{"id":1750,"date":"2017-12-30T21:00:16","date_gmt":"2017-12-30T21:00:16","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fj%c2%97r_a-m%c2%97seb%c2%97k-16-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:17","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:17","slug":"fjorda-mosebok-16-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-16-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 16. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> And\u00f3f K\u00f3ra, Datans og Ab\u00edrams<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> K\u00f3ra J\u00edseharsson, Kahatssonar Lev\u00edsonar, \u00e1samt Datan og Ab\u00edram, sonum El\u00edabs Pall\u00fasonar, sem voru ni\u00f0jar R\u00fabens, <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> gengu fyrir M\u00f3se. Me\u00f0 \u00feeim voru tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmt\u00edu \u00cdsraelsmenn, \u00feeir voru h\u00f6f\u00f0ingjar safna\u00f0arins, mikils metnir og \u00feekktir menn. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00deeir s\u00f6fnu\u00f0ust saman gegn M\u00f3se og Aroni og s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201e\u00dei\u00f0 \u00e6tli\u00f0 ykkur um of \u00fev\u00ed a\u00f0 allur s\u00f6fnu\u00f0urinn er heilagur og Drottinn er mitt \u00e1 me\u00f0al hans. Hvers vegna hefji\u00f0 \u00fei\u00f0 sj\u00e1lfa ykkur yfir s\u00f6fnu\u00f0 Drottins?\u201c<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00deegar M\u00f3se heyr\u00f0i \u00feetta f\u00e9ll hann fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> og sag\u00f0i vi\u00f0 K\u00f3ra og allan s\u00f6fnu\u00f0 hans: \u201e\u00cd fyrram\u00e1li\u00f0 mun Drottinn kunngj\u00f6ra hver hans er, hver s\u00e9 heilagur og hver megi n\u00e1lgast hann. Hann mun leyfa \u00feeim sem hann velur a\u00f0 n\u00e1lgast sig. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> Geri\u00f0 \u00feetta: \u00c1 morgun skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 taka eldp\u00f6nnur, K\u00f3ra og allur s\u00f6fnu\u00f0ur hans, <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> setja \u00ed \u00fe\u00e6r eld og leggja \u00e1 reykelsi frammi fyrir augliti Drottins. S\u00e1 sem Drottinn velur er heilagur. \u00dei\u00f0 \u00e6tli\u00f0 ykkur um of, Lev\u00edtar.\u201c<br \/> <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> M\u00f3se sag\u00f0i vi\u00f0 K\u00f3ra: \u201eHl\u00fd\u00f0i\u00f0 \u00e1, Lev\u00edtar. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> N\u00e6gir \u00fea\u00f0 ykkur ekki a\u00f0 Gu\u00f0 \u00cdsraels greindi ykkur fr\u00e1 s\u00f6fnu\u00f0i \u00cdsraels til a\u00f0 l\u00e1ta ykkur n\u00e1lgast sig \u00fear sem \u00fei\u00f0 gegni\u00f0 \u00fej\u00f3nustu \u00ed b\u00fasta\u00f0 Drottins og standi\u00f0 frammi fyrir s\u00f6fnu\u00f0inum til a\u00f0 \u00fej\u00f3na honum? <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Hann hefur leyft \u00fe\u00e9r og \u00f6llum br\u00e6\u00f0rum \u00fe\u00ednum, Lev\u00edtunum, a\u00f0 n\u00e1lgast sig og n\u00fa \u00e1s\u00e6list \u00fei\u00f0 prestsemb\u00e6tti\u00f0. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deess vegna hefur \u00fe\u00fa og allur s\u00f6fnu\u00f0ur \u00feinn gert sams\u00e6ri gegn Drottni. Hver er Aron? Hva\u00f0 eru\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 m\u00f6gla gegn honum?\u201c<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an sendi M\u00f3se eftir Datan og Ab\u00edram El\u00edabssonum en \u00feeir s\u00f6g\u00f0u: \u201eVi\u00f0 komum ekki. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> N\u00e6gir \u00fea\u00f0 ekki a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir leitt okkur fr\u00e1 landi, sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi, til \u00feess a\u00f0 dey\u00f0a okkur \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni? \u00c6tlar\u00f0u l\u00edka a\u00f0 l\u00e1tast vera konungur yfir okkur? <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00fa hefur svo sannarlega ekki leitt okkur inn \u00ed land sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi og hvorki gefi\u00f0 okkur akra n\u00e9 v\u00edngar\u00f0a. Heldur\u00f0u a\u00f0 \u00fe\u00e9r hafi tekist a\u00f0 blinda augu \u00feessara manna? Vi\u00f0 f\u00f6rum hvergi.\u201c<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> \u00de\u00e1 reiddist M\u00f3se mj\u00f6g og sag\u00f0i vi\u00f0 Drottin: \u201eL\u00edttu ekki vi\u00f0 f\u00f3rnum \u00feeirra. \u00c9g hef ekki teki\u00f0 svo miki\u00f0 sem einn asna fr\u00e1 \u00feeim n\u00e9 gert nokkrum \u00feeirra mein.\u201c <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st sag\u00f0i M\u00f3se vi\u00f0 K\u00f3ra: \u201e\u00c1 morgun skalt \u00fe\u00fa og allur s\u00f6fnu\u00f0ur \u00feinn koma fyrir auglit Drottins \u00e1samt Aroni. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Hver og einn skal taka s\u00edna eldp\u00f6nnu og leggja \u00e1 hana reykelsi. S\u00ed\u00f0an skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 bera \u00fe\u00e6r fram fyrir auglit Drottins, hver s\u00edna eldp\u00f6nnu. \u00dea\u00f0 ver\u00f0a alls tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmt\u00edu eldp\u00f6nnur. \u00dei\u00f0 Aron skulu\u00f0 einnig koma hvor me\u00f0 s\u00edna eldp\u00f6nnu.\u201c<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Hver t\u00f3k s\u00edna eldp\u00f6nnu, l\u00e9t eld \u00ed, lag\u00f0i reykelsi ofan \u00e1 og t\u00f3k s\u00e9r st\u00f6\u00f0u vi\u00f0 inngang samfundatjaldsins \u00e1samt M\u00f3se og Aroni. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> En K\u00f3ra stefndi \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0inum saman gegnt \u00feeim. \u00de\u00e1 birtist d\u00fdr\u00f0 Drottins \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0inum.<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se og Arons og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u201eYfirgefi\u00f0 \u00feennan s\u00f6fnu\u00f0. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 ey\u00f0a honum \u00e1 augabrag\u00f0i!\u201c <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00e9llu \u00feeir fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nur s\u00ednar og s\u00f6g\u00f0u: \u201eGu\u00f0, Gu\u00f0 sem g\u00e6\u00f0ir allt hold l\u00edfi. \u00c6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 rei\u00f0ast \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0inum vegna \u00feess a\u00f0 einn braut af s\u00e9r?\u201c<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn vi\u00f0 M\u00f3se:<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpa\u00f0u s\u00f6fnu\u00f0inn og seg\u00f0u: Yfirgefi\u00f0 sv\u00e6\u00f0i\u00f0 umhverfis b\u00fasta\u00f0 K\u00f3ra, Datans og Ab\u00edrams.\u201c <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> M\u00f3se reis \u00fe\u00e1 \u00e1 f\u00e6tur og gekk til Datans og Ab\u00edrams en \u00f6ldungar \u00cdsraels fylgdu honum. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Hann \u00e1varpa\u00f0i s\u00f6fnu\u00f0inn og sag\u00f0i: \u201eFari\u00f0 n\u00fa fr\u00e1 tj\u00f6ldum \u00feessara gu\u00f0lausu manna og snerti\u00f0 ekkert af \u00fev\u00ed sem \u00feeir eiga svo a\u00f0 ykkur ver\u00f0i ekki tort\u00edmt vegna allra synda \u00feeirra.\u201c <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00f3ru \u00feeir burt fr\u00e1 sv\u00e6\u00f0inu umhverfis b\u00fasta\u00f0 K\u00f3ra, Datans og Ab\u00edrams. Datan og Ab\u00edram h\u00f6f\u00f0u gengi\u00f0 \u00fat og st\u00f3\u00f0u vi\u00f0 dyr tjalda sinna \u00e1samt konum s\u00ednum og b\u00f6rnum, st\u00f3rum og sm\u00e1um. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i M\u00f3se: \u201eAf \u00feessu m\u00e1 ykkur vera lj\u00f3st a\u00f0 Drottinn hefur sent mig til a\u00f0 vinna \u00f6ll \u00feessi verk en \u00e9g hef ekki unni\u00f0 \u00feau a\u00f0 eigin ge\u00f0\u00fe\u00f3tta. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> Ef \u00feetta f\u00f3lk deyr \u00e1 sama h\u00e1tt og allir a\u00f0rir menn og fyrir \u00fev\u00ed fer eins og \u00f6\u00f0rum m\u00f6nnum, \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 ekki Drottinn sem sendi mig. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> En birti Drottinn sk\u00f6punarm\u00e1tt sinn og j\u00f6r\u00f0in opni gin sitt og gleypi \u00fe\u00e1 og allt sem \u00feeir eiga svo a\u00f0 \u00feeir fari lifandi ni\u00f0ur til heljar, \u00fe\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 skilja a\u00f0 \u00feessir menn hafa sm\u00e1na\u00f0 Drottin.\u201c<br \/> <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Um lei\u00f0 og hann lauk m\u00e1li s\u00ednu klofna\u00f0i akurinn undir f\u00f3tum \u00feeirra <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> og j\u00f6r\u00f0in opna\u00f0i gin sitt og gleypti \u00fe\u00e1, h\u00fas \u00feeirra og alla \u00fe\u00e1 sem heyr\u00f0u K\u00f3ra til \u00e1samt \u00f6llum eigum \u00feeirra. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> \u00deeir og allt \u00feeirra f\u00f3lk f\u00f3r lifandi ni\u00f0ur til heljar. \u00deegar j\u00f6r\u00f0in huldi \u00fe\u00e1 haf\u00f0i \u00feeim veri\u00f0 tort\u00edmt \u00far s\u00f6fnu\u00f0inum. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Allur \u00cdsrael, sem var umhverfis \u00fe\u00e1, fl\u00fd\u00f0i burt vi\u00f0 \u00f3p \u00feeirra \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir hugsu\u00f0u: \u201eVonandi gleypir j\u00f6r\u00f0in okkur ekki.\u201c<br \/> <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> Eldur haf\u00f0i gengi\u00f0 \u00fat fr\u00e1 Drottni og gleypt \u00fe\u00e1 tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmt\u00edu menn sem h\u00f6f\u00f0u f\u00e6rt fram reykelsi. <span class=\"nedan_mal\" title=\" 17.1\u201317.15 eru 16.36\u201316.50 \u00ed \u00fatg\u00e1funni 1981.\">[<\/span> <\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>And\u00f3f K\u00f3ra, Datans og Ab\u00edrams 1 K\u00f3ra J\u00edseharsson, Kahatssonar Lev\u00edsonar, \u00e1samt Datan og Ab\u00edram, sonum El\u00edabs Pall\u00fasonar, sem voru ni\u00f0jar R\u00fabens, 2 gengu fyrir M\u00f3se. Me\u00f0 \u00feeim voru tv\u00f6 hundru\u00f0 og fimmt\u00edu \u00cdsraelsmenn, \u00feeir voru h\u00f6f\u00f0ingjar safna\u00f0arins, mikils metnir og \u00feekktir menn. 3 \u00deeir s\u00f6fnu\u00f0ust saman gegn M\u00f3se og Aroni og s\u00f6g\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201e\u00dei\u00f0 \u00e6tli\u00f0 ykkur um of \u00fev\u00ed a\u00f0 allur s\u00f6fnu\u00f0urinn er heilagur og Drottinn er mitt \u00e1 me\u00f0al hans. Hvers vegna hefji\u00f0 \u00fei\u00f0 sj\u00e1lfa ykkur yfir s\u00f6fnu\u00f0 Drottins?\u201c 4 \u00deegar M\u00f3se heyr\u00f0i \u00feetta f\u00e9ll hann fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna 5 og sag\u00f0i vi\u00f0 K\u00f3ra og allan s\u00f6fnu\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-16-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1750","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1750","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1750"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1750\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1750"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}