{"id":1772,"date":"2017-12-30T21:00:21","date_gmt":"2017-12-30T21:00:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-m%c2%97seb%c2%97k-2-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:57","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:57","slug":"fimmta-mosebok-2-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-2-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 2. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Reika\u00f0 um ey\u00f0im\u00f6rkina<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Eftir \u00fe\u00e1 dv\u00f6l h\u00e9ldum vi\u00f0 \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina og \u00e1lei\u00f0is til Sefhafsins eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 m\u00e9r og marga daga vorum vi\u00f0 \u00e1 lei\u00f0inni umhverfis Se\u00edrfjalllendi\u00f0. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 mig: <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u201e\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 n\u00fa fari\u00f0 n\u00f3gu lengi um \u00feetta fjalllendi. Haldi\u00f0 n\u00fa \u00ed nor\u00f0ur\u00e1tt. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Gef\u00f0u f\u00f3lkinu \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u00dei\u00f0 eru\u00f0 \u00ed \u00feann veginn a\u00f0 fara um land br\u00e6\u00f0ra ykkar, ni\u00f0ja Esa\u00fa, sem b\u00faa \u00ed Se\u00edr. \u00deeir munu \u00f3ttast ykkur en g\u00e6ti\u00f0 fyllstu var\u00fa\u00f0ar. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00d6gri\u00f0 \u00feeim ekki. \u00c9g mun ekki gefa ykkur svo miki\u00f0 sem \u00feverfet af landi \u00feeirra \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g f\u00e9kk Esa\u00fa Se\u00edrfjalllendi\u00f0 til eignar. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 grei\u00f0a \u00feeim fyrir korn til matar og jafnvel fyrir vatn til drykkjar.<br \/> <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, hefur blessa\u00f0 \u00feig \u00ed \u00f6llu sem \u00fe\u00fa hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e9r fyrir hendur. Hann vakti yfir f\u00f6r \u00feinni yfir \u00feessa miklu ey\u00f0im\u00f6rk. \u00deessi fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r hefur Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, veri\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00feig ekki skort neitt.\u201c <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an h\u00e9ldum vi\u00f0 \u00e1fram fr\u00e1 br\u00e6\u00f0rum okkar, ni\u00f0jum Esa\u00fa, sem b\u00faa \u00ed Se\u00edr, nokku\u00f0 fr\u00e1 lei\u00f0inni yfir sl\u00e9ttuna fr\u00e1 Elat til Esj\u00f3n Geber, og h\u00e9ldum \u00fat \u00ed M\u00f3absey\u00f0im\u00f6rkina. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 mig: \u201eS\u00fdndu M\u00f3ab\u00edtum engan fjandskap, \u00f6gra \u00feeim ekki og l\u00e1ttu ekki skerast \u00ed odda me\u00f0 ykkur. \u00c9g mun ekki gefa ykkur neitt af landi \u00feeirra til eignar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g hef gefi\u00f0 ni\u00f0jum Lots Ar til eignar.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00c1\u00f0ur bjuggu \u00fear Em\u00edtar, mikil \u00fej\u00f3\u00f0, fj\u00f6lmenn og st\u00f3rvaxin eins og Anak\u00edtar. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deeir t\u00f6ldust til Refa\u00edta eins og Anak\u00edtar en M\u00f3ab\u00edtar nefndu \u00fe\u00e1 Em\u00edta. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> For\u00f0um bjuggu H\u00f3r\u00edtar \u00ed Se\u00edr en ni\u00f0jar Esa\u00fa sl\u00f3gu eign sinni \u00e1 land \u00feeirra og tort\u00edmdu H\u00f3r\u00edtum. \u00deeir settust \u00fear a\u00f0 \u00ed \u00feeirra sta\u00f0 eins og \u00cdsrael ger\u00f0i \u00ed eignarlandi s\u00ednu sem Drottinn haf\u00f0i gefi\u00f0 \u00feeim.<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> B\u00faist n\u00fa til fer\u00f0ar og fari\u00f0 \u00fevert yfir Sereddalinn.\u201c<br \/>\u00de\u00e1 f\u00f3rum vi\u00f0 \u00fevert yfir Sereddalinn.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00derj\u00e1t\u00edu og \u00e1tta \u00e1r li\u00f0u fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f3rum fr\u00e1 Kades Barnea og \u00fear til vi\u00f0 f\u00f3rum yfir Sared\u00e1. \u00de\u00e1 var heil kynsl\u00f3\u00f0 vopnf\u00e6rra manna \u00ed herb\u00fa\u00f0unum d\u00e1in eins og Drottinn haf\u00f0i svari\u00f0. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> H\u00f6nd Drottins var gegn \u00feeim og olli upplausn \u00ed herb\u00fa\u00f0unum \u00fear til \u00feeim var gereytt.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00deegar allir vopnf\u00e6rir menn \u00fej\u00f3\u00f0arinnar voru d\u00e1nir <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 mig: <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u201e\u00cd dag muntu fara yfir M\u00f3absland um Ar. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00deegar \u00fe\u00fa n\u00e1lgast Amm\u00f3n\u00edta skaltu hvorki s\u00fdna \u00feeim fjandskap n\u00e9 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 \u00fe\u00e1. \u00c9g mun ekki gefa \u00fe\u00e9r neitt af landi ni\u00f0ja Amm\u00f3ns til eignar \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 hef \u00e9g gefi\u00f0 ni\u00f0jum Lots til eignar.\u201c<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 er einnig tali\u00f0 land Refa\u00edta sem bjuggu \u00fear fyrrum, en Amm\u00f3n\u00edtar nefna \u00fe\u00e1 Sams\u00famm\u00edta <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> og voru \u00feeir mikil \u00fej\u00f3\u00f0, fj\u00f6lmenn og st\u00f3rvaxin eins og Anak\u00edtar. Drottinn eyddi Refa\u00edtum til a\u00f0 r\u00fdma fyrir Amm\u00f3n\u00edtum og Amm\u00f3n\u00edtar sl\u00f3gu eign sinni \u00e1 l\u00f6nd \u00feeirra og settust \u00fear a\u00f0 \u00ed \u00feeirra sta\u00f0. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hi\u00f0 sama ger\u00f0i Drottinn fyrir ni\u00f0ja Esa\u00fa, sem b\u00faa \u00ed Se\u00edr, \u00feegar hann eyddi H\u00f3r\u00edtunum til a\u00f0 r\u00fdma fyrir \u00feeim og ni\u00f0jar Esa\u00fa sl\u00f3gu eign sinni \u00e1 l\u00f6nd \u00feeirra og settust \u00fear a\u00f0 \u00ed \u00feeirra sta\u00f0 og hafa b\u00fai\u00f0 \u00fear til \u00feessa. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Av\u00edtum, sem bjuggu \u00ed \u00feorpum \u00ed grennd vi\u00f0 Gasa, tort\u00edmdu Kaft\u00f3r\u00edtar sem h\u00f6f\u00f0u komi\u00f0 fr\u00e1 Kaft\u00f3r og settust \u00fear a\u00f0 \u00ed \u00feeirra sta\u00f0.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">S\u00edlon konungur sigra\u00f0ur<\/h3>\n<p><a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> B\u00faist til fer\u00f0ar, haldi\u00f0 af sta\u00f0 og fari\u00f0 yfir Arnon\u00e1. Sj\u00e1, \u00e9g hef selt Amor\u00edtann S\u00edhon, konung \u00ed Hesbon, og land hans \u00fe\u00e9r \u00ed hendur. \u00de\u00fa skalt hefjast handa og taka landi\u00f0 til eignar, r\u00e1\u00f0ast gegn honum og berjast vi\u00f0 hann. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00cd dag mun \u00e9g taka a\u00f0 brei\u00f0a \u00fat \u00f3tta vi\u00f0 \u00feig og skelfingu me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a undir himninum. \u00de\u00e6r skj\u00e1lfa \u00feegar \u00fe\u00e6r heyra um \u00feig og engjast af \u00f3tta \u00feegar \u00fe\u00e6r sj\u00e1 \u00feig.\u201c <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi \u00e9g menn \u00far ey\u00f0im\u00f6rkinni Kedem\u00f3t til S\u00edhons, konungs \u00ed Hesbon, me\u00f0 svohlj\u00f3\u00f0andi fri\u00f0arskilm\u00e1la: <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u201eLeyf m\u00e9r a\u00f0 fara um land \u00feitt. \u00c9g skal fylgja veginum og hvorki v\u00edkja til h\u00e6gri n\u00e9 vinstri af honum. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Seldu m\u00e9r korn til matar fyrir f\u00e9 og vatn til drykkjar gegn grei\u00f0slu. Leyf m\u00e9r a\u00f0eins a\u00f0 fara f\u00f3tgangandi um landi\u00f0 <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> eins og ni\u00f0jar Esa\u00fa, sem b\u00faa \u00ed Se\u00edr, og M\u00f3ab\u00edtar, sem b\u00faa \u00ed Ar, uns \u00e9g er kominn yfir J\u00f3rdan, inn \u00ed landi\u00f0 sem Drottinn, Gu\u00f0 okkar, gefur okkur.\u201c<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> En S\u00edhon, konungur \u00ed Hesbon, vildi ekki leyfa okkur a\u00f0 fara gegnum land sitt \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn, Gu\u00f0 \u00feinn, haf\u00f0i eflt bar\u00e1ttuvilja hans og hugrekki til \u00feess a\u00f0 selja hann \u00fe\u00e9r \u00ed hendur eins og n\u00fa er or\u00f0i\u00f0. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Og Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig: \u201eN\u00fa hefst \u00e9g handa og f\u00e6 \u00fe\u00e9r S\u00edhon og land hans. \u00de\u00fa skalt hefjast handa og sl\u00e1 eign \u00feinni \u00e1 landi\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> S\u00edhon h\u00e9lt n\u00fa \u00e1samt \u00f6llum her s\u00ednum til a\u00f0 berjast vi\u00f0 okkur vi\u00f0 Jahas. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> En Drottinn, Gu\u00f0 okkar, seldi hann okkur \u00ed hendur og vi\u00f0 gj\u00f6rsigru\u00f0um hann, syni hans og allan her hans. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00de\u00e1 unnum vi\u00f0 allar borgir hans og \u00ed hverri borg helgu\u00f0um vi\u00f0 jafnt karla, konur og b\u00f6rn banni og l\u00e9tum engan halda l\u00edfi. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Vi\u00f0 h\u00e9ldum a\u00f0eins b\u00faf\u00e9nu eftir sem herfangi og \u00f6\u00f0rum r\u00e1nsfeng \u00far borgunum sem vi\u00f0 h\u00f6f\u00f0um unni\u00f0.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Allt fr\u00e1 Ar\u00f3er \u00ed ja\u00f0ri Arnondalsins og borginni \u00ed dalnum og alla lei\u00f0 a\u00f0 G\u00edlea\u00f0 reyndist engin borg hafa of h\u00e1a borgarm\u00fara fyrir okkur: Drottinn, Gu\u00f0 okkar, gaf \u00fe\u00e6r allar okkur \u00e1 vald. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> En samkv\u00e6mt bo\u00f0i Drottins, Gu\u00f0s okkar, n\u00e1lga\u00f0ist \u00fe\u00fa ekki land Amm\u00f3n\u00edta, hvorki me\u00f0 fram Jabbok\u00e1 n\u00e9 vi\u00f0 borgirnar \u00ed fjalllendinu.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Reika\u00f0 um ey\u00f0im\u00f6rkina 1 Eftir \u00fe\u00e1 dv\u00f6l h\u00e9ldum vi\u00f0 \u00fat \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina og \u00e1lei\u00f0is til Sefhafsins eins og Drottinn haf\u00f0i bo\u00f0i\u00f0 m\u00e9r og marga daga vorum vi\u00f0 \u00e1 lei\u00f0inni umhverfis Se\u00edrfjalllendi\u00f0. 2 \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 mig: 3 \u201e\u00dei\u00f0 hafi\u00f0 n\u00fa fari\u00f0 n\u00f3gu lengi um \u00feetta fjalllendi. Haldi\u00f0 n\u00fa \u00ed nor\u00f0ur\u00e1tt. 4 Gef\u00f0u f\u00f3lkinu \u00feessi fyrirm\u00e6li: \u00dei\u00f0 eru\u00f0 \u00ed \u00feann veginn a\u00f0 fara um land br\u00e6\u00f0ra ykkar, ni\u00f0ja Esa\u00fa, sem b\u00faa \u00ed Se\u00edr. \u00deeir munu \u00f3ttast ykkur en g\u00e6ti\u00f0 fyllstu var\u00fa\u00f0ar. 5 \u00d6gri\u00f0 \u00feeim ekki. \u00c9g mun ekki gefa ykkur svo miki\u00f0 sem \u00feverfet af landi \u00feeirra \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fimmta-mosebok-2-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1772","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1772","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1772"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1772\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1772"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}