{"id":1729,"date":"2017-12-30T21:00:11","date_gmt":"2017-12-30T21:00:11","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/biblian\/_ri_ja-m%c2%97seb%c2%97k-22-kafli\/"},"modified":"2024-05-06T22:30:21","modified_gmt":"2024-05-06T22:30:21","slug":"thridja-mosebok-22-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-22-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 22. kafli"},"content":{"rendered":"<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\"> Helgigjafir<\/h3>\n<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer_2007\">1<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"2\"><span class=\"versanumer_2007\">2<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpa\u00f0u Aron og syni hans og seg\u00f0u \u00feeim a\u00f0 me\u00f0h\u00f6ndla me\u00f0 lotningu helgigjafir \u00cdsraelsmanna, sem \u00feeir helga m\u00e9r, svo a\u00f0 \u00feeir vanhelgi ekki mitt heilaga nafn. \u00c9g er Drottinn.<br \/> <a name=\"3\"><span class=\"versanumer_2007\">3<\/span><\/a> Seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: S\u00e9rhver ni\u00f0ja ykkar, kynsl\u00f3\u00f0 eftir kynsl\u00f3\u00f0, sem \u00f3hreinn n\u00e1lgast gjafirnar sem \u00cdsraelsmenn helga Drottni, skal uppr\u00e6ttur og rekinn fr\u00e1 augliti m\u00ednu. \u00c9g er Drottinn.<br \/> <a name=\"4\"><span class=\"versanumer_2007\">4<\/span><\/a> Enginn ni\u00f0ja Arons, sem hefur holdsveiki e\u00f0a \u00fatfer\u00f0, m\u00e1 neyta af helgigj\u00f6funum, sem \u00cdsraelsmenn helga Drottni, fyrr en hann er or\u00f0inn hreinn. Hver sem snertir eitthva\u00f0, sem hefur saurgast af l\u00edki, e\u00f0a snertir einhvern mann, sem hefur haft s\u00e1\u00f0l\u00e1t, <a name=\"5\"><span class=\"versanumer_2007\">5<\/span><\/a> og hver s\u00e1 sem snertir skri\u00f0d\u00fdr og saurgast af \u00fev\u00ed e\u00f0a ma\u00f0ur, sem snertir mann og saurgast af \u00f3hreinleika hans, hver svo sem hann er, <a name=\"6\"><span class=\"versanumer_2007\">6<\/span><\/a> hver, sem snertir eitthva\u00f0 af \u00feessu, er \u00f3hreinn til kv\u00f6lds. Hann skal ekki neyta neins af helgigj\u00f6funum fyrr en hann hefur \u00fevegi\u00f0 l\u00edkama sinn \u00ed vatni. <a name=\"7\"><span class=\"versanumer_2007\">7<\/span><\/a> Hann ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 fyrst hreinn \u00feegar s\u00f3l er sest. \u00de\u00e1 m\u00e1 hann neyta af helgigj\u00f6funum \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e6r eru f\u00e6\u00f0a hans. <a name=\"8\"><span class=\"versanumer_2007\">8<\/span><\/a> Hann skal ekki leggja s\u00e9r til munns sj\u00e1lfdau\u00f0ar skepnur e\u00f0a d\u00fdrrifnar. \u00dea\u00f0 saurgar hann. \u00c9g er Drottinn.<br \/> <a name=\"9\"><span class=\"versanumer_2007\">9<\/span><\/a> \u00deeir skulu halda fyrirm\u00e6li m\u00edn svo a\u00f0 \u00feeir beri ekki sekt af \u00feeim s\u00f6kum. \u00deeir munu deyja ef \u00feeir vanhelga hi\u00f0 heilaga. \u00c9g er Drottinn sem helgar \u00fe\u00e1.<br \/> <a name=\"10\"><span class=\"versanumer_2007\">10<\/span><\/a> Enginn, sem ekki er \u00ed prestsfj\u00f6lskyldu, m\u00e1 neyta helgigjafar. Hvorki a\u00f0fluttur ma\u00f0ur, sem b\u00fdr hj\u00e1 presti, n\u00e9 daglaunama\u00f0ur m\u00e1 eta neitt af helgigj\u00f6fum. <a name=\"11\"><span class=\"versanumer_2007\">11<\/span><\/a> \u00deegar prestur kaupir einhvern fyrir eigi\u00f0 f\u00e9 m\u00e1 s\u00e1 neyta af helgigj\u00f6fum hans eins og s\u00e1 sem f\u00e6ddur er \u00ed fj\u00f6lskyldu hans. <a name=\"12\"><span class=\"versanumer_2007\">12<\/span><\/a> En d\u00f3ttir prests, sem hefur veri\u00f0 gift manni utan fj\u00f6lskyldunnar, m\u00e1 ekki eta neitt af \u00feeim helgigj\u00f6fum sem hafa veri\u00f0 greiddar \u00ed afgj\u00f6ld. <a name=\"13\"><span class=\"versanumer_2007\">13<\/span><\/a> S\u00e9 d\u00f3ttir prests ekkja e\u00f0a skilin fr\u00e1 manni s\u00ednum og hefur ekki or\u00f0i\u00f0 barna au\u00f0i\u00f0 og kemur \u00fev\u00ed aftur \u00ed h\u00fas f\u00f6\u00f0ur s\u00edns, m\u00e1 h\u00fan neyta matar f\u00f6\u00f0ur s\u00edns eins og \u00ed \u00e6sku. En enginn utan fj\u00f6lskyldunnar m\u00e1 eta af honum.<br \/> <a name=\"14\"><span class=\"versanumer_2007\">14<\/span><\/a> \u00deegar einhver ma\u00f0ur etur af helgigj\u00f6f af vang\u00e1 skal hann grei\u00f0a prestinum helgigj\u00f6fina a\u00f0 fullu og fimmtung a\u00f0 auki.<br \/> <a name=\"15\"><span class=\"versanumer_2007\">15<\/span><\/a> Prestarnir mega ekki vanhelga helgigjafir \u00cdsraelsmanna sem \u00feeir f\u00e6ra Drottni \u00ed afgj\u00f6ld. <a name=\"16\"><span class=\"versanumer_2007\">16<\/span><\/a> Me\u00f0 \u00fev\u00ed mundu \u00feeir baka \u00feeim sekt sem krefst sektarf\u00f3rnar ef \u00feeir eta helgigjafir \u00feeirra.<br \/>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er Drottinn sem helgar \u00feessar gjafir.\u201c<\/p>\n<h3 class=\"millifyrirsogn_2007\">F\u00f3rnir<\/h3>\n<p><a name=\"17\"><span class=\"versanumer_2007\">17<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"18\"><span class=\"versanumer_2007\">18<\/span><\/a> \u201e\u00c1varpa\u00f0u Aron og syni hans og alla \u00cdsraelsmenn og seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1:<br \/>S\u00e9rhver ma\u00f0ur af \u00e6tt \u00cdsraels e\u00f0a a\u00f0komuma\u00f0ur \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra, sem \u00e6tlar a\u00f0 f\u00e6ra f\u00f3rnargj\u00f6f vegna heits e\u00f0a af frj\u00e1lsum vilja og \u00e6tlar a\u00f0 f\u00e6ra hana Drottni \u00ed brennif\u00f3rn, <a name=\"19\"><span class=\"versanumer_2007\">19<\/span><\/a> skal f\u00e6ra fram l\u00fdtalaust karld\u00fdr af nautum, sau\u00f0f\u00e9 e\u00f0a geitum til \u00feess a\u00f0 hann hlj\u00f3ti vel\u00fe\u00f3knun. <a name=\"20\"><span class=\"versanumer_2007\">20<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki f\u00e6ra fram neitt d\u00fdr sem hefur \u00e1 s\u00e9r l\u00fdti \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e1 hlj\u00f3ti\u00f0 \u00fei\u00f0 ekki vel\u00fe\u00f3knun. <a name=\"21\"><span class=\"versanumer_2007\">21<\/span><\/a> \u00deegar einhver \u00e6tlar a\u00f0 f\u00e6ra Drottni lokasl\u00e1turf\u00f3rn til a\u00f0 halda heit e\u00f0a af frj\u00e1lsum vilja skal hann f\u00e6ra fram naut, sau\u00f0kind e\u00f0a geit. D\u00fdri\u00f0 skal vera l\u00fdtalaust til \u00feess a\u00f0 hann hlj\u00f3ti vel\u00fe\u00f3knun. \u00c1 \u00fev\u00ed skal ekkert l\u00fdti vera.<br \/> <a name=\"22\"><span class=\"versanumer_2007\">22<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki f\u00e6ra Drottni neitt blint e\u00f0a beinbroti\u00f0 d\u00fdr e\u00f0a s\u00e6rt e\u00f0a d\u00fdr me\u00f0 kl\u00e1\u00f0a e\u00f0a \u00fatbrotum. \u00dei\u00f0 megi\u00f0 ekki leggja neitt af sl\u00edkum d\u00fdrum \u00e1 altari\u00f0 sem eldf\u00f3rn handa Drottni.<br \/> <a name=\"23\"><span class=\"versanumer_2007\">23<\/span><\/a> \u00de\u00fa skalt ekki f\u00e6ra \u00ed f\u00f3rnargj\u00f6f af frj\u00e1lsum vilja naut e\u00f0a sau\u00f0kind me\u00f0 ofvaxinn e\u00f0a vanskapa\u00f0an \u00fatlim. S\u00e9 sl\u00edkt d\u00fdr f\u00e6rt \u00ed heitf\u00f3rn veitir h\u00fan ekki vel\u00fe\u00f3knun.<br \/> <a name=\"24\"><span class=\"versanumer_2007\">24<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki f\u00e6ra Drottni neitt d\u00fdr sem vana\u00f0 hefur veri\u00f0 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 kremja \u00fea\u00f0, merja, sl\u00edta e\u00f0a skera. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 hvorki gera \u00fea\u00f0 \u00ed landi ykkar <a name=\"25\"><span class=\"versanumer_2007\">25<\/span><\/a> n\u00e9 taka vi\u00f0 sl\u00edkum d\u00fdrum \u00far hendi \u00fatlendings og f\u00e6ra \u00feau fram sem f\u00e6\u00f0u handa Gu\u00f0i ykkar. \u00deessi d\u00fdr eru sk\u00f6ddu\u00f0, l\u00fdti er \u00e1 \u00feeim. \u00deau veita ekki vel\u00fe\u00f3knun.\u201c<br \/> <a name=\"26\"><span class=\"versanumer_2007\">26<\/span><\/a> Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<br \/> <a name=\"27\"><span class=\"versanumer_2007\">27<\/span><\/a> \u201e\u00deegar nautk\u00e1lfur, lamb e\u00f0a ki\u00f0lingur f\u00e6\u00f0ist skal \u00fea\u00f0 ganga undir m\u00f3\u00f0urinni \u00ed sj\u00f6 daga. Fr\u00e1 og me\u00f0 \u00e1ttunda degi ver\u00f0ur teki\u00f0 vi\u00f0 \u00fev\u00ed me\u00f0 vel\u00fe\u00f3knun sem eldf\u00f3rn handa Drottni.<br \/> <a name=\"28\"><span class=\"versanumer_2007\">28<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 hvorki sl\u00e1tra k\u00fa n\u00e9 \u00e1 sama daginn og afkv\u00e6mi hennar.<br \/> <a name=\"29\"><span class=\"versanumer_2007\">29<\/span><\/a> \u00deegar \u00fei\u00f0 f\u00e6ri\u00f0 Drottni sl\u00e1turf\u00f3rn sem \u00feakkarf\u00f3rn skulu\u00f0 \u00fei\u00f0 bera hana \u00feannig fram a\u00f0 h\u00fan afli ykkur vel\u00fe\u00f3knunar. <a name=\"30\"><span class=\"versanumer_2007\">30<\/span><\/a> Hennar skal neytt sama dag og h\u00fan er f\u00e6r\u00f0. \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki leifa neinu af henni til morguns. \u00c9g er Drottinn. <a name=\"31\"><span class=\"versanumer_2007\">31<\/span><\/a> Haldi\u00f0 bo\u00f0 m\u00edn og fari\u00f0 eftir \u00feeim. \u00c9g er Drottinn.<br \/> <a name=\"32\"><span class=\"versanumer_2007\">32<\/span><\/a> \u00dei\u00f0 skulu\u00f0 ekki vanhelga mitt heilaga nafn \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g vil vera helga\u00f0ur \u00e1 me\u00f0al \u00cdsraelsmanna. \u00c9g er Drottinn og helga ykkur, <a name=\"33\"><span class=\"versanumer_2007\">33<\/span><\/a> s\u00e1 sem leiddi ykkur \u00fat \u00far Egyptalandi til \u00feess a\u00f0 vera Gu\u00f0 ykkar. \u00c9g er Drottinn.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Helgigjafir 1 Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i: 2 \u201e\u00c1varpa\u00f0u Aron og syni hans og seg\u00f0u \u00feeim a\u00f0 me\u00f0h\u00f6ndla me\u00f0 lotningu helgigjafir \u00cdsraelsmanna, sem \u00feeir helga m\u00e9r, svo a\u00f0 \u00feeir vanhelgi ekki mitt heilaga nafn. \u00c9g er Drottinn. 3 Seg\u00f0u vi\u00f0 \u00fe\u00e1: S\u00e9rhver ni\u00f0ja ykkar, kynsl\u00f3\u00f0 eftir kynsl\u00f3\u00f0, sem \u00f3hreinn n\u00e1lgast gjafirnar sem \u00cdsraelsmenn helga Drottni, skal uppr\u00e6ttur og rekinn fr\u00e1 augliti m\u00ednu. \u00c9g er Drottinn. 4 Enginn ni\u00f0ja Arons, sem hefur holdsveiki e\u00f0a \u00fatfer\u00f0, m\u00e1 neyta af helgigj\u00f6funum, sem \u00cdsraelsmenn helga Drottni, fyrr en hann er or\u00f0inn hreinn. Hver sem snertir eitthva\u00f0, sem hefur saurgast af l\u00edki, e\u00f0a snertir <a href=\"https:\/\/biblian.is\/biblian\/thridja-mosebok-22-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar_NT.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1729","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1729","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1729"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1729\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/biblian\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1729"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}