{"id":1769,"date":"2017-12-30T21:00:21","date_gmt":"2017-12-30T21:00:21","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fj%c2%97r_a-m%c2%97seb%c2%97k-35-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:21","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:21","slug":"fjorda-mosebok-35-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-35-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 35. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Borgir Lev\u00edta og gri\u00f0aborgir<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se \u00e1 gresjum M\u00f3abs vi\u00f0 J\u00f3rdan gegnt Jer\u00edk\u00f3 og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201eGef\u00f0u \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00feau fyrirm\u00e6li a\u00f0 \u00feeir framselji borgir \u00e1 erf\u00f0al\u00f6ndum s\u00ednum til Lev\u00edta svo a\u00f0 \u00feeir setjist \u00fear a\u00f0. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 einnig f\u00e1 \u00feeim beitil\u00f6nd umhverfis borgirnar sem heyra \u00feeim til. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deeir skulu setjast a\u00f0 \u00ed borgunum og beitil\u00f6nd borganna eiga a\u00f0 vera fyrir b\u00faf\u00e9 \u00feeirra og allar skepnur sem \u00feeir eiga. <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Beitil\u00f6nd borganna, sem \u00fei\u00f0 framselji\u00f0 Lev\u00edtum, eiga a\u00f0 vera umhverfis borgirnar og n\u00e1 \u00fe\u00fasund \u00e1lnir \u00fat fr\u00e1 \u00feeim. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Utan vi\u00f0 borgina skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 m\u00e6la tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lnir austan megin, tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lnir vestan megin, tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lnir nor\u00f0an megin og tv\u00f6 \u00fe\u00fasund \u00e1lnir sunnan megin, borgin sj\u00e1lf \u00e1 a\u00f0 vera \u00ed mi\u00f0junni. \u00deetta beitiland kringum borgirnar skulu Lev\u00edtarnir f\u00e1.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Borgirnar, sem \u00fei\u00f0 framselji\u00f0 Lev\u00edtum, skulu vera \u00fe\u00e6r sex gri\u00f0aborgir sem \u00fei\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 af hendi svo a\u00f0 s\u00e1 sem hefur vegi\u00f0 mann geti fl\u00fai\u00f0 \u00feanga\u00f0. Auk \u00feeirra skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 framselja fj\u00f6rut\u00edu og tv\u00e6r borgir, <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> alls skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 f\u00e1 Lev\u00edtum fj\u00f6rut\u00edu og \u00e1tta borgir \u00e1samt beitil\u00f6ndum \u00feeirra. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Borgirnar, sem \u00fei\u00f0 framselji\u00f0 af landareign \u00cdsraelsmanna, skulu valdar \u00feannig a\u00f0 \u00fei\u00f0 taki\u00f0 margar fr\u00e1 st\u00f3rum \u00e6ttb\u00e1lki en f\u00e1ar fr\u00e1 litlum. Hver \u00e6ttb\u00e1lkur skal framselja nokkrar af borgum s\u00ednum til Lev\u00edtanna eftir \u00fev\u00ed hversu st\u00f3rt erf\u00f0aland hann hefur fengi\u00f0.\u201c<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se:<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpa\u00f0u \u00cdsraelsmenn og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u00deegar \u00fei\u00f0 eru\u00f0 komnir yfir J\u00f3rdan og inn \u00ed Kanaansland <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 velja nokkrar borgir sem eiga a\u00f0 ver\u00f0a gri\u00f0aborgir ykkar. S\u00e1 sem \u00f3viljandi hefur or\u00f0i\u00f0 manni a\u00f0 bana skal geta fl\u00fai\u00f0 \u00feanga\u00f0. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00deannig eiga borgirnar a\u00f0 veita ykkur gri\u00f0 fyrir hefnanda svo a\u00f0 vegandi \u00feurfi ekki a\u00f0 deyja fyrr en hann hefur komi\u00f0 fyrir d\u00f3m safna\u00f0arins. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> Sex borganna, sem \u00fei\u00f0 eigi\u00f0 a\u00f0 framselja, skulu ver\u00f0a gri\u00f0aborgir ykkar. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00derj\u00e1r borganna, sem \u00fei\u00f0 framselji\u00f0 handan vi\u00f0 J\u00f3rdan, og \u00ferj\u00e1r borganna, sem \u00fei\u00f0 framselji\u00f0 \u00ed Kanaanslandi, skulu ver\u00f0a gri\u00f0aborgir ykkar. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00deessar sex borgir skulu ver\u00f0a gri\u00f0aborgir fyrir \u00cdsraelsmenn, a\u00f0komumenn og \u00fatlendinga \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra. S\u00e9rhver, sem \u00f3viljandi hefur or\u00f0i\u00f0 manni a\u00f0 bana, skal geta fl\u00fai\u00f0 \u00feanga\u00f0.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Sl\u00e1i ma\u00f0ur annan me\u00f0 j\u00e1rnt\u00f3li og hann hl\u00fdtur bana af er hann mor\u00f0ingi og mor\u00f0ingja skal l\u00edfl\u00e1ta.<br \/> <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Sl\u00e1i ma\u00f0ur annan me\u00f0 stein \u00ed hendi, sem h\u00e6gt er a\u00f0 bana manni me\u00f0, og hann hl\u00fdtur bana af er hann mor\u00f0ingi og mor\u00f0ingja skal l\u00edfl\u00e1ta.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Sl\u00e1i ma\u00f0ur annan me\u00f0 tr\u00e9t\u00f3l \u00ed hendi, sem h\u00e6gt er a\u00f0 bana manni me\u00f0, og hann hl\u00fdtur bana af er hann mor\u00f0ingi og mor\u00f0ingja skal l\u00edfl\u00e1ta.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> S\u00e1 sem \u00e1 bl\u00f3\u00f0s a\u00f0 hefna skal bana mor\u00f0ingjanum ef hann m\u00e6tir honum.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Hrindi ma\u00f0ur \u00f6\u00f0rum af hatri e\u00f0a kasti einhverju \u00e1 eftir honum me\u00f0 illt \u00ed huga og hann hl\u00fdtur bana af <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> e\u00f0a sl\u00e1i hann af illum \u00e1setningi me\u00f0 hendinni og s\u00e1 sem fyrir ver\u00f0ur hl\u00fdtur bana af, skal s\u00e1 sem sl\u00f3 tekinn af l\u00edfi. Hann er mor\u00f0ingi. S\u00e1 sem \u00e1 bl\u00f3\u00f0s a\u00f0 hefna skal bana mor\u00f0ingjanum ef hann m\u00e6tir honum.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> Hrindi ma\u00f0ur \u00f6\u00f0rum \u00e1n fjandskapar e\u00f0a kasti einhverju \u00e1 eftir honum \u00e1n \u00e1setnings <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> e\u00f0a kasti steini, sem getur bana\u00f0 manni, og hann lendir \u00f3vart \u00e1 einhverjum og hann hl\u00fdtur bana af og hann haf\u00f0i hvorki veri\u00f0 fjandma\u00f0ur hins n\u00e9 \u00f3ska\u00f0 honum ills, <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00fe\u00e1 skal s\u00f6fnu\u00f0urinn d\u00e6ma \u00e1 milli banamannsins og hefnandans eftir \u00feessum reglum. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> S\u00f6fnu\u00f0urinn skal bjarga banamanninum \u00far greipum hefnandans og s\u00f6fnu\u00f0urinn skal koma honum aftur til \u00feeirrar gri\u00f0aborgar sem hann haf\u00f0i fl\u00fai\u00f0 til. \u00dear skal hann dveljast \u00fear til \u00e6\u00f0sti presturinn, sem haf\u00f0i veri\u00f0 smur\u00f0ur heilagri ol\u00edu, deyr. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Yfirgefi banama\u00f0ur landsv\u00e6\u00f0i gri\u00f0aborgarinnar sem hann hefur fl\u00fai\u00f0 til <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> og hefnandinn finnur hann utan sv\u00e6\u00f0isins, m\u00e1 hefnandinn dey\u00f0a banamanninn \u00e1n \u00feess a\u00f0 baka s\u00e9r bl\u00f3\u00f0sekt. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 banama\u00f0urinn skal dveljast \u00ed gri\u00f0aborginni \u00fear til \u00e6\u00f0sti presturinn deyr. En eftir andl\u00e1t \u00e6\u00f0sta prestsins getur banama\u00f0urinn sn\u00fai\u00f0 aftur heim til jar\u00f0eignar sinnar.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00deetta skal vera \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00ed l\u00f6gum ykkar, fr\u00e1 einni kynsl\u00f3\u00f0 til annarrar, alls sta\u00f0ar \u00fear sem \u00fei\u00f0 setjist a\u00f0.<br \/> <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00deegar einhver banar \u00f6\u00f0rum manni skal a\u00f0eins taka mor\u00f0ingjana af l\u00edfi eftir frambur\u00f0i vitna. En frambur\u00f0ur eins vitnis n\u00e6gir ekki til a\u00f0 nokkur ma\u00f0ur ver\u00f0i l\u00edfl\u00e1tinn. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki taka lausnargjald fyrir l\u00edf mor\u00f0ingja sem er sekur og taka \u00e1 af l\u00edfi. Hann skal l\u00edfl\u00e1tinn. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki heldur taka lausnargjald fyrir neinn sem hefur fl\u00fai\u00f0 til gri\u00f0aborgar svo a\u00f0 hann geti sn\u00fai\u00f0 heim og b\u00fai\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0 sinni \u00e1\u00f0ur en \u00e6\u00f0sti presturinn deyr.<br \/> <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki vanhelga landi\u00f0 sem \u00fei\u00f0 eru\u00f0 \u00ed. \u00dear sem bl\u00f3\u00f0 vanhelgar landi\u00f0 ver\u00f0ur ekki fri\u00f0\u00fe\u00e6gt fyrir bl\u00f3\u00f0i\u00f0 sem \u00fathellt var \u00e1 \u00fev\u00ed nema me\u00f0 bl\u00f3\u00f0i \u00feess sem \u00fathellti \u00fev\u00ed. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki saurga landi\u00f0 sem \u00fei\u00f0 b\u00fai\u00f0 \u00ed \u00fear sem \u00e9g b\u00fd sj\u00e1lfur \u00ed \u00fev\u00ed mi\u00f0ju \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g, Drottinn, b\u00fd mitt \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelsmanna.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Borgir Lev\u00edta og gri\u00f0aborgir 1 Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se \u00e1 gresjum M\u00f3abs vi\u00f0 J\u00f3rdan gegnt Jer\u00edk\u00f3 og sag\u00f0i: 2 \u201eGef\u00f0u \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00feau fyrirm\u00e6li a\u00f0 \u00feeir framselji borgir \u00e1 erf\u00f0al\u00f6ndum s\u00ednum til Lev\u00edta svo a\u00f0 \u00feeir setjist \u00fear a\u00f0. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 einnig f\u00e1 \u00feeim beitil\u00f6nd umhverfis borgirnar sem heyra \u00feeim til. 3 \u00deeir skulu setjast a\u00f0 \u00ed borgunum og beitil\u00f6nd borganna eiga a\u00f0 vera fyrir b\u00faf\u00e9 \u00feeirra og allar skepnur sem \u00feeir eiga. 4 Beitil\u00f6nd borganna, sem \u00fei\u00f0 framselji\u00f0 Lev\u00edtum, eiga a\u00f0 vera umhverfis borgirnar og n\u00e1 \u00fe\u00fasund \u00e1lnir \u00fat fr\u00e1 \u00feeim. 5 Utan vi\u00f0 borgina skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 m\u00e6la tv\u00f6 \u00fe\u00fasund <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-35-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1769","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1769","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1769"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1769\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1769"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}