur til eignar. 2 Engu megi\u00f0 \u00fei\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem \u00e9g b\u00fd\u00f0 ykkur og engu sleppa heldur skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 halda bo\u00f0 Drottins, Gu\u00f0s ykkar, sem \u00e9g set ykkur. 3 \u00dei\u00f0 hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 me\u00f0 eigin augum hva\u00f0 Drottinn ger\u00f0i vegna Baal Pe\u00f3rs. Drottinn, Gu\u00f0 ykkar, uppr\u00e6tti hvern \u00feann \u00far samf\u00e9lagi ykkar sem fylgdi Baal Pe\u00f3r. 4 En \u00fei\u00f0 sem h\u00e9ldu\u00f0 ykkur fast vi\u00f0 Drottin, Gu\u00f0 ykkar, eru\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1774","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1774","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1774"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1774\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1774"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}