{"id":1739,"date":"2017-12-30T21:00:16","date_gmt":"2017-12-30T21:00:16","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/fj%c2%97r_a-m%c2%97seb%c2%97k-5-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:31:22","modified_gmt":"2024-05-06T22:31:22","slug":"fjorda-mosebok-5-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-5-kafli\/","title":{"rendered":"Fj\u00f3r\u00f0a M\u00f3seb\u00f3k 5. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Brottrekstur \u00f3hreinna<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201eGef\u00f0u \u00cdsraelsm\u00f6nnum fyrirm\u00e6li um a\u00f0 reka \u00far herb\u00fa\u00f0unum alla holdsveika, alla me\u00f0 \u00fatfer\u00f0 og alla sem hafa saurgast af l\u00edki. <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 reka burt b\u00e6\u00f0i karla og konur. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 reka \u00feau \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar svo a\u00f0 \u00feau saurgi \u00fe\u00e6r ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g b\u00fd mitt \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelsmanna.\u201c<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> \u00cdsraelsmenn ger\u00f0u \u00feetta og r\u00e1ku f\u00f3lki\u00f0 \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar. \u00cdsraelsmenn ger\u00f0u \u00fea\u00f0 sem Drottinn bau\u00f0 M\u00f3se.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ska\u00f0ab\u00e6tur og gj\u00f6ld til helgid\u00f3msins<\/h3>\n<p><a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpa\u00f0u \u00cdsraelsmenn og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u00deegar karl e\u00f0a kona dr\u00fdgir einhverja \u00fe\u00e1 synd sem menn dr\u00fdgja og rj\u00fafa me\u00f0 \u00fev\u00ed tr\u00fana\u00f0 vi\u00f0 Drottin ver\u00f0ur s\u00e1 hinn sami sekur. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00deau skulu \u00fe\u00e1 j\u00e1ta syndina sem \u00feau hafa dr\u00fdgt. Hinn seki skal b\u00e6ta fullu ver\u00f0i \u00fea\u00f0 tj\u00f3n sem hann olli me\u00f0 broti s\u00ednu og b\u00e6ta fimmtungi vi\u00f0. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Eigi ma\u00f0urinn engan lausnarmann <span class=\"nedan_mal\" title=\" Lausnarma\u00f0ur (or\u00f0r\u00e9tt: endurlausnari) nefndist s\u00e1 me\u00f0al fr\u00e6ndli\u00f0s sem bar skylda til a\u00f0 leysa til s\u00edn land e\u00f0a a\u00f0ra eign sem gengi\u00f0 haf\u00f0i \u00far \u00e6ttinni.\">[<\/span> sem h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 grei\u00f0a b\u00e6turnar renna \u00fe\u00e6r til Drottins og falla til prestsins nema fri\u00f0\u00fe\u00e6gingarhr\u00faturinn sem presturinn skal fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hann me\u00f0.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00d6ll afgj\u00f6ld, allar helgigjafir \u00cdsraelsmanna, sem fengnar eru presti, ver\u00f0a eign hans. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Helgigjafir hvers og eins eru eign hans en \u00fea\u00f0 sem ma\u00f0ur kann a\u00f0 f\u00e6ra presti ver\u00f0ur hans eign.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Ranns\u00f3kn vegna gruns um hj\u00faskaparbrot<\/h3>\n<p><a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpa\u00f0u \u00cdsraelsmenn og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: N\u00fa tekur kona fram hj\u00e1 eiginmanni s\u00ednum og gerist honum \u00f3tr\u00fa <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 annar ma\u00f0ur liggur me\u00f0 henni og \u00fev\u00ed er haldi\u00f0 leyndu fyrir eiginmanni hennar en brot hennar ver\u00f0ur ekki uppl\u00fdst \u00fe\u00f3 a\u00f0 h\u00fan hafi saurgast \u00fev\u00ed a\u00f0 engin vitni koma fram gegn henni og h\u00fan var ekki sta\u00f0in a\u00f0 verki. <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Komi afbr\u00fd\u00f0isandi yfir eiginmanninn og hann ver\u00f0ur hr\u00e6ddur um konu s\u00edna, sem hefur saurga\u00f0 sig, e\u00f0a hann ver\u00f0ur afbr\u00fd\u00f0isamur \u00fe\u00f3 a\u00f0 h\u00fan hafi ekki saurgast, <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> skal ma\u00f0urinn fara me\u00f0 konu s\u00edna til prests og taka me\u00f0 s\u00e9r t\u00edunda hluta efu af byggmj\u00f6li sem f\u00f3rnargj\u00f6f fyrir hana. Hann skal hvorki hella yfir \u00fea\u00f0 ol\u00edu n\u00e9 str\u00e1 \u00e1 \u00fea\u00f0 reykelsi \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 er afbr\u00fd\u00f0isemiskornf\u00f3rn, kornf\u00f3rn til \u00e1minningar um sekt.<br \/> <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Presturinn skal lei\u00f0a konuna fram og l\u00e1ta hana taka s\u00e9r st\u00f6\u00f0u fyrir augliti Drottins. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skal presturinn setja v\u00edgt vatn \u00ed leirkr\u00fas og taka l\u00edti\u00f0 eitt af moldinni af g\u00f3lfi tjaldb\u00fa\u00f0arinnar og setja hana \u00ed vatni\u00f0. <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u00deegar presturinn hefur leitt konuna fram fyrir auglit Drottins skal hann leysa h\u00e1r hennar og f\u00e1 henni \u00ed hendur kornf\u00f3rnina til \u00e1minningar, \u00fea\u00f0 er afbr\u00fd\u00f0iskornf\u00f3rnina, en vatni\u00f0 sem veldur b\u00f6lvun skal vera \u00e1fram \u00ed hendi prestsins.<br \/> <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn taka ei\u00f0 af konunni og segja: Ef enginn hefur legi\u00f0 me\u00f0 \u00fe\u00e9r og \u00fe\u00fa ekki saurgast af \u00fev\u00ed a\u00f0 taka fram hj\u00e1 eiginmanni \u00fe\u00ednum me\u00f0 \u00f6\u00f0rum manni mun \u00feetta beiska vatn, sem annars veldur b\u00f6lvun, ekki ska\u00f0a \u00feig. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> En hafir \u00fe\u00fa teki\u00f0 fram hj\u00e1 eiginmanni \u00fe\u00ednum og saurgast af \u00fev\u00ed vegna \u00feess a\u00f0 annar ma\u00f0ur en eiginma\u00f0ur \u00feinn hefur haft samr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 \u00feig, <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> &#8211; n\u00fa skal presturinn taka af konunni ei\u00f0 sem felur \u00ed s\u00e9r b\u00f6lvun hennar og segja vi\u00f0 hana &#8211; Drottinn mun l\u00e1ta b\u00f6lvun \u00fe\u00edna og ei\u00f0 ver\u00f0a v\u00edti til varna\u00f0ar me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0ar \u00feinnar me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 hann l\u00e6tur mja\u00f0mir \u00fe\u00ednar hja\u00f0na og kvi\u00f0 \u00feinn \u00fer\u00fatna. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00deetta vatn, sem veldur b\u00f6lvun, skal fara inn \u00ed kvi\u00f0 \u00feinn og l\u00e1ta hann \u00fer\u00fatna og mja\u00f0mir \u00fe\u00ednar hja\u00f0na. Konan skal svara: Amen, amen. <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> N\u00fa skal presturinn skrifa \u00feessa b\u00f6lvun \u00e1 bla\u00f0 og skola s\u00ed\u00f0an letri\u00f0 af \u00fev\u00ed \u00ed beiska vatninu. <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00dev\u00ed n\u00e6st skal hann l\u00e1ta konuna drekka beiska vatni\u00f0 sem veldur b\u00f6lvun svo a\u00f0 vatni\u00f0, sem veldur b\u00f6lvun, fari ofan \u00ed hana og valdi beiskum kv\u00f6lum. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> S\u00ed\u00f0an skal presturinn taka afbr\u00fd\u00f0iskornf\u00f3rnina \u00far hendi konunnar og veifa henni fyrir augliti Drottins og f\u00e6ra hana fram \u00e1 altari\u00f0. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Presturinn skal taka hnefafylli af kornf\u00f3rninni sem minningarhluta hennar og l\u00e1ta hana l\u00ed\u00f0a upp \u00ed reyk af altarinu. <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u00deegar hann hefur l\u00e1ti\u00f0 konuna drekka vatni\u00f0 sem veldur b\u00f6lvun veldur \u00fea\u00f0 beiskri kv\u00f6l hafi h\u00fan saurgast af \u00fev\u00ed a\u00f0 vera manni s\u00ednum \u00f3tr\u00fa. Vatni\u00f0 fer \u00fe\u00e1 ofan \u00ed hana, veldur beiskju og kvi\u00f0ur hennar \u00fer\u00fatnar og mja\u00f0mir hennar hja\u00f0na. \u00deannig ver\u00f0ur b\u00f6lvun konunnar v\u00edti til varna\u00f0ar \u00e1 me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0ar hennar. <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> Hafi konan ekki saurgast er h\u00fan hrein og skal \u00farskur\u00f0u\u00f0 s\u00fdkn saka. Skal h\u00fan ekki hlj\u00f3ta ska\u00f0a af og getur ali\u00f0 b\u00f6rn.\u201c<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00deetta eru l\u00f6g um afbr\u00fd\u00f0i. Taki kona fram hj\u00e1 eiginmanni s\u00ednum og saurgist <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> e\u00f0a afbr\u00fd\u00f0isandi kemur yfir einhvern svo a\u00f0 hann ver\u00f0ur afbr\u00fd\u00f0isamur vegna konu sinnar, skal hann l\u00e1ta konuna taka s\u00e9r st\u00f6\u00f0u frammi fyrir augliti Drottins og prestur skal \u00ed einu og \u00f6llu fara a\u00f0 \u00feessum l\u00f6gum. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00de\u00e1 er ma\u00f0urinn saklaus en konan skal bera sekt s\u00edna.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Brottrekstur \u00f3hreinna 1 Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se og sag\u00f0i: 2 \u201eGef\u00f0u \u00cdsraelsm\u00f6nnum fyrirm\u00e6li um a\u00f0 reka \u00far herb\u00fa\u00f0unum alla holdsveika, alla me\u00f0 \u00fatfer\u00f0 og alla sem hafa saurgast af l\u00edki. 3 \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 reka burt b\u00e6\u00f0i karla og konur. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 reka \u00feau \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar svo a\u00f0 \u00feau saurgi \u00fe\u00e6r ekki \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g b\u00fd mitt \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelsmanna.\u201c 4 \u00cdsraelsmenn ger\u00f0u \u00feetta og r\u00e1ku f\u00f3lki\u00f0 \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar. \u00cdsraelsmenn ger\u00f0u \u00fea\u00f0 sem Drottinn bau\u00f0 M\u00f3se. Ska\u00f0ab\u00e6tur og gj\u00f6ld til helgid\u00f3msins 5 Drottinn tala\u00f0i til M\u00f3se og sag\u00f0i: 6 \u201e\u00c1varpa\u00f0u \u00cdsraelsmenn og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: \u00deegar karl e\u00f0a kona <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/fjorda-mosebok-5-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1739","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1739","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1739"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1739\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1739"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}