{"id":1733,"date":"2017-12-30T21:00:11","date_gmt":"2017-12-30T21:00:11","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-26-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:22","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:22","slug":"thridja-mosebok-26-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-26-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 26. kafli"},"content":{"rendered":"<h2 class=\"millifyrirsogn_2007\">Blessun og b\u00f6lvun <\/h2>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Krafa Drottins<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki gera ykkur hj\u00e1gu\u00f0i og hvorki reisa upp skur\u00f0go\u00f0 n\u00e9 merkisteina. \u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki koma fyrir neinum steinum me\u00f0 h\u00f6ggnum myndum \u00ed landi ykkar til \u00feess a\u00f0 falla fram fyrir \u00feeim. \u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 ykkar. <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 eigi\u00f0 a\u00f0 halda hv\u00edldardaga m\u00edna og s\u00fdna helgid\u00f3mi m\u00ednum lotningu. \u00c9g er Drottinn.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Blessanir<\/h3>\n<p><a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 fylgi\u00f0 l\u00f6gum m\u00ednum og haldi\u00f0 reglur m\u00ednar og breyti\u00f0 eftir \u00feeim <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> mun \u00e9g gefa ykkur regn \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma svo a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in gefi af s\u00e9r afur\u00f0ir s\u00ednar og tr\u00e9n \u00fati \u00e1 v\u00f6llunum beri \u00e1v\u00f6xt. <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> \u00de\u00e1 skal \u00feresking n\u00e1 saman vi\u00f0 v\u00ednberjatekju og v\u00ednberjatekja vi\u00f0 s\u00e1ningu. \u00dei\u00f0 munu\u00f0 eta ykkur sadda af eigin brau\u00f0i og b\u00faa \u00f3hultir \u00ed eigin landi.<br \/> <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> \u00c9g mun veita ykkur fri\u00f0 \u00ed landinu svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 geti\u00f0 lagst til hv\u00edldar \u00e1n \u00feess a\u00f0 nokkur f\u00e6li ykkur \u00e1 f\u00e6tur. \u00c9g mun ey\u00f0a r\u00e1nd\u00fdrum \u00far landinu og sver\u00f0 mun ekki herja \u00e1 landi\u00f0. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 munu\u00f0 st\u00f6kkva fjandm\u00f6nnum ykkar \u00e1 fl\u00f3tta og \u00feeir munu falla fyrir sver\u00f0i frammi fyrir ykkur. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu fimm ykkar reka hundra\u00f0 \u00e1 fl\u00f3tta og hundra\u00f0 ykkar reka t\u00edu \u00fe\u00fasund \u00e1 fl\u00f3tta og fjandmenn ykkar munu falla fyrir sver\u00f0i frammi fyrir ykkur.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00c9g mun sn\u00faa m\u00e9r a\u00f0 ykkur, gera ykkur frj\u00f3sama og fj\u00f6lga ykkur. \u00c9g mun gera s\u00e1ttm\u00e1la minn vi\u00f0 ykkur. <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 neyta uppskeru fr\u00e1 fyrra \u00e1ri, fyrningar fyrri \u00e1ra og \u00fei\u00f0 munu\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 bera gamla korni\u00f0 \u00fat til a\u00f0 r\u00fdma fyrir n\u00fdrri uppskeru. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00c9g mun reisa b\u00fasta\u00f0 minn mitt \u00e1 me\u00f0al ykkar og ekki hafa neina \u00f3beit \u00e1 ykkur. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> \u00c9g mun ganga um mitt \u00e1 me\u00f0al ykkar, vera Gu\u00f0 ykkar og \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 m\u00edn. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> \u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 ykkar sem leiddi ykkur \u00fat \u00far Egyptalandi svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00feyrftu\u00f0 ekki a\u00f0 vera \u00fer\u00e6lar \u00feeirra. \u00c9g braut ok ykkar \u00ed sundur og l\u00e9t ykkur ganga uppr\u00e9tta.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">B\u00f6lvanir<\/h3>\n<p><a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 hlusti\u00f0 ekki \u00e1 mig og breyti\u00f0 ekki eftir \u00f6llum \u00feessum bo\u00f0um <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> en hafni\u00f0 l\u00f6gum m\u00ednum og fyrirl\u00edti\u00f0 reglur m\u00ednar, breyti\u00f0 ekki eftir bo\u00f0um m\u00ednum og rj\u00fafi\u00f0 s\u00e1ttm\u00e1la minn, <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> mun \u00e9g gera ykkur \u00feetta:<br \/>\u00c9g mun senda yfir ykkur skelfingu, t\u00e6ringu og hitas\u00f3tt sem slekkur lj\u00f3s augnanna og l\u00e6tur l\u00edfi\u00f0 fjara \u00fat. \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 s\u00e1 \u00fats\u00e6\u00f0i ykkar til einskis \u00fev\u00ed a\u00f0 fjandmenn ykkar munu eta \u00fea\u00f0. <a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> \u00c9g mun sn\u00faa augliti m\u00ednu gegn ykkur svo a\u00f0 \u00fei\u00f0 b\u00ed\u00f0i\u00f0 \u00f3sigur fyrir fjandm\u00f6nnum ykkar. Andst\u00e6\u00f0ingar ykkar munu tra\u00f0ka \u00e1 ykkur og \u00fei\u00f0 munu\u00f0 fl\u00fdja \u00fe\u00f3 a\u00f0 enginn reki fl\u00f3ttann.<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 hafi\u00f0 enn ekki hl\u00fdtt \u00e1 mig held \u00e9g \u00e1fram me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 refsa ykkur sj\u00f6 sinnum fyrir syndir ykkar. <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> \u00c9g mun brj\u00f3ta ni\u00f0ur hroka ykkar og afl og gera himininn yfir ykkur eins og j\u00e1rn og j\u00f6r\u00f0ina eins og eir. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 munu\u00f0 erfi\u00f0a til \u00f3n\u00fdtis \u00fev\u00ed a\u00f0 land ykkar mun ekki gefa af s\u00e9r afur\u00f0ir og tr\u00e9n \u00ed landinu munu ekki bera \u00e1v\u00f6xt.<br \/> <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 fjandskapist og hl\u00fd\u00f0i\u00f0 ekki \u00e1 mig hegni \u00e9g ykkur sj\u00f6falt eins og syndir ykkar gefa tilefni til. <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sendi \u00e9g gegn ykkur \u00f3argad\u00fdr sem munu gera ykkur barnlaus, tort\u00edma b\u00faf\u00e9na\u00f0i ykkar og f\u00e6kka ykkur sj\u00e1lfum verulega svo a\u00f0 vegir ykkar ver\u00f0a au\u00f0ir.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 l\u00e1ti\u00f0 ekki skipast vi\u00f0 \u00feessar \u00e1minningar en fjandskapist vi\u00f0 mig <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> mun \u00e9g fjandskapast vi\u00f0 ykkur og \u00fe\u00e1 mun \u00e9g einnig hegna ykkur sj\u00f6falt fyrir syndir ykkar. <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> \u00de\u00e1 mun \u00e9g senda gegn ykkur sver\u00f0 sem mun hefna fyrir s\u00e1ttm\u00e1lsrofi\u00f0. Ef \u00fei\u00f0 \u00fe\u00e1 h\u00f6rfi\u00f0 inn \u00ed borgir ykkar mun \u00e9g senda dreps\u00f3tt gegn ykkur og \u00fei\u00f0 ver\u00f0i\u00f0 seldir fjandm\u00f6nnum ykkar \u00ed hendur. <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> \u00deegar \u00e9g svipti ykkur \u00f6llum matarfor\u00f0a ykkar munu t\u00edu konur baka brau\u00f0 handa ykkur \u00ed einum ofni og f\u00e1 ykkur brau\u00f0 ykkar eftir vigt og \u00fei\u00f0 munu\u00f0 eta en ekki ver\u00f0a saddir.<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> Ef \u00fei\u00f0 hl\u00fd\u00f0i\u00f0 ekki \u00e1 mig \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feetta en fjandskapist vi\u00f0 mig <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> mun \u00e9g fjandskapast vi\u00f0 ykkur og hegna ykkur sj\u00f6falt fyrir syndir ykkar. <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu\u00f0 \u00fei\u00f0 eta hold sona ykkar og d\u00e6tra. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> \u00c9g mun ey\u00f0a f\u00f3rnarh\u00e6\u00f0um ykkar og brj\u00f3ta reykelsis\u00f6lturu ykkar. \u00c9g mun fleygja l\u00edkum ykkar ofan \u00e1 l\u00edfvana skur\u00f0go\u00f0 ykkar og m\u00e9r mun bj\u00f3\u00f0a vi\u00f0 ykkur. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> \u00c9g mun leggja borgir ykkar \u00ed r\u00fast og ey\u00f0a helgid\u00f3mum ykkar og \u00e9g mun ekki anda a\u00f0 m\u00e9r \u00feekkum ilmi f\u00f3rna ykkar. <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00c9g mun sj\u00e1lfur gera land ykkar a\u00f0 ey\u00f0im\u00f6rk, fjandmenn ykkar, sem setjast \u00fear a\u00f0, mun hrylla vi\u00f0 \u00fev\u00ed. <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> En ykkur mun \u00e9g dreifa \u00e1 me\u00f0al framandi \u00fej\u00f3\u00f0a og hrekja ykkur burt me\u00f0 brug\u00f0num brandi. Land ykkar ver\u00f0ur au\u00f0n og borgirnar r\u00fastir. <a name=\"34\"><span class=\"versanumer_2007\">34<\/span><\/a> Landi\u00f0 mun f\u00e1 hv\u00edldar\u00e1r s\u00edn endurgoldin allan \u00feann t\u00edma sem \u00fea\u00f0 er \u00ed ey\u00f0i. \u00c1 me\u00f0an \u00fei\u00f0 eru\u00f0 \u00ed landi fjandmanna ykkar hv\u00edlist landi\u00f0 og f\u00e6r hv\u00edldar\u00e1r s\u00edn endurgoldin. <a name=\"35\"><span class=\"versanumer_2007\">35<\/span><\/a> \u00dea\u00f0 mun hv\u00edlast allan \u00feann t\u00edma sem \u00fea\u00f0 er \u00ed ey\u00f0i \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 naut engrar hv\u00edldar \u00feegar \u00fei\u00f0 h\u00e9ldu\u00f0 hv\u00edldardaga ykkar me\u00f0an \u00fei\u00f0 bjuggu\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed.<br \/> <a name=\"36\"><span class=\"versanumer_2007\">36<\/span><\/a> \u00de\u00e1 sem eftir eru \u00ed l\u00f6ndum fjandmanna ykkar mun \u00e9g gera kjarklausa. Jafnvel skrj\u00e1fi\u00f0 \u00ed visnu\u00f0u laufi mun reka \u00fe\u00e1 \u00e1 fl\u00f3tta og \u00feeir munu fl\u00fdja eins og \u00feeir sem fl\u00fdja undan sver\u00f0i \u00fe\u00f3 a\u00f0 enginn reki fl\u00f3ttann. <a name=\"37\"><span class=\"versanumer_2007\">37<\/span><\/a> \u00deeir munu hnj\u00f3ta hver um annan eins og \u00feeir fl\u00fd\u00f0u undan sver\u00f0i \u00fe\u00f3 a\u00f0 enginn elti \u00fe\u00e1. \u00dei\u00f0 munu\u00f0 ekki f\u00e1 sta\u00f0ist fyrir fjandm\u00f6nnum ykkar. <a name=\"38\"><span class=\"versanumer_2007\">38<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 munu\u00f0 farast \u00e1 me\u00f0al framandi \u00fej\u00f3\u00f0a, land fjandmanna ykkar mun gleypa ykkur.<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">Fyrirheit<\/h3>\n<p><a name=\"39\"><span class=\"versanumer_2007\">39<\/span><\/a> \u00deeir ykkar sem \u00fe\u00e1 eru eftir munu veslast upp \u00ed l\u00f6ndum fjandmanna ykkar vegna synda ykkar og synda fe\u00f0ra ykkar sem munu veslast upp \u00e1samt ykkur. <a name=\"40\"><span class=\"versanumer_2007\">40<\/span><\/a> \u00de\u00e1 munu \u00feeir j\u00e1ta syndir s\u00ednar og fe\u00f0ra sinna sem \u00feeir dr\u00fdg\u00f0u me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sv\u00edkja mig. \u00deeir snerust meira a\u00f0 segja gegn m\u00e9r <a name=\"41\"><span class=\"versanumer_2007\">41<\/span><\/a> svo a\u00f0 \u00e9g snerist gegn \u00feeim og sendi \u00fe\u00e1 til lands fjandmanna \u00feeirra. \u00de\u00e1 ver\u00f0ur \u00f3umskori\u00f0 hjarta \u00feeirra au\u00f0m\u00fdkt og \u00feeir b\u00e6ta fyrir syndir s\u00ednar.<br \/> <a name=\"42\"><span class=\"versanumer_2007\">42<\/span><\/a> \u00de\u00e1 mun \u00e9g minnast s\u00e1ttm\u00e1la m\u00edns vi\u00f0 Jakob, einnig s\u00e1ttm\u00e1la m\u00edns vi\u00f0 \u00cdsak og s\u00e1ttm\u00e1la m\u00edns vi\u00f0 Abraham. Og \u00e9g mun minnast landsins. <a name=\"43\"><span class=\"versanumer_2007\">43<\/span><\/a> Landi\u00f0 mun losna vi\u00f0 \u00edb\u00faa s\u00edna og nj\u00f3ta hv\u00edldar\u00e1ra sinna \u00e1 me\u00f0an \u00fea\u00f0 er laust vi\u00f0 \u00fe\u00e1. En \u00feeir ver\u00f0a a\u00f0 b\u00e6ta a\u00f0 fullu fyrir brot sitt \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6fnu\u00f0u r\u00e9ttarreglum m\u00ednum og \u00feeim bau\u00f0 vi\u00f0 l\u00f6gum m\u00ednum.<br \/> <a name=\"44\"><span class=\"versanumer_2007\">44<\/span><\/a> En \u00e9g mun ekki hafna \u00feeim, jafnvel ekki \u00e1 me\u00f0an \u00feeir dveljast \u00ed landi fjandmanna sinna. \u00c9g mun ekki hafa \u00f3beit \u00e1 \u00feeim svo a\u00f0 \u00e9g geri \u00fat af vi\u00f0 \u00fe\u00e1 og rj\u00fafi s\u00e1ttm\u00e1la minn vi\u00f0 \u00fe\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er Drottinn, Gu\u00f0 \u00feeirra. <a name=\"45\"><span class=\"versanumer_2007\">45<\/span><\/a> \u00deeim til heilla mun \u00e9g minnast s\u00e1ttm\u00e1lans vi\u00f0 forfe\u00f0ur \u00feeirra sem \u00e9g leiddi \u00fat \u00far Egyptalandi fyrir augum \u00fej\u00f3\u00f0anna til \u00feess a\u00f0 ver\u00f0a Gu\u00f0 \u00feeirra. \u00c9g er Drottinn.\u201c<br \/> <a name=\"46\"><span class=\"versanumer_2007\">46<\/span><\/a> \u00deetta eru \u00feau l\u00f6g, reglur og fyrirm\u00e6li sem Drottinn setti milli s\u00edn og \u00cdsraelsmanna fyrir munn M\u00f3se \u00e1 S\u00edna\u00edfjalli.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Blessun og b\u00f6lvun Krafa Drottins 1 \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki gera ykkur hj\u00e1gu\u00f0i og hvorki reisa upp skur\u00f0go\u00f0 n\u00e9 merkisteina. \u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki koma fyrir neinum steinum me\u00f0 h\u00f6ggnum myndum \u00ed landi ykkar til \u00feess a\u00f0 falla fram fyrir \u00feeim. \u00c9g er Drottinn, Gu\u00f0 ykkar. 2 \u00dei\u00f0 eigi\u00f0 a\u00f0 halda hv\u00edldardaga m\u00edna og s\u00fdna helgid\u00f3mi m\u00ednum lotningu. \u00c9g er Drottinn. Blessanir 3 Ef \u00fei\u00f0 fylgi\u00f0 l\u00f6gum m\u00ednum og haldi\u00f0 reglur m\u00ednar og breyti\u00f0 eftir \u00feeim 4 mun \u00e9g gefa ykkur regn \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma svo a\u00f0 j\u00f6r\u00f0in gefi af s\u00e9r afur\u00f0ir s\u00ednar og tr\u00e9n \u00fati \u00e1 v\u00f6llunum beri \u00e1v\u00f6xt. 5 \u00de\u00e1 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-26-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1733","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1733","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1733"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1733\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1733"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}