{"id":1748,"date":"2017-12-30T21:00:16","date_gmt":"2017-12-30T21:00:16","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fj%c2%97r_a-m%c2%97seb%c2%97k-14-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:17","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:17","slug":"fjorda-mosebok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-14-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> \u00dej\u00f3\u00f0in m\u00f6glar<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00de\u00e1 t\u00f3k allur s\u00f6fnu\u00f0urinn a\u00f0 kveina h\u00e1st\u00f6fum og f\u00f3lki\u00f0 gr\u00e9t \u00feessa n\u00f3tt og allir \u00cdsraelsmenn m\u00f6glu\u00f0u gegn M\u00f3se og Aroni. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> Allur s\u00f6fnu\u00f0urinn sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eVi\u00f0 vildum a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um d\u00e1i\u00f0 \u00ed Egyptalandi e\u00f0a \u00ed \u00feessari ey\u00f0im\u00f6rk. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Hvers vegna \u00e6tlar Drottinn a\u00f0 fara me\u00f0 okkur til \u00feessa lands til a\u00f0 fella okkur me\u00f0 sver\u00f0i? Konur okkar og b\u00f6rn ver\u00f0a \u00fe\u00e1 tekin herfangi. V\u00e6ri okkur ekki betra a\u00f0 sn\u00faa aftur til Egyptalands?\u201c <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an s\u00f6g\u00f0u \u00feeir s\u00edn \u00e1 milli: \u201eVi\u00f0 skulum velja okkur annan lei\u00f0toga og sn\u00faa aftur til Egyptalands.\u201c<br \/> <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 f\u00e9llu M\u00f3se og Aron fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nur s\u00ednar frammi fyrir \u00f6llum s\u00f6fnu\u00f0i \u00cdsraelsmanna. <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> J\u00f3s\u00faa N\u00fansson og Kaleb Jef\u00fanneson, sem voru me\u00f0al \u00feeirra sem h\u00f6f\u00f0u kanna\u00f0 landi\u00f0, rifu kl\u00e6\u00f0i s\u00edn, <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00e1v\u00f6rpu\u00f0u allan s\u00f6fnu\u00f0 \u00cdsraelsmanna og s\u00f6g\u00f0u: \u201eLandi\u00f0, sem vi\u00f0 f\u00f3rum um til a\u00f0 kanna, er afar gott. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hafi Drottinn vel\u00fe\u00f3knun \u00e1 okkur lei\u00f0ir hann okkur inn \u00ed \u00feetta land og gefur okkur \u00fea\u00f0. Landi\u00f0 fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi. <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> En geri\u00f0 ekki uppreisn gegn Drottni. \u00d3ttist ekki f\u00f3lki\u00f0 \u00ed landinu \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun reynast okkur au\u00f0veld br\u00e1\u00f0. Skugginn sem vernda\u00f0i \u00fea\u00f0 er horfinn en Drottinn er me\u00f0 okkur. \u00d3ttist \u00fea\u00f0 ekki.\u201c <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00deegar allur s\u00f6fnu\u00f0urinn h\u00f3ta\u00f0i a\u00f0 gr\u00fdta \u00fe\u00e1 birtist d\u00fdr\u00f0 Drottins \u00f6llum \u00cdsraelsm\u00f6nnum vi\u00f0 samfundatjaldi\u00f0.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">M\u00f3se bi\u00f0ur fyrir f\u00f3lkinu<\/h3>\n<p><a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se:<br \/>\u201eHversu lengi \u00e1 \u00feessari \u00fej\u00f3\u00f0 a\u00f0 leyfast a\u00f0 fyrirl\u00edta mig? Hversu lengi geta \u00feeir neita\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 mig \u00fer\u00e1tt fyrir \u00f6ll t\u00e1knin sem \u00e9g hef gert me\u00f0al \u00feeirra? <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> N\u00fa mun \u00e9g lj\u00f3sta \u00fe\u00e1 me\u00f0 dreps\u00f3tt og hrekja \u00fe\u00e1 burt. En \u00feig mun \u00e9g gera a\u00f0 mikilli \u00fej\u00f3\u00f0, \u00f6flugri en \u00feessi er.\u201c<br \/> <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sag\u00f0i M\u00f3se vi\u00f0 Drottin: \u201eEgyptar munu fr\u00e9tta a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir me\u00f0 m\u00e6tti \u00fe\u00ednum fari\u00f0 me\u00f0 \u00feetta f\u00f3lk hinga\u00f0 upp eftir burt fr\u00e1 \u00feeim. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu \u00feeir segja vi\u00f0 \u00edb\u00faa \u00feessa lands a\u00f0 \u00feeir hafi heyrt a\u00f0 \u00fe\u00fa, Drottinn, hafir veri\u00f0 mitt \u00e1 me\u00f0al \u00feessarar \u00fej\u00f3\u00f0ar og \u00fe\u00fa, Drottinn, hafir birst fyrir augum \u00feeirra og a\u00f0 sk\u00fd \u00feitt hafi veri\u00f0 yfir \u00feeim, a\u00f0 \u00fe\u00fa hafir gengi\u00f0 \u00e1 undan \u00feeim \u00ed sk\u00fdst\u00f3lpa um daga og eldst\u00f3lpa um n\u00e6tur. <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Ef \u00fe\u00fa n\u00fa dey\u00f0ir allt \u00feetta f\u00f3lk munu \u00fej\u00f3\u00f0irnar, sem hafa heyrt um \u00feig, segja: <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Af \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn gat ekki leitt \u00feessa \u00fej\u00f3\u00f0 til landsins sem hann haf\u00f0i heiti\u00f0 henni me\u00f0 ei\u00f0i sl\u00e1tra\u00f0i hann \u00fej\u00f3\u00f0inni \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> En s\u00fdndu n\u00fa, Drottinn minn, hversu mikill m\u00e1ttur \u00feinn er eins og \u00fe\u00fa hefur sj\u00e1lfur sagt:<br \/> <span class=\"ljodatexti\"> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_ljod\">18<\/span><\/a>Drottinn er seinn til rei\u00f0i og g\u00e6skur\u00edkur,<br \/>fyrirgefur misgj\u00f6r\u00f0ir og afbrot<br \/>en l\u00e6tur hinum seka ekki \u00f3hegnt<br \/>heldur vitjar misgj\u00f6r\u00f0a fe\u00f0ranna \u00e1 b\u00f6rnunum<br \/>\u00ed \u00feri\u00f0ja og fj\u00f3r\u00f0a li\u00f0. <\/span> <br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> Fyrirgef\u00f0u sekt \u00feessa f\u00f3lks af mikilli miskunn \u00feinni eins og \u00fe\u00fa hefur fyrirgefi\u00f0 \u00feessu f\u00f3lki fr\u00e1 \u00fev\u00ed \u00ed Egyptalandi og allt til \u00feessa dags.\u201c<br \/> <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> Drottinn svara\u00f0i:<br \/>\u201e\u00c9g fyrirgef \u00fev\u00ed vegna b\u00e6nar \u00feinnar. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> En svo sannarlega sem \u00e9g lifi og \u00f6ll j\u00f6r\u00f0in er full af d\u00fdr\u00f0 Drottins <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> skulu engir \u00feeirra manna, sem hafa s\u00e9\u00f0 d\u00fdr\u00f0 m\u00edna og t\u00e1knin sem \u00e9g ger\u00f0i \u00ed Egyptalandi og \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni og hafa n\u00fa reynt \u00e1 \u00feolinm\u00e6\u00f0i m\u00edna t\u00edu sinnum en ekki hlusta\u00f0 \u00e1 bo\u00f0skap minn, <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> engir \u00feeirra skulu f\u00e1 a\u00f0 sj\u00e1 landi\u00f0 sem \u00e9g s\u00f3r fe\u00f0rum \u00feeirra. Engir, sem hafa fyrirliti\u00f0 mig, skulu sj\u00e1 \u00fea\u00f0. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> En Kaleb \u00fej\u00f3n minn, sem hefur annan anda og fylgir m\u00e9r \u00ed einu og \u00f6llu, mun \u00e9g lei\u00f0a inn \u00ed landi\u00f0 sem hann f\u00f3r til. Ni\u00f0jar hans skulu taka \u00fea\u00f0 til eignar. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> En Amalek\u00edtar og Kanverjar b\u00faa \u00e1 sl\u00e9ttunni. \u00c1 morgun skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 sn\u00faa vi\u00f0 og leggja af sta\u00f0 inn \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkina \u00ed \u00e1ttina a\u00f0 Sefhafinu.\u201c<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se og Arons og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u201eHversu lengi \u00e1 \u00feessi vondi s\u00f6fnu\u00f0ur a\u00f0 m\u00f6gla gegn m\u00e9r? \u00c9g hef heyrt m\u00f6gl \u00cdsraelsmanna gegn m\u00e9r. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: Svo sannarlega, sem \u00e9g lifi, segir Drottinn, mun \u00e9g fara me\u00f0 ykkur eins og \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sj\u00e1lfir tala\u00f0 \u00ed eyru m\u00edn a\u00f0 \u00e9g muni gera. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> L\u00edk ykkar munu liggja eftir h\u00e9r \u00ed \u00feessari ey\u00f0im\u00f6rk, ykkar allra sem voru\u00f0 taldir, ykkar allra me\u00f0 t\u00f6lu, tuttugu \u00e1ra og eldri, l\u00edk ykkar sem hafi\u00f0 m\u00f6gla\u00f0 gegn m\u00e9r. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Enginn ykkar skal koma inn \u00ed landi\u00f0, sem \u00e9g s\u00f3r me\u00f0 upplyftri hendi a\u00f0 \u00fei\u00f0 skyldu\u00f0 b\u00faa \u00ed, enginn nema Kaleb Jef\u00fanneson og J\u00f3s\u00faa N\u00fansson. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> En b\u00f6rn ykkar, sem \u00fei\u00f0 s\u00f6g\u00f0u\u00f0 a\u00f0 yr\u00f0u tekin herfangi, mun \u00e9g lei\u00f0a \u00feanga\u00f0. \u00deau munu kynnast landinu sem \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 forsm\u00e1\u00f0 <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> en l\u00edk ykkar munu liggja eftir h\u00e9r \u00ed \u00feessari ey\u00f0im\u00f6rk. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> Synir ykkar ver\u00f0a hjar\u00f0menn \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni \u00ed fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r og gjalda fr\u00e1falls ykkar \u00fear til l\u00edk ykkar allra liggja \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 k\u00f6nnu\u00f0u\u00f0 landi\u00f0 \u00ed fj\u00f6rut\u00edu daga og \u00fei\u00f0 skulu\u00f0 gjalda misgj\u00f6r\u00f0ar ykkar \u00ed fj\u00f6rut\u00edu \u00e1r, eitt \u00e1r fyrir hvern dag. \u00deannig skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 komast a\u00f0 raun um hva\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00fe\u00fd\u00f0ir a\u00f0 f\u00e1 mig \u00e1 m\u00f3ti s\u00e9r. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00c9g, Drottinn, hef tala\u00f0. Sannarlega mun \u00e9g fara svona me\u00f0 \u00feennan vonda s\u00f6fnu\u00f0 sem ger\u00f0i sambl\u00e1stur gegn m\u00e9r: H\u00e9r \u00ed \u00feessari ey\u00f0im\u00f6rk skulu \u00feeir l\u00e1ta l\u00edfi\u00f0, h\u00e9r skulu \u00feeir deyja.\u201c<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> Mennirnir, sem M\u00f3se sendi til a\u00f0 kanna landi\u00f0, sneru aftur og \u00e6stu allan s\u00f6fnu\u00f0inn til a\u00f0 m\u00f6gla gegn honum me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e6gja landi\u00f0. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00deessir menn, sem r\u00e6gt h\u00f6f\u00f0u landi\u00f0, d\u00f3u. \u00deeir bi\u00f0u br\u00e1\u00f0an bana frammi fyrir augliti Drottins. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> En J\u00f3s\u00faa N\u00fansson og Kaleb Jef\u00fanneson h\u00e9ldu einir l\u00edfi \u00feeirra manna sem fari\u00f0 h\u00f6f\u00f0u til a\u00f0 kanna landi\u00f0.<br \/> <a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> M\u00f3se sk\u00fdr\u00f0i \u00f6llum \u00cdsraelsm\u00f6nnum fr\u00e1 \u00feessu og \u00f6ll \u00fej\u00f3\u00f0in var\u00f0 mj\u00f6g harm\u00ferungin. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00deeir voru snemma \u00e1 f\u00f3tum n\u00e6sta morgun og vildu fara upp \u00ed h\u00e6sta fjalllendi\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: \u201eVi\u00f0 erum tilb\u00fanir. N\u00fa h\u00f6ldum vi\u00f0 upp til \u00feess sta\u00f0ar sem Drottinn hefur tala\u00f0 um \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum syndga\u00f0.\u201c <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> En M\u00f3se sag\u00f0i: \u201eHvers vegna \u00e6tli\u00f0 \u00fei\u00f0 a\u00f0 brj\u00f3ta bo\u00f0 Drottins? \u00dea\u00f0 mun ekki takast. <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> Fari\u00f0 ekki upp eftir \u00fev\u00ed a\u00f0 Drottinn er ekki \u00e1 me\u00f0al ykkar svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 b\u00ed\u00f0i\u00f0 ekki \u00f3sigur fyrir fjandm\u00f6nnum ykkar. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> \u00dev\u00ed a\u00f0 Amalek\u00edtar og Kanverjar ver\u00f0a \u00fearna fyrir og \u00fei\u00f0 munu\u00f0 falla fyrir sver\u00f0i. Fyrst \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 sn\u00fai\u00f0 baki vi\u00f0 Drottni ver\u00f0ur Drottinn ekki me\u00f0 ykkur.\u201c<br \/> <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> En \u00feeir \u00ferj\u00f3sku\u00f0ust vi\u00f0 og h\u00e9ldu upp \u00ed h\u00e6sta fjalllendi\u00f0. En s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins og M\u00f3se viku ekki \u00far herb\u00fa\u00f0unum. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> Amalek\u00edtar og Kanverjar, sem bjuggu \u00ed fjalllendinu, komu ni\u00f0ur og sigru\u00f0u \u00fe\u00e1 og tv\u00edstru\u00f0u \u00feeim alla lei\u00f0 til Horma.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00dej\u00f3\u00f0in m\u00f6glar 1 \u00de\u00e1 t\u00f3k allur s\u00f6fnu\u00f0urinn a\u00f0 kveina h\u00e1st\u00f6fum og f\u00f3lki\u00f0 gr\u00e9t \u00feessa n\u00f3tt og allir \u00cdsraelsmenn m\u00f6glu\u00f0u gegn M\u00f3se og Aroni. 2 Allur s\u00f6fnu\u00f0urinn sag\u00f0i vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u201eVi\u00f0 vildum a\u00f0 vi\u00f0 hef\u00f0um d\u00e1i\u00f0 \u00ed Egyptalandi e\u00f0a \u00ed \u00feessari ey\u00f0im\u00f6rk. 3 Hvers vegna \u00e6tlar Drottinn a\u00f0 fara me\u00f0 okkur til \u00feessa lands til a\u00f0 fella okkur me\u00f0 sver\u00f0i? Konur okkar og b\u00f6rn ver\u00f0a \u00fe\u00e1 tekin herfangi. V\u00e6ri okkur ekki betra a\u00f0 sn\u00faa aftur til Egyptalands?\u201c 4 S\u00ed\u00f0an s\u00f6g\u00f0u \u00feeir s\u00edn \u00e1 milli: \u201eVi\u00f0 skulum velja okkur annan lei\u00f0toga og sn\u00faa aftur til Egyptalands.\u201c 5 \u00de\u00e1 f\u00e9llu M\u00f3se og Aron <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1748","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1748","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1748"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1748\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1748"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}